Morgunblaðið - 01.07.1999, Qupperneq 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1999
■ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ
BLAD
\ Man. Utd ekki
með í bikar-
keppninni
STJÓRN Manchester United hefur þegið boð
enska knattspyrnusambandsins um að draga sig
út úr ensku bikarkeppninni, en liðið er
núverandi bikarmeistari. Sambandið vill að
IUnited taki þátt í nýrri heimsmeistarakeppni
félagsliða sem fara á fram í Brasilíu á næstu
leiktíð, því búist er við að það hjálpi Englandi í
baráttunni um að halda HM 2006. Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri United, sagði liðið
ekki geta verið með í báðum keppnunum. „Það
væri ómögulegt að leika bæði í bikarkeppninni
og heimsmeistarakeppni félagsliða. Val okkar
var mjög erfitt. Gagnrýnin sem við hefðum orðið
fyrir ef við hefðum kosið að fara ekki til Brasilíu
hefði verið óhugsandi," sagði hann.
.........
KÖRFUKNATTLEÍKUR
Jón Kr. Gíslason, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, um þjálfaraskiptin
„Kom mér
í opna
skjöldu“
„MITT markmið er hreint og
klárt, ef okkur tekst ekki að
komast áfram tel ég að það eigi
að stokka upp spilin og skipta
um þjálfara,“ sagði Jón Kr.
Gíslason, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari, áður en hann hélt með
liðið í undankeppni Evrópumóts-
ins. Hann lagði starf sitt að veði
og náði þeim árangri sem hann
ætlaði sér. Liðið komst áfram, en
þrátt fyrir þann góða árangur
reyndist ekki áhugi innan KKI,
körfuknattleikssambands Is-
lands, að láta hann stjóma því
áfram.
Þegar Jón varspurður hvers
vegna sljóm KKI óskaði ekki
eftir því að hann yrði áfram við
stjómvölin átti hann engin svör
og sagðist aldrei hafa orðið var
við óánægju varðandi sín störf.
„Samningur minn rann út um
mánaðamótin. Ég fundaði með
forráðamönnum KKI eftir að lið-
ið snéri heim frá Slóvakíu og þar
lýstu þeir yfir einhuga áhuga á
því að framlengja samninginn.
Fljótlega eftir þennan fund var
sljómarfundur hjá KKI og þar
hafa komið fram einhveijar nýj-
ar hugmyndir. Samt héldujþeir
áfram viðræðum við mig. Eg
bjóst við í síðustu viku að fara fá
svar varðandi launakröfur en
það kom aldrei. Það var hringt í
mig í gær og tilkynnt að það
væri búið að ráða annan í starf-
ið. Þetta kom mér algjörlega í
opna skjöldu."
Jón sagðist ekki vera bitur yfir
þessu. „Ég geri mér grein íýrir
að þjálfarabransinn er harður og
við því er ekkert að segja. Leik-
menn hafa hringt í mig í dag og
hvatt mig áfram.“
Morgunblaðið/Kristinn
JÓN KR. Gíslason leggur á ráðin með landsliðsmönnum sínum. Fyrir aftan hann er aðstoðarmaður
hans, Friðrik Ingi Rúnarsson, sem tók óvænt við starfi Jóns Kr. í gær.
Friðrik Ingi Rúnarsson tekinn
við þjálfun landsliðsins
Landsliðsnefnd KKÍ tilkynnti á
blaðamannafundi í gær að Frið-
rik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarð-
víkinga, hefur tekið við þjálfun lands-
liðsins í körfuknattleik. Ekki reynd-
ist áhugi innan KKI fyrir að endur-
nýja samning við Jón Kr. Gíslason
sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár.
Friðrik mun ekki láta af störfum sem
þjálfari Njarðvíkur en hann á tvö ár
eftir af samningi sínum við félagið.
Ráðning Friðriks er hluti af end-
urskipulagningu landsliðsmála innan
KKI. Staða landsliðsþjálfara verður
viðameiri. Hann mun hafa yfírum-
sjón yfir yngri landsliðum ásamt hin-
um hefðbundnu þjálfarastörfum.
Landsliðið á mörg erfið verkefni
framundan. í nóvember hefst
keppni í milliriðlum Evrópumótsins
og stendur hún fram til febrúar
2001. Norðurlandamót landsliða
verður haldið á Islandi í ágúst 2000.
Forráðamenn sambandsins eru
bjartsýnir á að góður árangur náist í
þessum mótum. „Við stefnum að því
að ná sætum sem gefur okkur rétt á
að fara beint inn í keppnina næst
þegar hún er haldin og sleppa við að
leika í undankeppni fyrir milliriðla,11
sagði Pétur Hrafn Sigurðarson,
framkvæmdastjóri Körfuknattleiks-
sambandsins. Pétur sagði að margir
möguleikar hafi verið skoðaðir þeg-
ar þjálfaramálin komu til tals. Einn
möguleikinn var að fá erlendan
þjálfara í stöðuna. Hann var skoðað-
ur en ekki var áhugi innan KKÍ að
fara þá leið. „Við veltum þessu fyrir
okkur en komumst að þeirri niður-
stöðu að vænlegast til árangurs væri
að fá Friðrik til starfa.“
Spennandi verkefni
„Þetta er mikið og skemmtilegt
verkefni sem er framundan," sagði
Friðrik Ingi í samtali við Morgun-
blaðið. „Islenskur körfuknattleikur
er á mikilli uppleið. Það sést best á
því að íslenskir leikmenn eru orðnir
mjög eftirsóttir í Evrópu og einnig í
bandaríska skólaboltanum. Það er
mjög gaman að fá að taka við liðinu
þegar þessi meðbyr er með íþrótt-
inni. Það er mitt verkefni að nýta
hann til enn betri verka. „
Friðrik sagði að mikil gerjun
væri í íslenskum körfuknattleik.
„Það eru margir ungir leikmenn
sem eru mjög hæfileikaríkir og
þessir strákar munu koma til með
að vera inni í myndinni hjá landslið-
inu. Til að byrja með mun liðið vera
byggt á þeim kjarna sem lék á móti
Slóvakíu í maí. Samt er það þannig
að enginn á fast sæti í liðinu.“
Friðrik hræðist ekki árekstra á
milli þess að þjálfa félagslið hér á
landi og landsliðið. „Ég vel þá leik-
menn sem ég treysti best til þess að
leika með landsliðinu og það breytir
engu með hvaða félagsliði þeir leika.
Ég sem þjálfari landsliðsins græði
ekkert á því að velja leikmenn sem
hafa ekki erindi í liðið.“
KNATTSPYRNA: ÍBV í FÓTSPOR ÍA í EVRÓPUKEPPNI - FER TIL ALBANÍU / C4