Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999 ■ FÖSTUDAGUR
TENNIS / OPNA ÁSTRALSKA
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Ekkert spurt um Arnar
Enska 1. deildarliðið Bolton
Wanderers hefur enn ekki feng-
ið neinar formlegar fyrirspurnir i ís-
lenska framherjann og landsliðs-
manninn Arnar Gunnlaugsson, sem
settur var á sölulista að eigin ósk í
síðustu viku.
Fjallað er um málið á opinberri
heimasíðu liðsins á Netinu. Þar
segir m.a.: „Þegar Arnar Gunn-
laugsson var í byrjunarliðinu og
skoraði mörk var uppi orðrómur
um fjölmörg lið í úrvalsdeildinni
sem vildu fá hann í sínar raðir. En
þannig er nú einu sinni fótboltinn,
að nú þegar hann er opinberlega til
sölu hefur Colin Todd [knatt-
spyrnustjóri Bolton] ekki þurft að
lyfta símtólinu einu sinni vegna fyr-
irspurna."
Rætt er við Todd á síðunni og þar
staðfestir hann að enginn hafi haft
samband við sig vegna Arnars. „Ég
hef ekki nokkrar áhyggjur af því.
Ég varð fyrir vonbrigðum þegar
hann óskaði eftir sölu frá félaginu,
en svo lengi sem Amar tilheyrir fé-
laginu lít ég á hann sem mikilvaegan
hlekk í mínu liði,“ segir Todd.
Bolton á enn í viðræðum við
danska úrvalsdeildarliðið Bröndby
um sölu á framherjanum Bo Han-
sen, en talið er að hann myndi kosta
um 120 milljónir króna. Ekki hefur
fengist staðfest verð á Arnari, en
það er þó talið á bilinu 250-360
milljónir króna. Er þar aðallega
miðað við aldur leikmannsins og
hversu mörg mörk hann hefur skor-
að á leiktíðinni.
„Ai-nar er samningsbundinn fé-
laginu. Það var hann sem vildi kom-
ast á sölulistann. Stundum göngum
við of langt, en héðan er ekkert að
frétta og því ekki meira um málið að
segja. Arnar verður áfram leikmað-
ur Bolton Wanderers,“ sagði Todd
ennfremur.
Reuter
AMELIE Mauresmo fagnar sigrinum á Davenport.
NMí
Randers
flautað af
EKKERT verður úr Norð-
urlandamóti félagsliða í
handknattleik, sem átti að
fara fram í Randers í Dan-
mörku 17. til 21. febrúar.
Afturelding hafði tryggt
sér rétt til að leika í mót-
inu, þar sem liðið var efst
að 1. deildarkeppninni
hálfnaðri. Tvö lið frá ís-
landi, Danmörku, Noregi
og Svíþjóð áttu að taka
þátt í mótinu, sem var háð
í fyrsta skipti í fyrra í Sví-
þjóð. Nýkrýndir bikar-
meistarar Islands áttu að
vera annað liðið frá ís-
landi, eða liðið sem tapaði
úrslitaleiknum, ef Aftur-
elding yrði bikarmeistari.
Ástæðan fyrir því að
hætt er við mótið er að
aðalstyrktaraðili þess,
sem hafði ákveðið að
leggja til 17,5 millj. ísl.
kr., hætti við að styrkja
mótið.
„Eins og
að leika á
móti kaii-
manni“
Byrjað á leik
gegn Svíum í
Gautaborg
ÍSLENSKA karlalandsliðið í handknattleik
mætir Svíum í fyrsta leik sinum í heimsbikar-
keppninni í Svíþjóð og Noregi 15. til 20. mars.
Frakkar og Ungveijar leika í A-riðli, en leikið
verður í Gautaborg og nágrenni. B-riðillinn fer
frain í Noregi, þar sem Norðmenn, Þjóðverjar,
Egyptar og heimsmeistarar Rússar leika í
Drammen, Gjögvik og Skedsmo.
