Morgunblaðið - 30.01.1999, Side 4
Gífurlegar sviptingar í spænsku knattspyrnunni þessa dagana
Marki
fagnað
BRASILÍUMAÐURINN Ri-
| valdo er aftur kominn á
ferðina og farinn að
hrella markverði á nýjan
leik. Hér fagnar hann
einu af tólf mörkum sín-
um ásamt Luis Enrique,
sem er byrjaður að leika
á ný með Barcelona eft-
ir langvarandi meiðsli.
Hiddink
fær gula
spjaldið
Lygileg umskipti hafa orðið á leik
Barcelona á síðustu vikum en Real Madrid
á í erfiðleikum í spænsku fyrstu deildinni.
-----------------------
Asgeir Sverrisson segir frá stöðunni í
deildinni fyrir leiki helgarinnar og fullyrð-
ingum um að dagar Guus Hiddink á þjálf-
arastól í Madrid kunni senn að vera taldir.
Gífurleg umskipti hafa orðið í
spænsku fyrstu deildinni í
knattspyrnu á fáeinum dögum. Eftir
skelfilegt gengi fyrir áramót hafa
meistarar Barcelona náð að rétta úr
kútnum og eru í efsta sæti deildar-
innar nú þegar keppnistímabilið er
hálfnað. Kreppuástandið sem ríkti í
Katalóníu heyrir liðinni tíð til en
erkifjendurnir í höfuðborginni, Real
Madrid, sjá tæpast út úr svartnætt-
inu. Deilur era uppi innan leik-
mannahópsins og þjálfara liðsins,
Gus Hiddink, hefur verið tjáð að
honum verði gert að taka pokann
sinn sigrist hann ekki snimmhendis
á erfiðleikunum.
Louis van Gaal, hinn hollenski
þjálfari Bai’celona, Ieyfh' sér nú að
brosa þegar hann kemur fram opin-
berlega en hann hefur átt í miklum
erfiðleikum frá því hann tók við liðinu
fyrir 18 mánuðum þótt árangurinn
hljóti að geta talist viðunandi. Van
Gaal hefur lítillar hylli notið, þykir í
meira lagi „freðinn" og hrokafullur,
auk þess sem aðdáendur liðsins hafa
tekið þunglega kaupum á hollenskum
leikmönnum, enda þjóðemishyggja
djúpstæð á meðal íbúa í Katalóníu.
Hefur forseti sjálfsstjómarinnar í
Katalóníu, Jordi Pujol, m.a. séð
ástæðu til að gera athugasemdir við
þessa þróun. Til marks um hvemig
þjóðernishyggja getur mótað knatt-
spyrnuna á Spáni má nefna að eitt
besta lið Baskalands, Athletic de Bil-
bao, notai- aðeins leikmenn sem fædd-
h- eru í þessu sjálfsstjórnarhéraði.
„Van Gaai-byltingin“
En allt er nú sem orðið nýtt. Eftir
fjóra tapleiki í röð fyrir áramót var
ákaft þrýst á Van Gaal um að segja
starfi sínu lausu. Bauðst hann til að
leggja fram uppsögn sína en forseti
Barcelona neitaði að taka hana til
greina.
■* Van Gaal virðist nú hafa náð góð-
um tökum á leikmannahópnum,
alltjent hefur Barcelona nú unnið
fimm leiki í röð og skorað í þeim
átján mörk en aðeins fengið á sig
fjögur. A Spáni tala menn þessa dag-
ana um að „Van Gaal-byltingin“ sé
tekin að skila árangri. Félagið fékk á
dögunum tvíbm-ana hollensku,
Frank og Ronald de Boer, til liðs við
sig og vh-ðast þeir falla vel að
leikstílnum. „Þetta lið minnir mig á
Ajax-liðið 1995,“ sagði Frank í við-
tölum við spænska fjölmiðla í vik-
unni, en það ár léku þeir bræður
undir stjórn Van Gaal.
