Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.10.1999, Blaðsíða 3
2 D SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1999 D 3' BÍLAR BÍLAR eða hcldl), 40 manns panta dísil M-jeppa MERCEDES-Benz M-jeppinn kem- ui’ á markað hér á landi með dísilvél í desember. Hann verður talsvert bet- ur búinn í grunninn en ML 230 bens- ínbíllinn og á að kosta um fjórar millj- ónir króna. Nú þegar hafa 40 manns pantað dísilútgáfuna hjá Ræsi hf., umboðsaðila Mercedes-Benz. Dísilvél M-jeppans er fimm strokka common- rail, samrásarinnsprautun, sem skilar 163 hestöflum án forþjöppu. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða er sögð taka rétt yfir 11 sekúndur. Staðalbún- aður er ný sex gíra beinskipting Mercedes-Benz en hann verður einnig fáanlegur með sjálfskiptingu. o O oo |eppa Hleypt úr dekkjum áður en haldið var inn Kaldadal. ContiWinterContact TS 780 heita nýju vetrardekkin frá Continental. Ford og Mazda smíða FORD hefur staðfest að fyrirtækið hafi í hyggju að smíða fjórhjóladrif- inn jeppa í samstarfi við Mazda. Bíll- inn verður smíðaður í japanskri verksmiðju og hefst framleiðslan á fyrri hluta næsta árs. Ford á meiri- hluta í Mazda. Nýr barna- bílstóll Volvo VOLVO hefur kynnt nýja gerð bamabílstóls. Börn allt að þriggja til fjögurra ára gömul, eða þar til þau ná 18 kg þunga, geta notað stólinn sem snýr í öfuga átt við aksturs- stefnu bílsins. Fram til þessa hafa barnabílstólar af þessu tagi aðeins verið til fyrir börn upp að 9 kg þyngd. Þegar árekstur á hindrun framundan verður færist höfuð og háls farþega af afli fram á við sem er sérstaklega hættulegt ungum börn- um þar sem höfuð þeirra er hlutfalls- lega þungt í samanburði við aðra lík- amshluta. Nýi barnabílstóllinn sem snýr í öfuga átt við akstursstefnu kemur hins vegar í veg fyrir að höf- uð og háls hreyfist að ráði. Við prófunarbrautina á Langjökli. CONTINENTAL hjólbarða- framleiðandinn þýski hefur staðið fyrir umfangsmikilli kynningu á vetrarhjólbörðum á Langjökli síðustu daga með þáttöku um 400 blaðamanna frá Evrópu. Einnig komu til landsins fjórar sjón- varpsstöðvar, frá Þýskalandi, Ítalíu og Austurríki, sem auk þess að fjalla um hjólbarða Continental, munu gera íslandi og íslenskri náttúru skil í sinni umfjöllun. Undirbúningur að komu Continental til landsins hefur staðið yfir í langan tíma en upphaílega stóð til að fyrirtækið yrði með kynningu hér á landi fyrir tveimur árum en ekkert varð úr því. Miklir flutningar upp á jökul Arngrímur Hermannsson, forstjóri Addlce ferðaskrifstofunnar, sem sá um skipulagningu og flutninga til og frá Langjökli, segir að forsvarsmenn hinna ýmsu deilda Continental hafi komið sjö sinnum til landsins til að undirbúa kynninguna. Hann sagði að gengi þetta verkefni vel gæti það leitt til fleiri verkefna af svipuðu tagi því það væri fljótt að spyrjast út hvern- ig staðið væri að slíkum málum. Að sögn Markus Burgdorf, hjá almenningstengsladeild Continental, nam kostnaður við kynninguna ekki undir Continental hefur undanfarna daga kynnt nýja línu vetrarhjólbarða á Langjökli og eytt í það ríflega 70 milljónum króna. 