Morgunblaðið - 03.11.1999, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Evrópumálin fyrirferðarmikil
í umræðum um utanríkismál
EVRÓPUMÁLIN settu mikinn svip
á umræður á Alþingi í gær um
skýrslu Halldórs Ásgrímssonai- ut-
anríkisráðherra um utanríkismál.
Margir þingmenn tóku til máls í um-
ræðunni og bar hugsanlega aðild Is-
lands að Evrópusambandinu þar
margoft á góma. Tveir þingmenn
stjórnarandstöðu sögðu að úttekt,
sem utanríkisráðherra hyggst efna
til á starfi Evrópusambandsins, væri
til marks um að utanríkisráðherra
hefði „tekið Evrópuvírusinn" en ljóst
var hins vegar að þeir Sighvatur
Björgvinsson, þingmaður Samfylk-
ingar, og Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, sem notað höfðu
þetta orðalag, voru ekki á eitt sáttir
um hvort þetta væri jákvæð þróun.
I máli ráðherrans kom fram að
hann teldi fyrirhugaða stækkun
ESB bera hæst á sviði Evrópumála.
Sagði hann alla starfsemi ESB taka
mið af henni og jafnframt að stækk-
unarferlið myndi einnig hafa áhrif á
EFTA-ríkin sem utan stæðu, Island,
Noreg, Sviss og Liechtenstein.
Halldór sagði að jafnvel þótt fyrir-
huguð stækkun ESB kæmi ekki til
framkvæmda á allra næstu árum
væri ljóst að hún myndi hafa miklar
breytingar í för með sér á innviðum
ESB. Benti hann á að sameiginlegur
gjaldmiðill sambandsins, evran,
kemst einnig á að fullu árið 2002 og
það væri því ekki seinna vænna fyrir
Islendinga að búa sig undir að taka
afstöðu til samskipta við mun stærra
Evrópusamband.
„Þó að Island hafi aldrei sótt um
aðild og engin slík umsókn sé í und-
irbúningi þá hefur aðild aldrei verið
hafnað. Ákvarðanir samstarfsríkja
okkar í EFTA á næstu árum munu
áhrif á þá stöðu,“ sagði Halidór. „Eg
hef því ákveðið að láta gera hlutlausa
úttekt þar sem farið verður yfir starf
Evrópusambandsins lið fyrir lið. Þar
er hægt að draga fram hver staða Is-
lands yrði án samninga, því næst
hvernig EES-samningurinn, sam-
starfssamningur um Schengen og
Alþingi
ÞINGFUNDUR hefst á Alþingi í
dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál
verða þar á dagskrá:
1. Kostun þátta í Ríkisútvarp-
inu. Fyrirspurn til mennta-
málaráðherra.
2. Forgangur kostaðra dag-
skrárliða Ríkisútvarpsins.
Fyrirspurn til menntamála-
ráðherra.
3. Rannsóknir á útkomu sam-
ræmdra prófa. Fyrirspurn til
menntamálaráðherra.
4. Aðgerðir til að vinna gegn
áhrifum Ioftslagsbreytinga.
Fyrirspurn til samgönguráð-
herra.
5. Langtímaáætlun í jarðganga-
gerð. Fyrirspurn til sam-
gönguráðherra.
6. Uppbygging fjarskipta á
landsbyggðinni. Fyrirspurn
til samgönguráðherra.
7. Rekstur ferju í ísafjarðar-
djúpi. Fyrirspurn til sam-
gönguráðherra.
8. Verkefni sem sinna má á
landsbyggðinni. Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra.
9. Verkefni sem unnt er að
sinna á landsbyggðinni. Fyrir-
spurn til fjármálaráðherra.
10. Aðild að Haag-samningi um
vernd barna og ættleiðingu
milli landa. Frh. fyrri uin-
ræðu (atkvgr.)
11. Samningur um flutning
dæmdra manna. Frh. fyrri
umræðu (atkvgr.)
12. Ófrjósemisaðgerðir
1938-1975, beiðni um skýrslu.
Hvort leyfð skuli.
13. Framkvæmd alþjóðlegra
samninga á sviði náttúru-
verndar, beiðni um skýrslu.
Hvort Ieyfð skuli.
