Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 3

Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 B 3 IÞROTTIR HANDKNATTLEIKUR Einar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ Nota ekki GSM-símaað- ferð Þorbergs ÞORBERGUR Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV, sagði í viðtali við Morg- unblaðið í gær að Stjarnan væri með meiri breidd og sterkari leikmenn en önnur lið. Hann treysti sér til að stjórna liðinu í gegnum GSM-síma og ná samt árangri. Einar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar, sagði í gær að hann væri stoltur af því að þjálfari eins og Þorbergur hefði þessa skoðun á leikmönnum Stjörnunn- ar, en sagðist hins vegar ekki hafa hugsað sér að stjórna liðinu í gegnum GSM-síma. Hann notaði aðrar aðferðir. Reuters ma ástralska meistaramótinu. Einar sagðist auðvitað vona að Stjarnan næði góðum árangri og það væri vissulega markmiðið. En það væri ekki sjálfgefið. „Lið- in í deildinni eru mjög jöfn og þó svo að okkur hafi gengið vel að undanförnu gefur það ekkert í úr- slitakeppninni. Eg er ekki farinn að hugsa um einhverja titla, enda margir leikir eftir og það getur margt komið upp á hjá liðunum áður en kemur að úrslitakeppn- inni. Okkur var spáð sjötta sæti fyrir mótið en markmiðið hjá okk- ur er að ná einu af fjórum efstu sætunum og tryggja okkur þannig heimaleik í 8-liða úrslitum. Stjarnan hefur aldrei komist lengra en í 8-liða úrslit en nú er stefnan tekin á að komast lengra," sagði Einar. „Við höfum verið að vinna nokkra leiki með einu marki, m.a. gegn Aftureldingu og Fram. Við hefðum alveg eins getað tapað þeim leikjum eða gert jafntefli og þá væri staðan allt önnur í dag. Heppnin fellur yfirleitt þeim megin sem baráttan og sigurviljinn er meiri. Við höfum haft hvort tveggja í undanfórnum leikjum. Það er mik- ið eftir af mótinu og við þurfum að hafa fyi-ir hverjum einasta leik, það kemur ekkert af sjálfu sér.“ Þorbergur segist geta unnið meistaratitilinn með þann mann- skap sem þú hefur og jafnvel notað til þess GSM-síma. Hvað segir þú um það? „Eg skil ekki alveg hvað hann meinar með þessu. Mér dettur helst í hug að hann hafi verið að kaupa sér nýjan GSM-síma og vilji nota hann við sem flest tækifæri. Ég hef átt GSM-síma nokkuð lengi en mér hefur ekki dottið í hug að nota hann á þennan hátt. Það er spurning hvort ég ætti ekki að taka með mér GSM-síma í leiki, en það er kannski erfitt vegna þess að ég er spilandi þjálfari. Ég veit ekki hvar ég ætti að geyma hann ef ég fer inn á. Ég gæti jú látið búa til vasa á stuttbuxurnar til að geyma hann í. Það gæti verið vissara að hafa símann ef ég yrði rekinn útaf með rautt spjald, ég gæti þá notað hann úr stúkunni til að koma skila- boðum á varamannabekkinn eins og sumir!“ Einar segir að það hafi gerst áð- ur að Stjarnan var í toppbaráttunni framan af móti, en missti flugið á lokasprettinum. „Það er því ekki tímabært að gæla við neina titla á þessum tíma. Það er stutt á milli liða á stigatöflunni og það getur því margt gerst enn. Það hafa verið miklar sveiflur hjá mörgum liðum í deildinni, líka okkar. Við byi’juðum illa, töpuðum fyrir HK og einnig fyrir Haukum með tíu marka mun fyrr í vetur. Hins vegar hefur okk- ur tekist að ná meiri stöðugleika í síðustu leikjum og það er mikilvægt að halda því áfram.“ Einar sagði um deildina að hún væri mjög svipuð og í fyrravetur. „Reyndar hafa sveiflur nokkurra liða verið meiri en ég bjóst við. Þar get ég nefnt lið eins og FH, Gróttu/KR og KA. Framarar hafa líka verið í ákveðinni lægð undan- farið og þá aðallega vegna þess að lykilmenn eru meiddir. Ég held að þegar upp verður staðið verði það Afturelding, Fram, Valur og von- andi við sem berjast um meistara- titilinn. Staða Selfyssinga er orðin slæm, en ég held að Grótta/KR eigi eftir að bjarga sér frá falli enda hefur liðið verið óheppið í mörgum leikjum. Það býr mun meira í liðinu en staða þess í deild- inni segir til um. Þá eru lið eins og IR og HK, sem geta unnið hvaða lið sem er í deildinni. Þetta eru lið sem þarf að bera virðingu fyrir. Eyjamenn eru mun ofar en þeim var spáð. Þeir hafa ekki tapað stigi á heimavelli í vetur og er það ótrú- legt. Hin liðin eru farin að hræðast heimavöll IBV og þá er ákveðinn sigur unninn.