Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 3
2 C FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
MORGUNB LAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 C 3 *
ÚRSLIT
KANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
Valur - Afturelding 25:28
fþróttahús Vals að HUðarenda, 16. umferð ís-
landsmótsins í handknattleik karla, Nissan-
deildaiinnar, miðvikudaginn 20. janúar 1998.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 4:4, 4:6, 6:6, 8:8,
8:12, 9:12, 11:14, 11:16, 12:17, 14:17, 15:18,
15:22,21:22,21:25,22:26,24:26, 25:27,25:28.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 6/4, Ari Allans-
son 5, Daníel Ragnarsson 4, Júlíus Gunnars-
son 3, Einar Örn Jónsson 3, Freyr
Brynjarsson 1, Theodór Valsson 1, Erlingur
Richardsson 1, Davíð Ólafsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 7/2
(þaraf 3/2 til mótherja), Svanur Baldursson
6 (þaraf 2 til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson
10/1, Savukynas Gintaras 5, Magnús Már
Þórðarson 4, Galkauskas Gintas 3, Sigurður
Sveinsson 3, Jón Andri Finnsson 3/2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 21
(þaraf 8 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Valgeir
Ómarsson.
Áiiorfendur: Um 150.
Grótta/KR - Fram 20:21
íþróttahúsið á Seltjamarnesi:
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 4:4, 4.5, 5:6, 6:6,
6:9, 8:9, 8:10, 10:10, 11:10, 11:11, 14:13,
14:15,15:16,18:16,19:18,19:19, 20:20, 20:21.
Mörk Gróttu/KR: Magnús Magnússon 6,
Armandis Melderis 5, Gylfi Gylfason 3,
Agúst Jóhannsson 2, Zoltán Belánýi 2/1,
Aleksandr Peterson 1, Davíð B. Gíslason 1.
Varin skot: Sigurgeir Höskuldsson 15/1
(þaraf 6 til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur, þaraf fékk Magnús
Magnússon útilokun þegar ein sekúnda var
eftir af leiknum fyrir að slá til Njarðar
Arnasonar.
Mörk Fram: Njörður Árnason 6/3, Andrei
Astaflev 5, Magnús A. Arngrímsson 5,
Björgvin Þór Björgvinsson 2, Guðmundur
Helgi Pálsson 1, Kristján Þorsteinsson 1,
Oleg Titiov 1.
Varin skot: Sebastían Alexandersson 19/1
(þaraf 7/1 tii mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur, þaraf fékk Njörður
Ámason rautt spjald fyrir hefndarbrot þeg-
ar ein sekúnda var eftir af leiknum. Dómar-
ar: Einar Sveinsson og Þorlákur Kjartans-
son.
Áhorfendur: 200.
ÍR - ÍBV 25:24
íþróttahúsið Austurbergi:
Gangur leiksins: 2:1, 2:5, 4:7, 11:7, 13:10,
14:12, 15:15, 18:18, 22:18, 24:19, 24:22,
25:22,25:24.
Mörk ÍR: Ingimundur Ingimundarson 9,
Ragnar Már Helgason 6, Róbert Þór Rafns-
son 5, Finnur Jóhannesson 2, Jóhann Ás-
geirsson 2/2, Erlendur Stefánsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 26 (þar af 6
til mótherja). Hallgrímur Jónasson 1/1.
Utan vallar: 14 mín.
Mörk ÍBV: Guðfinnur Rristmannsson 7,
Valgarð Thorddsen 6/5, Daði Pálsson 4,
Svavar Vignisson 2, Haraldur Hannesson 2,
Gunnar Sigurðsson 1, Davíð Hallgrímsson 1,
Gredreus 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 11
(þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Einar Hjartarson og Ingvar
Reynisson.
Áhorfendur: Um 300.
Stjaman - Haukar 28:25
Iþróttahúsið Ásgarður í Garðabæ:
Gangur leiksins: 2:0, 3:1, 3:5, 4:6, 7:6, 10:9,
10:11,10:13,14:14,18:14,19:17, 22:17, 26:20,
28:23, 28:25.
Mörk Stjörnunnar: Einar Einarsson 7/6,
Rögnvaldur Johnsen 6, Aiiaksandr Sham-
kuts 5, Jón Þórðarson 4, Heiðmar Felixson
3, Arnar Pétursson 2, _Konráð Olavson 1.
