Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 3
4-
2 B MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 B 3
HANDKNATTLEIKUR
IÞROTTIR
Atli Hilmarsson, þjálfari KA-liðsins, um markvarðavandræði Akureyrarliðsins
Kastar ekki óreynd-
um markvörðum
út í hringiðuna
ATLI Hilmarsson, þjálfari KA í handknattleik, segir erfitt að kasta
ungum og óreyndum markvörðum út í hringiðuna, allt öðru máli
gegni um útileikmenn - þegar hann var spurður um ummæli Sig-
mars Þrastar Óskarssonar, markvarðar Eyjamanna, í Morgun-
blaðinu í gær um að KA-menn væru að gera mistök með því að
láta ekki hina ungu markverði liðsins standa vaktina - í stað
þess að fá Sigtrygg Albertsson, sem var hættur, í markið.
Sigmar Þröstur sagði m.a. í
viðtalinu: „Mistökin á Akureyri
eru sú að þar hafa menn tekið
ákvörðun um að kalla til eldri mark-
mann [Sigtrygg Albertsson], sem
hættur var í handbolta, í stað þess
að treysta ungu og efnilegu mark-
vörðunum. Ég verð að viðurkenna
að þetta hefur valdið mér miklum
vonbrigðum og það er sárt að hugsa
til þess að þeir treysta ekki ungu
markvörðunum sínum nægilega vel
og kjósa fremur að sækja eldrí
mann af sjónum. Fyrir vikið kemur
upp hallæri hjá þeim. Ég held raun-
ar að þeir séu eina lið deildarinnar
sem sé í hallæri með markmanns-
stöðuna. Það er hins vegar þeim
sjálfum að kenna, þeh' hafa kosið að
tjalda aðeins til einnar nætur og
sækja mann sem ekki er í neinni
leikæfingu.“
„Við lentum í þeirri stöðu þegar
Reynir Þór meiddist að vera með
tvö unga og óreynda markverði,
Hafþór Einarsson, 19 ára, og Hans
Hreinsson 18 ára. Eftir þrjá leiki
mátum við stöðuna þannig að það
myndi styrkja strákana að fá Sig-
trygg í markið,“ sagði Atli í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Þessi
URSLIT
Knattspyma
England
Deildarbikar
Undanúrslit, fyrri leikur:
Sunderland - Leicester...........1:2
Gavin McCann 75. - Tony Cottee 31., 62.
38.332.
■Síðaii leikurinn fer fram 17. febrúar.
2. deild:
Bournemouth - Preston............3:1
Fulham - Oldham..................1:0
Macclesfield - Millwall..........0:2
3. deild:
Peterborough - Hull..............1:1
Ítalía
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Bologna - Juventus...............0:1
Tennis
Opna ástralska
Einliðaleikur karla, átta manna úrslit:
Thomas Enqvist (Svíþjóð) vann Marc
Rosset (Sviss) 6-3 6-4 6-4
Nicolas Lapentti (Ekvador) vann 7-Karol
Kucera (Slóvakíu) 7-6 (7-4) 6-7 (6-8) 6-3 0-6
8-6
Einliðaleikur kvenna, átta manna úrslit:
1-Lindsay Davenport (Bandar.) vann 5-Ven-
us Williams (Bandar.) 6-4 6-0
Amelie Mauresmo (Frakklandi) vann 11-
Dominique Van Roost (Belgíu) 6-3 7-6 (7-3)
í kvöld
HANDKNATTLEIKUIt
1. deild karla:
Austurberg: ÍR - Valur 20
Digranes: HK - Stjarnan 20
Framhús: Fram - UMFA 20
KA-heimili: KA - FH 20.30
Strandg.: Haukar - Grótta/KR 20
Vestm.: ÍBV - Selfoss 20
1. deild kvenna:
KA-heimili: KA - FH 18.30
FELAGSLIF
Þorrablót Víkings
ÞORRABLÓT Víkings verður haldið í Vík-
inni næstkomandi laugardag, 30. janúar,
klukkan 19.30. Miðasala er hafin og í kvöld
frá klukkan 20.30 til 23 verða leikmenn
meistaraflokks í knattspyrnu við miðasölu í
Víkinni.