“ Einar vinnur hjá Gallup, á sama stað og Skúli Gunnsteinsson, þjálf- ari Aftureldingar. Lið þeirra vinnu- félaga eru í tveimur efstu sætunum í deildinni. Yrði það ekki drauma- staða fyrir Einar að mæta Skúla og Aftureldingu í úrslitum um Islands- meistaratitilinn í vor? „Jú, það yrði rosalega gaman iyrir okkur og gæti allt eins orðið. Við gætum þá glímt í vinnunni á daginn og síðan aftur á vellinum á kvöldin. En ég vil taka það fram að það er langur vegur þangað og margt sem þarf að ganga upp svo af því geti orðið,“ sagði Einar. Heil umferð fer fram í 1. deildar- keppninni í kvöld og fær Stjarnan þá Hauka í heimsókn. Bjarki skorar mest BJARKI Sigurðsson, Aftureldingu, hefur skorað flest mörk í 1. deildar- keppninni í handknattleik, eða 116/49 mörk. Sigurður Valur Sveinsson, HK, kemur næstur á blaði með 107/40 mörk, þá Zoltán Belányi, Gróttu/KR með 96/57, Konráð Olavson, Stjörnunni, 92/22, Lars Walther, KA, 91/14, Ragnar Þór Óskarsson, ÍR, 90/19, Guðfinnur Arnar Krist- mannsson, ÍBV, 83/12, Halldór Jóhann Sigfússon, KA, 76/29, Valdimar Fannar Þórsson, Selfossi, 75/33 og Hilmar Þórlindsson, Stjörnunni, 72/19. Guðmundur Hrafnkelsson, Val, hefur varið flest skot, eða 235/6. Gísli Rúnar Guðmundsson, Selfossi, kemur næstur á blaði með 217/6 og síðan koma Birkir ívar Guðmundsson, Stjörnunni, 207/14 og Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV, 203/11. Sebastian Alexandersson, Fram, hefur varið flest vítaköst, sautján. I I í tu di rs ■ð, 16 . í ' í iði ta ar If. íti KORFUKNATTLEIKUR Var sagl upp störfum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi gi-einargerð fi'á Bii’gi Mikaelssyni, körfuknattleiksþjálf- ara: „í tilefni fréttar á íþróttasíðum Morgunblaðsins 13. janúar sl. um þjálfaraskipti hjá Snæfelli vill und- irritaður, Birgir Mikaelsson, taka eftirfarandi fram, þar sem ekki var um sameiginlega fréttatilkynningu stjórnar og þjálfara að ræða: Að mati 0000-141308 er fréttin villandi og gefur ekki rétta mynd af því hvei’nig þjálfaraskiptin bax- að garði, sbr. „Birgir Mikaelsson er hættur störfum sem þjálfari..." svo og setningin: „Petta var ákveðið á fundi stjórnar körfuknattleiks- deildar félagsins með Birgi í gær- kvöldi.“ Hið í’étta er að mér var sagt upp störfum hjá félaginu sem þjálfara og leikmanni, eða réttara að segja að ég hafi vei’ið rekinn frá félaginu, svo notað sé almennara orðalag. Þetta tilkynnti formaður deildar- innar mér eftir stjórnarfund. Ég fékk það verkefni haustið 1997 að þjálfa og leika með 1. deildarliði Snæfells, sem þá hafði verið tvö ár í 1. deild efth’ fimm ára veru í úr- valsdeild þar á undan. Með góðri samvinnu stjórnar, þjálfara og leik- manna og góðum stuðningi heima- manna tókst ætlunai’verkið, þ.e. að komast í hóp hinna bestu, efth’ að hafa sigrað í deild og úrslitakeppni, og það með fullu húsi stiga. A liðnu sumri var þess farið á leit við mig að ég tæki að mér að þjálfa liðið áfram og stíga þar með fyrstu ski’efin með liðinu í úi’valsdeildinni að nýju. Það kom því eins og köld vatnsgusa framan í andlitið á mér, þegar ég fékk tilkynningu um framangreinda ákvörðun stjórnar 12. janúar sl. Þetta gerist þegar deildai’keppnin er hálfnuð (einum leik betur) og árangui’inn 50% í deild, og einungis fimm lið með hæn-a vinningshlutfall og stutt í liðin í 4. og 5. sæti. Að reka meist- araflokk í efstu deild íþróttar eins og köi’fubolta má líkja við útgerð. Það er að sjálfsögðu í höndum stjórnenda útgerðar að ráða skip- stjórann og hann er ekki ósjaldan látinn taka pokann sinn ef hann fiskar ekki, eða hægt er að finna að störfum hans á einhvern hátt. Stjórnin hefur greinilega ekki treyst mér fyrir því vei’kefni að klára vertíðina, það þykir mér mið- ur, en verð hins vegar að taka því. Það er kunnara