Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Yfír 90% foreldra
skrifuðu undir samning
Vestmannaeyjum - Stofnanir
og fyriitæki gera ýmislegt til
að lífga upp á tilveruna í kring-
um jólin og gleðja þannig
starfsfólk og viðskiptavini.
Flestir eru í hátíðarskapi þessa
daga og því skapast fljótt
jólastemnming þegar bryddað
er á einhverju nýju. Lúðrasveit
Vestmannaeyja lagði sitt af
mörkum til að skapa
jólastemmningu í Eyjum þegar
hún lék fyrir viðskiptavini Is-
landsbanka. Lúðrasveitin kom
sér fyrir í afgreiðslusal bankans
og lék jólalög fyrir starfsfólk
og viðskiptavini, sem kunnu vel
að meta tónlistarflutning
Lúðrasveitarmannanna.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
LÚÐRASVEIT Vestmannaeyja leikur jdlalögin í Islandsbanka í Eyjum.
J ólas temmning
í Islandsbanka
Hveragerði - Ki'aftmikið starf er
unnið á vegum foreldrafélags
Grunnskólans í Hveragerði og hef-
ur félagið iðulega verið í farar-
broddi hvað varðar ýmsar nýjung-
ar í foreldrastarfí. Félagið var til
dæmis eitt af þeim fyrstu sem inn-
leiddi hið svokallaða tenglakerfí en
það felst í því að ákveðnir foreldrar
eru gerðir ábyrgir fyrir foreldra-
stai'fi hverrar bekkjardeildar og
skiptast foreldrarnir á að gegna
þessum hlutverkum. Hefur tengla-
stai-fíð verið einn af hornsteinunum
í starfi félagsins.
Síðastliðinn vetur gekkst félagið
fyiir þeiiTÍ nýbreytni að bjóða for-
eldrum 6 ára bama til sérstaks
námskeiðs sem hafði það að mark-
miði að búa foreldrana betur undir
þá miklu ábyrgð sem fylgir því að
eiga barn í skóla. Nú í vetur má
segja að foreldrafélagið hafí bætt
um betur því að auk námskeiðs fyr-
ir foreldra 6 ára bama hélt félagið
námskeið fyrir foreldra barna í 7.
bekk þar sem höfuðáherslan var
lögð á þær miklu breytingar sem í
vændum era þegar bamið breytist í
ungling. Skemmst er frá því að
segja að þátttaka í námskeiðinu var
góð og mættu foreldrar vel flestra
bama. Námskeiðið tók hluta úr
þremur dögum og var farið yfir
mismunandi þætti í hvert skipti.
Mest áhersla var lögð á fræðslu um
unglingsárin, vímuefni og mikil-
vægi þess að foreldrar styrktu
tengsl sín innbyrðis ítrekuð.
Meðal þeirra sem fluttu erindi
vom Kristinn Kristjánsson, félags-
málastjóri Hveragerðisbæjar, Jón
Hlöðver lögregluþjónn og Sigur-
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
SÍÐASTI dagurinn vai' sameiginlegur með foreldrum og börnum og
er myndin tekin í pitsu-veislu.
laug Kristmundsdóttir sem kynnti
foreldrarölt á Selfossi. Anna Sigur-
björg Sigurðardóttir sálfræðingur
fjallaði um breytt hlutverk foreldra
þegar barnið breytist í ungling og
sr. Ki'istinn Agúst Friðfinnsson
spjallaði vítt og breitt um lífsvið-
horf og verðmætamat. Inn á milli
dagskrárliða fóm þátttakendur
síðan í léttar leikfimisæfingar, tóku
lagið, borðuðu saman eða einfald-
lega notuðu tækifærið og ræddu
ýmis málefni sem brenna á fólki.
Kom skemmtilega
á óvart
Kolbrún Oddsdóttir, úr stjórn
Heimilis og skóla, kynnti foreldra-
samning sem felur í sér að foreldr-
ar lofa að standa við ákveðnar regl-
ur svo sem um útivistartíma, eftir-
litslaus samkvæmi, áfengis- og
vímuefnanotkun og fleira. Mikill
vilji var meðal foreldra að skrifa
undir þennan samning og gerðu
rúmlega 90% foreldra í bekkjunum
það. Er það með bestu þátttöku
sem verið hefur um samninginn og
sýnir vel vilja foreldra til að standa
við bakið á sínum börnum. Að sögn
forráðamanna foreldrafélagsins
kom þessi eindregni vilji foreldra
þeim skemmtilega á óvart en
greinilegt væri að sá hópur for-
eldra sem lætur sig varða málefni
bama sinna væri sífellt að stækka.
Um það vitnuðu þessar undirtekt-
ir.
Ný póstafgreiðsla
í Staðarskála
Hvammstanga - Ný póstafgreiðsla
var opnuð með viðhöfn í Staðar-
skála í Hrútafirði í byrjun janúar.
