Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ísland - Ungv.land 29:22
Alvhögsborg í Trollhattan, miðvikudaginn
17. mars 1999, A-riðill heimsbikarmótsins í
handknattleik.
0:2, 3:3, 5:4, 9:4, 11:5, 11:7, 11:8, 13:8, 15:9,
15:12,18:14, 22:15, 23:18, 26:19, 27:21, 29:22.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 10/5, Juli-
an Róbert Duranona 7, Ólafur Stefánsson 6,
Dagur Sigurðsson 2, Konráð Olavson 2, Sig-
urður Bjarnason 1, Ai’on Kristjánsson 1.
Varín skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15
(þar af 3 aftur til mótherja).
Utan vallar: 12 mín.
Mörk Ungverjalands: Jozef Éles 6/2, Laszló
Sótonyi 4, Balázs Kertész 3, Gál Gylia 3,
Lászlo Nagy 2, Tamás Bene 2, Ákos Kys 2.
Varin skot: Janos Szathmari 8 (þar af 4 aft-
ur til mótherja).
Utan vallar: 8 mín.
Dómarar: Patrick Hakansson og Maths
Nilsson frá Svíþjóð. Smámunasamir en góð-
ir.
Áhorfendur: 1.450.
Frakkland - Svíþjóð ..............26:26
• Frakkar og Svíar voru með 4 stig óg
komst í undanúrslit, Ungverjaland og ísland
fengu 2 stig.
B-RIÐILL
Rússland - Noregur .............26:26
Þýskaland - Egyptaland..........21:16
• Þýskaland var með 6 stig, Rússland 3,
Egyptaland 3, Noregur 0. Rússland komst
áfram á betri markatölu en Egyptaland.
St. Otmar gefur ekki eftir
ST. Otmar, lið Júlíusar Jónassonar, vann
mikilvægan sigur, 29:25, á heimavelli á gest-
um sínum í Endingen í gærkvöldi og heldur
þar með efsta sæti svissnesku 1. deildarinn-
ar þegar tvær umferðir eru eftir. Hefur St.
Otmar leikið tólf leiki í röð í úrslitakeppni
átta liða án þess að tapa og hefur 22 stig. TV
Suhr, sem komið er að fótum fram fjárhags-
lega heldur sínu striki í humátt á eftir St.
Otmar, hefur 21 stig eftir 23:19 sigur á
Grasshopper. Kadetten er í þriðja sæti með
17 stig, janfmörg og meistarar Pfadi
Winterthur, en með betra markahlutfall.
Bæði liðin unnu leiki sína f gær.
Knattspyma
Reykjavíkurmótið
Fylkir - Víkingur..................2:2
Þórhallur Dan Jóhannesson, Arnaldur Geir
Schram - Sigurður Sighvatsson, Haukur
Úlfarsson.
Deildarbikarkeppnin
FH - Selfoss......................6:0
Meistaradeild Evrópu
MÍIanó, Ítalíu:
Internazionale - Man. United......1:1
Nicola Ventola 63 - Paul Scholes 88. 79.528.
■ Man. United vann samtals 3:1.
Kaiserslautern, Þýskalandi:
Kaiserslautcrn - Baycrn Mtinchen..0:4
Stefan Effenberg 9., víti, Carsten Jancker
22., 39., Mario Basler 56. Rautt spjald: Ja-
nos Hrutka (Kaiserslautern) 8. 31.500.
Bayern Miinchen vann samtals 6:0.
Kænugarði, Úkraínu:
Dynamo Kiev - Rcul Madrid..........2:0
Andriy Shevchenko 62., víti, 79.80.000.
■ Dynamo Kiev vann samtals 3:1.
Aþenu, Grikkiandi:
Olympiakos - Juventus ............1:1
Sinica Gogic 12. - Angelo Di Livio 85.70.000.
■ Juventus vann samtals 3:2.
Holland
Cambuur Leeuwarden - Feyenoord .... 1:5
NAC Breda - RKC Waalwijk ......0:2
Fortuna Sittard - Utrecht......3:2
Danmörk
Herfölge - B93 Kaupm.höfn......0:0
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslitakeppni karla: Keflavík: Keflavík - Haukar... BLAK ...20.30
Úrslitakeppni karla: Ásgarður: Stjarnan - IS ...19.30
Austurberg: Þróttur - KA KNATTSPYRNA ....19.30
Deildarbikarkeppnin: Ásvellir: Fram - Þróttur R ....20.30
Kópav.: Grindavík - Skallag... ....20.30
Leiknisv.: KR - Leiknir R ....20.30
FÉLAGSLÍF
Skagamannakvöld
Meistaraflokkur Knattspyrnufélagsins ÍA
er á leið í æfmgabúðir til Spánar. Til þess að
afla fjár til ferðarinnar heldur flokkurinn
Skagamannakvöld í Víkinni annað kvöld,
föstudagskvöld, kl. 20, í félagsheimili Vík-
ings í Reykjavík, Víkinni. Skagamenn bú-
settir á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til
að mæta. Boðið verður upp á sjávarrétti og
ýmis skemmtiatriði. Veislustjóri verður
Gísli Gíslason, bæjarstjóri, ræðumaður
kvöldsins er Sveinn Kristinsson, forseti bæj-
arstjórnar. Húsið verður opnað kl. 19.30.