Varin skot: Birkir í. Guðmundsson 21/1
(þaraf 8/1 til mótherja).
l'tan vallar: Enginn.
Mörk Hauka: Jón Karl Bjömsson 12/6,
Kjetil Ellertsen 3, Jón Freyr Egilsson 3,
Sigurður Þórðarson 2, Sturia Egilsson 2,
Sigurjón Sigurðsson 1, Halldór Ingólfsson 1,
Einar Gunnarsson 1.
Varin skot: Magnú sSigmundsson 20 (þaraf
7 til mótherja), Jónas Stefnánsson 1/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnarldsson og Gunnar
Viðarsson. Komust ágætlega frá leiknum.
Áhorfendur: Um 500.
FH - HK 24:24
Kaplakriki:
Gangur leiksins: 1:0, 4:2, 7:5, 9:8, 12:9,
15:11,15:13, 18:14, 20:15, 22:17, 23:20, 23:22,
24:22, 24:24.
Mörk FH: Valur Arnarson 5/1, Knútur Sig-
urðsson 4, Guðjón Árnason 4, Guðmundur
Pedersen 4, Gunnar Beinteinsson 3, Hjörtur
Hinriksson 2, Sigurgeir Ægisson 1, Gunnar
Narfi Gunnarsson 1.
Varin skot: Elvar Guðmundsson 11/1 (þar af
þrjú til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk HK: Sigurður Sveinsson 9/1, Óskar
Elvar Óskarsson 5, Alexander Arnarson 4,
Guðjón Hauksson 2, Stefán Freyr Guð-
mundsson 1, Már Þórarinsson 1, Heigi Ara-
son 1, Hjálmar Vilhjálmsson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson 16 (þar af
þrjú til mótherja).
Utan vallar:12 mínútur (Helgi Arason fékk
rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir).
Dómarar: Guðjón L Sigurðsson og Ólafur
Haraldsson. Vora samkvæmir sjálfum sér
og dæmdu hreint óaðfmnanlega.
Áhorfendur: Um 250 manns.
Selfoss - KA 32:27
íþróttahúsið á Selfossi:
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 6:6, 9:10, 12:11,
14:12, 16:14, 16:15,19:17, 22:20, 25:23, 29:24,
31:25, 32:27.
Mörk Selfoss: Valdimar Þórsson 14/7, Ro-
bertas Pauzoulis 6, Atli Marel Vokes 5,
Björgvin Rúnarsson 3, Davíð Guðmundsson
2, Sigurjón Bjarnason 1, Guðmundur Magn-
ússon 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 21 (þar af 9
til mótherja), Jóhann Guðmundsson 4/3.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk KA: Lars Walter 7, Leó Örn Þorleifs-
son 6, Halldór Sigfússon 3, Sævar Árnason
2, Hilmar Bjarnason 2/2, Jóhann G Jóhanns-
son 2, Jónatan Magnússon 2, Svei*rir A.
Björnsson 1, Guðjón Valur Sigurðsson 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson 4.
Utan vallar: KA 8 mín. (Sigtryggur fékk
rautt eftir leik og Árni liðstjóri fékk rautt
fyrir mótmæli á meðan leik stóð).
Áhorfendur: Tæplega 200.
Dómarar: Anton Gylfí Pálsson og Hlynur
Leifsson.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
UMFA 16 12 1 3 432:387 25
STJARNAN 16 11 1 4 397:387 23
FRAM 16 10 0 6 425:393 20
ÍBV 16 8 2 6 377:365 18
VALUR 16 8 1 7 365:349 17
KA 16 8 0 8 412:407 16
HAUKAR 16 7 1 8 434:429 15
ÍR 16 7 1 8 401:423 15
FH 16 6 2 8 394:391 14
HK 16 4 5 7 384:408 13
GRÓTTA/KR 16 2 4 10 384:418 8
SELFOSS 16 3 2 11 380:428 8
Knattspyma
Vináttulandsleikir
Tel Aviv, ísrael:
ísrael - Noregur .................0:1
- Bent Skammelsrud (11. vítasp.) 5.500.
Marseille, Frakklandi:
Frakkland - Marokkó.................
Youri Djorkaeff (47.) 55.000.