Um áramótin var formlega lögð
niður afgreiðslan á Brá, en hún
hefur verið starfrækt frá 1951. Þar
áður var pósthús á Borðeyri en
bréfhirðing á Stað fram til 1980.
Póstafgreiðslan í Staðarskála er
rekin sjálfstætt, en heyrir stjórn-
unarlega undir pósthúsið á
Hvammstanga og svo verður
einnig með pósthúsin á Hólmavík
og á Drangsnesi frá síðustu ára-
mótum. Afgreiðslustjóri er Stein-
unn Óskarsdóttir, en stöðvarstjóri
Islandspósts á Hvammstanga er
Magna Ögn Magnúsdóttir.
I máli Kristins Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Staðarskála hf.
lýsti hann ánægju með að pósthús-
ið sé komið að Stað. Minntist hann
á að um langa tíð skipaði Staður
veglegan sess í póstþjónustu á Is-
landi, en þar var miðstöð landpóst-
anna forðum. Á Stað var árið 1993
reist veglegt minnismerki um þann
hluta Islandssögunnar.
Pósthúsið í Staðarskála verður
opið kl. 11-16.30 alla virka daga.
í tilefni þessara tímamóta færðu
Staðarskáli hf. og íslandspóstur hf.
ungmennafélagi sveitarinnar,
Dagsbrán, fallega búninga til notk-
unar í keppni á vegum félagsins.
Aðalheiður Böðvarsdóttir formað-
ur Dagsbránar þakkaði fyrir hönd
félagsins og sagði mikilvægt fyrir
ungmennafélagið að hafa góða bak-
hjarla til eflingar starfinu.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
VIÐSTADDIR formlega opnun póstafgreiðslunnar í Staðarskála. F.v.
Áskell Jónsson, íslandspósti, Kristinn Guðmundsson og Eiríkur Gísla-
son, Stað, Ögn Magna Magnúsdóttir, Pétur Einarsson, íslandspósti,
Steinunn Óskarsdóttir og Hörður Jónsson, íslandspósti.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Margrét Dögg
Guðgeirsdóttir.
Ungmennafélagið Ásinn
á Norður-Héraði
Iþróttamaður
ársins valinn
Vaðbrekka, Jökuldal - Stofnfundur
og uppskeruhátíð Ungmennafélags-
ins Assins á Norður-Héraði voru
haldin í lok síðasta árs. Nýtt ung-
mennafélag, Ásinn, nær yfir Norður-
Hérað og starfar á grunni gömlu
ungmennafélaganna Vísis, Hróars
og Ungmennafélags Jökuldæla.
Eftir stofnfundinn var haldin upp-
skeruhátíð nýja félagsins og m.a. út-
nefndur íþróttamaður ái'sins hjá
Ásnum. Verðlaun fyrir góðan
íþróttaárangur á árinu fengu Jón
Björgvin Vernharðsson og Eiríkur
Þorri Einarsson. Margrét Dögg
Guðgeirsdóttir var útnefnd íþrótta-
maður ársins, sá fyrsti hjá hinu ný-
stofnaða félagi.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs.
ÍS brotinn af byggðalínu á Hallormsstaðarhálsi.
Is brotinn af línum
Egilsstaðir - Starfsmenn Rarik á
Austur-Héraði hafa undanfarna
daga verið að vinna við það að
skoða línur og bijóta af þeim ís
sem safnaðist á þær í vetrar-
áhlaupinu nú á nýja árinu. Lítið
brotnaði af línum en þó fór lína
til Mjóafjarðar og ein lína slitn-
aði í Fellahreppi.
Gjafir til leikskólans Sólvalla í Grundarfirði
Grundarfírði - Leikskólinn Sól-
vellir fékk góðar gjafir frá Kven-
félaginu Gley-mér-ei. Hér er um
að ræða myndbandsupptökuvél
ásamt plöstunarvél, sem er til
þess að setja glært plast utan um
blöð svo þau varðveitist betur.
Myndbandsupptökuvélin verð-
ur notuð til að taka myndir af
börnum í leik og starfi auk þess
sem hún mun nýtast í faglegu
starfi leikskólans.
Leikskólastarf í Grundarfirði
hefur verið við lýði í 22 ár en
þann 4. janúar árið 1977 var leik-
skólinn Sólvellir stofnaður af
Rauðakrossdeildinni í Grundar-
firði með fulltingi sveitarfélags-
ins. Nú starfa 4 leikskólakennar-
ar við Ieikskólann Sólvelli auk tíu
starfsmanna. Nemendur skólans
eru 69 og er það nokkuð hátt
hlutfall miðað við íbúatölu sveit-
arfélagsins.
Morgunblaðið/KVM
FRÁ afhendingu myndbandsupptökuvélarinnar. Olga Aðalsteinsdótt-
ir, formaður kvenfélagsins, Sigríður Herdís Pálsdóttir, leikskólastjóri,
og Hrund Hjartardóttir í styrktar- og úthlutunai'nefnd kvenfélagsins.