Morgunblaðið - 03.11.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
A
Utvegssvið Verkmenntaskólans
á Akureyri á Dalvík
Námið lagt
niður ef aðsókn
Iðnaðarráðherra um frekari sameiningu banka
Kall frá markaðinum
væri áhrifameira
glæðist ekki
ÚTLIT er fyrir að útvegssvið Verk-
menntaskólans á Akui-eyri á Dalvík
verði lagt niður glæðist aðsókn ekki í
námið. Hjalti Jón Sveinsson, skóla-
meistari VMA, segir að ekki séu aðrir
kostir í stöðunni ef nemendum fjölgar
ekki næsta haust. Námið sé allt of
kostnaðarsamt fyrir skólann með svo
fáa nemendur. Einungis tvær um-
sóknir bárust sl. haust í 1. stigs skip-
stjórnarnám á Dalvík og var ekki far-
ið af stað með kennslu í náminu af
þeim sökum. Þá hófu fimm nemendur
nám á sjávarútvegsbraut sl. haust og
fjórir hófu nám í fiskvinnslu.
„Við eigum eiginlega ekki aðra
kosti í stöðunni, að minnsta kosti
ekki í bili,“ segir Hjalti Jón. „Skólinn
hefur ekki úrræði til að halda úti
starfsemi ef engir eru nemendurnir.
Sviðið fékk sérstaka fyrirgreiðslu frá
menntamálaráðuneytinu sl. haust til
að standa við skuldbindingar gagn-
vart þeim nemendum sem eru í
þessu námi. Það var einungis hugsað
fyrir þennan vetur en það verður
endurskoðað í vor,“ segir Hjalti Jón.
Ekki ráðist í kynningu
Hjalti Jón segir að ekki verði ráð-
ist í sérstaka kynningarstarfsemi á
náminu fyrir næsta ár. Slíkt hafi ver-
ið gert í fyrra og ekki borið árangur.
Hann bendir á að slök aðsókn í sjáv-
arútvegsnám sé vandi á landsvísu,
ekki aðeins á Dalvík.
Björn' Björnsson, kennslustjóri
útvegssviðsins á Dalvík, er ekki
sáttur við að námið á Dalvík verði
lagt niður. Hann bendir á þær
breytingar sem gerðar voni á skipu-
lagi námsíns fyrir tveimur árum og
telur eðlilegt að látið sé reyna á þær
áður en gefist verði upp.
„Guðjón A. Kristjánsson segir í
Morgunblaðinu fyrir stuttu að það
komi sér ekki á óvart hvað aðsóknin í
þetta nám sé dræm. Það hafi alltaf
legið ljóst fyrir að það yrðu fáir nem-
endur á þessum reynslutíma, það er
að segja eftir að því var breytt fyrir
tveimur árum. Ég spyr, hvers vegna
á þá að leggja námið hjá okkur niður
ef það er á allra vitorði að nú stendur
yfir aðlögunartími og þá séu nem-
endurnir fáir. Af hverju fáum við
ekki tækifæri til að kynna námið fyr-
ir ungu fólki? Að leggja skólann nið-
ur er ekki í anda byggðastefnu
stjómvalda,“ segir Björn.