Frakkland: Fabien Barthez - Lilian
Thuram, Laurent Blanc (Frank Leboeuf
46.), Marcel Desailly, Vincent Candela - Di-
dier Deschamps (Emmanuel Petit 46.), Ala-
in Boghossian, Zinedine Zidane (Nicolas
Anelka 67.), Youri Djorkaeff - Christophe
Dugarry (Robert Pires 46.), Florian
Maurice.
Ítalía
1. deild:
Feneyjar - Empoli.................3:2
Fabian Valtolina 53, Maniero 76, 90 - Art-
uro Di Napoli 17. - vítas., 37. - vítasp. 7.000.
Rautt spjald: Fabio Bilica (Feneyjum) 37.
Spánn
Bikarkeppnin, Qórða umferð - fyrri leikir:
Athletic Bilbao - Racing Santander ... .2:2
Benidorm - Barcelona .................0:1
• 7.500 áhorfendur sáu Hollendinginn Ron-
ald de Boer opna markareikning sinn fyrir
Barcelona á 88. mín.
Espanyol - Valladolid ................4:2
Real Betis - Mallorca ...............0:1
- Carlos (65.).
Celta Vigo - Deportivo Coruna ........0:1
- Turu Flores (24.).
Levante - Valencia ...................0:3
Real Sociedad - Atletico Madrid ......1:2
• Real Madrid og Villarreal leika í kvöld.
Tennis
Opna ástralska
Einliðaleikur karla, önnur umferð - helstu
úrsht:
Christian Ruud (Noregi) vann 2-Alex
Corretja (Spáni) 3-6 6-3 6-4 6-4
• Sigur Norðmannisns á Corretja vekur
mikla athygli. Ruud hefur aldrei unnið
tennismót á sjö ára keppnisferli sínum, en
Corretja er í öðra sæti á styrkleikalista al-
þjóða tennissambandsins.
14- Mark Phiiippoussis (Ástalíu) vann M.
Chang (Bandar.) 7-6 (7-1) 2-6 6-3 5-7 7-5
9-Richard Krajicek (Hollandi) vann Mariano
Zabaleta (Argentínu) 6-3 6-2 7-5
6- Tim Henman (Bretlandi) vann Sandon
Stolle (Ástralíu) 4-6 7-5 4-6 6-1 6-4
7- Karol Kucera (Slóvakíu) vann Davide
Sanguinetti (Ítalíu) 7-5 6-1 6-4
3-Pat Rafter (Ástralíu) vann Mark Woodfor-
de (Ástralíu) 6-2 6-4 6-4
Einliðaleikur kvenna:
9-Conchita Martinez (Spáni) vann Brie
Rippner (Bandar.) 6-0 6-4
3-Jana Novotna (Tékklandi) vann Henrieta
Nagyova (Slóvakíu) 6-4 2-6 6-3
I- Lindsay Davenport (Bandar.) vann Flor-
encia Labat (Argentínu) 6-2 6-1
15- Natasha Zvereva (H-Rússl.) vann Meilen
Tu (Bandar.) 6-3 7-5
II- Dominique Van Roost (Belgíu) vann
Seda Noorlander (Hollandi) 7-6 (8-6) 6-0
5-Venus Williams (Bandar.) vann Asa Carls-
son (Svíþjóð) 6-2 6-1
í kvöld
KÖRFUKN ATTLEIKU R
Úrvalsdeild kl. 20
Grindavík: UMFG - ÍA
Keflavík: Keflavík - Skallagrímur
Sauðárkrókur: Tindastóll - KFl
Hagaskóli: KR - Snæfell
Strandgata: Haukar - Valur
Hrafh
helja
inga
EYJAMENN hafa ekki riðið feitum hesti frá leikjum sínum á úti-
velli í vetur og það var engin undantekning frá því þegar þeir
heimsóttu ÍR í Breiðholtið í gærkvöldi. ÍR-ingar með Hrafn Mar-
geirsson í miklu stuði í markinu unnu nokkuð sannfærandi, 25:24.
Valur B
Jónatansson
skrifar
IR-ingar hafa verið að sæk.ja í sig
veðrið að undaníomu og sigur
þeirra í gær var staðfesting á því.
Mikil barátta í vöm-
inni vó þungt og Hrafn
flaug á milli stanganna
eins og hi-ægammur.
