Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 4
HANDKNATTLEIKUR
Siggeir Magnússon segir það verða slys missi UMFA frumkvæðið á morgun
Sjáum
bikarínn í
hillingum
„ÞVI miður kemur upp óþarfa bráð-
læti í sóknarleik okkar þar sem
menn leika ekki fyrir heildina held-
ur vilja fara gera allt upp á eigin
spýtur og í hópíþrótt gengur það
ekki,“ sagði Siggeir Magnússon, að-
stoðarþjálfari Aftureldingar. „Eins
er það umhugsunarefni að í vetur
hefur það íylgt okkur að eiga slæma
kafla í leikjum, sundum vara þeir í
stuttan tíma, á milli í lengri tíma og
kemur okkur þá í koll. Lausn á
þessu vandamáli höfum við því mið-
ur ekki fundið enn sem komið er.“
Er þetta ekki verulegt áhyggju-
efni?
Tíminn verður að leiða það í ljós,
en víst er að fyrir næsta leik verð-
um við að kryfja þennan slæma
kafla til mergjar og kanna gaum-
gæfilega hvaða vitleysur við vorum
að gera. Við teljum okkur eiga ása
uppi í erminni við varnarleik FH-
inga en það virðist vera sem svo að
það þurfi að vera skýrari skilaboð
til leikmanna inn á vellinum um að
festa þá niður í ákveðin leikkerfi.
Við megum ekki leika eins frjálsan
leik og við erum oft að gera þegar
FH-ingar taka til dæmis tvo leik-
menn úr umferð."
Siggeir segir það oft vera til-
hneigingu hjá mönnum til þess að
hætta og hugsa um hag heildarinn-
ar þegar munurinn er orðinn mikill.
Þá sé tekið af skarið á röngum tíma
og sjaldnast verið að velja bestu
færin. „Þetta hefur verið visst
áhyggjuefni hjá okkur.
Það eina sem við getum þakkað
fyrir er að þegar leikur okkar
hrundi hálfpartinn var forystan
mikil, annars hefði getað farið illa, á
því leikur enginn vafi. Leikur okkar
síðustu fimmtán til tuttugu mínút-
urnar var fyrir neðan allar hellur og
á ekki að tíðkast hjá okkar.“
Siggeir segir það vera mikilvægt
fyrir Aftureldingu í næsta leik að
stýra leiknum frá upphafi og forðast
það að hleypa miklum hraða í leik-
inn. „Þeir þrífast á hraðanum leik-
menn FH.“
Siggeir segir að leikmenn Aftur-
eldingar séu farnir að sjá Islands-
meistarabikarinn í hillingum í
fjarska og því komi ekkert annað
til greina á morgun en að innsigla
sigurinn. „Ég efast eiginlega ekk-
ert um sigur okkar í fjórða leikn-
um, mér finnst getumunurinn á lið-
unum vera það mikill að ef við
hleyptum þessu einvígi í oddaleik
þá væri það hreinlega slys af okkar
hálfu."
Þannig vörðu þeir
(Innan sviga, knötturinn aftur til
mótherja)
Bergsveinn Bergsveinsson,
UMFA, 23/3;
8(2) langskot, 4(3) eftir gegn-
umbrot, 1(1) úr hráðaupphlaupi,
3(1) úr horni, 4(2) af línu, 3(0) víta-
köst.
Magnús Árnason, FH, 18/2;
6(0) langskot, 2(1) eftir gegn-
umbrot, 2(1) úr hraðaupphlaupi,
5(2) úr horni, 1(1) af línu, 2(0) víta-
köst.
Morgunblaðið/Golli
GUÐJÓN Árnason, fyrirliði FH, á hér í höggi við Alexei Trúfan og Galkauskas Gintas.
FH-ingar vöknuðu
af værum blundi
AFTURELDING hafði betur í viðureign sinni við FH er liðin mætt-
ust þriðja sinni að Varmá á sumardaginn fyrsta í úrslitum (s-
landsmótsins í handknattleik, lokatölur 26:23. Þar með hafa
Mosfellingar unnið tvo leiki í einvíginu en Hafnfirðingar einn og
næsta viðureign verður í Kaplakrika annað kvöld klukkan 20.30.
