Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 1
Ágúst Gylfason kominn á æskuslóðirnar í Fram
Morgunblaðið/Golli
SKRIFAÐ undir samninga í Safamýrinni í gær. Frá vinstri: Ásgeir Elíasson þjálfari, Ágúst Gylfason og Erlendur
Magnússon, formaður leikmannanefndar.
Það er gaman
að koma heim
ÁGÚST Gylfason, sem leikið hefur með norska knattspyrnufélaginu Brann
undanfarin fjögur ár, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Fram -
Fótboltafélag Reykjavíkur hf. Ágúst er þar með fyrsti leikmaðurinn sem
nýtt hlutafélag Framara fær til liðs við sig.
Agúst, sem er 27 ára, lék með Fram í
yngri flokkum en söðlaði um og fór í
Val og lék með þeim í efstu deild 1990-
1994. Þaðan hélt hann í atvinnumennsku
til Noregs, en er nú á heimleið.
„Það er gaman að koma heim, ég hóf
ferilinn hér sjö ára gamall og lék hér
lengi. Ég held að aðstæður hafi breyst til
hins betra síðan ég fór og miklu skiptir að
ég hef einnig fengið góða vinnu,“ sagði
Agúst.
Mörg lið í efstu deild höfðu áhuga á að
fá Ágúst í sínar raðir, en Ágúst segist hafa
taugar til Framara og sér hafi litist vel á
allar aðstæður. „Nú er ætlunin að láta lið-
inu og hlutafélaginu ganga vel og ná ár-
angri, gróði felst ekki í kaupum heldur i
sölu á leikmönnum. Með bættu gengi liðs-
ins aukast möguleikar á slíku og þess
vegna er mikilvægt að liðinu gangi vel frá
byrjun.“
Þótt atvinnumennskunni erlendis sé
lokið í bili segir Ágúst ekki útilokað að
hann eigi eftir að snúa aftur í atvinnu-
mennsku. „Það er allt opið í þeim efnum
og Framarar og ég metum þau mál í sam-
einingu ef til þess kemur."
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, kveðst
mjög ánægður með að fá reynslumikinn
landsliðsmann á miðjuna. „Það var það
sem okkur vantaði, enda var miðjan ekki
nægilega sterk hjá okkur í fyrra. Ágúst
þekkir hvert grjót hérna á malarvellinum
eftir að hafa alist hér upp og er afar
ánægjulegt að sjá hann snúa aftur.“
Ásgeir segir nauðsynlegt fyrir Framara
að styrkja liðið enn frekar fyrir komandi
átök. „Ef við ætlum að verða marktækir í
sumar er Ijóst að við þurfum fleiri sterka
leikmenn, einn varnarmann og einn sókn-
armann.“
Aukið fjármagn er komið í rekstur
knattspyrnuliðs Framara og Ásgeir segir
að nú sé fyrsti þungavigtarmaðurinn kom-
inn. „Við höfum misst marga menn frá því
í fyrra en einnig fengið menn á móti, t.d.
Steinar Guðgeirsson, Omar Sigtrggsson
og Friðrik Þorsteinsson. En við þurfum
aðeins meira, hvort sem það verða ís-
lenskir eða erlendir leikmenn."
Koma Ágústs
rökrétt framhald
ERLENDUR Magnússon, formaður leikmanna-
nefndar Fram - Fótboltafélags Reykjavíkur hf.,
segir að koma Ágústs Gylfasonar í Fram sé rök-
rétt framhald af hlutafjárútboöi félagsins og
ráðningu Ásgeirs Elíassonar og Gústafs Adolfs
Björnssonar sem þjálfara.
„Það er ekkert launungarmál að við hyggjumst
styrkja liðið og höfum unnið eftir því að undan-
förnu. Við höfum átt í viðræðum við ýinsa aðila,
en ekkert er fast í liendi og því ekki tfmabært að
nefna nein nöfn,“ sagði Erlendur.
