Morgunblaðið - 28.07.1999, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
ÍBV mætir MTK Búdapest í forkeppni Meistaradeildar Evrópu
Rennt blint í sjóinn
HLYNUR Stefánsson, fyrirliði
íslands- og bikarmeistara ÍBV,
segir að leikið verði til sigurs
á heimavelii gegn ungversku
meisturum MTK Búdapest í
fyrri leik liðanna í annarri um-
ferð forkeppni Meistaradeildar
Evrópu, sem fram fer í Eyjum
kl 19 í dag.. „Við rennum að
vísu blint í sjóinn enda upplýs-
ingar um ungverska liði af
skornum skammti. En við er-
um brattir, mikii leikgleði er í
mannskapnum og vilji til þess
að komast sem lengst í þess-
ari keppni.“
Hlynur sagði að það væri að
mörgu leyti kostur fyrir Eyja-
menn að vita lítið um andstæðinga
sína. „Það litla sem við vitum er að
þeir unnu ungversku deildina með
yfirburðum á síðasta tímabili, með
yfír 20 stiga mun. Þeir hafa keypt
nýja leikmenn og greinilegt að um
" sterkt lið er að ræða. Þeir eru hins
vegar ekki í jafn góðri leikæfingu og
við, enda ekki leikið í deildinni í
Ungverjalandi nú, og vonandi telst
það okkur til tekna. Við ætlum að
fara varlega í upphafi og nýta fyrstu
mínútumar til þess að þreifa á and-
stæðingnum en markmiðið er að
reyna að stjóma leiknum, skora
mörk og leika vamarleikinn af
skynsemi. Það má gera ráð fyrir að
Ungverjarnir leiki aftarlega, eins og
lið gera jafnan á útivöllum í Evr-
ópukeppni, og því verðum við að
gæta þess að þeir nái ekki skyndi-
sóknum á okkur. Við ætlum áfram
en það verður síðan að koma í ljós
hvort það tekst. Vonandi gengur
- okkur vel í leiknum svo við verðum
ekki með buxumar á hælunum þeg-
ar honum lýkur. Ég treysti á að fólk
fjölmenni á þennan leik og styðji við
bakið á okkur. Það má gera ráð fyr-
ir talsverðum fjölda í bænum vegna
Þjóðhátíðar, sem verður um næstu
helgi, og vona að aðkomumenn sem
Eyjamenn komi á völlinn."
Hlynur sagði að Eyjaliðið hefði
Morgunblaðið/Sigfus Gunnar Guðmundsson
INGI Sigurðsson og félagi hans, ívar Bjarklind, fá verðugt verkefni á heimavelli í dag gegn MTK
Búdapest.
verið rólegt í tíðinni það sem af er
sumri en væri nú að ná fyrri styrk,
hefði leikið vel gegn albanska liðinu
SK Tírana í Evrópukeppninni og
fylgt frammistöðu sinni eftir með
sigri á Leiftri í efstu deild á sunnu-
dag. „Við fómm áfram á seiglu í
byrjun móts en eram að komast á
svipað skrið eins og í síðari umferð
Islandsmótsins í fyrra, en þá töpuð-
um við ekki leik. Sá bragur er yfir
liðinu nú og ég hef trú á að fátt
stöðvi okkur það sem eftir lifir sum-
ars. Það er mikil leikgleði í hópnum
og við hlökkum til að takast á við
þau verkefni sem era framundan."
Aðspurður hvað hafi valdið því að
liðið hafi ekki verið að leika eins vel
og undanfarin ár segir Hlynur að
það hafi verið eins og leikmenn hafi
haldið að hlutirnir gerðust af sjálfu
sér. „Okkur hefur gengið vel síð-
ustu tvö ár en það er vegna þess að
við höfum þurft að hafa fyrir hlut-
unum. Þetta vantaði hjá leikmönn-
um í upphafi sumars. Við ætlum að
halda áfram þar sem frá var horfið
gegn albanska liðinu og ná góðu for-
skoti fyrir síðari leikinn gegn MTK,
sem fram fer í Ungverjalandi.“
í-
Guðmundur
til Hauka
GUÐMUNDUR Bragason, fyr-
irliði íslenska landsliðsins í
körfuknattleik, hefur gert
tveggja ára samning við úrvals-
deiidarlið Hauka í Hafnarfirði.
Guðmundur var í viðræðum við
lið í Belgíu, Austurríki og Þýska-
landi en ákvað að leika á ný hér á
landi.
Guðmundur þjálfaði Grindavík
í byrjun síðasta vetrar en var
sagt upp og fór þá til Weisenfels
í Þýskalandi. Hann kvaðst ekki
hafa haft áhuga á að leika áfram
með þýska liðinu, sem tryggði
sér sæti í efstu deild. Hann hafði
fengið tilboð frá félagsliðum í
Austurríki og Belgíu en hafnaði
þeim og gekk tO viðræðna við 1.
deddarliðið Braunsweg í Þýska-
landi í sumar. Af samningum
varð ekki.