ráðstöfun gafst vel í upphafi þó svo
ekki bafi gengið vel hjá okkur eftir
áramótin. Sigtryggur hefur reynslu
og það er gott fyrir yngri markverði
að hafa einhvern með reynslu með
sér. Hann kemst ekki í alla leiki
þannig að þeir fá sín tækifæri.
Mér fínnst það nokkuð harkalegt
að kasta markverði út í heilt mót
sem hefur ef til vill leikið einn
meistaraflokksleik áður. Auðvitað
er gott að geta gefíð ungum leik-
mönnum tækifæri á að spreyta sig,
en ekki með þannig hætti. Það er
allt annað með útileikmenn því það
er hægt að setja þá inná í smátíma í
einu á meðan þeir eru að öðlast
reynslu," sagði Atli.
Ætlum að snúa við blaðinu
Atli var spurður um leiki kvölds-
ins í handboltanum. „Leikur okkar
við FH er í raun uppá líf og dauða
íyrir bæði lið. Þau verða helst að
sigra ætli þau sér í úrslitakeppnina.
Við höfum tapað öllum fjórum leikj-
um okkar eftir áramót og nú ætlum
við að snúa við blaðinu."
Um leik Fram og Aftureldingar
sagði Atli: „Þetta verður viðburð-_
aiík vika hjá liðunum því þau mæt-
ast í bikarnum um helgina. Mér
finnst leikmenn Aftureldingar meira
sannfærandi núna - og held þeir
vinni. Bikarleikurinn er hins vegar
ekki eins öruggur, þar getur allt
gerst.
Ég hef trú á að Valsmenn reki af
sér slyðruorðið í kvöld eins og við og
hafí þetur er þeir heimsækja IR.
ÍR-ingar hafa reyndar leikið vel að
undanförnu, en Valur hefur það í
kvöld.
Stjarnan ætti að vera nokkuð
örugg með HK sé mark tekið á töfl-
unni, en HK-menn hafa haft einhver
tök á Garðbæingum og það verður
einnig í kvöld. Eigum við ekki að
segja að þessum leik ljúki með jafn-
tefli.
Haukar vinna Gróttu/KR. Ég segi
samt að Grótta/KR hefur allt of fá
stig miðað við hvernig liðið hefur
leikið 1 vetur. Liðið hefur leikið vel
og á að vera ofar í töflunni, en
heimavöllurinn ræður miklu í kvöld.
Eyjamenn vinna Selfyssinga enda
eru þeir ósigraðir í Eyjum. Reyndar
skilst mér að Selfoss hafí lagt ÍBV í
Suðurlandsmótinu, en það verður
ekki endurtekið í kvöld,“ sagði Atli.
Morgunblaðið/Kristinn
THEÓDÓR Guðfinnsson landsliðsþjálfari segir það staðreynd að himinn og haf skilji að íslenska kvennalands-
liðið og hið rússneska. „Við erum lítil þjóð með stórt hjarta.“
íslensku stúlkumar em
of grannar og smávaxnar
ISLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik tapaði tvívegis fyrir
Rússum í undankeppni HM um
helgina og voru menn ekki sáttir við
frammistöðu íslenska liðsins. Það
tapaði með þrettán marka mun í
fyi'ri leiknum á laugardaginn og átta
marka mun á sunnudag. Liðið á erf-
iða ferð íyrir höndum til Króatíu um
miðjan næsta mánuð og spilar þar
tvo leiki við heimamenn í und-
ankeppninni. Síðast þegar íslenska
liðið lék í Króatíu, fyrir tveimur ár-
um, tapaði það 34:8!