Það leit þó ekki vel út
hjá ÍR því ÍBV byrjaði betur og
komst í 7:4. Þá tók hinn ungi og efni-
legi Ingimundur Ingimundarson við
aðalhlutverkinu í sókninni, gerði
fimm mörk í röð og öll með þmmu-
skotum. ÍR-ingar breyttu stöðunni í
12:7 og þá höfðu Eyjamenn ekki skor-
að í 12 mínútur, en munurinn í hálf-
leik tvö mörk, 14:12, fyrir ÍR.
Síðari hálfleikur var jafn í byrjun
eða þangað til 12 mínútur voru liðnar
og staðan 18:18. Þá kom góður kafli
hjá IR, en að sama skapi slakur hjá
IBV, sem misnotaði átta sóknir í röð
og flestar þeirra strönduðu á mark-
verðinum Hrafni. Þegar fimm mínút-
ur voru til leiksloka var munurinn
fimm mörk, 24:19, og sigur ÍR blasti
við. Þá léku Eyjamenn vörnina mað-
ur á mann og við það riðlaðist sókn-
arieikur ÍR-inga. Eyjamenn gerðu
fimm af síðustu sex mörkum leiksins
og náðu að minnka muninn í eitt
mai’k áður en yfii- lauk.
Það var fyrst og fremst stórleikur
Hrafns í markinu sem skóp sigur
ÍR-inga. Ingimundur fór einnig mik-
inn og þrumuskot hans vöktu at-
hygli. Ragnar Már Helgason, homa-
maðurinn knái, sýndi skemmtilega
takta. Vörnin var sterk og ljóst að
ÍR-ingar ætla sér í úrslitakeppnina.
Eyjamönnum, sem hafa unnið alla
heimaleikina í vetur, hentar greini-
lega illa að leika á útivelli. Það er
spurning hvort flugferðin upp á land
fari svona illa í leikmenn? Guðfinnur
Kristmannsson var sá eini sem lék
vel og Daði Pálsson átti góða kafla.
Það munaði líka miklu að Sigmar
Þröstur fann sig ekki í markinu.
Hann varði aðeins fjögur skot í síðari
hálfleik og 14 alls.
Selfyssingar sýndu
sparihliðina
Selfyssingar stigu stríðsdans í
íþróttahúsinu á Selfossi í gær-
kvöldi eftir að hafa lagt KA að velli í
i miklum baráttuleik.
Sigurður F. Þessi sigur Selfoss var
Guðmundsson sá fyrsti í langan tíma,
skrifar lokatölur urðu 32:27.
Leikurinn var hnífjafn framan af
en slakar vamir beggja liða gerðu
það að verkum að mikið var skorað í
upphafi leiks og skiptust liðin á um
að hafa forystu en þegar leið á hálf-
leikinn náðu liðin að þétta vamirnar.
Selfyssingar voru ákveðnari í vörn-
inni og uppskám 2-3 marka forystu
sem þeir héidu til loka hálfleiksins.
Seinni hálfleikurinn var ákaflega
kröftugur og á köflum stórskemmti-
legur á að horfa, bæði lið sýndu
mikla baráttu í vörninni en Selfyss-
ingar höfðu þó ávallt frumkvæðið og
KA gekk illa að minnka muninn.
Valdimar Þórsson fór fyrir Selfyss-
ingum í sókninni og á köflum sýndi
pilturinn snilldartakta, hann virtist
geta skorað að vild og KA-mönnum
gekk illa að eiga við fjölbreytt skot
hans og útsjónarsemi. Vörn Selfyss-
inga var ákaflega þétt og ekki
skemmdi fyrir að Gísli markvörður
var í miklum ham og hirti fjöldann
ailan af skotum KA manna, alls varði
Gísli 21 skot og munai' um minna
þegar markvarsla KA var samtals 4
skot allan leikinn.
Eitthvað virtist mótlætið fara illa í
KA menn sem eyddu miklum kröft-
um í að mótmæla dómum. KA menn
hefðu betur eytt kröftum sínum í
leikinn sjálfan því á þessum kafla
náðu Selfyssingar 5 marka forskoti
sem þeir héldu til leiksloka og sigur
þeirra var aldrei í neinni hættu. Það
var helst Lars Walther sem sýndi á
sér sparihliðina og hélt KA á floti á
þessum kafla. Lokatölur eins og áð-
ur sagði 32-27 og sanngjarn sigur
Selfoss á KA var staðreynd.
Sigurjón Bjarnason þjálfari Sei-
foss var að vonum giaður í leikslok.