Góugleði KR
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá
KR heldur Góukvöld í sal Sjálfstæðisfélags
Seltirninga, Austurströnd 3, laugardaginn
20. mars. Heiðursgestur verður Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Húsið verð-
ur opnað kl. 19.
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjörn Jensson, þjálfari ís-
lenska liðsins, var ánægður með
sigurinn gegn Ungverjum og ekki
síður varnarleik sinna manna. „Pað
sannaðist að með þessu vamarkerfí
eram við ekki árennilegir. Það var
gott að komast að því eftir skellinn
gegn Frökkum," sagði þjálfarinn og
var ekki laust við að honúm væri
létt.
Aðspurður hvort hefði þá ekki ver-
ið betra að leika með framliggjandi
vöm í hinum leikjunum tveimur,
sagði Þorbjöm svo ekki vera. „Ekki
á þessu móti þar sem er leikið þrjá
daga í röð - við hefðum ekki ráðið
við það, enda er afar þreytandi að
leika slíkan vamarleik og tekur mjög
á leikmenn. A hefðbundnum stór-
mótum er hins vegar vel hægt að
beita þessu leikkerfi, því meiri hvfld
gefst á milli leikja og menn geta því
gefíð allan kraft sinn í hvern leik fyr-
ir sig og hvflt þá á eftir.“
Þorbjörn bætti því við að Svíar
væm þekktir fyrir að leysa svona
varnarleik nokkuð auðveldlega og
því hefði jafnframt þurft að beita
öðmm áherslum í þeim leik. Það er
hins vegar ljóst að þessi leikur sýndi
mér margt og nýtist vel í undirbún-
ingnum fyrir næstu leiki. Við lékum
6:0 vörn í gær og hún var algjör
hörmung - því var ekki um annað að
ræða í dag en að setja í fluggírinn og
gefa allt í baráttuna."
RÓBERT Julian Duranona í kunnuglegri stellingu - stekkur hátt í loft upp og skorar eitt af sínum sjö r
Gjörbreyttur varnarleikur skilaði öruggum sigri
Alltaf gott að enda vel
Valdimar Grímsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, var sigurreifur eftir
leikinn. „Nú sýndum við og sönnuð-
um að við getum og kunnum að leika
handknattleik. Þetta var sæt hefnd
fyrir ófarimar gegn Ungverjum í
undankeppni HM - hér sýndum við
að Island er ekki með síðra landslið."
Fyrirliðinn segir að frá upphafi
hafi menn verið ákveðnir í að berjast
á fullu og fyrir vikið hafi Ungverjar
aldrei átt möguleika. „Við breyttum
um vamaraðferð og það skilaði sér
heldur betur, þá fór Guðmundur
[Hrafnkelsson] líka að verja betur í
markinu og við fengum hraðaupp-
hlaupin, sem algjörlega skorti í hin-
um leikjunum."
Þannig að þetta er rétta varnarað-
ferðin fyrir þennan mannskap?
„Já, það er alveg gi-einilegt og
maður hlýtur að velta því fyrir sér
hvernig leikirnir gegn Svium og
Frökkum hefðu farið með svona
varnarleik hjá okkur. Það era komn-
ir nýir menn í vörnina og þeir eiga
kannski auðveldara með að einbeita
sér að sínum manni - alltént gekk
það vel í dag. Fyrst og fremst náðist
núna góð barátta og stemmning í
liðið og það skilaði sér heldur bet-
ur.“
Valdimar segir að fyrir mótið hafi
verið ákveðið að prófa 6:0-varnarleik
með nýjum varnarmönnum. „Það
kom hins vegar í ljós að við ráðum
ekki við hann með þessum mann-
skap. Þess vegna er líka frábært að
sjá að við getum leikið 3:2:1 í stað-
inn.“
Valdimar segir að sú spurning
hafi vissulega átt rétt á sér eftir
Frakkaleikinn hvort íslenska liðið
ætti eitthvert erindi á svo sterkt
mót. „Þess vegna er sætt að svara
því með góðum leik og frábæram
sigri. Við eigum og ætlum okkur að
vera með bestu þjóðum í handknatt-
leik, en tapið gegn Frökkum var
alltof stórt eftir ágæta frammistöðu
gegn Svíum í fyrsta leik. Það er
alltaf gott að enda vel - við náðum
þriðja sætinu í erfiðum riðli og það
er ekki svo slæmt,“ sagði Valdimar.
Réðum ekki
við Dura-
nona og Ólaf
FORRÁÐAMENN ungverska liðsins
voru allt, annað en kátir eftir leik-
inn gegn fslendingum. Eftir frá-
bæra frammistöðu í tveimur leikj-
um gegn Frökkum og Svíum varð
það hlutskipti þeirra að verma
botnsætið í A-riðli heimsbikarmóts-
ins - vegna taps í innbyrðisleik
gegn Islendingum.