Leikur Svía og íslendinga fer fram í
Lisebergs-höllinni í Gautaborg mánudaginn
15._mars. Daginn eftir verða Frakkar mótherj-
ar íslendinga og verður leikið í Arena-höllinni
í Skene og síðan verður leikið gegn Ungverj-
um í Alvhögsborgs-höllinni í
Trollháttan miðvikudaginn
17. mars.
Tvö efstu liðin úr riðlun-
uni komast í undanúrslit,
sein fara fram í Billingehov-
höllinni í Skövde föstudag-
inn 19. mars og úrslitaleik-
urinn og leikurinn um
þriðja sætið fara fram í
Seaiidinavium-höllinni í
Gautaborg laugardaginn
20. mai-s.
FRANSKI táningurinn Amelie Mauresmo, sem er aðeins nítján
ára, kom, sá og sigraði á opna ástralska meistaramótinu í gær er
hún lagði Lindsay Davenport frá Bandaríkjunum að velli í undan-
úrslitum og vann sér rétt til að leika við hina átján ára svissnesku
stúlku Martina Hingis í úrslitum. Hingis stöðvaði sigurgöngu Monicu
Seles og batt þar með enda á óslitna sigurgöngu bandarísku stúlkunn-
ar á mótinu, en Seles hafði sigrað í 34 leikjum í röð í þau níu ár sem hún
hefur keppt í mótinu. Hingis er hins vegar komin í úrslit á mótinu þriðja
árið í röð og á titil að verja, sigraði bæði í fyrra og árið þar áður.
Mauresmo vann Davenport, sem er í fýrsta sæti á heimsstyi-kleikalist-
anum, 2-1 í bráðskemmtilegum leik þar sem gríðarlega erfiðar uppgjafir
hinnar stóru og stæðilegu frönsku stúlku réðu miklu. „Mér fannst eins og ég
væri að leika á móti karlmanni, uppgjafirnar voru svo fastar," sagði Daven-
port eftir tapið.
í úrslitaleiknum í einliðaleik karla leikur Svíinn Thomas Enqvist við sigur-
vegarann í viðureign Yevgeny Kafelnikov, Rússlandi og Tommy Haas,
Þýskalandi.
■ Sigurganga / C3
BLAD
29. JANÚAR
KNATTSPYRNA
Komu KR-
ingar með
vonda veðrið?
VONT veður hefur sett strik í
reikninginn hjá KR-ingunum Sig-
urði Erni Jónssyni og Bjarna
Þorsteinssyni sem dvalið hafa
undanfarnar vikur til reynslu hjá
enska 1. deildarliðinu Watford.
Þeir Sigurður Örn og Bjarni
hafa æft með aðalliði Watford í
þrjár vikur undir stjórn Grahams
Taylors knattspymustjóra og
Kenny Jacketts þjálfara. Afar
slæmt veður hefur geisað á Bret-
landseyjum að undanförnu og fyr-
ir vikið hefur þurft að fresta
mörgum leikjum varaliðsins, en í
þeim stóð til að íslensku varnar-
mennirnir fengju að spreyta sig.
Luther Blisset, þjálfari vara-
liðsins og fyrrverandi leikmaður
liðsins og AC Milan á Italíu, sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki hafa fengið mörg tæki-
færi til að fylgjast með íslensku
leikmönnunum, veðrið hefði sett
strik í reikninginn og varaliðið
hefði aðeins leikið einn leik að
undanfórnu og Sigurður Örn
hefði leikið hann allan. Hann
kvaðst því lítið geta gefið upp um
áhuga félagsins, en sagðist vonast
til að þeir fengju tækifæri í leik
varaliðsins á miðvikudag. Þeir
Sigurður Örn og Bjarni koma
heim til Islands um aðra helgi.
Veður hefur áður reynst þeim
félögum erfitt í Watford, þeir
gátu lítið leikið í æfingaferð þar
fyrir áramót vegna frestunar
margra leikja. Það var því ekki að
undra er fjölmiðlafulltrúi félags-
ins spurði blaðamann Morgun-
blaðsins í gær í gamni hvort ekki
gæti verið að þeir kæmu með
vonda veðrið með sér frá íslandi.
SUND: ÖRN ARNARSON HYGGST SAUMA AÐ ÍSLANDSMETI í LÚXEMBORG / C4