„Við mættum til leiksins með
breyttu hugarfari, staðráðnir í því að
berjast til síðasta blóðdropa. Við vor-
um vel stemmdh’ enda mikið búið að
leggja rækt við andlegu hliðina nú
síðustu dagana og við höfðum sjálfs-
traust og sigurvilja sem skilar sér
svo sannarlega.“
Eins og áðui’ sagði fór leikurinn illa
í skapið á KA mönnum og til þess að
bæta gráu ofan á svart fékk Sigtrygg-
ur Albertsson markvörður KA rautt
spjald að leik loknum fyrir óprúð-
mannlega framkomu og kjaftbrúk.
Morgunblaðið/Golli
ALIAKSANDR Shamkuts lék vel fyrir Stjörnuna í gær er liðið lagði Hauka. Hér skorar hann
úr hraðaupphlaupi hjá Magnúsi Sigmundssyni.
Mikil gleði í
Garðabæ
ÞAÐ ríkti mikil gleði í Garða-
bænum í gærkvöldi þegar
Stjarnan lagði Hauka 28:25.
Garðbæingar hafa ríka ástæðu
til að vera hreyknir af hand-
boltaliðinu því það hefur sigrað
í sjö leikjum í röð í deildinni og
er í öðru sæti.
Haukar sigi'uðu í fyrri leik liðanna
með tíu marka mun og í gær
höfðu gestirnir þriggja marka for-
ystu, 13:10, er tvær
mínútur voni liðnar af
síðari hálfleik, gerðu
fjögur mörk í röð, tvö
hvorum megin leik-
hlésins. Þá fóru heimamenn heldur
betur í gang og áttu stórgóðan kafla
þar sem liðið gerði átta mörk gegn
einu marki Hauka á tíu mínútna
kafla. Staðan var orðin 18:14 og fátt
sem benti til þess að gestirnir næðu
að stöðva sigurgöngu Stjörnunnar.
Mestur varð munurinn sex mörk,
26:20, og öruggur sigur í höfn þó svo
heimamenn létu minna reynda leik-
Skuli Unnar
Sveinsson
sknfar
menn spila síðustu mínúturnar.
Það má með sanni segja að það
hafi verið sviptingar í leiknum.
Stjai-nan gerði fyrstu tvö mörkin og
komst í 3:1 en gerði síðan ekki mark
í tíu mínútur á meðan Haukar gerðu
fjögur mörk. Síðan liðu rúmar sex
mínútur í næsta mark heimamanna
þannig að liðið gerði aðeins eitt mark
í 16 mínútur og notaði tii þess 11
sóknir. Þá kom Einar þjálfari Ein-
arsson inná, vörninni var breytt úr 5-
1 í fiata vörn og heldur tókst að
halda aftur af Haukum.
Síðari hálfleikur hófst með tveim-
ur mörkum frá Haukum og var sér-
lega glæsilega að því staðið. Boltinn
gekk hratt manna á milli frá vinstri
kanti yfir á þann hægri og aftur til
baka og endaði með því að Jón Karl
Björnsson skoraði úr horninu. Glæsi-
leg sókn, en síðan ekki söguna meir.
Nú var komið að heimamönnum. All-
ar þeirra gerðir virkuðu svo einfald-
ar og allir virtust hafa gríðarlega
gaman af því sem þeir voru að gera -
og þá ganga hlutirnir venjulega upp.
Stjörnumenn sýndu í gær að þeir
geta leikið vel, en lið sem ætlar sér
á toppinn verður helst að leika jafn-
ar en liðið gerði í gærkvöldi, það er
ekki nógu gott að skora aðeins eitt
mark í sextán mínútur, en kaflinn í
síðari háifleik þar sem liðið gerði
níu mörk í jafn mörgum sóknum var
frábær.
Allir áttu ágætis leik hjá Stjöm-
unni en vert er að geta Birkis Ivars
Guðmundssonar markvarðar, Rögn-
valds Johnsen, Einars Einarssonar,
Aliaksandr Shamkuts og ekki síst
Arnars Péturssonar sem lék lengst-
um sem leikstjórnandi og var mjög
traustur í vöminni.
Hjá Haukum stóðu tveir menn
uppúr. Magnús markvörður Sig-
mundsson og hornamaðurinn Jón
Karl Björnsson, sem tók stöðu Þor-
kels Magnússonar, sem var veikur.