Með sigri þar getur UMFA tryggt sér íslandsmeistaratitilinn en
tapi liðið verður fimmti og síðasti leikurinn að Varmá á þriðju-
daginn.
Leikurinn að Varmá var mjög
kaflaskiptur og sýndi, svo ekki
verður um villst, að það eru ákveð-
in hættumerki á leik
jvar Aftureldingar. Eftir
Benediktsson að hafa leikið vel í
skrifar fyrrj hálfleik og rétt
fram í síðari hálfleik
fór leikur Aftureldingar í handa-
skolum. Liðið var með níu marka
forskot, 21:12, eftir 37 mínútna
leik. Þá breyttu FH-ingar um
áherslur í vörninni, tóku tvo leik-
menn Aftureldingar úr umferð,
Bjarka Sigurðsson og Galkauskas
Gintas. Þar með datt allur botn úr
leik UMFA og óðagot og einstak-
lingsframtak tók við. Slíkt kunni
ekki góðri lukku að stýra og leik-
menn FH fundu að taugaveiklun
gerði vart við sig í herbúðum and-
stæðingsins. Gengu þeir því á lag-
ið og með þolinmæði og skipulögð-
um leik tókst þeim að minnka
muninn í tvö mörk, 24:22, er hálf
Gintaras lék með
SAVUKYNAS Gintaras, leikstjómandi Aftureldingar, lék með liðinu í
fyrsta skipti í úrslitarimmunni gegn FH að Varmá fimmtudagskvöldið.
Gintaras er meiddur á hné og hefur ekkert getað leikið af þeim sökum. Nú
kom hann til leiks þegar ellefu og hálf mínúta var liðin af fyrri hálfleik og
lék með í sókninni nær því án undantekningar til leiksloka. Hann var með
bæði hnén vandlega reyrð til þess að forðast meiðsli enda hefur hann ekki
náð sér að fullu ennþá. Gintaras skoraði eitt mark í leiknum og fiskaði eitt
vítakast, aðeins einni mínútu eftir að hann kom inn á.
fjórða mínúta var til leiksloka.
Guðjón Árnason átti þess kost að
minnka forystu UMFA í eitt mark
en skot hans fór í slá Mosfellinga
er þrjár mínútur voru eftir. Þá
SÓKNARNÝTING
Þriðji leikur liðanna í úrslitunum,
leikinn í Mosfellsbæ 22. apríl 1999
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
16 10 30 26 53 F.h 10 38 S.h 13 29 34 27 48
26 56 46 Alls 23 56 41
5 Langskot 9
4 Gegnumbrot 4
7 Hraðaupphlaup 4
6 Horn 2
3 Lína 3
1 Viti 1
gerði alvaran vart við sig að nýju
hjá leikmönnum Aftureldingar og
þeir náðu að skora tvö mörk gegn
einu á lokakaflanum og tryggja
sér sigur.
Ekki er hægt að gera þær kröf-
ur að lið haldi níu marka forskoti í
leik sem þessum en hins vegar er
ljóst að Mosfellingar verða að
skoða sín mál gaumgæfilega fyrir
leikinn annað kvöld. Þeir spiluðu
einstaklega illa úr góðri stöðu og
var nær því refsað fyrir vikið. I
stað agaðs leiks framan af tók við
agaleysi þar sem hver og einn
leikmaður gerði hugsunarlaust
hverja vitleysuna á fætur annarri.
Sóknir voru stuttar og án sýnilegs
markmiðs oft og tíðum. Reyndir
leikmenn skutu á markið eftir 5
og 10 sekúndna sóknir, jafnvel
þegar þeir voru liðsmanni fleiri á
leikvellinum. Vörnin var lengstum
allgóð og Bergsveinn Bergsveins-
son var traustur í markinu að
vanda.