Theódór Guðfinnsson, lands-
liðsþjálfari kvenna, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að hann
væri þokkalega sáttur við
frammistöðu íslenska liðsins gegn
Rússum. Hann var spurður að því í
gær hvort hann væri virkilega
ánægður með þessi tvö stóru töp á
heimavelli, væri metnaðurinn ekki
meiri en raun ber vitni?
Himinn og haf milli liðanna
„Ég er auðvitað aldrei ánægður
með að tapa. Ég get hins vegar ver-
ið sáttur við tap á meðan ég næ því
fram hjá liðinu sem ég lagði upp
með fyi'ir leik. Ef stúlkurnar gera
það sem fyrir þær er lagt er ég
ánægður og það gerðu þær í síðari
leiknum. Það var mikil stemmning
og vilji í liðinu, en það var við ramm-
an reip að draga. Én ég var alls ekki
ánægður með fyrri leikinn, hann var
slakur af okkar hálfu. Þá keyrðu
þær rússnesku yfir okkur með vel
útfærðum hraðaupphlaupum þar
sem við færðum þeim boltann á silf-
urfati oft á tíðum. Við gerðum þá allt
of mörg mistök í sókninni. Það hefði
ekki verið raunhæft að búast við
sigri fyrirfram í þessum leikjum,
enda gerði ég aldrei ráð fyrir því.
Staðreyndin er að það eru himinn og
haf á milli íslenska liðsins og þess
rússneska. Við erum lítil þjóð með
stórt hjarta."
íslenska kvennalandsliðið í handknattleik reið
ekki feitum hesti frá tveimur viðureignum sínum
við rússneska landsiiðið um síðustu helgi. Af því
tilefni ræddi Valur B. Jónatansson við lands-
liðsþjálfarann, Theódór Guðfínnsson, og reyndi
að leita skýringa á getumun liðanna. Það kom
m.a. í ljós að líkamsburðir íslensku stúlknanna
eru ekki nægir tii að þær eigi möguleika á sigri
gegn bestu iandsliðum heims.
Þú breyttir liðinu ekki mikið í
fyrri leiknum þó svo að illa gengi í
fyrri háifieik. Hefði ekki verið nær
að skipta örar inn á milli sóknar og
varnar?
„Það setti mig í svolítinn vanda að
Björk Ægisdóttir gat ekki leikið í
hægra horninu vegna meiðsla. Ég
var ekki með aðra örvhenta og því
lét ég Brynju Steinsen í hornið því
hún getur nánast leikið ahar stöður
á vellinum nema í marki. Ég sá ekki
ástæðu til að skipta nema einum
leikmanni milli sóknar og varnar því
ég var ekki með neina varnarjaxla á
varamannabekknum. Það gekk líka
allt okkur í mót, bæði í sókn og vörn.
Við klúðruðum þremur vítaköstum
og það er of mikið. Það þarf allt að
ganga upp og að auki smáheppni að
fylgja til að eiga möguleika á móti
svona sterku liði. Við höfum ekki
sömu breidd og ekki bætti úr skák
að við misstum tvo sterka leikmenn í
meiðsli auk Bjarkar, þær Auði Her-
mannsdóttur og Höllu Maríu Helga-
dóttur.“
„Rússneska“ aðferðin
Nú kom berlega íljós að líkamleg-
ur styrkur rússneska iiðsins var
mun meiri. Eigum við ekki nægilega
stórar stelpur til að tefla fram?
„Þær rússnesku eru ekki bara
líkamlega sterkari, heldur hafa þær
mun meiri hraða og einnig meiri
tækni. Hafa yfírburði á flestum svið-
um. íslensku landsliðskonurnar eru
of grannar og smávaxnar miðað við
þessar stóru og stæðilegu stúlkur
frá Rússlandi, sem eru sérstaklega
til þess valdar að leika handbolta.
Rússar fara í grunnskólana og leita
að stórum og stæðilegum stúlkum
sem gætu hentað vel í handbolta.