Barcelona hefm- og notið þess að
Brasiliumaðurinn Rivaldo er nú á ný
tekinn að sýna snilli sína. Hann er nú
markahæstur í deildinni með tólf
mörk, skoraði tvö um liðna helgi
gegn Real Zaragoza og hann gerði
sömuleiðis tvö mörk er Barcelona
gjörsigraði nýliða Alavés 7-1. Þá
hafa miðjumaðurinn snjalli Pep Gu-
ardiola og framherjinn Luis Enrique
snúið aftur eftir langvarandi meiðsli.
Hollendingurinn Cocu hefur sömu-
leiðis bætt frammistöðu sína veru-
lega eftir að hafa sætt nokkm-ri
gagnrýni. Portúgalski snillingurinn
Louis Figo hefur leikið við hvum
sinn fingur og er án efa einn mikil-
vægasti leikmaður liðsins.
Þótt athygli manna hafi að undan-
fórnu mjög beinst að glæsilegri
frammistöðu Celta og Mallorca
stendur Barcelona efst í deUdinni nú
þegar leiktíðin er hálfnuð. Liðið hef-
ur raunai- hlotið jafnmörg stig og
Celta en hefur betri mai’katölu.
Ljóst er að gífurlega hörð og spenn-
andi barátta er framundan en freist-
andi hlýtur að vera að spá þvi að
Barcelona verji meistaratitilinn. Lið-
ið leikur magnaða knattspyrnu þessa
dagana og almenn ánægja er ríkj-
andi í herbúðum þess. Meistara- og
bikartitill gætu orðið til að lina nokk-
uð þjáningar aðdáenda liðsins sem
enn hafa ekki fyllUega náð sér efth’
að Barcelona datt út úr meistara-
deildinni. Úrslitaleikurinn fer í ár
fram á heimavelli Bai-celona, Camp
Nou, og marga di’eymdi' um að sjá
átrúnaðargoðin í þeim leik á hundrað
ára afmæli félagsins.
Þær fréttir bárust frá Camp Nou í
gær, að bræðurnir Roger og Oscar
Garcia væru á förum frá Barcelona -
Roger, 22 ára, til Mónakó og Oscar,
25 ára, líklega til Chelsea.
Reuters
HOLLENDINGARNIR Clarence Seedorf og Guus Hiddinks,
þjálfari Real Madrid.
Skelfilegur ósigur, ósætti og
hremmingar
Þótt Guus Hiddink, þjálfari Real
Madrid og landi Van Gaal, sé að öllu
jöfnu heldur brosmildari en starfs-
bróðir hans og eigi auðveldara með
að eiga samskipti við fjölmiðla, m.a.
vegna spænskukunnáttu, er ljóst að
hann þarf á öllum þeim stuðningi að
halda sem hann getur mögulega reitt
sig á. Öll spjót standa nú á Hiddink
eftir háðuglegan 4-0-ósigur gegn
Deportivo La Corunya í síðustu um-
ferð. Forráðamenn liðsins og aðdá-
endur voru sem þrumu lostnir er
leikmennirnir, einkum þeir Predrag
Mijatovic og Clarence Seedorf, tóku
að deila hart frammi fyiir um 30.000
áhorfendum á Riazor-leikvanginum í
A Corunya. Spænsk dagblöð birtu
ummæli þau sem þeim fóru á milli og
er óhætt að segja að þau orðaskipti
hafi einkennst af litlum kærleika eða
samstöðu. Leikur liðsins síðasta
sunnudag var gjörsamlega skelfileg-
ur og stóð ekki steinn yfir steini,
hvorki í vörn eða sókn, líkt og
markatalan er til merkis um.
Eftir þennan ósigur er Real Ma-
drid í sjötta sæti deildarinnar og þá
stöðu mála sætta hinir kröfuhörðu
forráðamenn og aðdáendur liðsins
sig ekki við. Raunar er Real Madrid
aðeins þremur stigum á eftir
Barcelona og Celta þannig að því fer
fjairi að unnt sé að afskrifa liðið í
baráttunni um meistai’atitilinn.
Árangurinn hefui’ hins vegar ekki
verið góður. Liðið hefur nú tapað sex
leikjum og fengið á sig þrjátíu mörk.