Jón Kai-1 er öruggur á vítalínunni,
vai’ traustur í vörninni og fullur
sjálfstrausts í vinstra horninu og
gerði þrjú mörk þaðan, þrjú eftir
hraðaupphlaup og sex úr vítum.
Magnús í leikbann
MAGNÚS A. Magnússon leikmaður
Gróttu/KR var útilokaður þegai’ ein
sekúnda var eftir af viðureiguinni við
Fram og verður í leikbanni í næsta leik
- gegn Haukum í Strandgötu nk. mið-
vikudag. Ástæða útilokunarinnar var sú,
að sögn Hákons Sigurjónssonar, eftir-
litsdómara, að þegar Magnús hugðist
taka frumkast eftir 21. og síðasta mark
Fram hiudraði Njörður Arnason Magn-
ús við það. Njörður hélt utan um Magn-
ús, en sá síðarnefndi sneri hinn af sér en
sló til hans um leið með olnboga. Fyrir
það fékk Magnús útilokun en Njörður,
sem svaraði fyrir sig með því að slá
Magntis, lilaut að lnunum rautt spjald.
Rautt spjald þýðir hins vegar ekki leik-
bann heldur þrjú refsistig.
Hefði ekki gefið frí
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, þjájfari
ÍBV, sagði eftir tapleikinn gegn ÍR í
gærkvöldi að hann hefði ekki vitað það
fyrr en á mánudag að leikurinn ætti að
fara fram í gærkvöldi. Það var búið að
segja okkur það fyrir helgina að leikn-
um liefði verið frestað til næsta laugar-
dags og ætti þá að sýna hann beint í
Sjónvarpinu. Ég gaf því leikniönnum
mínum helgarfrí um síðustu helgi. Þetta
að hann skuli hafa verið settur á aftur
truflaði auðvitað undirbúning okkar fyr-
ir þennan leik. Ég hefði ekki gefið lielg-
aríeyfi og liefði hafið undirbúning fyrir
þennan leik strax á laugardaginn,"
sagði Þorbergur og var óánægður með
vinnubrögð HSÍ, sem hafði óskað eftir
frestun.
Meistaraefni Aftureldingar úr Mosfellsbæ
Kafsigldu
meistarana
AFTURELDING sýndi meistaratakta þegar liðið vildi svo við hafa
á móti Val á Hlíðarenda í gærkvöldi. Meistaraefnin náðu mest
sjö marka forystu, 22:15, skömmu áður en seinni hálfleikur var
hálfnaður, og þriggja marka sigur, 28:15, var í raun of lítill miðað
við muninn á liðunum.
w
Islands- og bikarmeistararmr
gerðu fyrsta markið, en forystan
stóð aðeins yfír í 28 sekúndur. Þeii’
■HBB náðu reyndar að
Steinþór hanga í gestunum og
Guðbjartsson jafnt var á flestum
skrifar tölum upp í 8:8, en þá
urðu kaflaskipti á liðlega fimm mín-
útum. Magnús Már Þórðarson, sem
fór á kostum á línunni, skoraði glæsi-
lega eftir enn eina sendinguna frá
leikstjórnandanum Savukynas Gin-
tavas og Valsmenn misstu varnar-
jaxlinn Erling Richardsson útaf í
tvær mínútui’. í kjölfarið áttu heima-
men lélega sendingu og Sigurður
Sveinsson skoraði með langskoti úr
hraðaupphlaupi. Enn misstu meist-
aramir boltann og eftir að Guð-
mundur Hrafnkelsson hafði varið
vítakast frá Bjarka Sigurðssyni,
besta leikmanni deildarinnar, náði
Bjarki frákastinu, brotið var á hon-
um og Jón Andri Finnsson skoraði
úr vítakasti. Bergsveinn Bergsveins-
son varði úr horni og Magnús Már
skoraði af línu, að þessu sinni eftir
sendingu frá Galkauskas Gintas.
Staðan 12:8 og ljóst hvert stefndi.
Valsmenn voru ótrúlega daprir og
hugmyndasnauðir. Það vai’ eins og
þeim leiddist verkefnið og uppgjöfin
virtist algjör þegar Guðmundur sett-
ist á bekkinn í stöðunni 20:15 og ekki
10 mínútur eftir af seinni hálfleik en
landsliðsmarkvörðurinn lék ekki
meir. Davíð Ólafsson byrjaði illa, var
tekinn útaf og kom ekki aftur inná
fyrr en í vonlausri stöðu undir lokin.
