Morgunblaðið - 03.06.1999, Síða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
Falurá
leið til
Finn-
lands?
FALIJR Harðarson, leikstjórn-
andi Keflvíkinga og íslenska
landsliðsins í körfuknattleik,
hefur fengið samningstilboð frá
finnska félaginu Topu, sem er
staðsett í Helsinki. Finnar eru
ein fremsta körfuknattleiksþjóð
Evrópu og Topu er sterkasta
félagslið þeirra.
Falur hefur verið einn fremsti
körfuknattleiksmaður landsins
og er lykilmaður í Islands-
meistaraliði Keflvíkinga og
landsliðinu, sem nýverið
tryggði sér áframhaldandi þátt-
tökurétt í Evrópukeppni lands-
liða.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er tilboð finnska fé-
lagsins mjög gott og mun betra
en íslenskum körfuknattleiks-
mönnum hefur staðið til boða
undanfarin ár.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Fal vildi hann ekki tjá
sig um tilboðið að svo stöddu en
tók fram að ákvörðun yrði teldn
eftir helgina.
KNATTSPYRNA
1999
FIMMTUDAGUR 3. JUNI
BLAD
Eiður
Smári
bar við
Skagamenn
til Albaníu
„ÉG sé ekki annað en þetta sé enn eitt ævintýrið
fyrir okkur. Við vitum ekkert um mótherjana,"
sagði Logi Olafsson, þjálfari Skagamanna, sem
mætir Teuta Durres frá Albaníu í fyrstu umferð
Getraunakeppni Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram
á Akranesi 19. eða 20. júní, seinni leikurinn í Al-
bam'u 16. eða 27. júní. Teuta er frá hafnarbænum
Durres, sem er vestan við Tírana.
„Við erum byijaðir að vinna í því að fá upplýs-
ingar um liðið, sem er eitt af toppiiðum Albaníu.
Ég mun hafa samband við norska knattspyrnusam-
bandið, en Norðmenn leika Evrópuleik við Albaniu
í Tírana á laugardaginn. Þá mun ég hafa samband
við Ellert B. Schram, sem verður eftirlitsmaður
Knattspyrnusambands Evrópu á leiknum. Biðja
hann að spyijast fyrir um liðið og kanna hvort það
eigi landsliðsinenn," sagði
Logi.
Skagamenn léku við lið frá
Albam'u í Evrópukeppnmni
1993 - gerðu þá jafntefli við
meistaraliðið Partizan Tírana
í Albaníu, lögðu það að velli á
Akranesi, 3:0.
Ef Skagamenn komast
áfram Ieika þeir gegn
Lokeren í Belgíu 19. eða 20.
júlí, heima 26. eða 27. júlí.
„Það yrði skemmtilegt verk-
efni. Ég fylgdist með æfíngum
hjá Lokeren í desember síð-
astliðnum og sá liðið þá leika
gegn Genk,“ sagði Logi.
Morgunblaðið/Kristinn
LAGT á ráðin; Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari leggur á ráðin með leikmönnum sínum á opinni
æfingu í gær. íslenska landsliðið leikur heima gegn Armenum á laugardag en ytra gegn
Rússum á miðvikudag.
„Ætlum að láta
sverfa til stáls“
GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, kveðst hlakka til landsleiksins gegn Armenum á Laugar-
dalsvelli á laugardag. Þetta er fyrri leikur íslendinga í tveggja
ieikja törn, því á miðvikudag leikur liðið gegn Rússum í Moskvu.
Björn Ingi
Hrafnsson
skrifar
Það er alveg ljóst að leikurinn á
laugardag gegn Armenum er
einn sá mikilvægasti í íslenskri
knattspymu um
margra ára skeið,“
sagði Guðjón eftir
opna æfingu lands-
liðsins á æfingasvæði
Þróttar í Laugardalnum í gær. „Við
stefnum að sigri og sættum okkur
ekki við annað. Ég hef áður sagt að
stefnan er sett á sigur í heimaleikj-
unum tveimur í sumar gegn Armen-
íu og Andorra og svo er að sjá hvað
aðrir leikir gefa okkur. Hins vegar
er jafnljóst að einn leik verður að
taka fyrir í einu og við höfum ekki
efni á að vanmeta neitt lið,“ sagði
Guðjón.