Við þurfum líklega að skoða þessa
„rússnesku“ aðferð hjá okkur til fá
inn stórar stelpur. Þær eru til hér á
landi.“
Þarf aukinn hraða
Nú er ekki nóg að vera með stór-
ar stelpur, því það þarf boltatækni
og gott úthald. Er líka skortur á
þessum þáttum hjá okkar stúlkum?
„Auðvitað þurfa okkar stelpur að
bæta við sig æfingum. Þetta kemur
ekki af sjálfu sér. Það er staðreynd
að þær eru ekki í nógu góðri æfingu
til að eiga eitthvað í bestu hand-
boltalið heims. Hér heima er ekki
nógu mikill hraði í leikjum sem út-
heimtir því ekki eins mikið úthald og
í landsleikjum. Það þarf að auka
hraðann til muna í deildarleikjum til
að stúlkurnar öðlist meira þol.“
Hvað æfa stúlkurnar í landsliðinu
oftíviku?
„Þær æfa fimm til sjö sinnum í
viku með félögum sínum frá því í
ágúst og fram í maí. Auk þess eiga
landsliðskonurnar kost á þrekþjálf-
un í Mætti sér að kostnaðarlausu.
Stúlkurnar geta farið þangað þegar
þær vilja. Sumar hafa gert það mjög
samviskusamlega, en aðrar ekki. Til
að öðlast meiri líkamsstyrk þarf
meira æfingaálag. Við höfum verið
að vinna í því og miðar þokkalega,
en það má gera betur.“
Tekur tíma að byggja upp
Nú hefur þú verið með kvenna-
landsliðið í tæp þrjú ár, hcfur það
sýnt framfarir að þínu mati?
„Já, ég held það. Ég hef lagt á það
áherslu að liðið spilaði skemmtileg-
an handbolta sem fólk hefur áhuga á
að koma og horfa á. Markmiðið er
að gera betur í hverri raun og með-
an það tekst er ég ánægður, en um
leið og það mistekst hætti ég. Liðið
er farið að ráða mun betur við sókn-
arleikinn gegn sterkari liðum og áð-
ur gerði það yfirieitt ekki fleiri en
tíu til fimmtán mörk í leik. Nú eru
þau orðin fleiri og það eitt er
jákvætt. Við erum að reyna að vinna
okkur upp á við, en það tekur
auðvitað langan tíma að byggja upp
gott lið.“
Mér skilst að þið hafíð verið með
þolpróf - mjólkursýi-umælingar -
hjá hindsiiðskonumim. Hvernig
komu þær mælingar út?
„Þær komu misvel út og það vai'
allt of mikill munur á þeim bestu og
hinum. Það er alveg ljóst miðað við
þessar mælingar að margar þeiira
geta bætt verulega við sig. Þær vita
líka af því og eru ákveðnar í að auka
þolið.“
Svolítið öfugsnúið
Er nægilegur áhugi á handknatt-
leik kvenna?
„Það er altént mikill áhugi hjá
ungum stúlkum að æfa og hann hef-
ur aldrei verið meiri. Það mætti al-
veg vera meira áhorf á leiki í efstu
deild. Áhuginn hefur verið bundinn
við úrslitakeppnina í deildinni. Þá
fjölmennir fólk til að sjá spennandi
leiki og hefur haft gaman af. En ég
held að kvenfólkið sé sjálfu sér verst
í þessu. Það mætir ekki nægilega á
deildarleiki til að styðja við bakið á
stöllum sínum. Konur eru oft fyrstar
til að kvarta í stað þess að sýna
frumkvæði sjálfar á þessum sviðum.
Þetta er svolítið öfugsnúið."
Brottfallið
of mikið
Hann sagði brottfallið allt of mik-
ið í kvennaíþróttum og það ætti
einnig við í handboltanum. Stúlk-
urnar hætta flestar þegar þær eru
komnar í þriðja flokk, eða 16 ára.