ALÞINGI
aðrir þeir samningar, sem gerðir
hafa verið, nýtast okkur og loks hver
bein áhrif yrðu ef Island væri aðild-
arríki.“
Kom fram í máli utanríkisráð-
herra við umræður í gær að hann
vonaðist til að geta lagt þessa úttekt
fyrir ríkisstjórn fyrri hluta næsta
árs. Sagði hann jafnframt að hann
ætti ekkert sérstaklega von á því að
kostirnir yrðu eingöngu góðir, og að
þeir yrðu jafnvel bara slæmir. „Það
er ekki ætlunin að setja fram beinar
tillögur heldur skýra stöðu okkar við
breyttar aðstæður. Uttekt af þessu
tagi ætti að skapa grundvöll fyrir
upplýsta umræðu á næstu árum.“
Sterk staða Norðurlanda
Halldór gerði evrópsk öryggis- og
varnarmál að umtalsefni og sagði
hann það stefnu íslenskra stjórn-
valda að gera þátttöku Islendinga í
vörnum landsins virkari. Kom jafn-
framt fram í máli ráðherrans að í
þeirri viðleitni að stuðla að faglegri
umræðu hérlendis um varnarmál
yrði næsta haust haldin ráðstefna
um framtíð öryggismála á Norður-
Atlantshafí á vegum utanríkisráðu-
neytisins og Atlantshafsherstjórnar
Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Það markmið ESB að efla sameig-
inlega utanríkis- og öryggismála-
stefnu Evrópuríkjanna bar á góma í
máli Halldórs í gær, einkum í sam-
hengi við þá stefnu ESB að fella
Vestur-Evrópusambandið (VES) inn
í ESB. Óljóst værí hins vegar hvern-
ig þeim málum lyktaði og hver staða
Islands sem NATO-ríkis og þátttak-
anda að VES, sem stendur utan
ESB, yrði.
ísland hefur farið með for-
mennsku í Norðurlandasamstarfi á
þessu ári og sagði Halldór það hafa
gefið okkur kærkomið tækifæri til
aukinna áhrifa. Sagði Halldór það
jafnframt til marks um sterka stöðu
Norðurlanda að þrjú þeirra hefðu
leitt stórar Evrópustofnanir á þessu
ári, íslendingar hefðu farið fyrir
Evrópuráðinu, Norðmenn gegnt for-
mennsku í Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu (ÓSE) og Finnar í
ESB. Greindi ráðherrann ennfremur
frá helstu verkefnum sem hann hefði
sinnt í sex mánaða formennskutíð Is-
lands í Evrópuráðinu en m.a. hefur
mjög verið unnið að því að tryggja
tilveru mannréttindadómstólsins.
Málefni Sameinuðu
þjóðanna rædd
Málefni Sameinuðu þjóðanna bar
hátt í ræðu utanríkisráðherra, m.a.
þá umræðu sem nú fer fram á þeim
vettvangi urn nauðsyn þess að ná
sátt um hvernig og hvenær hið al-
þjóðlega samfélag geti gripið inn í
átök sem eiga sér stað innan
landamæra fullvalda ríkja. Sagði
Halldór þetta mjög aðkallandi verk-
efni í ljósi átaka sem æ oftar eiga sér
stað milli stríðandi fylkinga innan
einstakra ríkja en ekki á milli ríkja.
Vísaði ráðherrann þar m.a. í Kosovo-
deiluna.
Fram kom einnig í ræðu Halldórs
að ísland sækist nú í fyrsta sinn eftir
setu fyrir hönd Norðurlanda í stjórn-
arnefnd Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar (FAO). Jafnframt vakti
hann athygli á því að árið 1999 er
fyrsta árið sem ákvörðun ríkisstjórn-
ar um aukið fé til Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands kemur til fram-
kvæmda en þó mun Island enn vera
eftirbátur nágrannaríkjanna í fram-
lögum til þróunarmála.
Margir þingmenn tóku til máls í
Morgunblaðið/Ásdís
Steingrímur J. Sigfússon gerir athugasemd við ræðu Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra í gær.
umræðunni í gær og bar þar ýmis-
legt á góma. Einstakir þættir í utan-
ríkisstefnu stjórnvalda voru gagn-
rýndir og bar mest á slíkri gagnrýni
í máli þingmanna Vinstri grænna.
