Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 4

Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 4
Tvíburarnir ánægðir hjá Barcelona FOLK ■ EYJÓLFUR Sverrisson hjá Hertha Berlín, hefur fengið tvo nýja samherja. Liðið hefur fest kaup á Ili- ja Araeic, sóknarleikmanni frá Tenn- is Borussia, á 42 millj. ísl. kr. og þá kom Anthony Sanneh frá Washing- ton DC United án greiðslu. ■ SIGFRIED Held, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslands í knatt- spyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari Olympíuliðs Egyptalands og verður það hans hlutverk að koma liðinu á ÓL í Sydney á næsta ári. ■ BANDARÍSKI landsliðsmaðurinn John Harkes er kominn til Notting- ham Forest, þar sem hann verður við æfmgar í tvær vikur. Harkes, sem er 31 árs miðvallarleikniaður, lék á sín- um tíma með Sheff. Wed., er Ron Atkinson var þar knattspyrnustjóri, en að undanfornu hefur hann leikið með Washington DC United. ■ ÞA er varnarmaðurinn Carlton Palmer hjá Southampton genginn til liðs við Forest, en hann lék einnig hjá Sheff. Wed. undir stjórn Atkinson. Kaupverð 1,1 millj. punda. ■ INTER hefur fengið til sín Brasil- íumanninn Gilberto frá Cruzeiro. Gilberto, sem er 22 ára vamarmað- ur, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Inter. ■ ZINEDINE Zidane, knattspymu- maður Evrópu, sem hefur verið meiddur, mun leika með Frakklandi í vináttuleik gegn Marokkó í Marseille í dag. ■ LÍKLEGT byrjunarlið Frakk- lands er þannig: Fabien Barthez - Lilian Thuram, Laurent Blanc, Marcel Desailly, Vincent Candela - Didier Deschamps, Emmanuel Petit, Youri Djorkaeff, Zinedine Zidane - Robert Pires, Florian Maurice. ■ NÝSTÁRLEG aðgerð á hné gæti bjargað knattspyrnuferli 25 ára Pjóðverja, Christian Wueck, en hné- skel hans var tekin af eftir slæm meiðsli árið 1995, en þá fóra liðbönd í hnéi hans mjög illa. Belgískir læknar græddu í gær á hann nýja hnéskel og ýmsa vefi tengda henni úr fimmtug- um inanni sem lést úr hjartaslagi. ■ ÞÝSKI landsliðsþjálfarinn Erich Ribbeck telur að nota eigi tvo dóm- ara á knattspymuleikjum. „Eg hef alltaf talið skynsamlegt að hafa tvo dómara. Ástæðan? Fyrst og fremst sú að þegar einn dómari er virðist hann alltaf vera þar sem minnst er um að vera á vellinum, í kringum miðlínuna. Hann er sjaldnast inni í vítateig þar sem allt gerist,“ sagði Ribbeck. Teitur Pórðarson, landsliðsþjálf- ari Eistlands, var allt annað en ánægður eftir 7:0 tap fyrir Israel í þriggja þjóða æfingamóti sem hófst með fyrrnefndum leik í Tel Aviv í — íyrrakvöld. „Pað er ekkert sem af- sakar það að tapa með sjö mörk- um,“ sagði hann við Morgunblaðið. Teitur hefur verið með lið sitt í æfingabúðum á Kýpur í liðlega viku og sagði að ekki hefði staðið til að taka þátt í mótinu enda væra menn ekki í leikæfingu. „Þetta var fyrsti leikur okkar í rúmlega einn og hálf- an mánuð og þessar 11 æfingar sem við höfum haft á Kýpur hafa verið með uppbyggingu fyrir næsta tíma- bil í huga, hlaup og þrekæfingar. Leikir voru ekki á dagskrá á þess- um tíma en Knattspymusamband ísrales lagði hart að okkur að koma og við létum undan. Við gerðum okkur grein fyrir að þetta gæti farið illa og það kom á daginn." Heimamenn skoruðu úr víta- spyrnu eftir stundarfjórðung og bættu öðra marki við skömmu síð- ar. „Við eram ekki það góðir að við getum haldið í við svona lið nema með sterkri vöm og þvi lögðum við áherslu á hana en tvö mörk í byrjun eyðilögðu allt fyrir okkur. Þá urð- um við að sækja meira og fengum tvö mörk á okkur til viðbótar fyrir hlé. Ég breytti um leikaðferð í seinni hálfleik og þá stóðu strák- arnir sig mjög vel, voru í raun klaufar að gera ekki tvö eða þrjú mörk. En í heildina var þetta ótta- legur klaufaskapur og frekar leiðin- legt.“ Mart Poom, markvörður Derby, var ekki með Eistlendingum og sagði Teitur að það hefði haft mikið að segja en væri engin afsökun. „Hann er gífurlega mikilvægur í lið- inu og hópnum en ég er með unga stráka héma og til dæmis voru sjö strákar í byrjunarliðinu tuttugu og eins árs og yngri.