400 blaðamenn frá Evrópu hafa sótt kynning- una. Guðjón Guðmundsson slóst í hópinn. einni milljón dollurum, eða rúmlega 70 milljónum króna, og er þá ekki meðtalinn launakostnaður starfs- manna fyrirtækisins sem hafa unnið að undirbúningi kynningarinnar um nokki-a vikna skeið. Blaðamenn og forsvarsmenn Continental bjuggu á Hótel Sögu en blaðamennirnir komu í alls tíu hópum, um 40 manns í hverjum hóp. Hér dvöldust þeir í tvær nætur og þrjá daga, þar af einn dag á Langjökli þar sem ráðgert var að kynna nýja línu vetrarhjólbarða. Blaðamaður Morg- unblaðsins slóst með í förina og varð vitni að barnslegri hrifningu erlendu gestanna á íslenskri náttúru og ekki síst akstri á jökli, sem fæstir höfðu nokkurn tíma stigið á fyrr. Starfs- menn Addlce sögðu að þrátt fyrir vandamál sem hefðu komið upp vegna slæmra veðurskilyrða fyrstu daga kynningarinnar hefðu blaðamenn aldrei misst gleði sína og talið sig hafa lent í miklum ævintýrum, og jafnvel hrakningum, á íslandi. Gekk ilia fyrstu dagana Burgdorf sagði að ísland hefði orð- ið fyrir valinu þar sem það væri einn af fáum stöðum í Evrópu þar sem hægt væri að ganga út frá því sem vísu að snjó væri að finna á íjöllum. Burgdorf segir að prófunin hefði þó að mestu leyti farið fyrir ofan garð og neðan fyrstu dagana vegna slæmra veðurskilyrða á jökli. Blaðamenn hefðu þó sýnt því skilning þegar þeir litu sjálfir aðstæður uppi á jökli. Bíla hafí fennt í kaf og aksturbrautir sem voru troðnar að morgni voru orðnar ófærar eftir hádegi. Ferðaskrifstofan Addlce sá um að flytja um 20 fólksbifreiðar upp á Lan- gjökul sem nota átti við prófanirnar og nokkra gáma sem starfsmenn Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Continental höfðust við í meðan á blaðamannaheimsóknum stóð. Síðan flutti Addlce einnig blaðamennina á jökul, sem fæstir höfðu áður setið í ís- lenskum ofurjeppum sem hefur verið sérstaklega breytt til að takast á við ferðir um hálendið. Þama var að finna hálfan annan tug jeppa, Toyota Land Cruiser, Nissan Patrol og einn Land Rover Defender var einnig meðal ökutækja. Bílunum hafði öllum verið breytt iyrir 38 tommu hjólbarða en líka var farið á Toyota Land Cruiser á 44 tomma dekkjum, þeim sama og ekið var í tvígang yfir Grænlandsjökul fyrr á árinu. Allt vom þetta hinir vígalegustu farskjótar með öllum mögulegum búnaði, svo sem raf- magnsloftdælu, GPS staðsetningar- búnaði og fjarskiptatækjum af ýmsurn gerðum. Aftastur fór Ford Econoline sem hafði verið breytt í útvarpsstöð á hjólum, Radio Conti, sem útvarpaði á FM 106 stuttum fréttum af Continental fyrirtækinu, nýju hjólbörð- unum, markaðshlutdeild fyrirtækisins og léttri tónlist í bland. BMW Z9 er rennilegur og krafta- legur sportbíll með einni tækni- væddustu V8 dísil- vél heims. ContiWinterContact er með örskurði í sólanum. Haldið var af stað frá Hótel Sögu að morgni sl. sunnudags og farið um Hvalfjarðargöngin, Borgames og inn að Húsafelli. Síðan tók við Kaldidalur eyðilegur og líflaus. Við blasti Eiríks- jökull og síðar Langjökull, Hádegis- fjall og Okið í suðri. Við jökuljaðarinn staðnæmdist hópurinn og á meðan blaðamenn dúðuðu sig í hlýja galla sem Langjökull hf., fyrirtæki sem heldur úti vélsleðaferðum og reksti-i snjóbíla á Langjökli, skaffaði, hleyptu jeppamenn lofti úr hjólbörðum. Til stóð að fara í útsýnisferð upp að Toppi, hæsta punkti jökulsins. Ferðin upp jökuljaðarinn sóttist vel en þegar kom- ið var upp í meiri hæð hvarf skyggnið á augabragði og færðin þyngdist veru- lega. Enn fóru menn út og hleyptu meira lofti af hjólbörðum þannig að ekki var eftir nema um þrjú pund í þeim. Með því