Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 1
B L A Ð
A L L R A
i-
LANDSMANNA
c
1999
FIMMTUDAGUR 18. MARZ
BLAD
Sex reknir úr IOC
ALÞJÓÐA ólympíunefndin (IOC) lýsti í gær yfir
stuðningi við Juan Antonio Samaranch, forseta
IOC, á aukaþingi í Lausanne í Sviss. Á fundinum
var sex fulltrúum vísað úr nefndinni vegna spill-
Iingar.
Tveggja daga aukaþing IOC var kvatt saman
vegna spillingarmála sem tengjast vetrarleikun-
um í Salt Lake City, sem hefjast. árið 2002.
Samaranch hafði verið hvattur til þess að segja af
sér í kjölfar spillingarmála og ólýðræðislegrar
uppbyggingar IOC, en ákvað að ganga úr skugga
um stuðning nefndarmanna með leynilegri at-
kvæðagreiðslu. 86 af 89 fulltrúum þingsins
studdu hann. Samaranch mun því sitja í embætti
forseta fram á árið 2001.
Á fundinum var sex fulltrúum vísað úr nefnd-
inni fyrir að hafa þegið tugi milljóna íslenskra
króna frá fulltrúum Salt Lake City áður en borg-
in var valin til þess að halda veti’arleikana. Fjórir
Ifulltrúar höfðu áður sagt af sér embætti. Níu full-
trúar voru ávítaðir á fundinum í Lausanne en þrír
hreinsaðir af ásökunum um spillingu.
1
t
j
Birkir
fer til
Eyja
BIRKIR Kristins-
son, landsliðs-
markvörður í
knattspyrnu, mun
leika með ÍBV í
sumar. Hann
staðfesti það í
gærkvöldi í sam-
tali við Morgun-
blaðið. Samning-
ur hans við
Bolton rann út í
gær, þannig að
hann er laus allra
mála við Bolton í
byrjun maí
„Ég hef sett
stefnuna á að
vera kominn
heim í byrjun maí
og mun þá hefja
æfíngar á fullum
krafti með Eyja-
mönnum.
Það verður í
fyrsta skipti sem
Birkir, sem er
fæddur í Eyjum,
leikur í marki
IBV í meistara-
fíokki, en hann
hefur varið mark
Einherja, KA, ÍA
og Fram.
Berg-
sveinn
úr leik?
BERGSVEINN
Bergsveinsson,
markvörður bik-
ar- og deildar-
meistara Aftur-
eldingar í hand-
knattleik, er hugs-
anlega handar-
brotinn. Hann
meiddist á æfingu
og er kominn í
gifs. Það verður
ljóst eftir Iæknis-
skoðun í dag hvað
meiðsli Berg-
sveins eru alvar-
leg - livort að
hann missi af úr-
slitakeppninni?
Afturelding mætir
HK í 8-liða úrslit-
um eftir viku.
Morgunblaðið/Gísli Hjaltason
A krossgötum
„VIÐ erum enn einu sinni komnir að krossgötum..." getur Davíð Sigurðsson, liðsstjóri íslenska landsliðsins verið að hugsa eftir stórtap gegn Frökk-
um. Davíð hefur aðstoðað þrjá landsliðsþjálfara frá 1983 - Bogdan, Þorberg Aðalsteinsson og Þorbjörn Jensson. Hann er reyndasti maður landsliðs-
hópsins, sem er í Svíþjóð, á yfir 400 leiki með hópnum að baki. íslendingar eru úr leik í heimsbikarkeppninni, en leika æfingaleik við Egypta.
Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari eftir sigur gegn Ungverjum í Trollhattan
Mistök að hafa ekki
valið Duranona
Þorbjörn Jensson, þjálfari íslenska
landsliðsins í handknattleik, segir
að miðað við frammistöðu Julians Ró-
berts Duranonas gegn
Björn Ingi Ungverjum í gærkvöldi
Hrafnsson sé ljóst að það hafí verið
skrifar frá mistök að velja hann
Gautaborg ekk; - m(j
gegn Ung-
verjum í undanriðli HM fyrr í vetur. Is-
land sigraði Ungverja 29:22 í lokaleik
riðlakeppni heimsbikarmótsins í gær-
kvöldi og hafnaði í þriðja sæti A-riðils.
Duranona lék skínandi vel gegn Ung-
verjum í gærkvöldi - gerði sjö mörk og
var sterkur-bæði í vörn og sókn og var
fyrir vikið valinn maður leiksins af for-
ráðamönnum keppninnar. I vetur sagði
Þorbjörn hins vegar við Morgunblaðið
að hann hentaði ekki í leikjum gegn
ungverska liðinu. „Mér fannst hann
ekki henta okkur eins og hann var þá,“
segir Þorbjörn. „Duranona lék með
okkur í Sviss og það spurði mig enginn
að því í allri orrahríðinni af hverju við
töpuðum í Sviss með hann í liðinu.“
En voru ekki mistök að velja hann
ekkigegn Ungverjum?
„Við hefðum alveg örugglega unnið
Ungverjana og komist á HM ef hann
hefði leikið eins og hann lék í kvöld. Við
munum hins vegar aldrei komast að því
- slíkur er vandinn við að velja landslið
hverju sinni. Auðvitað læðist að manni
efi - en svarið kemur aldrei. Við notuð-
um Duranona mikið í þessum leik og
hann svaraði með stórleik - varð raunar
þreyttur undir lokin. Ógnun hans skap-
aði hlaupaleið og þar með færi. Það
verður ekkert af honum tekið í dag að
hann nýttist okkur vel í þessum sigri -
var góður,“ sagði Þorbjörn.
Þorbjörn segir frágengið að hann
verði þjálfari landsliðsins áfram - tilbú-
inn til undin-itunar sé tveggja ára
samningur við HSÍ. Hann segist ekki
ætla að taka mið af gagnrýninni undan-
farið - reynsla hans undh- stjórn
Bogdans hafi skapað honum þykkan
skráp og mikið þurfi til að eitthvað
komist inn undir skelina.
En telur hann ekki rétt að bíða eftir
úrslitunum í mikilvægu leikjunum í vor
áður. Verður ekkert erfitt að stjóma
liðinu áfram ef því mistekst ofan í kaup-
ið að tryggja sér sæti á EM?
„Við Guðmundur [Ingvarsson, for-
maður HSI] erum komnir langt í
samningsgerðinni og frá því verður
gengið á næstu dögum. Ég get ekki
séð að þessir leikir séu neitt úrslitaat-
riði í þessu sambandi, upp eru komin
ákveðin kynslóðaskipti í íslenska liðinu
og ég er nokkuð sammála stjórn HSÍ
um þð að það er ekki rétt á þessum
tímamótum að skipta um þjálfara. Þess
vegna hefur stjórn HSÍ beðið mig um
að vera tvö ár í viðbót og ég er mjög
heitur með það.“
KNATTSPYRNA: MIÐVÖRÐUR ÍBV - ZORAN MILJKOVIC í EINS ÁRS BANN / C3
¥