„Ég var búinn að æfa með
Haukum í sumar og þegar allt
stefndi í að ég færi ekki td
Þýskalands hóf ég viðræður við
forráðamenn liðsins. Það verður
óneitanlega skrítið að leika með
öðru féiagsliði hér á landi en Gr-
indavík, en mér lýst vel á félagið.
Ég tel að með meiri liðsstyrk
hafi liðið möguleika á að vera í
toppbaráttunni og geti orðið
mótvægi við liðin þrjú [Grinda-
vik, Njarðvík og Keflavík] á Suð-
umesjum."
HANDKNATTLEIKUR
Þorbergur
með Vfldng
orbergur Aðalsteinsson hefur
tekið við þjálfun karlaliðs Vík-
ings í handknattleik í stað Sigurðar
Gunnarssonar, sem er hættur störf-
um hjá félaginu.
Sigurður Ragnarsson, formaður
handknattleiksdeildar Víkings,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ástæðan fyrir brotthvarfi Sigurðar
hafi verið ágreiningur um túlkun á
samningi hans við félagið. „Þetta
mál var leyst með þeim hætti að
Sigurður hætti þjálíún liðsins og
engin Olindi sem stóðu þar að baki.
Sigurður hefur náð góðum árangri
með liðið og kom því upp í 1. dedd.
Ég óska honum velfamaðar í því
sem hann hyggst taka sér fyrir
hendur og vonandi á hann eftir að
koma td starfa fyrir félagið síðar.“
Sigurður hafði í vor framlengt
samning sinn við féiagið td tveggja
ára.
Sigurður Ragnarsson sagði að
stjóm félagsins vænti mikds af Þor-
bergi enda hefði hann mikla reynslu
sem þjálfari og náð góðum árangri.
Þorbergur er fyrram landsliðsþjálf-
ari en hann hefur þjálfað karlalið
IBV undanfarin ár.
Meiðsli
og maga-
kveisa
ÞRÍR leikmenn ÍBV, sem
fengu snert af matareitrun
eftir ferð liðsins til Albaníu í
síðustu viku, hafa náð sér af
magakveisunni og verða með
gegn ungverska liðinu MTK
Búdapest í fyrri leik liðanna í
forkeppni Meistaradeildar
Evrðpu í knattspyrnu, sem fer
fram í Vestmannaeyjum í
kvöld.
Allan Markore, Guðni Rún-
ar Helgason og Ivar Bjarklind
veiktust strax á leiðinni frá
Albaníu og sagði Bjarni Jó-
hannsson, þjálfari liðsins, að
það hefði litið illa út með þá
um tíma. „Sem betur fer
reyndust veikindi þeirra ekki
alvarleg og ívar [Bjarklind]
var með gegn Leiftri á sunnu-
dag og Morkore kom inn á
sem varamaður. Þeir eru því
allir búnir að ná sér og verða
í hópnum gegn ungverska lið-
inu.“
Hlynur Stefánsson er
meiddur, en hann er talinn
hafa fengið högg á síðuna í
Ieiknum gegn albanska liðinu.
Bjarni sagði að um tíma hefði
verið haldið að Hlynur hefði
rifbeinsbrotnað en meiðsli
hans iitu betur út en talið var
í fyrstu. „Hann virðist hafa
fengið högg á síðuna en við
ætlum að láta hann spila.“
Goran Aleksic, leikmaður
ÍBV, fór úr axlarlið gegn SK
Tírana í fyrstu umferð for-
keppni Meistaradeildar Evr-
ópu, og verður ekki með gegn
ungverska liðinu MTK Búda-
pest. Bjarni sagði að Aleksic
væri að ná sér og yrði klár í
slaginn á næstu vikum.
■ NICO Olivera framherji lands-
liðs Úrúgvæ hefur verið seldur td
nýliða spænsku deddarinnar,
Sevilla, fyrir 220 mdljónir króna.
Olivera var í láni hjá Sevilla síðari
hluta síðasta keppnistímabds og
þótti standa sig vel. Gerði hann
m.a. sex mörk.
■ DAVID Seaman, markvörður
Arsenal og enska landsliðsins, leik-
ur væntanlega ekld með í leiknum
um Góðgerðarskjöldinn við Man-
chester United næsta laugardag
vegna meiðsla í kálfa sem hann
hlaut í æfingaleik við Mónakó á
mánudaginn.
■ AC Milan samþykkti í gær að
selja Þjóðverjann Christian Ziege
til Middlesbrough. Samningar
munu vera í höfn á mdli félaganna
en leikmaðurinn á eftir að ganga
frá sínum málum gagnvart enska
félaginu en reiknað er með að hann
geri fjögurra ára samning. Kaup-
verðið hefur ekki fengist uppgefið
en ítölsk blöð greina frá því að það
sé ekki undir hálfum mdljarði
króna.
■ DENIS Smith, knattspymu-
stjóri enska 1. deddarliðsins West
Bromwich, var látinn taka pokann
sinn í gær eftir aðeins 18 mánuði í
starfi. John Gorman hefur tekið
við stjórn liðsins ásamt einum
þjálfara liðsins og fyrrverandi leik-
manni, Cyrille Regis. Gorman var
ráðinn aðstoðarmaður Smiths í síð-
ustu viku.