Morgunblaðið - 26.09.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 26.09.1999, Síða 4
4 € SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG BANDARÍKIN PARÍS í LAS VEGAS HINN fyrsta september síð- astliðinn var opn- að í Las Vegas, höfuðborg spila- vítanna, hótel og spilavíti sem er eftirlíking Eiffel- turnsins í París, aðeins helmingi minna. Fjölmarg- ir nafntogaðir einstaklingar voru viðstaddir opnunina, en meðal þeirra voru frönsku leikararnir Cha- terine Denevue og Line Renaud. Hótelið er sagt eitt hið glæsileg- asta í borginni, enda 2.196 herbergi, áttatíu og fimm þúsund fermetra spilavíti, tíu veitingastaðir og frægustu verslun- arkeðjur heims meðal þess sem boðið er upp á. Hótelið sem stend- ur við hina frægu Las Vegas Bou- levard South, er talið með dýrari hótelum í borginni en nóttin kostar að meðaltali 105 dollara. Las Vegas Review Journal á Netinu DANMÖRK HAUST í TÍVOLÍ I dag, sunnudag- inn 26. septem- ber, verður hald- in uppskeruhátíð 157. starfsárs Kaupmannar- hafnartívolísins með miklum glæsibrag, en aðstandendur lofa risastórri flugeldasýningu í garðinum. Mesta aðdrátt- arafl sumarsins var nýreistur 63 metra hár gyllt- ur turn byggður í stíl Austur- landa fjær. Lyfta flytur hugaða gesti á met- hraða upp á efsta pall turnsins þar sem þeir geta notið útsýnisins yfir Kaupmannahöfn áður en þeir hrapa niður aftur á nokkurum sekúndum, eða hraðar heldur en í frjálsu falli. Copenhagen this Week ENGLAND LYSTIGARÐUR VÍNSINS GARÐUR tileinkaður framleiðslu víns var opnaður á dögunum í næsta nágrenni við Shakespe- are-leikhúsið í Lundúnum á suðurbakka Thames. Þó svo að Englendingar standist ekki samanburð við aðrar Evrópu- þjóðir í vínfram- leiðslu segir í frétt Daily News að þeir séu miklir áhugamenn um vín og vínmenn- ingu. Tilgangur með starfsemi garðsins, sem ber nafnið Vin- opolis, er einmitt að vekja frekari áhuga meðal almenn- ings um allt er snýr að vínfram- leiðslu því þekk- ing er lykill að góðri vínmenn- ingu. Daily News ÞÝSKALAND GONDÓLAR í HAMBORG Hamborgarbúinn Ina Mierig kynnti nú í sumar gondólakúnst Feneyja fyrir borgarbúum, og sigldi þar ótrauð um síki og fljót jafnan með full- setinn bát. Segir hún borgarbúa hafa tekið sér furðu vel þó svo að hún hafi ekki alltaf uppfyllt óskir þeirra sem margar hverjar voru æði furðu- legar. Gestii'nir eni með merkilegar hugmyndir um hvað eigi og ekki eigi að gerast á gondólum segir Ina og krefjast þess meira að segja að ég syngi, klæðist matrósar- fötum eða reyna að leiðbeina mér hvernig ég eigi að bera mig að við starfið. „I Feneyj- um myndi engum detta í hug að skipta sér af mér, enda er fólk upp- tekið af því að slappa af í bátsferð- inni, en Þjóðverjar eru haldnir þeirri tflhneigingu að þurfa í sífellu að betrumbæta aðra.“ Að hennar sögn er yndislegt að sigla með stressaða íbúa stórborgarinnar inn í rjóður þar sem algjör kyrrð ræður og sjá þá gleyma amstri hversdags- ins og jafnframt kærkomin nýjung frá mikflli umferð í Feneyjum. DER SPIEGEL Séð yfir nokkur húsanna og lónið í Guadalest. KONA í NÁLAR- AUGA Guadalest er lítið þorp hótt uppi í fjöilum fyrir ofan Altea q Spáni. Axel Jón Birgisson heimsótti þar skemmtilegt örlistasafn. Axel Jón Birgisson Konan stendur inni í nálarauga. GUADALEST er gömul Márabyggð og það er vinsælt hjá ferðalöngum að heimsækja þorpið og skoða útsýnið og söfnin. Eins er gaman að ganga um göturnar sem eru þröngai’ og húsin úr kalki, alhvít og falleg. Mikið er um smáverslanir sem selja allt mögulegt smá- dót og minjagripi frá staðnum. Þorpinu er komið hag- anlega fyrir efst uppi á kletti og hæst gnæfir gamalt virki yfir dalnum sem ber vitni um forna tíma. Merkilegt þótti mér að ganga í gegnum klett tfl að komast inn í elsta hluta þorpsins og þaðan í gegnum gamlan kirkju- garð og svo upp í