Hjalti Jón segir að ef til vill sé
þetta rétt. „Við þurfum kannski að
bíða í tvö ár til að sjá hvort að þetta
nýja skipulag gangi. Það eru mjög
deildar meiningar um hvort þessi
breyting hafi verið rétt og ég held
við verðum að kanna hvort hún hafi
verið til góðs og hvort hún sé í sam-
ræmi við þörf fiskiskipaflotans og at-
vinnuvegarins. VMA á hins vegar
engra kosta völ að svo stöddu nema
leggja námið niður, þar sem það eru
engir nemendur.“
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, telur ekki tíma-
bært að vera með vangaveltur um
hvaða banka skuli sameina er hann
var spurður hvort til greina kæmi að
sameina Landsbanka íslands og Is-
landsbanka. Margir kostir væru í
stöðunni og sagðist hann ekki vera
sannfærður um að tilskipunin ætti
að koma frá eigandanum. „Það má
líka hugsa sér það að hún komi frá
markaðinum," sagði hann. „Ég held
að það kall sé áhrifameira en tilskip-
un frá eigandanum um hvað skuli
gert.“
Ráðherra bendir á að rætt hafi
verið um sameiningu Islandsbanka
og Búnaðarbanka. „Það er ein leiðin
sem kemur til greina og líka mögu-
leiki á að sameina Búnaðarbanka og
Landsbanka," sagði hann. „Það er
hægt að stilla upp mjög mörgum
kostum í þessari stöðu.“ Að hans
mati er nauðsynlegt að stækka ein-
ingarnar og gera þær öflugri þannig
að hægt sé að veita fyi-irtækjum og
almenningi nú og 1 framtíðinni fjár-
málaþjónustu á sambærilegu verði
og í nágrannalöndunum.
Margfalt verðmæti
„Þetta er liður í því að gera okk-
ur samkeppnishæf og draga úr
kostnaði heimilanna með lægri fjár-
magnskostnaði," sagði Finnur. „Til
þess að þetta sé hægt þurfa þessi
fyrirtæki annað hvort að auka sam-
starf sitt eða að sameinast en hag-
ræðing á þessum markaði þarf að
eiga sér stað með þrennt að leiðar-
ljósi. Að geta þjónað stækkandi ís-
lenskum fyrirtækjum, að ná fram
hagræðingu með því að draga úr
kostnaði í bankakerfinu og að
lækka vaxtamun. Þannig að ég er
ekki tilbúinn til að segja neitt um
hvar viðkomandi fyrirtæki væri
best borgið.“
Morgunblaðið/Rax
Mynd um flutning Keik-
ós til heimahaganna
MYND um flutning háhyrnings-
ins Keikós til íslands frá Banda-
ríkjunum verður sýnd með sér-
stakri viðhöfn í Los Angeles á
sunnudag. Um leið mun Jean-
Miehel Cousteau, forseti stofnun-
arinnar Ocean Futures, greina frá
því hvernig undirbúningi þess að
sleppa hvalnum lausum vegnar.
Gert er ráð fyrir því að margt
verði um manninn á sunnudaginn
og verður James Cameron, leik-
stjóri myndarinnar Titanic, gest-
gjafi auk Cousteaus. Fé, sem
safnast, mun renna til Ocean Fut-
ures, en stofnuninni er ætlað að
rannsaka málefni hafsins. Mynd-
in, sem sýnd verður, nefnist
„Keiko: Born to be Wild“.
Sérstök gestgjafanefnd hefur
verið stofnuð vegna þessa við-
burðar og sitja meðal annarra í
henni leikararnir Pierce Brosnan,
Glenn Close, Bridget Fonda og
Robert Wagner og geimfarinn
Buzz Aldrin.
A annan tug fyrir-
spurna um Kerið
BRAGI Halldórsson, einn eigenda
Kersins í Grímsnesi, kvaðst í samtali
við Morgunblaðið í gær gera ráð fyr-
ir því að á annan tug aðila hefði
svarað auglýsingu landeigenda og
lýst yfír áhuga á því að gera tilboð í
Kerið og um 23 hektara lands þar í
kring.
Landið er í eigu systkinanna
Guðmundar Benediktssonar og
Helgu Benediktsdóttur og erfingja
Halldórs Benediktssonar. Ríkið
hafði forkaupsrétt að eigninni en
3,5 milljóna króna tilboði þess hef-
ur verið hafnað.
Aðspurður kvaðst Bragi ekki
vita hvort einhver tilboðanna
hefðu borist frá útlöndum. „Enn
sem komið er höfum við bara nöfn
og maður veit í sjálfu sér ekki
hverjir standa bak við þau,“ segir
Bragi. Hann segir að það muni
hins vegar koma i ljós á næstunni
þegar landeigendur hefji viðræður
við þá aðila sem standa að baki til-
boðunum.
