Morgunblaðið - 22.06.1999, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Þorkell
KAJAKMENN kanna erfióar flúðir. Fari þeir hægra megin við klettinn er dauðinn vís, fari þeir vinstra megin sleppa þeir lifandi.
„Fyrir þig, Jökla“
Fífldirfska var ekki á dagskrá, aðeins hugrekki
allra sem stóðu að ferð niður Jöklu á tveimur
gúmmíbátum um ofurþröng og 160 m djúp
Dimmugljúfur og framhjá þverhníptum hamra-
veggjum Hafrahvamma. Leiðangursmenn lögðu
20 km að baki í óviðjafnanlegum gljúfrum.
Þorkell Þorkelsson Ijósmyndari var meðal bát-
verja og Ragnar Axelsson og Kristinn Ingvars-
son Ijósmyndarar og Gunnar Hersveinn fylgdust
með af gljúfurbakkanum ásamt aðstandendum,
kvikmyndatökumönnum og skátum úr Garðabæ,
sérþjálfuðum í fjallaklifri og bjargsigi.
Morgunblaðið/Rax
í UPPHAFI ferðar hlýddu bátsmenn með djúpri athygli á Rajendra Kumar Gurung. „Treystið aðeins á eigin björgun,"
sagði hann, „ég get ekki hætt mörgum til að bjarga einum."
Morgunblaðið/Kristinn
RENNT meðfram þverhníptu
hamrastálinu.