Sigur FH í annarri viðureign-
inni virtist ekki gera það að verk-
um að leikmenn liðsins kæmu
staðráðnir í að endurtaka leikinn.
Slen og óöryggi var yfir leik-
mönnum fram eftir leiknum og
allt of mikið var um tæknileg mis-
tök. Jafnvel lykilmenn virtust
vera með hugann við allt annað en
leikinn og gerðu þar af leiðandi
hverja villuna á fætur annarri.
Eftir því sem á leikinn leið var
sem þeir misstu alveg móðinn. En
breytingin á varnarleiknum og
skammir þjálfarans Kristjáns
Arasonar urðu til þess að vekja
menn af værum blundi, en e.t.v. of
seint. Líkt og hjá Mosfellingum
var markvörður Hafnfirðinga,
Magnús Árnason, þeirra besti
maður.
Kristján Arason,
þjálfari FH
Fer
fram á
sigur
„VIÐ vöknuðum ekki fvrr en
alltof seint og hugarfarið var
ekki rétt og niunurinn sem
var á liðunum um tíma segir
allt,“ sagði Kristján Arason,
þjálfari FH. „Það voru mér
mikil vonbrigði hvernig mínir
memi mættu til leiks nú eftir
sigur í síðasta leik. Ég var al-
veg bijálaður við menn í hálf-
leik, en því miður hreif það
ekki fyrr en leikmenn höfðu
fengið tvö kjaftshögg til við-
bétar.“
Kristján segir það hafa ver-
ið lýsandi dæmi um einbeit-
ingarleysi manna að þeir
voru að nýta dauðafæri mjög
illa og oftar en ekki að skjóta
í stangir eða hreinlega missa
boltann frá sér á klaufalegan
hátt. „Slíkt gengur ekki í úr-
slitaleikjum," sagði Kristján.
„Stemmningin í mönnum
virðist vera þaimig að menn
verða að lenda upp við vegg
til þess að einbeita sér að
verkefninu. Slíkt hugarfar
hefúr valdið mér miklum von-
brigðum. Sem dæmi má nefna
að við vorum stundum ekkert
að sækja á markið í fyrri
hálfleik, engu máli hefði skipt
hvernig vörn andstæðingur-
inn hefði leikið, viljinn til
séknar var ekki fyrir hendi.“
Kristján segist vona að
menn sínir læri af leiknum að
Varmá og komi með öðru
hugarfari til leiks í fjórða
leikinn á morgun. „Við töp-
um örugglega ef við gerum
okkur seka um að leika jafn
illa í fyrri hálfleik og gert
var nú, það er alveg ljést. Ég
fer fram á sigur í þeiin leik
og ég vona að menn leggi allt
í sölurnar til þess að svo
megi verða.“
Staðráðnir í oddaleik
„Við komum ekki með
réttu hugarfari til leiksins
sem olli því að við vöknum
ekki til leiksins fyrr en síð-
ustu tuttugu mínúturnar,“
sagði Gunnar Beinteinsson,
leikmaður FH. „Afturelding
lék mjög ákveðna vörn gegn
okkur og við hrökklumst frá
og hættum að sækja á markið
og við virtumst ekki vera til-
búnir til að sækja á markið. I
heildina sluppum við nokkuð
vel frá leiknum þegar öllu er
á botninn hvolft. Það hefur
sýnt sig að sé hugarfarið
ekki í lagi hjá okkur frá upp-
hafi þá eigum við enga mögu-
leika í leikjum."
Gunnar sagðist eiga von á
jafnari leik þegar liðin eigast
við flérða sinni á sunnudag-
inn. „Þá er að duga eða drep-
ast hjá okkur og ljést að við
verðum að mæta einbeittir til
leiks frá fyrstu minútu. Það
virðist vera sem við verðum
að lenda upp við vegg til þess
að geta bitið frá okkur. I öðr-
um leiknum vorum við í þeirri
stöðu og erum á ný kommr í
þá stöðu nú. Það verður ekk-
ert gefið eftir í Kaplakrika á
sunnudagskvöldið. Við erum
staðráðnir í að fara í odda-
leik.“