Þannig lýsti t.a.m. Kolbrún Hall-
dórsdóttir óánægju sinni með ósk ís-
lenskra stjórnvalda um undanþágu á
ákvæðum í Kyoto-bókun um losun
gróðurhúsalofttegunda og Ögmund-
ur Jónasson gagnrýndi þá tilhneig-
ingu stjórnvalda að taka undir mála-
tilbúnað Bandaríkjamanna á vett-
vangi NATO án athugasemda, en
þar var hann að vísa til aðildar ís-
lands að hernaðaraðgerðum NATO í
Kosovo.
Evrópumálin voru þó langfyrir-
ferðarmest í umræðum í gær og
sagði Sighvatur Björgvinsson, þing-
maður Samfylkingar, það m.a. lýsa
breyttum viðhorfum utanríkisráð-
herra að hann skyldi nú hefja ræðu
sína á Evrópumálum. Sagði Sighvat-
ur auðséð að ráðherrann hefði tekið
„Evrópuvírusinn", sem væri af hinu
góða, rétt væri að taka aðild að ESB
á dagskrá.
Væntanlega úttekt á Evrópumál-
um sagði Sighvatur sérstakt fagnað-
ai-efni en spurði í því sambandi hvort
ekki væri rétt að leita álits t.d. Neyt-
endasamtaka og verkalýðshreyfmga,
sem mjög hefðu nýtt sér Evrópu-
samstarf til að stuðla að bættum að-
búnaði neytenda og verkalýðs hér á
landi.
Ræða utanríkisráðherra sögð
skref í átt að ESB-aðiId
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, sagði talsverð tímamót
hafa orðið í umræðu um ESB-mál á
Islandi með ræðu utanríkisráðherra,
hún væri afdráttarlaust skref hjá
ráðherranum í þá átt að sækja um
aðild að ESB.
Sagði Steingrímur að ef ræður ut-
anríkisráðherra væru skoðaðar aftur
til ársins 1995, þegar hann tók við
embætti, kæmi í ljós að í þessa átt
hefði ávallt stefnt þó ráðherrann
hefði reyndar aftekið hugsanlega að-
ild íslands að ESB framan af ráð-
herratíð sinni. Fór Steingrímur hins
vegar fram á að ráðherrann talaði al-
gerlega tæpitungulaust, segði ein-
faldlega hreint út að sótt skyldi um
aðild í stað þess að tala um að láta
„kanna málið“ og gera úttekt.
Kom skýrt fram í máli Steingríms
að hann telur ekkert tilefni fyrir því
að farið sé að ræða sérstaklega um
ESB-aðild nú og spurði hann hverju
sinnaskipti Halldórs sættu, hvort
það væri einfaldlega staðreynd að
um smitandi „Evrópuvírus" væri að
ræða, sem menn hrepptu og gerðust
þá eldheitir Evrópusinnar.
Nauðsynlegt að fylgjast
með þróuninni
Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður utan-
ríkismálanefndar Alþingis, sagði að
þrátt fyrir að þeir Sighvatur og
Steingrímur túlkuðu ræðu utanríkis-
ráðherrans eins þá væri þar ekkert
sem gæfi til kynna að á dagskrá væri
að sækja um aðild að ESB. Hins veg-
ar væri lögð áhersla á það í ræðu ut-
anríkisráðherra að vel verði fylgst
með þróuninni, ESB væri nefnilega
að þróast í átt að ríkjasamsteypu
sem m.a. hefði sinn eigin gjaldmiðil
og jafnvel samræmda skattastefnu.
Áhrif þessarar þróunar á íslenska
hagsmuni væri auðvitað auðsæ og
því mikilvægt að fylgjast með.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sagði flokk
sinn í meginatriðum sammála þeirri
utanríkisstefnu sem ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks fylgdi. Hann mælti hins vegar
eindregið með því að athugað yrði
hvaða kostir myndu bjóðast Islend-
ingum með aðild að ESB og sagði út-
tekt utanríkisráðherra í þessu efni
afar gagnlega.