móti stöðvaði ekkert fór bílanna. Ekið vai- eftir GPS tækinu en ákveðið var að snúa við áður en Toppi var náð var lítils skyggnis. Vitað er að utan slóða geta leynst hættuleg- ar sprungur. Áð var í Kaldadal. Eiríksjökul ber við himin. Þar sem gámunum hafði verið kom- ið fyrir uppi á jökli var að finna heilan flota af fólksbílum. Þarna voru VW Golf, Alfa Romeo 146, VW Lupo og fleiri vinsælir bílar frá Evrópu, allir á nýju ContiWinterContact TS 780 dekkjunum. Þarna var líka Mazda Mi- ata með blæjuþaki, sem var reyndar á kafi í einum skaflinum þegar sá er þetta ritar kom á staðinn. Það var furðuleg sýn að horfa á þennan spræka sportbíl í annarlegu umhverf- inu innan um snjóbíla, vélsleða og of- urjeppa. Við vorum fyrsti hópurinn sem gafst tækifæri að prófa nýju dekkin í sénít- búinni reynsluakstursbraut. Búið var að troða tiltölulega nýfallinn snjóinn en grunnt var niður á glerhált svellið. Hópnum var skipt í tvennt. Meðan annar helmingurinn fór í dálitla ferð á vélsleðum undir leiðsögn starfsmanns Langjökuls, reyndu hinir nýju dekkin. Ekki buðu skilyrði þó upp á nákvæma prófun heldur miklu fremur nasasjón af virkni hins nýja býkúpumynsturs sem myndað er með ör- tff- Mazda Miata fremst á myndinni ásamt öðrum bfium sem iiafði fennt í kaf á Langjökli. skurði dekkjanna. Á tungumáli hjóla- þar með endingu auk þess sem skurð- barðaframleiðenda er talað um að irnir eru sagðh- ryðja betur frá sér míkróskera dekk. Notaðar eru sér- vatni og draga því úr hættu á fleyti- Mesta markaðs- hlutdeild í Evrópu CONTINENTAL hefur mesta markaðshlutdeild í Evrópu fyr- ir vetrarhjólbarða. Árið 1994 seldust alls alls 18 milljónir vetrarhjólbarða í Vestur-Evr- ópu, þar af 5 milljónir sem framleiddir voru af Continental. Fimm árum síðar nam heildarsalan 28 milljónum hjólbarða og hlutur Continental var um 30%. Continental gaf út sérstaka fréttatilkynningu í tilefni af kynningu á ContiWinterContact TS 780 vetrarhjólbörðunum í Hannover og Reykjavík á sama tíma. Þar segir að nýju hjól- barðarnir hafí verið þróaðir í því skyni að auka enn umferð- aröryggi að vetrarlagi. Hjól- barðaframleiðendur hafa allir sameiginlegt vandamál að ghma við; að framleiða hjól- barða með hámarksveggripi jafnt í snjó og á þurrum vegum. Continental telur sig hafa færst nær þessu markiniði með „bý- kúpumynstri" sem skorið er í sólann örfínum skurðum. Þetta er í fyrsta sinn sem mynstur af þessu tagi er kynnt í Continental. Jafnframt notast fyrirtækið við n3Íja gerð gúmmís með blöndu af díoxíð sem sagt er draga úr hvin á þurrum vegum. Meginmarkmið Continental með þróun nýja hjól- barðans var að ná fram eins stakar skurðvélar til að rista fíngerða skurði í sólann sem gerir það að verk- um að flipar fletjast út og dekkið fær betra grip. Þessi tækni er þekkt meðal íslenskra jeppamanna sem margir hafa látið míkróskei-a undir sína bíla en þetta er í fyrsta sinn sem Continental beitir þessari tækni sem jafn- framt er sögð bæta kæl- ingu hjólbai-ðanna og Smart í sport útfærslu MERCEDES-Benz hefur kynnt sportútfærslu af Smart bílnum. Bíll- inn er 3,20 m á lengd og 1,6 m á breidd og vegur 700 kg. Hann lítur einna helst út eins og leikfang en hér er um fullgildan lítinn sportbíl að ræða. Hann er á 17 tommu felgum og hefur 4,60 sm lengra hjólhaf en Smart borgarbíllinn. Bíllinn er með sömu vél og borgarbíllinn, þ.e. þriggja