Morgunblaðið - 03.09.1999, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
m
1
1999
PlttgwWalíilí
■ FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER
BLAD
Pauzoulis
til Fram
HANDKNATTLEIKSDEILD Fram hefur leigt
litháensku skyttuna Robertas Pauzoulis frá
Selfossi fyrir næsta keppnistímabil. Honum er
ætlað að taka við því hlutverki er rússneski
leikmaðurinn Andrei Astafejv gegndi hjá Fram
síðasta vetur.
Pauzoulis, sem hefur leikið með litháenska
landsliðinu, er með samning við Selfoss til 2001.
Hann gerði 106 mörk fyrir liðið í 22 leikjum í 1.
deild í fyrra. Leikmaðurinn lék áður með ÍBV.
Þjálfaraskipti urðu hjá handknattleiksliði
Fram í vor er Guðmundur Guðmundsson tók við
þjálfun hjá þýska 1. deildarliðinu Dormagen.
Við starfi Guðmundar tók Rússinn Anatolij
Fedúkíns. Hann þjálfaði áður CSKA Moskvu.
KNATTSPYRNA / EM LANDSLIÐA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stund milli stríða... tekið í spil á Hótel Loftleiðum. Rúnar Kristinsson, Tryggvi Guðmundsson, Þórður Guðjónsson,
Lárus Orri Sigurðsson og Heiðar Helguson.
Ríkharður
til sölu
NORSKA úrvalsdeildarliðið
Viking frá Stavangri, sem Rík-
harður Daðason og Auðun
Helgason leika með, hyggst
selja nokkra leikmenn á þess-
ari leiktíð til þess að bæta fjár-
hag félagsins. Rikharður er
einn af þeim leikmönmun sem
nefndur hefur verið til sögunn-
ar.
Viking seldi Thomas Solberg
fyrir skemmstu fyrir um 35
milljónir ísl. króna til skoska
úrvalsdeildarliðsins Aberdeen.
Bjarne Berntsen, fram-
kvæmdastjóri norska liðsins,
segir að sú sala dugi skammt
og hann íhugi að selja leik-
menn fyrir 120-150 milljónir
ísl. króna til þess að rétta af
rekstur félagsins.
Hann segir ekki ákveðið hve
marga leikmenn félagið ætli
sér að selja og telur að það fari
eftir þeirri Ijárhæð er félaginu
býðst fyrir þá leikmenn sem
eru falir.
Hugsanlegt er að einhverjir
leikmenn fari frá félaginu fyr-
ir lok tímabilsins. Segir í Roga-
lands Avis að umboðsmaöurinn
Lars Petter Foshdal hafi gefið
merki um að hann geti selt
Ríkharð og annan leikmann til
á þessari leiktfð.
Sigurður leikur með
brákað bein í stóru tá
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu mætir liði Andorra í und-
ankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvelli á morgun - liði sem
hefur tapað öllum leikjum sínum í keppninni til þessa. Með sigri
halda íslendingar velli í baráttu sinni við þrjú stórlið knatt-
spyrnuheimsins um sæti í úrslitakeppninni, sem fram fer í
Hollandi og Belgíu á næsta ári. Liðið leikur gegn firnasterkum
Úkraínumönnum í Laugardalnum á miðvikudag og gæti það, með
sigri í báðum leikjum, tekið forystu i riðlinum, sem er einnig
skipaður Rússum og heimsmeisturum Frakka.
Sjö leikmenn íslands hafa fengið
gult spjald í undankeppni Evr-
ópumótsins til þessa og fara því í
eins leiks bann, fái
Eftir þeir annað spjald;
Edwin Birkir Kristinsson
Rögnvaldsson markvörður, Rúnar
Kristinsson, Sigurð-
ur Jónsson fyrirliði, Lárus Orri Sig-
urðsson, Hermann Hreiðarsson,
Brynjar Björn Gunnarsson og
Helgi Kolviðsson. Hvernig ætlar
Guðjón að taka á þessum vanda?
„Eg er ekki endanlega búinn að
ákveða það, en það er ljóst að menn
verða að gá að sér. Spjald í leiknum
á móti Andorra þýðir að viðkomandi
verður í banni í leiknum gegn Úkra-
ínu. Við höfum reyndar spilað þrjá
síðustu landsleiki í keppninni án
þess að fá á okkur spjald. En við
fengum þrjú í leiknum á móti And-
orra úti, tvö af þeim voru nú bara
brandari af hálfu dómarans, en þau
gilda samt sem áður. Við þurfum
því að gá að okkur.“
Eyjólfur Sverrisson og Steinar
Adolfsson voru ekki á meðal þeirra
sem komu til landsins fyrir leikina
tvo. Eyjólfur mun gangast undir
uppskurð á hné og Steinar er með
brotna hnéskel. Nokkrir aðrir leik-
menn eiga við minniháttar meiðsl að
stríða og gætu misst af leiknum við
Andorra. Rúnar Kristinsson og
Þórður Guðjónsson eiga við bak-
meiðsl að stríða og Tryggvi Guð-
mundsson meiddist á æfíngu í
fyrradag og gat ekki æft með liðinu
í gær. Þó virðast Auðun Helgason,
sem fór meiddur af velli í leiknum
við Færeyinga á dögunum, og Pétur
Marteinsson hafa jafnað sig, að
sögn Guðjóns.
„En eigi að síður er það þannig að
maður veit slíkt aldrei endanlega
fyrr en hugsanlega á fóstudags-
kvöld eða laugardagsmorgun -
hvort mennirnir sem eru á gráu
svæði verði allir tilbúnir."
Sigurður er líka meiddur, með
brákað bein í lið stóru táar við tá-
bergið. En Sigurður er af góðu kyni
eins og menn vita - mikið hörkutól.
Hann verður bara að þola þetta og
veit að það er enginn leikur án sárs-
auka,“ segir Guðjón, lítur til Sigurð-
ar og hlær, en mönnum er enn í
fersku minni er Sigurður nefbrotn-
aði í leiknum við Úkraínu fyrr á ár-
inu, en hélt eigi að síður áfram í
leiknum, sem lauk með jafntefli, 1:1.
Landsliðshópurinn er skipaður
nítján mönnum, en leyfilegt er að
vera með átján á leikskýrslu í Evr-
ópukeppninni. Hann verður því full-
skipaður, þótt einn fyrmefndra leik-
manna verði ekki orðinn leikfær.
■ Héldu að ég .../C2
KÖRFUKNATTLEIKUR: MAGIC JOHNSON LEIKUR MEÐ MAGIC M7 í SVÍÞJÓÐ / C4