Hins vegar var Júlíus Gunnai’sson
ógnandi í fyrri hálfieik en var skipt
útaf í hálfleik. Daníel Ragnarsson
tók stöðu hans eftir hlé og þurfti
þrjú skot og brottrekstur í tvær mín-
útur til að finna réttu leiðina en gerði
síðan fjögur mörk. Eina ógnunin var
hægra megin þar sem JúKus og
hornamaðurinn Einar Örn Jónsson
náðu ágætlega saman í fyrri hálfleik.
Umræðan er um Stjörnuna þessa
dagana en Afturelding hefur engu að
síður alla burði til að verða meistari.
Hvergi er veikur hlekkur í vörn og
sóknarleikurinn getur verið mjög ag-
aður, öflugur og markviss. Hins veg-
ar er visst veikleikamerki að missa
sjö marka forystu niður í eitt mark.
Kæruleysi var fyrst og fremst um að
kenna en bestu liðum getur reynst
dýrkeypt að missa einbeitinguna.
Barátta á kostnað gæða
Leikmenn Gróttu/KR misstu af
upplögðu tækifæri til þess að
krækja sér í að minnsta kosti eitt
stig út úr viðureign
ívar sinni við Fram á Sel-
Benedíktsson tjamarnesi. Eftir að
skrifar jafnt hafði verið á nær
öllum tölum voru það Framarar sem
náðu að gera síðasta markið 9 sek-
úndum fyi’ir leikslok, lokatölur 21:20.
Þar með er staða Gróttu/KR orðin
erfið í næstneðsta sæti, liðið hefur
átta stig þegar sex umferðir eru eft-
ir, fimm stigum færra en HK, sem er
í næsta sæti fyrir ofan. Fram tryggði
hins vegar stöðu sína í 3. sæti 1.
deildar með stigunum tveimur.
Leikurinn var langt frá þvl að vera
vel leikinn, baráttan var í algleym-
ingi og greinilegt að bæði lið ætluðu
sér ekkert annað en sigur. Eins og
oft áður lék Grótta/KR ákveðna 3-2-
1 vörn sem leikmenn Fram áttu í
mesta basli með að finna leiðir fram-
hjá. Hinum megin vallarins réð
íhaldsemin einnig ríkjum í vörn
Fram sem eins og svo oft áður var
flöt 6-0 með Andrei Astafjev og Oleg
Titov sem lykilmenn. Lágvaxnir
sóknarmenn heimamanna áttu fullt í
fangi með að leita leiða framhjá þeim
og félögum. Þetta þýddi að sóknar-
leikur liðanna var afar snubbóttur
lengst af og mistök svo mörg að nær
ómögulegt var að hendur reiður á.
Þegar við bættist að leikmenn fóru
oft illa með kjörin færi svo sem
hraðaupphlaup og dauðafæri af línu
verður að segjast eins og er að það
var mesta furða að mörkin skyldu þó
verða 41. Þá voru markverðir lið-
anna vel með á nótunum, einkum
Sebastían Alexandersson hjá Fram.
Hann var besti leikmaður liðsins.
Jafnt var á með liðum á nær öllum
tölum, fyi’ir utan að Fram náði
þriggja marka forystu um miðjan
íyrri hálfleik, en missti tökin á leikn-
um og hleypti Gróttu/KR inn í leik-
inn á ný. Sama var uppi á teningnum
í síðari hálfleik, liðin fylgdust að og
flausturslegur sóknai’leikur var
áberandi. Sanngjöm úrslit hefðu því
verið jafntefli.
Ófyrirgefanlegur
klaufaskapur FH-inga
gegn FH í Kaplaki-ika í gærkvöldi.
Heimamenn sem
Hörður höfðu haft forystu all-
Magnússon an leikinn þrjú til
skrifar fjögur mörk glopruðu
leiknum niður í jafn-
tefli. „Við lékum illa í fyrri hálfleik
og sérstaklega var vörnin léleg. Við
fórum að berjast í síðari hálfleik og
fundum að FH-ingarnii’ voru að gefa
eftir. Þetta var sanngjarnt og lífs-
nauðsynlegt fyrir okkur og reyndar
líka fyrir FH,“ sagði ánægður Sig-
urður Sveinsson eftir enn einn stór-
leikinn. Sigurður Sveinsson var stór-
kostlegur í þessum leik, var tekinn
úr umferð nánast allan leikinn, en
gerði samt níu mörk og gaf sex línu-
sendingar sem gáfu mörk, þar af
línusendingu á Alexander Arnarson
tíu sekúndum fyrir leikslok er gaf
stigið. FH-ingar réðu ekkert við Sig-
urð og reyndu þeii’ þó margt. Sigurð-
ur er einfaldlega í séi’flokki og það
virðist ekkert lið geta stöðvað hann.