„Við höfum verið að reyna að sporna
við þessu brottfalli með því að vera
með handboltaskóla um helgar fyrir
yngri stúlkurnar. HSI verður að
reyna að fá félögin í auknum mæli til
að kynna handboltann meira í
grunnskólunum. Það er mikið fram-
boð á íþróttagreinum og öðru fyiir
þessa krakka en það verður líka að
kynna þeim það sem í boði er svo
þau hafi val. Að mínu mati er unnið
geysilega gott starf hjá HSÍ um
þessar mundir varðandi ungar
stúlkur, en það þarf að fylgja því eft-
ir út í félögin líka.
Með sameiginlegu átaki er hægt
að bæta ímynd kvennahandboltans
hér á landi. Ef það tekst er bjart
framundan hjá kvennalandsliðinu.
Nú eigum við fjórar stúlkur sem
leika erlendis, þær Fanneyju Rún-
arsdóttur, Helgu Torfadóttur,
Brynju Steinsen og Hrafnhildi
Skúladóttur. Þær stúlkur sem eru
hér heima og eru tilbúnar að leggja
sig fram sjá að nýir möguleikar hafa
opnast.“
Ú - -...............-..........
Kristinn
undir feld í
Lillehammer
KRISTINN Björnsson skíðamaður er nú í
Lillehammer þar sem hann býr ásamt
unnustu sinni. Hann ætlar að taka sér
hvfld frá skíðunum og slaka á þessa viku,
enda hefiir hann verið með snert af
flensu undanfarna daga. Hann mun liefja
lokaundirbúiúng sinn fyrir heimsmeist-
aramótið í Vail í næstu viku. Þá æfir
hann með norska landsliðinu í Háfjell við
Liilehammer í vikutíma, eða þar til hann
fer tii Bandarikjanna 9. febrúar.
Reiknað er með að sendir verði finun
íslenskir keppendur á HM í alpagreinum,
en Skíðasamband íslands tiikynnir hóp-
inn í dag.
Ellefu taka út
bann gegn SR
SKAUTAFÉLAG Reykjavíkur tryggði sér
sæti í úi-slitakeppni Islandsmótsins í ís-
hokkí með því að vinna stjórsigur á liði
Bjarnarins, sem var með fiinm leikmenn í
ieikbanni, 13:4. SR mætir Skautafélagi
Akui'eyrar á morgun í Laugardal og er
reiknað með að SR vinni þá aftur auðveld-
an sigur, þar sem sex leikmenn SA taka
út leikbann. Þar á meðal þjálfari liðsins,
Ciai'k McCormick, og mesti markaskorar-
inn, Rúnar Rúnarsson. Alls hafa taka ell-
efu leikmenn út leikbann í leikjum gegn
SR.
Stephan
bestur
í Þýskalandi
LESENDUR þýska handknattieiksblaðs-
ins Handballwoche hafa valið þýska
landsliðsmanninn Daniel Stephan, leik-
mann með Lemgo, sem handknattleiks-
mann ársins í Þýskalandi. Stepjian, sem
er 25 ára, fékk 4.365 atkvæði. I öðru sæti
kom Suður-Kóreumaðuriun Kyung-shin
Yoon, Guinmersbach, með 1.317 atkvæði
og í þriðja sæti var Stcphan Kretzschmar,
Magdeburg, ineð 1.085 atkvæði.
DiMaggio frétti um
andlát sitt hjá NBC
JOE DiMaggio, fyrrverandi hafnaboltastjarna, fékk á dögunum
að fara heim af sjúkraluísi eftir að hafa dvalið þar í 99 daga.
Þegar DiMaggio, sem er 84 ára, lét, fara vel um sig fyrir frainan
sjónvarpið á heimili sínu í Flórída heyrði hann frétt af andiáti
sínu hjá NBC-sjónvariisstöðinni. Honum brá að sjálfsögðu og
þegar hann hafði samband við sjónvai-psstöðina koni í ljós að
vegna tæknilegra mistaka hafði fréttin „farið í loftið“ eins og
það er orðað. Fréttamenn NBC höfðu gert frétt um að DiMaggio
væri látinn, enda var búist við því að hann ætti ekki afturkvæmt
af sjúkrahúsinu. Senda átti „fréttina“ til NBC á austurströnd
Bandaríkjanna en þess í stað var henni sjónvarpað.