“ Israel og Noregur leika í dag og síðan mætast Noregur og Eistland á fóstudag. „Pó einhverja vanti hjá heimamönnum eru þeir með mjög sterkt lið og sama er að segja um Noreg. Þar vantar ekki nema örfáa menn frá Englandi. Ronny Johnsen hjá Manchester United er til dæmis ekki með Norðmönnunum en mér er sagt að Ole Gunnar Solskjær, samherji hans hjá United, komi fyr- ir leikinn á móti okkur.“ Teitur sagði að 20 til 25 stiga hiti hefði verið á Kýpur síðan hópurinn kom þangað en um 40 mínútna flug væri þaðan til Tel Aviv þar sem væri 15 stiga hiti. ,Aðstæður hérna eru frábærar og ég hef ekki lengi séð leik á eins góðum velli og við spiluðum á þannig að við höfum ekki yfir neinu að kvarta nema úr- slitunum." Gullit sendir forverunum tóninn RUUD Gullit, knattspyrnu- stjóri Newcastle, segir að forverar sínir, Kenny Dalgl- ish og Kevin Keegan, hafí gert sér erfítt fyrir því þeir hafi selt heimsklassamenn og fengið minni spámenn í staðinn sem hann eigi í erf- iðleikum með að koma í verð og sitji því uppi með. Miklar breytingar hafa verið á byrjunarliði Gullits frá einum leik til annars en það hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu íjórum úr- valsdeildarleikjum. Gullit boðaði miklar breytingar þegar hann tók við stjórn- inni en sagði um helgina að ekki væri hlaupið að því að selja menn og slíkt gæti líka valdið sárindum. Einnig hefði stjórnin viljað fara varlega til að byija með því hún hefði stutt fyrrverandi stjóra sem hefðu keypt leikmenn fyrir samtals 90 milljónir punda. Reyndar voru það 97 millj- ónir punda. Keegan keypti fyrir 61 milljón punda og seldi fyrir 21 en Dalglish keypti fyrir 36 milljónir punda og seldi fyrir 26 milljónir punda. Gullit hef- ur keypt tvo leikmenn fyrir samtals 12 milljónir punda, Duncan Ferguson og Didier Domi, en selt Stephane Gui- varc’h, David Batty, Steve Watson og Keith Gillespie fyrir samtals 14 milljónir punda. Auk þess vill hann m.a. selja Alessandro Pisto- ne, Andreas Andersson, Di- eter Ilamann og fyrirliðann Rob Lee. TVÍBURARNIR Ronald og Frank de Boer í Barcelonabúningnum á sinni fyrstu æfingu. Reuters Hollensku tvíburarnir Frank og Ronald de Boer, 28 ára, eru mjög ánægðir með móttökurnar sem þeir hafa fengið hjá Barcelona og segjast vera hamingjusamir með að vera komnir til liðsins. Pað eru ekki allir ánægðir með komu þeirra - sérstaklega þeir Katalóníumenn sem vilja að sem flestir heimamenn leiki með liðinu, sem er knatt- spyrnuhjarta Katalóníumanna. Þeir telja of marga útlendinga í liðinu, alls sextán. Josep Lluis Nunez, eig- andi Barcelona, vísar slíku á bug og segir komu tvíburanna til liðsins eina stærstu stund þess í tuttugu ár. „Pað hefur tekið okkur tíu mánuði að fá þá hingað frá Ajax. Það er erfitt að finna leikmenn í þeirra gæðaflokki - bæði sem leikmenn og persónur. Ég vona að þeir bræður verði hér hjá okkur þar til þeir ákveða að leggja skóna á hilluna," sagði Nunes. Þeir bræður hitta fyrir sex hol- lenska landsliðsmenn hjá Barcelona, Ruud Hesp, Wilson Bogaede, Mich- ael Reiziger, Philip Cocu, Patrick Kluivert og Boudewijn Zenden. Þjálfarinn Louis van Gaal er hol- lenskur og einnig þrír aðstoðarmenn hans, þar á meðal Ronald Koeman, fyrrverandi leikmaður Barcelona. Peningar fyrir heims- met á HM ALÞJÓÐA suudsambandið, FINA, ætlar að greiða hveij- um þeim sundmanni sem set- ur heimsmet á heimsmeist- aramótinu í 25 metra laug er fram fer í Hong Kong í apríl, eina milljóu króna. Þetta er í fyrsta skipti sein FINA greið- ir sérstaklega fyrir heimsmet á heimsineistaramótuin og er þetta tvímælalaust hvatning til sundmanna um að mæta til mótsins í sem bestri æfingu. Á Evrópunieistaramótinu í 25 metra laug í Sheffield í des- ember sl. var í fyrsta sinn greitt sérstaklega fyrir heims- og Evrópuinet á Evr- ópumeistaramóti. Þótti það skila sér í betri árangri en áð- ur, en alls voru slegin 7 heimsmet og 13 Evrópumet á móthiu. Það mót var haldið af Sundsambandi Evrópu. KNATTSPYRNA Teitur Þórðarson landsliðsþjálfari Eistlands eftir tap í ísrael Óafsakanlegt að tapa með sjö mörkum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.