FH leiddi allan tímann og virtist
hafa leikinn í höndum sér. Þrátt fyrir
forystuna var leikur liðsins langt í
frá sannfærandi. Meðalmennskan
var allsráðandi og leikmenn virtust
hafa lítinn áhuga á verkefninu þrátt
fyrir mikilvægi þess. Þegar staðan
var 23:19 og skammt til leiksloka
hrundi leikur FH. Reyndir leikmenn
brugðust, virtust gersamlega búnir
með allt þrek. Stjórnendur FH hefðu
átt að bregðast við og skipta um leik-
menn því þeii’ sem voru inn á voru
óhæfir til að klára leikinn. Kæruleysi
og ótrúlegt vanmat FH á stöðu leiks-
ins hleyptu gestunum inn í leikinn og
tvo síðustu mörkin voru HK-manna.
Auk Sigurðar Sveinssonar var
Hlynur Jóhannesson góður í marki
gestanna og Óskar Elvar Óskarsson
og Alexander Ai’narson voru spræk-
ir og mörk hins síðastnefnda voru
gulls ígildi.
FH-ingar gáfu ekki kost á viðtöl-
um eftir leikinn og var Kristján Ai-a-
son að messa yfir þeim löngu eftir að
leik lauk. Ekki veitir af, staða liðsins
hefur ekki verið verri í deildinni í
mörg ár og aðeins góðm- endasprett-
ur gæti tryggt liðinu sæti í úrslita-
keppninni. Það er töggur í FH-liðinu
og liðið getur oft sýnt frábæran
handbolta en aðeins ef leikmenn, all- -
ir sem einn, leggja sig fram.
■ ZOLTÁN Belátiýi hornamaður *
Gróttu/KR fór sér hægt gegn Fram,
gerði 2 mörk, þar af eitt úr vítaksti.
Hins vegar mislukkaðist honum í
tveimur vítaköstum, en slíkt gerist
ekki hverjum leik. Fyrra kastið varði
Sebastian Alexandersson, mark-
vörður Fram, en hið síðara fór fram-
hjá.
■ OLEG Titov lék allan tímann í
vörn Fram og var sterkur. Einnig
kom hann við sögu í sókninni og
vann m.a. vítakast sem Njörður
Arnason skoraði úr og innsiglaði sig-
urinn.
■ TITOV langaði mjög að taka
vítakast í leiknum og loks var það
látið eftir honum. Vítakastið var hins
vegar alveg mislukkað. Hann reyndi
að vippa yfir Sigurgeir Höskuldsson
markvörð Gróttu/KR en vippan var
laus og Sigurgeir þurfti ekki að hafa
mikið fyrir því að handsama knött-
inn.
■ GUNNAR Berg Viktorsson er
meiddur á vinstri öxl og var aðeins
ráðgjafi hjá Guðmundi Þ. Guð-
mundssyni þjálfara Fram á vara-
mannabekknum.
■ HRAFN Margeirsson, markvörð-
ur ÍR, stóð sig vel í leiknum gegn
ÍBV og varði samtals 26 skot. Hann
fékk tvisvar sinnum skot í andlitið,
fyrst frá Daða Pálssyni úr vinstra
horninu og síðan frá Valgarði
Thoroddsen úr hægra horninu.
Hrafn vankaðist eftii’ fyrra skotið, *
en stóð fljótlega upp aftur og varði
eins og berserkur.
■ RAGNAR Óskarsson hefur yfii’-
leitt verið á meðal markahæstu leik-
manna ÍR, en í gær brá svo við að
hann skoraði ekki mark. Hann skaut
sjö sinnum að marki ÍBV, þar af einu
sinni úr víti, en allt kom fyrir ekki.
(^) AÐALFUNDUR
Knattspymufélags ÍA verður haldinn miðvikudaginn 27. janúar nk.
Fundurinn verður haldinn í aðstöðunni á Jaðarsbökkum og hefst
stundvíslega kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórnin.