Morgunblaðið - 04.03.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999
■ FIMMTUDAGUR 4. MARZ
BLAD
íslendingar ekki
með í meistara-
deild Norðurlanda
NORÐMENN og Danir eru að vinna að hug-
myndum í sambandi við „Meistaradeild“ Norð-
urlanda í knattspyrnu, þar sem þrjú til fjögur
bestu lið frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku og
jafnvel Finnlandi taka þátt. Lið frá íslandi eru
ekki inni í þeim hugmyndum. Fyrirhugað er að
mótið fari fram á La Manga á Spáni á tveimur
tímabilum - í nóvember og desember, síðan í
febrúar og mars.
íslenskir knattspyrnumenn verða þó í sviðs-
ljósinu í keppninni, sem hefst í nóvember í ár,
ef að henni verður. Norsku liðin Rosenborg
(Árni Gautur Arason), Molde, Viking (Ríkharð-
ur Daðason, Auðun Helgason) og Stadbæk
(Helgi Sigurðsson og Pétur Hafliði Marteins-
son) verða með í keppninni.
Lands-
leikur
íRiga
FYRIRSJÁANLEGT ‘
er að íslenska lands-
liðið í knattspyrnu
leiki tíu landsleiki á
| árinu. Fyrir utan vin-
áttuleikinn í Lúxem- ,
; borg á miðvikudaginn, :
; leikur liðið tvo aðra .
vináttuleiki, auk sjö
leiki í Evrópukeppni ‘
' landsliða. Búið er að :
■ ákveða vináttuleik
gegn Lettlandi í Riga
31. apríl og þá kemur
' landslið Slóvakíu til
íslands 19. ágúst.
í Leikirnir sjö i Evr- .
ópukeppninni eru í ,
Andoira 27. mars, í
, Úkraínu 31. mars, :
i gegn Armeníu í ;
; Reykjavík 5. júní, í ;
Rússlandi 9. júní, ;
gegn Andorra í
Reykjavík 4. septem-
; ber, gegn Úkraínu í
Reykjavík 8. septem-
ber og í Frakklandi 9. '
október.
Æftí
Barce-
lona
’ LANDSLIÐIÐ í
knattspymu leikur
í tvo landsleiki í sömu ;
1 ferð síðar í þessum
mánuði - í Ándoira
1 laugardaginn 27. '
mars og í Úkraínu
miðvikudaginn 31.
mars. Haldið verður í
einni lotu til Andorra !
24. mars, með við- ;
komu í Amsterdam og ;
Barcelona. Haldið ;
verður frá Andorra í
sunnudaginn 28. mars
- til Barcelona, þar :
: sem landsliðið mun i
æfa tvisvar mánudag- :
■ inn 29. mars. Síðan i
verður haldið frá :
i Barcelona til Úkraínu ;
; og komið til Kiev
þriðjudaginn 30. <
mars. í
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ INNANHÚSS
Morgunblaðið/Hasse Sjögren
VALA Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir verða í eldlínunni á fyrsta keppnisdegi HM í Japan
þegar keppt verður í stangarstökki kvenna.
Guðjón velur
Lúxemborg-
arfara
GUÐJÓN Þórðarson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, hefur val-
ið leikmannahópinn sem mætir
Lúxemborg í vináttulandsleik á
J. Barthel-leikvellinum í Lúx-
emborg á miðvikudaginn kem-
ur. Landsliðshópurinn, sem
kemur saman í Lúxemborg á
mánudaginn, er eingöngu skip-
aður leikmönnum, sem leika
með erlendum liðum. Markverð-
ir eru Birkir Kristinsson,
Bolton, og Árni Gautur Arason,
Rosenborg. Aðrir leikmenn eru:
Rúnar Kristinsson, Lilleström,
Sigurður Jónsson, Dundee Utd.,
Eyjólfur Sverrisson, Hertha
Berlín, Amar Bergmann Gunn-
laugsson, Leicester, Lárus Orri
Sigurðsson, Stoke, Helgi Sig-
urðsson, Stabæk, Ríkharður
Daðason og Auðun Helgason,
Viking, Hermann Hreiðarsson,
Brentford, Brynjar Björn
Gunnarsson, Örgryte, Helgi
Kolviðsson, Mainz, Sverrir
Sverrisson, Malmö FF, Steinar
Adolfsson, Kongsvingen, og
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö.
Möguleikar hjá Völu
og Þóreyju í Japan
VALA Flosadóttir, ÍR, og Þórey
Edda Elísdóttir, FH, hefja keppni
í stangarstökki kvenna á heims-
meistaramótinu innanhúss í
Maebashi í Japan klukkan eitt
eftir miðnætti. Ekki verður und-
ankeppni í stangarstökkinu eins
og oft er á stórmótum heldur
verða bein úrslit. Það þýðir að
keppnin getur tekið nokkra
klukkutíma og verulega mun
reyna á þrek og einbeitingu
keppenda.
Sé litið á árangur keppenda á þessu
ári eiga Vala og Þórey Edda
möguleika á að blanda sér í baráttuna
um verðlaun. Vala á 5. besta árangur
innanhússtímabilsins, 4,40 metra og
Þórey 4,36 metra. Völu hefur hins veg-
ar vantað stöðugleika. Hún er hins
vegar keppnismanneskja mikil og hef-
ur talsverða reynslu af keppni á stór-
mótum sem mun eflaust nýtast henni
vel.
Þórey hefur ekki sömu reynslu og
Vala, en hefur á undanfomum vikum
verið að safna í sarp reynslunnar. Þá
var hún á meðal þátttakenda á Evr-
ópumeistaramótinu innanhúss og utan
í fyrra en í hvoragt skiptið komst hún í
úrslit. Stórstígar framfarir hafa orðið
hjá Þóreyju í vetur, hún hefur bætt sig
um 46 sm og hæst stokkið 4,36. Það er
því freistandi að reikna með að hún
verði í fremstu röð en ómögulegt er að
segja hvaða áhrif spennan og álagið
hafa á hana þegar á hólminn er komið.
Meðal helstu keppninauta Völu og
Þóreyjar er nýbakaður heims- og Evr-
ópumethafi, Nicole Humbert, Þýska-
landi. Eins og Þórey hefur hún tekið
miklum framfórum í vetur. Fyrir tíma-
bilið hafði hún hæst stokkið 4,30 metra
innanhúss, en heimsmetið sem hún setti
í Stokkhólmi fyrir rámri viku er 4,56.
Emma George, Ástralíu, Banda-
ríkjamennirnir Melissa Muller og
Stacy Dragila og Ungverjinn Zsuza
Zsabó verða að teljast líklegastar til að
vera í fremstu röð auk heimsmet-
hafans. Dragila er að vísu nýstigin upp
úr erfiðum meiðslum en mun vera
Nicole Humbert,
Þýskalandi
Heims- og
Evrópumet (1999)
Vala Flosadóttir
Islands- og Noröur-
landamet (1998) ——
Vala Flosadóttir__
Hæst1999
Þórey Edda
Hæst 1999
Stangarstökk
i kvenna,
i innanhúss
4,44
4,40
4,36
bjartsýn. Hún er auk þess heims-
meistari frá því í París fyrir 2 áram.
George hefur verið meidd í öxl síðustu
tvær vikur en telur sig hafa náð nokk-
uð góðum styrk til þess að blanda sér í
baráttuna. Hún hefur verið drottning
þessarar greinar síðustu ár og sett tólf
heimsmet innanhúss og utan. Hum-
bert, George, Zsabó og Muller eiga
allar að geta stokkið yfir 4,50 og því
freistandi að veðja á að einhver þeirra
standi uppi sem sigurvegari.
Ekki er hægt að útiloka að Evrópu-
meistarinn innanhúss og utan, Úkra-
ínumaðurinn Anzhela Balakhonova,
blandi sér í baráttuna hafi hún fengið
bót slæmra bakmeiðsla sem hún varð
fyrir á móti fyrir skömmu.
Stangarstökkskeppnin verðm' án efa
ein athyglisverðasta keppnisgi-ein
heimsmeistaramóteins, því þróunin er
hröð í þessari nýju grein og í fáum
greinum era jafn margir jafnh' kepp-
endur og enginn greinilegur sigm'veg-
ari.
VIGGÓ SIGURDSSON HEFUR GERT HEIDURSMANNASAMKOMULAG VIÐ FH/C3