Morgunblaðið - 30.10.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 30.10.1999, Síða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA 1999 ■ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER BLAÐ Bologna skoðar Brynjar Björn ÍTALSKA knattspyrnuliðið Bologna og hol- lenska liðið Vitesse Arnhem eru sögð hafa sýnt Brynjari Birni Gunnarssyni, leikmanni sænska úrvalsdeildarliðsins Orgryte, áhuga, að því er kemur fram á heimasíðu sænska liðsins. Brynjar Björn hefur oftar en ekki verið val- inn besti leikmaður liðsins að mati sænskra fjölmiðla á keppnistímabilinu og hefur Erik Hamrén, þjálfari liðsins, sagt að Brynjar væri einn besti miðvörður deildarinnar. „Ég hafði ekkert heyrt af því. Það er vitan- lega gaman að heyra af áhuga annarra liða, en ég tek honum með fyrirvara á meðan félög hafa ekki sambandi við mig eða félagið. Ég íhuga það vel ef eitthvað berst, en það hefúr ekki gerst,“ sagði Brynjar Björn, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við Orgryte. Birgir Leifur komst áfra BIRGIR Leifur Hafþórsson, at- vinnumaður í golfi frá Akranesi, hefur tryggt sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti fyrir aðalmótaröð Evrópu á næsta tímabili, en það verður haldið hinn 17. til 22, nóvember. Iirgir Leifur lék síðasta hringinn á Peralada-vellinum á Spáni í öðrum áfanga forkeppninnar í gær á 70 höggum, tveimur undir pari, og hafnaði í 11. til 19. sæti, en 29 efstu keppendumir á vellinum komust áfram. Birgir Leifur iék fjóra hringi á 281 höggi, sjö undir pari, og var tveimur höggum á undan þeim sem urðu að leika bráðabana um laus sæti í lokamótinu. Frakkinn Jean- Francois Lucquin varð efstur á 271 höggi. Leikið var á tveimur öðrum völl- um, Pals og Emporda. Sami fjöldi komst áfram þar, en alls hófu 242 kylfmgar keppni á völlunum þremur. Þeir áttatíu og sjö, sem komust á lokamótið, slást í hópinn með þeim sem náðu sér ekki á strik á aðal- mótaröðinni í ár og þurfa því að fara aftur í undankeppni. Síðasta mót evrópsku mótaraðarinnar fer nú fram í Montecastillo á Spáni og lýk- ur á sunnudag. Birgir Leifur hefur þegar leikið í tveimur úrtökumótum í haust, en lokamótið verður það síðasta en jafn- framt það erfíðasta. Þar er keppend- um fækkað eftir fjóra hringi, áður en úrvalshópurinn leikur 36 holur tii viðbótar í keppni um þátttökurétt á evrópsku PGA-mótaröðinni, sem lýsa má sem úrvalsdeild atvinnu- kylfinga í Evrópu og gefur þátttaka í henni stig til vals á Ryder-liðinu. A mótaröðinni leika sterkustu kylfíng- ar álfunnar, þ.á m. Skotinn Colin Montgomerie og Spánverjinn Sergio Garcia. Þar eru háar fjárhæðir í boði. ■ Var staðráðinn... / B3 KNATTSPYRNA Eggert og Guðjón í viðræðum EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusambands íslands, og Guðjón Þórðarson, landsliðs- þjálfari, hittust á ný á fundi í gær og ræddu landsliðsþjálf- aramálin. „Fundurinn var gagnlegur. Við munum hittast aftur um helgina og ræða málin frekar,“ sagði Eggert við Morg- unblaðið í gærkvöldi. Samningur Guðjóns við KSÍ rennur út á morgun. Sheff. Wed. fylgist með Eiði Smára GERT er ráð fyrir að Sheffield Wednesday geri tilboð í Eið Smára Guðjohnsen, leikmann Bolton, um leið og Andy Booth verði seldur til Leicester. Búist er við að Booth gangi til liðs við Leicester á næstu dögum en fé- lagið hefur boðist til þess að greiða um 320 milljónir ísl. króna fyrir hann. Booth hefur hins veg- ar ekki enn tekið ákvörðun um hvort hann vilji fara frá Sheffield Wednesday. Á heimasíðu Bolton segir að ef Booth fari til Leicester muni Danny Wilson, knattspyrnusljóri Sheff. Wed., reyna að nota þá fjárinuni sem hann hefur undir höndum til þess að kaupa Eið Smára. Wilson er sagður hafa fylgst með leikmanninum um tíma og hrifíst af frammistöðu hans. Sam Allardyce, knatt- spyrnustjóri Bolton, segir hins vegar að enginn leikmaður liðs- ins sé falur nema fyrir álitlega upphæð. Sheff. Wed hefur ekki gengið vel í úrvalsdeildinni það sem af er, er í neðsta sæti deild- Jens Martin kominn við þríðja mann BÚIST er við að færeyski markvörðurinn Jens Martin Knudsen skrifi undir samning við Leiftur frá Ólafsfirði í dag um að hann taki við þjálfun liðsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er fyrirhugað- ur samningur til tveggja ára. Jafnframt er stefnt að því að Einar Einarsson verði aðstoð- arþjálfari liðsins. Jens Martin kom til landsins í gær. Með houum í för var færeyski landsliðsmaðurinn Sámal Joensen frá Gotu en for- svarsmenn Leifturs vilja semja við hann til tveggja ára. Sámal, sem er 24 ára vamar- og miðjumaður, hafði gert samn- ing við Leiftur um að leika með liðinu í sumar en af því varð ekki þvi' hann fékk sig ekki lausan frá Gotu. Þá hefur Leiftur sýnt fær- eyska leikmanninum Jens Erik Rasmussen áhuga og eru líkur til þess að hann gangi til liðs við Olafsfjarðarliðið. Jens Erik er 31 árs miðjumaður og hefur leikið með færeyska landsliðinu. EYJAMENN VONGOÐIR UM AÐ BIRKI SNUIST HUGUR/B4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.