FRJALSIÞROTTIR
Evrópu-
meistari féll
á lyfjaprófi
Fyrra sýnið sem tekið var af
Evrópumeistaranum í 200 m
hlaupi karla, Bretanum Doug Wal-
ker, reyndist innihalda ólögleg lyf,
en beðið er eftir niðurstöðu úr síð-
ara prófinu. I framhaldi af því
verður tekin ákvörðun um hvort
Walker fer í keppnisbann eður ei.
Ekki hefur enn verið upplýst
hvers kyns efni það voni sem
fundust í sýni Evrópumeistarans,
en mörgum þykii' bresk íþróttayf-
ii*völd hafa staðið klaufalega að
þessu máli. Það hófst í fyrradag er
það var upplýst að breskur
fi’jálsíþróttamaður hefði fallið á
fyrra lyfjaprófi sem af honum
hefði verið tekið eftii' æfingu í vet-
ur. Breska frjálsíþróttasambandið
staðfesti að þessi frétt væri rétt en
beðið yrði með að greina frá nafni
hans þar til niðurstaðan úr síðara
prófinu lægi fyrir. Þessi vinnu-
brögð urðu hins vegar til þess að
breskir fjölmiðlar fundu út
nokknrm klukkutímum síðar
hvaða íþróttamann um var að
ræða.
Walker skaust upp á stjörnu-
himininn í breskum frjálsíþrótta-
heimi í fyrravor þegar hann sló
Evrópumetið í 300 m hlaupi á móti
í Gateshead, hljóp á 31,56 sek.
Nokkru síðar náði hann fjórða
besta tíma Breta í 200 m hlaupi, er
hann hljóp á 20,35. Hápunktur
KNATTSPYRNA
Reuters
DOUG Walker var glaðbeittur
í Búdapest sl. sumar er hann
beit f gullverðlaun sín eftir
sigurinn í 200 m hlaupi.
sumarsins hjá Walker var síðan
Evrópumeistaratitillinn í Búda-
pest 22. ágúst er hann kom fyrstur
í mark í 200 m hlaupi á 20,53 sek.
Brögð í tafli
í Fenevjum
Yfirvöld knattspyrnumála á
Ítalíu eru að kanna hvort
brögð hafi verið í tafli á leik Fen-
eyja og Bari í 1. deildinni sl.
sunnudag. Brasilíumaðurinn Tuta,
sem leikur í fremstu víglínu Fen-
eyjarliðsins og skoraði sigur-
markið í 2:l-sigi"i, segist hafa verið
hvattur til þess af félögum sínum
að reyna ekki um of að skora, held-
ur leika upp á jafntefli.
„[Filippo] Maniero sagði mér að
l:l-jafntefli væri alveg nóg,“ sagði
Tuta í viðtali við Gazzetta deiio
Sport í gær. „Ég var ekki sáttur
við það og þóttist því ekki skilja
það sem hann sagði. Ég vildi skora
og það gerði ég. Hins vegar talaði
ég ekki við neinn eftir leikinn."
Rannsókn knattspyrnusam-
bandsins er önnur sinnar tegundar
á yfirstandandi leiktíð, því fyi'r í
haust dró sambandið tvö stig af
Empoli í refsiskyni fyi'ir tilraun til
að ákveða fyrirfram úrslit í leik
gegn Sampdoria.
FOLK
■ WEST Ham hefur áhuga á að
kaupa Paulo Di Canio frá Shef-
fíeld Wednesday og fóru menn frá
félaginu til Italíu og ræddu við um-
boðsmann Italans um helgina.