Blaðamaður knúði dyra á bún-
ingsklefa Ungveijanna eftir leikinn
og reyndi að fá viðtal við helstu
stjörnu liðsins, Jozef Éles. Hann tók
ekki í mál að ræða við blaðamann -
brást raunar illur við slíkum mála-
leitunum. Því næst var reynt við
þjálfara liðsins, hinn gamalreynda
Sándor Vazz. Hann tók erindi vel
og blaðamaður spurði fyrst á
ensku, svo á þýsku án árangurs.
Blaðamaður er hins vegar ekki
nægilega sleipur í ungversku og því
var brugðið á það ráð að fá aðstoð-
arþjálfarann Sziiárd Kiss til að
svara spurningunum. Hann sam-
þykkti það, sagði að ungverska lið-
ið hefði alls ekki verið búið undir
svo sterkan leik íslenska liðsins.
„Við lékum afar vel gegn Svíum og
Frökkum og því er þetta mikið
áfall,“ sagði Kiss.
Aðstoðarþjálfarinn bætti því við
að Ungverjar hefðu áður náð góð-
um úrslitum gegn íslendingum, en
þeim hefði komið varnarleikur ís-
lendinga í opna skjöldu og gengið
illa sð stöðva sóknarmenn liðsins,
sérstaklega Duranona og Ólaf Stef-
ánsson. „Við réðum ekkert við þá,“
sagði þjálfarinn.
Mjög sa
hefndars
GJÖRBREYTTUR varnarleikur og hárrétt hugarfar var lykillinn að
stórsigri íslenska landsliðsins í handknattleik á því ungverska í
lokaumferð riðlakeppni heimsbikarmótsins í Svíþjóð í gærkvöldi.
íslendingar, sem steinlágu með tíu marka mun fyrir Frökkum á
þriðjudagskvöld, voru óþekkjanlegir í smekkfullri íþróttahöllinni í
Alvhögsborg í Trollhattan og höfðu öruggan sigur, 29:22. Mestu
skipti að Þorbjörn Jensson gjörbreytti varnarleik íslenska liðsins
- skipti úr 6:0 vörn yfir í markvissa píramídavörn (3:2:1) og það
virtist slá ungverska liðið algjörlega út af laginu.
Ljóst var fyrir leikinn að íslend-
ingar ættu ekki möguleika á að
komast í undanúrslit heimsbikar-
mótsins eftir tvo tapleiki
gegn Svíum og Frökkum.
Ungverjar stefndu hins
vegar þangað hraðbyri -
eftir jafntefli gegn sömu
þjóðum. Með heiðurinn að veði
Bjöm Ingi
Hrafnsson
skrifar frá
Gautaborg
mættu íslensku leikmennirnir hins
vegar fullir af baráttu og eldmóði,
gegn liðinu sem eyðilagði drauminn
um verðlaun á HM í Kumamoto og
kom í veg fyrir sæti íslands á HM í
Egyptalandi í sumar. Islensku leik-
mennirnir höfðu þvi allt að vinna -
engu að tapa og það átti eftir að sýna
sig í þessum leik.
Landsliðsþjálfarinn stillti upp sömu
vöminni og gegn Frökkum kvöldið
áður, utan að Guðmundur Hrafnkels-
son var aftur kominn í markið. Skipu-
lag vamarinnar vai- hins vegar allt
annað - betra og árangursríkara og
framliggjandi og ágeng vömin gekk
vasklega út í ungversku leikmennina
og vann knöttinn hvað eftir annað.
Fer ekki á milli mála að hér er komin
vamaraðferð sem hentar íslenska lið-
inu miðað við núverandi mannafla.
Aðeins í byrjun leiks hikstaði ís-
lenska „vélin“, eftir það var aldrei
spurning hvaða lið væri sterkara á
vellinum. Róbert Julian Duranona
fór mikinn - bæði í vörn og sókn og
gerði mörk úr hraðaupphlaupum ut-
an af velli með langskotum og af
línu. Hann „stal“ knettinum einnig
oft í vörninni - enda afar hand-
leggjalangur - og fískaði aukinheld-
ur tvö vítaköst.
Með beti-i varnarleik hrökk mai'k-
varslan einnig í gang. A því fékk
stórskyttan Jozef Éles að kenna
gegn Guðmundi Hrafnkelssyni á
upphafsmínútunum og Guðmundur
átti ágætan leik í íslenska markinu,
sérstaklega í fyrri hálfleik þegar
gi'unnurinn var lagður að hinum
góða sigri.
Jafnt var í stöðunni 3:3 eftir tæp-
lega tíu mínútna leik - eftir það
skildu leiðir og munurinn varð mest-
ur sex mörk í fyrri hálfleik, 11:5.
Ungverjar áttu þó tvö síðustu mörk
hálfleiksins og staðan í leikhléi var
því 11:7 íslenska liðinu í vil.
Þorbjörn þjálfari brýndi sína
menn ákaft til dáða í búningsklefan-
um á hálfleik, því Ungverjar höfðu