Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 3

Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ DIMMUGLJUFUR Morgunblaðið/Þorkell ri Stefánsson (t.v.) varð þá fyrsti íslendingurinn til að sigla Jökulsá á Brú. ik daginn eftir, 19. júní 1999. er mikill að ofan en áin hefur sorfið hann mjóan að neðan. Ái-ekstur. Bát- urinn skellur á honum og snýst, báts- menn kipra sig saman til að verjast því að rotast á klettinum en Skúli Haukur Skúlason flýgur aftan úr hon- um og fer á kaf. Honum skýtur svo upp og Haukur Parelius grípur jafn- skjótt í hann og þrýstir honum niður aftur til að geta notið hjálpar Jöklu INGI R. Ingason með 100 metra ófarna. ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1998 C 3 ...... mfr. Morgunblaöið/RAX YFIR ófæran kafla árinnar kom aðeins til greina að draga bátana og stökkva á milli kletta. Kajak fiýgur af einum út í vaxandi jökulsána. ^ KALT jökulvatn skellur á andlitin. Hvað er framundan? við að rykkja félaga sínum aftur upp í bátinn. Hættan er liðin hjá og bátarn- ir komast í var áður en næsta þrekraun hefst. Erfiðustu flúðirnar eru fram und- an, Jökla vex í hita dagsins og þéttri rigningunni. Smári á ein- um kajakana finnur að áin er straum- harðari en daginn áður. Ratz metur aðstæður. Hundrað metrum fyrir ofan þá ganga kvikmyndavélarnar og einnig ein í bátnum og önnur hjá Inga R. Ingasyni framleiðanda myndarinn- ar. Hann hefur sigið niður með hjálp skátanna. Bátsmenn sáu hann síga niður og þótt þeir hefðu aldrei viljað fórna sæti sínu í bátunum, hefðu þeir gefið mikið fyrir að fá að síga líka. Hátt yfir höfðum þeirra, um miðbik Kárahnúks, hefur einhver rekið niður tréhæl. Þangað á víst hæsta stífla Evrópu, fyrirhugað Hálslón Kára- hnúksvirkjunar, að ná. Ljósmyndari fann góðan stað hund- rað metrum fyrir ofan þá og fylgdist með þeim bera bátana til hliðar í botninum sem enn var ekki farinn á kaf. Þeir hvolfdu þeim yfir kletta, teymdu yfir flúðir og báru þá áfram. Tveir kajakar fóru þessar flúðir en sá þriðji fylgdi bátsmönnum. Hér liðu klukkutímar og Ratz sást stikla á milli kletta og segja mönnum sínum til. í fjarska himinsins heyrðist í þotu fljúga yfir og niðri í gljúfrunum kastaðist hljóðið milli veggja niður til bátsmanna sem litu upp, því þeim fannst eins og þotan svifi skammt fyr- ir ofan. Aformið heppnaðist. Erfiðustu flúðimar voru að baki, næsti ákvörðunarstaður var 200 m þverhnípt gljúfrið í grasigrónum Hafrahvamminum, inni í fegurð sem jafnvel orðið náttúruperla rúmar ekki. Allir af stað. Langt var liðið á daginn. Bátsmenn hrópa samstilltir gleðióp eftir sigur í hverri orrustunni á fætur annarri og nú hljómar raust þeirra í marglitum hamraveggjunum sem áin hefur skapað á milljónum ára. Tólf kílómetrar eru að baki og nú liggur leiðin næstu 8 kílómetra að heppilegum stað til að taka land gegnt Hallarfjalli. Kokkarnir (Sigrún Kristjánsdóttir, Hansína Skúladótt- ir),og aðrir (t.d. Hildur Þorgeirsdótt- ir, Ólafur Guðlaugsson og Hrafnhild- ur Skúladóttir) undirbjuggu nú leið- arlok með drykkjum og nesti. Skátaj' og kvikmyndatökumenn eru viðbún- ir. Fagnaðarhróp berast á Jöklu. Áin var ef til vill ekki blíð en hún var ekki vægðarlaus. Ratz steig á land, reynsla hans og þekking gerði gæfumuninn og einnig traust bátsmanna sem komu orðlausir í land og stigu dansinn eftir tólf tíma siglingu. Kvikmyndavélarnar gengu áfi-am og stöðvuðust ekki fyrr en bátsmenn höfðu borið bátana upp bratta hlíð og þangað sem dekkja- og vélarstórir jepparnir biðu. Anna Svavarsdóttir, sem var eina konan í hópnum, sagðL þegar upp vai- komið að það væri líkt og listamaður hefði í ármilljónir dund- að sér við að skera verk sín í hamra- veggina og mála. Afrekið var í höfn. Kvikmyndatak- an heppnaðist. Skátarnir, Ævintýra- ferðafólkið og fjallavinirnir voru him- inlifandi. 19. júní 1999 var ekki illa valinn dagur fyrir þig, Jökla. r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.