Kaupverðið er sagt vera tæpar 200
milljónir íslenskra ki'óna. Harry
Redknapp, knattspyrnustjóri West
Ham, ætlar að nota Di Canio í stað
Johns Hartsons, sem hann seldi til *
Wimbledon á dögunum. Þess má
einnig geta að Ian Wright er
meiddur og Paul Kidson er enn að
jafna sigaf meiðslum.
■ WEST Ham keypti í fyrradag
varnarmanninn Marc-Vivien Foé
frá frönsku meisturunum Lens.
Foé er 23 ára Kamerúnmaður og
kaupverðið á honum var ekki gefið
upp.
■ BLACKBURN reynir þessa
dagana að ganga frá samningi við
fyrirliða liðsins, Tim Sherwood, en
hann neitaði að ganga að tilboði frá
félaginu á dögunum. Það hljóðaði
upp á 2,9 milljónii' ki'óna á viku
hvem.
■ ROY Keane, fyrirliði Manchest-
er United, sagði á dögunum að
hann vildi semja á ný við félagið
sem allra fyrst. Um helgina dró
hann það til baka og sagði að hon-
um lægi ekkert á, nægur tími væri
til að ræða þessa hluti eftir keppn-
istímabilið.
■ FAN Zhiyi, kínverski miðjumað-
urinn hjá Crystal Palace, slapp
með eins leiks bann og 86 þúsund
króna sekt fyrir að lenda í útistöð-
um við Terry Heilbron dómara. 1
Þetta gerðist í leik liðsins við WBA
í nóvember. Niðurstaðan varð sú
að lítil enskukunnátta Kínverjans
hefði verið aðalorsök þess að hann
lenti í útistöðum við dómarann.
■ BOURNEMOUTH, sem leikur í
2. deildinni ensku, hafði betur í
baráttu nokkurra enskra liða um
ástralskan markvörð, Dimitri
Brinias að nafni. Piltur er aðeins
14 ára gamall og í gær var gengið
frá samningi hans og Bourne-
mouth en Wimbledon, Sout-
hampton og Coventry voru einnig
á höttunum eftir honum.
■ MICK McCarthy, þjálfari írska
landsliðsins, hefur sannfært Matt
Holland, miðjumann hjá Ipswich,
um að leika með landsliðinu, en
ekki er langt síðan menn komust
að því að langamma hans var írsk.
■ MIKE Sheron sóknarmaður hjá
QPR, verður væntanlega seldur til
Barnsley á næstunni fyrir eina
milljón punda.
■ CHRIS Waddie, sem var rekinn
sem knattspyrnustjóri frá Burniey
í fyrra, hefur verið boðið að taka
við sem aðstoðarmaður Mick Tait
hjá Hartlepool.
■ ROBBIE Fowler, framherji
enska landsliðsins, skrifaði í gær
undii' fimm ára samning við Liver-
pool. Fowler, sem er 23 ára, hefur
allan sinn knattspyi'nuferil verið í <
herbúðum Liverpool. „Það kom
aldrei annað til greina en vera
áfram á Anfield," sagði Fowler á
fréttamannafundi eftir að hann
skrifaði undir.
■ TONY Cottee var hetja Leicest-
er í gærkvöldi er hann gerði bæði
mörk liðsins í 2:l-sigri á Sunder-
land.
■ MÓNAKÓ hefur keypt Eloi
Henry frá Lens í stað útherjans
Thierry Henry sem félagið seldi til
Juventus í síðustu viku. EIoi hefur
gert sjö mörk fyi'ir Lens á tímabil-
inu.
■ PATRICK Ortlieb, brunkappi
frá Austurrfld sem slasaði sig á æf-
ingu í brunbrautinni í Kitzbiihl í
síðustu viku, lýsti því yfir um helg-
ina að hann myndi ekki snúa aftur í
heimsbikarkeppnina. Hann hefði
þegai' rennt sér niður í keppni í
síðasta sinn.