en frá þurfi að segja að körfuknattleikurinn hefur verið mikilvægur þáttur í íþrótta- og æskulýðsstarfi í Stykkishólmi um langt skeið. Að eiga góðan meistaraflokk hefur mikla þýðingu fyrir bæjarfélag eins og Stykkis- hólm. Það hvetur æskuna til dáða, en að sama skapi er þýðingai-mikið að sinna uppbyggingarstarfinu og haida vel utan um það. Ég átti þess kost að stai’fa á báðum vígstöðvum. Um leið og ég þakka samstarfið þeim fjölmörgu sem ég starfaði með þessi þi’jú missei’i, óska ég köi’fuknattleiksdeildinni í Hólmin- um velfarnaðar í starfi, jafnt í ung- lingastarfinu sem og í starfi meist- araflokks." Birgir Mikaelsson ■ MARCO Negri er til reynslu hjá West Ham þessa viku. Standi hann undir væntingum Harrys Red- knapps, knattspyrnustjóra liðsins, verður miðhei’jinn væntanlega leigður frá Rangers út tímabilið með kaup fyrir tvær milljónir punda í huga að því loknu. ■ NEGRI var keyptur frá Perugia .. fyrh’ 3,6 millj. punda 1997 og gei’ði 32 mörk í skosku úrvalsdeildinni í fyn’a en hefur ekki leikið á yfir- standandi tímabili vegna meiðsla. ■ ROB Jones, bakvörður hjá Liver- pool, stóð sig vel í varaliðsleik í fyrrakvöld og samþykkti í kjölfarið að semja við West Ham, sem hyggst greiða 400.000 pund fyrir þennan fyrrverandi landsliðsmann Eng- lands. ■ MARC-Vivien Foe, miðjumaður hjá Lens í Frakklandi, vill fara frá félaginu og hefur Manchester United fylgst náið með honum, m.a. um helgina, en Alex Ferguson, stjóri United, sagði að engin ákvörðun yrði tekin í skyndi. Það^ varð til þess að Redknapp lét vita af áhuga sínum. ■ FERGUSON var nálægt því að kaupa Foe í fyrra fyrir tvær millj- ónir punda en leikmaðurinn fót- brotnaði og málið var sett í bið- stöðu. ■ FOE, sem er 23 ára Kamerún- maður, þarf ekki að hafa miklar áhyggjur því auk fyrrnefndra liða hafa m.a. Blackbui’n, Tottenham, Sheffield Wednesday og Marseille sýnt áhuga á honum. ■ REDKNAPP hefur sagt að hann vilji fá Ole Gunnar Solskjær í staðinn fyrir John Hartson, sem var seldur til Wimbledon, en Noi’ðmaðuriim er ákveðinn í að vera áfram hjá United og berjast um sæti í liðinu. ■ DWIGHT Yorke og Andy Cole hafa náð vel saman í fremstu röð hjá United en Solskjær sagðist vera tilbúinn þegar á þyi'fti að halda. „Við viljum fagna titlum og þetta er leiðin til þess,“ sagði hann og höfð- aði til bai’áttunnar um sæti og góði’- ar breiddar. „Ef menn vilja verða meistarar með Manchester United vei’ða þeir að vinna sig upp með því að standa sig með vai’aliðinu og það er það sem ég geri.“ ■ ALEX Ferguson sagði að Sol- skjær þyrfti ekki að örvænta og Old Trafford væri rétti staðurinn fyrir hann. „Hann er enn að bæta sig og heldur því áfram hérna.“ ■ DAVID Beckham fór út af um miðjan seinni hálfleik í ágóðaleik Manchester United og Aberdeen í fyrrakvöld. Meiðsl í nái-a tóku sig upp en United vonar að hann vei’ði með í bikarslagnum við Liverpool um helgina. ■ FERGUSON stillti upp sínu besta liði í Aberdeen eins og hann hafði lofað en ágóðinn rann til bún- ingavarðar skoska liðsins sem hefur verið í 44 ár hjá félaginu. ■ RONNY Johnsen skoraði fyrir United en Mike Newell jafnaði fyrir’ heimamenn, sem unnu síðan 7:6 í vítakeppni á troðfullum vellinum. ■ SEAN Dundee, miðherji hjá Li- verpool, hafnaði í gær tilboði frá Strasbourg í Frakklandi. Hann von- ar að hann fái tilboð frá ensku liði. ■ GARY Mabbutt, fyrrverandi fyr- irliði Tottenham, lagði skóna á hill- una í gær eftir að læknar höfðu sagt honum að hann hefði ekki hnéskel sem þyldi átökin. Varnarmaðurinn, sem er sykursjúkur, var skoi-inn upp í sumar og hafði gert sér vonir um að spila í tvö ár til viðbótar með ■*- öðru félagi. ■ MABBUTT, sem er 37 ára og hefur vakið mikla athygli fyrir störf í þágu sykursjúkra, var 16 ár á White Hart Lane, lék 619 leiki með Spurs og gerði 37 mörk. Hann hóf ferilinn með Bristol Rovers 1979 og lék alls 148 bikar- og deildaleiki með liðinu. Þá á vai’narmaðui’inn 16' landsleiki að baki fyrir England.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.