Kom fram við umræðuna í gær að
nokkrir þingmanna Samfylkingar,
þ.m.t. Össur Skarphéðinsson og Sig-
hvatur Björgvinsson, eru hlynntir
því að sótt verði um aðild að ESB á
meðan ljóst er að Vinstri grænir eru
því andsnúnir. Flestir ræðumanna í
gær, hvort heldur þeir komu úr
Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki,
Frjálslynda flokknum eða Samfylk-
ingu, lögðu hins vegar áherslu á að
fyrst og fremst væri mikilvægt að
fylgjast með þróuninni í Evrópumál-
unum og lýstu margir þeirri von að
áðurnefnd úttekt utanríkisráðherra
gæti orðið forsenda málefnalegra
umræðna í því efni.
Pedup skrif-
aði undir
sammng 1
Taívan
ÍSLENSKU fyrirtækin, sem
áttu fulltrúa í viðskiptasendi-
nefndinni sem fór til Taívan í
síðustu viku á vegum Utflutn-
ingsráðs íslands og Reykjavík-
urborgar, náðu öll að skapa sér
góð tengsl ytra og eitt fyrir-
tækið skrifaði undir viðskipta-
samning í ferðinni. Þetta kom
fram í samtali Morgunblaðsins
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarstjóra, en hún fór
fyrir nefndinni.
Fyrirtækið Pedup, sem er ís-
lenskt fyrirtæki á sviði marg-
miðlunar, skrifaði undh' samn-
ing við taívanskt margmiðlun-
arfyrirtæki. Að sögn Ingibjarg-
ar Sólrúnar kveður samningur-
inn á um það að Pedup mark-
aðssetji taívanska fyrirtækið í
Evrópu, en fyrirtækið framleið-
ir bæði hugbúnað og tæknibún-
að á sviði margmiðlunar.
Ingibjörg Sólrún sagði að þó
að hin íslensku fyrirtækin hafi
ekki gert samninga í ferðinni
hafi þau öll náð að skapa sér
góð viðskiptatengsl. Fyrirtækin
sem fóru í þessa ferð eru ftest
lítil, eða svokölluð „sprota“fyr-
irtæki eins og Ingibjörg Sólrún
kallaði þau.
ísland kynnt sem
fjárfestingarkostnr
Að sögn Ingibjargar Sólrún-
ar er það sérstaklega mikilvægt
fyrir lítil fyrirtæki að fara í
svona ferðir saman, því þannig
hafi þau stuðning hvert af öðru.
Hún sagði að þegar sérstök
sendinefnd færi í svona ferðir
væru móttökumar aðrar en ef
t.d. fyrirtækin færu ein og sér.
Sífellt fleiri taívanskir ferða-
menn heimsækja ísland og
sagði Ingibjörg að íslenska
sendinefndin hefði haldið sér-
staka kynningu í Taípei, höfuð-
borg landsins, þar sem m.a.
hefði verið vakin athygli á ís-
landi sem ferðamannalandi og
sem fjárfestingarkosti.
Viðskipti Islands og Taívan
hafa farið vaxandi á undanförn-
um árum, en á síðasta ári nam
útflutningur Islendinga til Taí-
van í-úmum tveimur milljörðum
króna. Um 99% þess útflutn-
ings eru sjávarafurðir. Ingi-
björg Sólrún sagði að markað-
urinn í Taívan byði upp á fjöl-
breytta möguleika og því til
stuðnings sagðist hún hafa hitt
fulltrúa frá norska útflutnings-
ráðinu, sem hefði sagt að við-
skiptamöguleikarnir væru
óþrjótandi.
Eiganda leitað
Selskópur
í vörslu
lögreglu
LÖGREGLAN í Reykjavík
hefur lagt hald á nokkuð af
munum að undanförnu og er
talið að sumir þeirra séu
Þýfi-
Meðal þess sem lagl; hefur
verið hald á er uppstoppað-
ur grár selskópur, kíkir af
Starlux-gerð, spólurokkur,
sauðíjárklippur, silfurbúin
svipa, svart keyri með
grænu og gulröndóttu lím-
bandi og annað með bláu
límbandsmerki við haldið og
verðlaunapeningar fyrir
hrúta. Biður lögreglan í
Reykjavík þann sem kannast
við gripina að hafa samband
við sig.