„Það er ekki nokkur vafi að ef rík-
ið grípur til aðgerða og hagræðingar
á fjármagnsmarkaði eins og við höf-
um verið að gera þá er reynslan sú
að við höfum margfaldað verðmæti
okkar í þessum fyrirtækjum með
hagræðingu sem við höfum verið að
grípa til,“ sagði ráðherra.
„Með áframhaldandi hagræðingu
á því sviði er ekki nokkur vafi á að
við getum ennþá aukið verðmæti
þjóðarinnar í þessum fyrirtækjum.
Það á að vera hlutverk okkar sem
berum ábyrgð á rekstri þessara fyr-
irtækja og förum með eignarhaldið á
þeim. Það vil ég hafa að leiðarljósi en
ég er ekki alveg sannfærður um að
tilskipanir um hvað skuli gert
nákvæmlega eigi að koma frá
eigandanum. Það má líka hugsa sér
það að þær komi frá markaðinum.
Ég held að það kall sé áhrifameira
en tilskipun frá eigandanum um
hvað skuli gert.“
Gera upp
Tryggvaskála
UM þessar mundir vinna sunn-
lenskir iðnaðarmenn hörðum
höndum við að gera upp
Tryggvaskála á Selfossi.
Sjóleiðin með
jólapakka
að lokast
SÍÐASTI frestur til að senda jóla-
pakka í sjópósti til landa utan Evr-
ópu og Bandaríkjanna rann út
sl.föstudag. Þeir sem ætla að senda
jólapakka sjóleiðis til Bandaríkj-
anna eru einnig að verða of seinir
því til að vera öruggur um að þeir
komist til skila þurftu þeir að fara
af stað sl. mánudag. íslendingar
sem ætla að senda jólapakka til
fjarlægra landa verða því að senda
pakkana með flugi. Menn hafa hins
vegar enn góðan tíma til að senda
jólapakka sjóleiðis til Evrópu því að
fresturinn rennur ekki út fyrr en
15. nóvember og til Norðurland-
anna 22. nóvember.
Að sögn írisar Björnsdóttur hjá
markaðs- og sölusviði íslands-
póstser nokkur verðmunur á því að
senda í flugpósti miðað við að senda
í sjópósti. Það er þó misjafnt eftir
þyngd pakkans og ákvörðunarstað
hverju sinni. Sé 10 kg pakki sendur
til Bandaríkjanna er 3.000 krónum
ódýrara að senda hann sjóleiðis og
4.000 krónum ódýrara sjóleiðis til
Afríku. íris segir að það borgi sig að
senda þungar sendingar með sjó-
pósti, sérstaklega ef pakkinn á að
fara um langan veg. Hins vegar sé
munurinn ekki tiltakanlega mikill
innan Evrópu á flug- eða sjópósti.
Sérblöð í dag
www.mbl.is
m&rnm
ftí o 'fímVnti tívbi í>
Á
____ * ÓDÝRflST 1
vrVERINUS, J aKL. ■
Ef : >i : u íMn->
► f Verinu í dag er greint frá botnfiskráðstefnunni
Groundfish Forum og rætt við ritara hennar, sagt frá
baráttumálum Samtaka fískvinnslustöðva án útgerðar
og fjallað um spum eftir rækju. Auk þess eru nýjustu
upplýsingar um aflabrögð og markaði.
[ V r
PHIUPS
Með
n-
blaðínu
í dag er
dreift
blaði frá
Elko,
„Alltai
ódýrast
í Elko“.
Á MIÐVIKUDÖGUM
w • • Rosenborg Erlendum • Stoke-
• skoðar leikmönnum : málið
• Hauk inga fjölgar : i höfn
;l | C1 ci : C/4