Þjálfarinn viðurkennir að senni-
lega hefði mátt þrýsta meira á leik-
menn armenska liðsins í fyrri leik
liðanna í Jerevan sl. haust, en þeim
leik lyktaði með markalausu jafn-
tefli. „Það er oft auðvelt að vera vit-
ur eftir á, en við vildum ekki taka of
mikla áhættu og fara of geyst eftir
jafnteflið heima við Frakka. Staðan
nú gefur okkur hins vegar ákveðin
fyrirheit og við ætlum að láta sverfa
til stáls og sækja stigin þrjú. Til
þess þurfum við stuðning áhorfenda
og ég bind vonir við að fólk sjái sér
fært að styðja okkur í leiknum. Það
yrði afar dýrmætt," segir hann.
Guðjón segist ekki hafa ákveðið
leikaðferð íslenska liðsins enn, enda
séu enn óvissuþættir í myndinni
vegna veikinda og meiðsla. „Það er
ýmislegt inni í myndinni og ég valdi
Bjama í hópinn til að halda valkost-
um. Leikurinn er okkur gríðarlega
mikilvægur og þess vegna er nauð-
synlegt að hafa ákveðna ása uppi í
erminni. Til að mynda þarf að ákveða
hvort hafa eigi tvo eða þrjá leikmenn
í framlínunni og eins er nauðsynlegt
að geta sprengt leikinn upp, ef
þannig má að orði komast, gangi
hlutimir ekki upp strax í byrjun."
meiðslum
ATHYGLI hefur vakið að Eið-
ur Smári Guðjohnsen, fram-
herji enska 1. deildarliðsins
Bolton Wanderers, dró sig út
úr landsliðshópnum á þriðju-
dag, daginn eftir tap liðsins
gegn Watford í hreinum úr-
slitaleik um laust sæti í ensku
úrvalsdeildinni á næstu leik-
tíð.
„Eiður Smári hafði samband
á þriðjudag og sagðist vera
meiddur. Ég get ekki annað en
tekið slíkt trúanlegt," segir
Guðjón Þórðarson, landsliðs-
þjálfari, sem valdi Bjarna son
sinn í liðið í stað Eiðs Smára.
Guðjón segist hafa reynt að ná
í sjúkraþjálfara Bolton vegna
málsins, en það hefði ekki tek-
ist. Hins vegar hefði hann rætt
við blaðafulltrúa Bolton og
hann hefði ekki kannast við
umrædd meiðsl.
Ekki náðist í Eið Smára í
gærkvöldi, þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunh-.
Bjarni aflur í landsliðið
BJARNI Guðjónsson, leikmaður
Genk í Belgíu, var valinn í A-lands-
liðið í gær eftir að Eiður Smári
Guðjohnsen, framherji Bolton, til-
kynnti forfóll á miðvikudag.
Bjami sem er sonur Guðjóns
landsliðsþjálfara og bróðir Þórðar
og lék síðast með ísienska liðinu á
Kýpurmótinu fyrir tveimur árum -
þá í tapleik - segist ánægður með
að vera kominn aftur í liðið. „Von-
andi fæ ég tækifæri til að láta ljós
mitt skína, leikurinn er okkur afar
mikilvægur og ekkert annað kem-
ur til greina en að fá þrjú stig,“
segir hann.
Bjarni, sem varð belgískur
meistari nú í vor með Genk ásamt
bræðram sínum Þórði og Jóhann-
esi Karli, kom til Belgíu frá
Englandi þar sem hann hafði feng-
ið fremur fá tækifæri með stórlið-
inu Newcastle. „Það hefur ræst
ótrúlega vel úr þessu hjá mér. Það
breyttist allt við að fara til Belgíu
og ég fékk fljótt tækifæri, fyrst
sem varamaður og svo í byrjunar-
liðinu. Nú stefni ég að því að
tryggja minn sess í liðinu á næstu
leiktíð og það verður spennandi,
enda munum við keppa í forkeppni
Meistaradeildarinnar og ætlum
okkur þar áfram.“
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: GUÐRÚN ARNARDÓTTIR MEÐ TIL KRÓATÍU / C3
1
1
1
1
t
.
I=