strokka, 55 hestafla bensín- vél með forþjöppu. Stærri vél RÖNG vélarstærð var tilgreind í Nissan Micra í samanburðartöflu sunnudaginn 26.9. í umfjöllun um Daewoo Matiz. Rétt vélarstærð Micrunnar er 1.300 rúmsentimetrar og vélin er 75 hestöfl. Beðist er vel- virðingar á þessu ranghermi. Hugmynd BMW u framtíðarsportbíl BMW hefur kynnt hugmyndabílinn Z9 sem er glæsi- lega hannaður sportbíll hlaðinn tækni og búnaði. Yfir- byggingin bílsins er úr trefjaefnum og grindin er úr áli. Þetta gefur yfirbyggingunni nægan styrk en dregur um leið verulega úr þyngd bílsins. Vélin er helsta stolt BMW, sama V8 dísilvélin og kynnt var í 740d bílnum. Z9 er með rennilegum framenda sem er hannaður til að kljúfa loftmótstöðu með sem minnstu átaki en aftur- endinn er stuttur og kraftalegur. Þetta er stór sport- bfll, fimm metrar á lengd og næstum tveir á breidd. Hæðin er 1,35 m og hjólhafið 3,10 m. Af vatnskassahlíf- inni og tvöföldum framlugtum sést að þetta er hrein- ræktaður BMW. Ofan við framlugtir eru stefnuljósin sem varpa frá sér neónljósi. Stór hjólin setja kraftalegan svip á bílinn. Að framan eru 20 tommu felgur og 21 tomma að aftan. Það þarf líka gott grip til að taka við aflinu frá V8 dísilvélinni með samrásarinnsprautuninni. Hún er 3,9 lítrar að rúmtaki, með forþjöppu, skilar 245 hestöflum og togaflið er hvorki meira né minna en 560 Nm. Z9 er með vængjadyr báðum megin og ná þær yfir allt farþegarými bílsins. Hurðirnar opnast upp og mynda þægilegt aðgengi að öllum fjórum sætunum. Einnig er hægt að opna hurðirnar á hefðbundinn hátt og opnast þá einvörðungu fyrir ökumann og farþega í framsæti. Þessu er öllu stjórnað með fjarstýringu. Fjarstýringin stjórnar ekki aðeins hurðunum heldur gangsetur einnig raf- kerfi bílsins. Ökumaður stingur síðan lyklinum í rauf í millistokk og þrýstir á hnapp í mælaborðinu til að gangsetja vélina. Lítill gírstilkur er á stýrissúlunni en sjálfskiptingin er með handskiptimöguleika og er þá líH»u Giato l»asti. akstri (aquaplanning). Ai-ngrímur Hermannsson, forstjóri Addlce ferðaskrifstofunnar, sem ann- ast skipulagningu og flutninga til og frá Langjökli, segir að næstu hópar sem á eftir komu hafi fengið betri skilyrði til að prófa hjólbarðanna. Þá hafi t.a.m. verið komið upp hemlunar- braut og hringbraut sem reynir á grip hjólbarðanna undir öðru álagi og kringumstæðum. góðu veggripi og hægt er þegar hliðarkraftar verka á bílinn í beygjum um leið og hámarks- aksturseiginleikum væri haldið á blautum og þurrum vegum. Fyrri kynslóð ContiWinter- Contact var einvörðungu með beinum skorum langsum eftir sólanum og þversum. Nýjungin nú er býkúpumynstrið sein Continental segir að hafí yfír- burði þegar kemur að hliðar- kröftum. Til SÖIu — beint frá Kanada 1997 Jeep Grand Cherokee Ltd. og Laredo, báðir lítið keyrðir. Verð 27,000.00 og 23,000.00 kanadískir dollarar, FOB Halifx. Netfang: natcome@aol.com Sími: 001 514 637 2486. skipt með því að þrýsta á hnappa í stýrinu. Með Z9 vill BMW koma á framfæri sinni framtíðarsýn, jafnt í tækni sem útlitshönnun. Alls óvíst er hvort bíllinn nái því að komast á framleiðslustig. BILARAF er flutt ur Borgartúni 19, í Auðbrekku 20 í Kópavogi Nýtt símanúmer er 56 40 400 Alternatorar og startarar í fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og bátavélar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.