Morgunblaðið - 03.11.1999, Blaðsíða 1
250. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
> ________
Tveggja daga minningardagskrá 1 Osló um Yitzhak Rabin lokið
Vonir um að friðarferlið
hafi verið endurvakið
■ Strauss-Kahn var ímynd/23
Ósló. Reuters. AP.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, lýsti í gær ánægju með fund
sinn með Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, og Ehud Barak,
foi'sætisráðherra Israels. Fundur-
inn batt enda á tveggja daga minn-
ingardagskrá um fyrrverandi for-
sætisráðherra ísraels, Yitzhak Rab-
in, sem haldin hefur verið í Ósló.
Rabin var myrtur af andstæðingum
friðarsamkomulags Israela og Pal-
estínumanna árið 1995.
„Við höfum lokið mjög góðum
fundi, ég tel að með honum hafi frið-
arferlið verið endurvakið," sagði
Clinton við fréttamenn eftii' fund-
inn. Leiðtogarnir ræddu um friðar-
viðræður Israela og Palestínu-
manna sem senn munu hefjast að
nýju og er ætlað að ljúka með sam-
komulagi í september á næsta ári.
Clinton upplýsti þó ekki nánar hvað
leiðtogunum hefði farið á milli og
ekki var heldur gefin út opinber til-
kynning eftir fundinn. Að sögn
embættismanna var markmið hans
fyrst og fremst að örva friðarvið-
leitni þjóðanna.
Ræðst við I Ramallah
Samningamenn ísraela og Palest-
ínumanna hefja viðræður á mánu-
dag í borginni Ramallah á Vestur-
bakka Jórdanar og stefnt er að því
að uppkast að friðarsamkomulagi
milli þjóðanna verði tilbúið um miðj-
an febrúar næstkomandi. Bæði
Barak og Arafat hafa á einkafund-
um með Clinton í Ósló lýst yfir rík-
um vilja til að það markmið náist en
talið er að erfiðar samningaviðræð-
ur séu framundan. Meðal við-
Reuters
Leiðtogar Bandaríkjamanna, ísraela og Palestínumanna sátu saman á fremsta bekk við minningarathöfnina
um Rabin í Ósló í gær. Ekkja Rabins, Leah Rabin, sat við hlið Clintons Bandaríkjaforseta.
kvæmra málefna, sem búast má við
að fjallað verði um í samningavið-
ræðunum, er staða Jerúsalem, land-
nám Israela á svæðum sem Palest-
ínumenn gera tilkall til og málefni
palestínskra flóttamanna.
Við minningarathöfn um Rabin,
sem haldin var fyrr um daginn,
fluttu leiðtogarnir þrír ávarp. Ekkja
Rabins, Leah Rabin, og Kjell
Magne Bondevik, forsætisráðherra
Noregs, töluðu einnig við athöfnina
sem fram fór í salarkynnum ráð-
hússins í Ósló. Margir ræðumanna
beindu orðum sínum beint til hins
látna, lofuðu hugrekki hans og
þökkuðu honum fyrir að hafa stuðl-
að að friði.
A mánudagskvöld kom til átaka
milli norskrar lögreglu og mótmæl-
enda í miðborg Óslóar. Mótmælt
var dauðarefsingum í Bandaríkjun-
um og voru um 80 handteknir en
fljótlega látnir lausir aftur.
Strauss- Christian
Kalin Sautter
Strauss-
Kahn segir
af sér
París. Reuters.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Frakk-
lands, Dominique Strauss-Kahn,
sagði af sér í gær í kjölfar ásakana
um að hann hefði gerst sekur um
fjársvik. Kvaðst hann vera saklaus,
en telja rétt að láta af embætti til að
forða því að ríkisstjórn Lionels
Jospins biði skaða af málinu.
Skrifstofa ríkissaksóknara í París
heimilaði á föstudag að rannsókn
yrði hafin á ásökunum um að
Strauss-Kahn hefði fengið jafnvirði
6,7 milljóna króna greiddar úr sjóð-
um opinberra tryggingasamtaka
námsmanna, MNEF, fyrir vinnu
sem hann hefði aldrei innt af hendi.
Á það að hafa gerst árið 1997, áður
en hann tók við embætti fjármála-
ráðherra.
Strauss-Kahn er eignaður heiður-
inn af miklum efnahagsbata í
Frakklandi og hann þykir hafa ver-
ið einn af homsteinum frönsku
stjórnarinnar. Lýsti hann því yfir í
gær að hann myndi taka við emb-
ætti fjármálaráðherra aftur, undir
eins og nafn sitt hefði verið hreins-
að.
Christian Sautter, sem áður
starfaði í fjármálai'áðuneytinu og
fór með stjóm fjárlagagerðar, var
skipaður í embætti fjármálaráð-
herra í stað Strauss-Kahns í gær.