Samningur Ágústs er til þriggja ára, en Er-
lendur vildi ekki ræða fjárhagsatriöi lians.
„Ágúst er að koma heim úr atvinnuinennsku og
er verðlagður sem slíkur. Það hjálpaði hins vegar
mikið til að hann er uppalinn hér í Fram og hefur
sterkar taugar til félagsins."
Framarar höfðu átt í viðræðum við Kristin Lár-
usson áður en hann ákvað að skipta úr IBV í Val.
Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er ekki
sanikomulag milli Eyjamanna og Valsmanna um
greiðslu fyrir leikmannmn og ekki útséð um þá
deilu. Erlendur segir að Framarar myndu gjarnan
vijja koma þai-na að og taka yflr félagaskiptm.
„Eg held að við gætum leyst það farsællega okkur
til handa,“ sagði Erlendur.
Pippen
fer til
Rockets
SCOTTIE Pippen, sem
leikið hefur með
Chicago Bulls í ellefu
ár, mun klæðast bún-
ingi Houston Rockets
þegar NBA-deildin í
körfuknattleik hefst í
febrúar. Ekki er end-
anlega búið að ganga
frá málinu enda mega
liðin ekki gera það fyrr
en verkbanninu hefur
verið endanlega aflétt,
en það verður gert á
næstu dögum.
Bulls hefur sam-
þykkt að Pippen fari til
Rockets og gerir fimm
ára sanming við Pippen
Tékkinn Sebrle
mætir til leiks
TÉKKNESKI tugþrautarmaðurinn Roman
Sebrle, 24 ára, verður á ineðal keppenda á
Stórinóti ÍR í Laugardalshöllinni á sunnudag-
inn. Hann er fimmti á heimsafrekaskrá alþjóða
fijálsíþróttasambandsins fyrir árið 1998 ineð
8.589 stig. Erki Nool er í þriðja sæti með 8.672
stig og Jón Arnar Magnússon í sjöunda sæti
með 8.573 stig.
Fulltrúi hjá IOC
segir af sér
í GÆR sagði Finninn Pirjo Haggman, fulltrúi í
Alþjóða Ólympíunefndinni, IOC, af sér í fram-
haldi af röð hneykslismála sem komið hafa upp
vegna ákvörðunar IOC að vetrarólympiuleikamir
árið 2002 verða haldnir í Saltsjóstað (Salt Lake
City). Er hún fyrsti fulltrúi nefndarinnar sem
sýpur seyðið af þessu máli, en fúlltrúar nefndar-
innar hafa verið beðnir um að gefa skýrslu til
IOC um samskipti sín við yfirvöld í Saltsjóstað áð-
ur en greidd voru atkvæði hvar leikarnir yrðu.
í stuttri tilkynningu sem Haggman sendi frá
sér var hvergi minnst á hneykslismálin eða sam-
skipti hemiar við undirbúningsnefnd leikanna í
Saltsjóstað. Ákvörðun Haggman kom e.t.y.
ekki á óvart þvf í sfðustu viku sagði bandaríska
dagblaðið New York Times frá því að fyrrver-
andi eiginmaður Ilaggman hefði unnið fyrir und-
irbúningsnefnd leikaima í Saltsjóstað. I framhald-
inu óskaði íþróttamálaráðheira Finnlands, Suvi-
Anne Slimes, eftir upplýsingum frá Haggman um
tengsl hennar við undirbúningsnefndina.
og skipta honum sfðan
fyrir Roy Rogers hjá
Rockets og annan val-
rétt í háskólavalinu á
næsta ári. Samningur-
inn hljóðar uppá um
hálfan milljarð króna
og er til fímm ára og
Pippen mun fá um 72
milljónir króna í laun í
vetur.
HANDKNATTLEIKUR: „NOTA EKKI GSM-SÍMA AÐFERD ÞORBERGS" / B3