Hafa aðeins tvö lið í deildinni mátt
hirða boltann oftar úr netinu. Þess
má geta að síðast þegar Real Madrid
varð meistari, 1997, tapaði liðið að-
eins fjórum leikjum.
Spænskir fjölmiðlar greindu frá
því á miðvikudag að Hiddink hefði
verið sýnt gula spjaldið. Dagblaðið
E1 País sagði í frétt að ákveðið hefði
verið að Hiddink yrði ekki með liðið
á næstu leiktíð eins og samningm-
hans mælir fyrir um. Hann myndi
trúlega fá að Ijúka þessu tímabili en
það gæti breyst félli liðið út úr Evr-
ópukeppninni. Dagblaðið E1 Sur full-
yi’ti hins vegar að Hiddink yrði lát-
inn fara tapaðist leikurinn í dag,
laugai’dag, þegar Real Madrid sækir
nýliða Villarreal heim.
Fjölmiðlar greindu ennfremur frá
því að stjórn Real Madrid hefði nú
gengið frá róttækri áætlun um end-
urnýjun liðsins. Leikmenn sem
komnir væru um og yfir þrítugt yrðu
flestir seldir. Ljóst væri að króatíski
landsliðsmaðurinn Davor Suker, sem
varð markakóngur síðasta heims-
Reuters
meistaramóts, myndi fara frá félag-
inu í júní og bærist tilboð í snilling-
inn Predrag Mijatovic yrði það skoð-
að. Christian Karembu myndi snúa
aftur til Frakklands í lok tímabilsins
og trúlega yrði argentínski miðju-
maðurinn Fernando Redondo seld-
m-. Ekki fylgdi sögunni hvort í ráði
væri að selja Fernando HieiTo, einn
snjallasta miðjumann Spánar og
landsliðsmann til margra ára. Verð-
ur það að teljast heldur ólíklegt en
leitun er að leikmanni í hans vigtar-
flokki.
Verði áætlun þessi að vei-uleika er
ljóst að bylting er í vændum hjá Evr-
ópumeisturum Real Madrid. Ekki
verðm’ liðið að félagið standi lengur í
skugga Barcelona og öruggt má
heita að gripið verður til róttækra
ráðstafana. Nú þegar eru uppi radd-
ir um að stjórn félagsins hyggist
leita eftir kröftum Italans Fabio Ca-
pello, sem þjálfaði liðið 1997.
Tilfinningaþrungin atvinnu-
grein
Knattspyrnan á Spáni er tilfinn-
ingaþrungin rétt eins og mannlífið.
Leikmenn, þjálfarar og stjórnarfor-
menn stórliðanna eni undh- lygileg-
um þrýstingi og eru einn daginn
hafnir upp til skýjanna til þess eins
að verða niðurlægðir opinberlega
hinn næsta. Ekki er öllum gefið að
starfa við slíkar aðstæður.
Keppnin í spænsku fyrstu deild-
inni hefur sjaldan eða aldrei verið
jafn spennandi og nú. Þannig skilja
aðeins sex stig að efsta liðið og það
sem er í 10. sæti. Benda má áhuga-
sömum/forföllnum, sem aðgang hafa
að spænska ríkissjónvarpinu, TVE, á
breiðbandinu, á að mörkin úr leikj-
um helgarinnai- eru sýnd í þættinum
Estudio Estadio á sunnudagskvöld-
um um klukkan 21.30.
Þess er tæpast að vænta að höggið
ríði af um helgina hvað Guus Hidd-
ink varðar. Liðið ætti að sigra Villar-
real án teljandi erfiðleika. Verði úr-
slitin önnur í kvöld mun Hollending-
urinn trúlega standa uppi atvinnu-
laus. Louis van Gaal ætti hins vegar
að geta mætt þokkalega rólegur til
leiks er lið hans tekur á móti Racing
Santander á sunnudag. Celta á erfið-
an leik fyrir höndum gegn Deportivo
á útivelli á morgun en Mallorca ætti
að leggja Salamanca að velli í Palma.
t