Hrap EgyptAir-breiðþotunnar við Nantucket
Oveður hamlar leit
Newport í Rhode Isiand, Kaíró. AP, Reuters.
SLÆMT veður hamlaði í gær leit að braki og líkum úr Boeing-breiðþotu
flugfélagsins EgyptAir sem fórst undan ströndum Massachusetts á sunnu-
dag. Tugum ættingja, sem komið höfðu frá Egyptalandi til Bandaríkjanna
eftir helgina, var tjáð að þeir gætu yfirleitt ekki búist við að geta borið
kennsl á líkin sem era talin hs
Portillo
í framboð
MICHAEL Portillo, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra Bret-
lands, var í gær útnefndui'
frambjóðandi Ihaldsflokksins í
hverfunum Kensington og
Chelsea í London í aukakosn-
ingum 25. nóvember, að sögn
Sky-sjónvarpsstöðvai'innar.
Portillo féll af þingi í síðustu
kosningum en hann hafði þá
lengi verið talinn líklegur for-
ystumaður flokksins. Ósigurinn
virtist binda enda á þá drauma
en síðan hafa margir litið vonar-
augum til hans vegna óvinsælda
núverandi formanns, Williams
Hagues.
skaddast mjög er flugvélin hrapaði í sjóinn.
Harmur ættingjanna varð enn
meiri við þessi tíðindi, þeir grétu
margir sárt. Fundurinn þar sem
fulltráar yfirvalda ræddu við þá vai'
lokaður fjölmiðlum.
Allir sem vora um borð, 217
manns, fórast með vélinni. Egýpsk
stjómvöld skýrðu frá því í gær að 33
liðsforingjar úr landher og flugher,
þar af tveir undirhershöfðingjai',
hefðu verið meðal farþeganna en af
öryggisástæðum hefði stöðu þeirra
ekki verið getið í farþegaskrám.
Ferð björgunarskipsins USS
Grapple á slysstað seinkaði vegna
veðursins en í skipinu er háþróaður
leitarbúnaður. Þegar hefur fundist
nokkuð af braki og munum farþega
en aðeins eitt lík.
Reynt verður að finna sem mest
af brakinu og raða brotunum saman
til að ganga úr skugga um hvað hafi
valdið slysinu, mannleg mistök, bil-
un eða sprengjutilræði. Gert er ráð
fyrir að rannsóknin á slysinu muni
taka nokkra mánuði en yfirvöld
segja að ekki hafi neitt enn komið
fram sem bendi til þess að um
hryðjuverk hafi verið að ræða. Alls
taka 500-1.000 manns þátt í leitar-
starfinu á svæði um 100 kílómetra
sunnan við Nantucket-eyju, af þeim
eru 600 liðsmenn alríkislögreglunn-
ar bandarísku, FBI.
Enn nema tæki merki frá svörtu
kössunum í flakinu en í þeim era
upplýsingar um flugið og segul-
bandsupptökur. Búnaðurinn á að
geta virkað í 30 daga. Sendir hann
frá sér eitt merki á sekúndu, á að
þola þrýstinginn á allt að sex kíló-
metra dýpi og tærist ekki í saltvatni.
Kafarar verða notaðir við rann-
sóknina, eins og gert var þegar þota
TWA-flugfélagsins fórst undan
strönd Long Island 1996 og í fyrra
þegar þota Swissair hrapaði
skammt frá Nova Scotia. Talsmenn
yfirvalda segja að verkefni þeirra
verði mun erfiðara nú vegna þess að
dýpið, sem er um 80 metrar, sé mun
meira.
■ Bilun eða skemmdarverk?/22
AP
Skaut sjö manns
STARFSMAÐUR í tæknideild
útibús Xerox-fyrirtækisins í
Honolulu á Havaii skaut í gær sjö
vinnufélaga sína til bana með
skammbyssu og flúði síðan á
brott. Fórnarlömbin voru öll
karlar. Morðin voru framin um
áttaleytið að morgni að þarlend-
um tíma og hóf lögreglan þegar
umfangsmikia Ieit að manninum.
Annað húsnæði í eigu Xerox í
borginni var rýmt meðan
mannsins var leitað, óttast var að
hann héldi næst þangað.
Er síðast fréttist hafði lögregla
umkringt manninn þar sem hann
sat í bíl sínum. Hann heitir Byran
Uesugi, er sagður um fertugt og
sögðu aðspurðir starfsmenn að
hann væri „viðkunnanlegur og
stilltur náungi“. í Reuters-frétt-
um sagði að hann væri skráður
eigandi 17 skotvopna. Hann mun
hafa starfað hjá fyrirtækinu í uin
áratug. Á myndinni, sem tekin
var af sjónvarpsslqá, sjást
sjúkra- og lögreglubílar við
Xerox-bygginguna.