virkið. Fallegt lón er þarna í ná- grenninu sem eru vatns- birgðir Altea og Benidormbúa. Elskendur ofan á bjöllu. Örlistasafn Eitt lítið safn skoðaði ég mjög merkilegt fyrh- það að verkin eru örsmá. Svokallað örlistasafn. Verkin eru unnin úr leir, málmi, mannshári, steini og tré. Myndirnar eru t.d. af elskendum á manns- hársrót og pari að elskast í skel ofan á bjölluskor- dýri og konu sem stendur inni í nálarauga. Þarna er líka mynd af fugli sem er að ná sér í safa úr blómi og mannslíkama á hári. Ég leit oft tvisvar á hlutinn og svo í stækkun- arglerið því ég trúði þessu varia en ekkert sást nema með öflugu stækkunar- gleri. • Guadalest er í um 45 km fjarlægö frá Benidorm og 15 km fjarlægð frá Althea. Sólarhringskort í söfnin í Kaup- mannahöfn # „I HOM tMK). a M J V ái ® w ***». I M*Nw, CtMnraá uj P : >*4»*n jfj * i fjcewrww. Wonderful Copenhagen Th# offlcial loLMisl siie of Wond*rful Cop#nhafl«nl Ai* yw iooLhy fcu Waimeitwt «n Wíndwfúi Oawnlwgvn - joo h*v* tm* la 16* *«*i w** ’NOít.dV i> ownxl ini nja by 'CissúzÚáS^iíeiÚUXiiíil ■ th* íanvwfwn *>vJ vnitei* bu>*»p af (h* 5**«*» C«|)*nft»o»n - «wl * t>* iVv** «tí toi IN C*prt»l Cop*r*i*«M i <4 vxtifi 1« «li*i i*(«v«"l *n4 Cwfco* tonkmf »t*i »>w 1« C'op»>’h*y»fi-*it«ð W* dð 1>ep». wjta 9k jww t« ysu *nd ***** jreu »r*f« **»t>-)CWö*y » * Rvmemher thaugh: fUal lif* l» itiM (•») ihimji TM viiw«l wocw.tlk comi>»t# wíth r*«l Itf* Oin#n»i*a *»- Com* and •«• lei youitvlf. Wb «i« InuVlug (eiwatd la walromlny yuul SW oHhamwy fcwum * *rtc« d». í2J m MARGIR leggja leið sína til Kaupmannahafnar ef marka má flugáætlun Flugleiða til Dan- merkur en þangað er um þessar mundir flogið þrisvar sinnum á dag og jafnvel fjórum sinnum suma daga. Með SAS er síðan hægt að fljúga til Kaupmannahafnar á laugardög- um en aðra daga er SAS með föst sæti fyrir sína viðskiptavini í vélum Flugleiða. Það er margt hægt að gera í Kaupmannahöfn. Hafí lesendur áhuga á að kynna sér hvað borgin hefur upp á að bjóða er tilvalið að skoða slóðirnar http://www.- woco.dk og http://www.ctw.dk. Fyrri slóðin ber nafnið Wonderful Copenhagen. Hún er rekin af markaðsskrifstofu Kaupmanna- hafnar í samstarfi við aðra og er opinber ferðasíða fyrir Kaup- mannahöfn og næsta nágrenni. Þar er að finna upplýsingar um gististaði, uppákomur og sýning- ar og hægt að fá allar upplýsing- ar um sérstakt Kaupmannahafn- arkort sem stendur ferðamönnum til boða. Kortið veitir aðgang að 60 söfn- um og einnig er hægt að fá af- slætti af bílaleigubílum, ferjum, skoðunarferðum, lestarferðum og fleiru með þessu korti. Kortið gildir í sólarhring, tvo sólar- hringa eða fjóra sólarhringa, og kostar frá 140 dönskum krónum eða um 1.500 íslenskar krónur fyrir fullorðna upp upp í 320 krónur danskar sem er nálægt 3.300 íslenskar krónur. Þá er á þessari slóð að finna uppástungur að skoðunarferðum. Listi yfir veitingahús Seinni slóðin er rekin af þeim sem gefa út tímaritið Copenhagen This Week. Þar er að finna upplýs- ingar um veitingahús í borginni, það sem um er að vera í menningu og listum, sögu borgarinnar, gisti- staði, opnunartíma verslana, kort af borginni og svo framvegis. Þegar farið var inn á veitinga- húsasíðuna var mjög aðgengilegur listi yfir veitingastaði. Hægt var að velja um danska matargerð, ind- verska, alþjóðlega, gi’ænmetisstaði og svo framvegis og fá síðan lista. Þá var einnig sagt frá veitingahúsi sem kynnt var í nýjasta bæklingn- um Copenhagen This Week sem að þessu sinni var veitingahúsið Nico. Það var opnað sl. vor. Mat- seðlinn var kynntur, gefið upp verð á réttum og heimilisfangið sem og símanúmer. Eini gallinn við þessa síðu var að sumt var verið að lagfæra í síðustu viku og því var t.d. ekki hægt að komast inn á síðu með upplýsingum um verslanir eða gistingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.