Morgunblaðið - 03.11.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins
Nafnbirting inn-
herja nauðsyn
Margeir Pétursson hélt erindi á aðalfundi Samtaka fjárfesta
Fjárfestingartæki-
færin í líftækniiðnaði
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ telur
nauðsynlegt að taka upp hér á landi
nafnbirtingu innherja, eins og
tíðkast í flestum ríkjum í kringum
okkur. I því felst að innherji komi
fram opinberlega undir nafni þegar
hann á viðskipti. „En því verður að
fylgja endurskoðun á reglum um
það hverjir teljist innherjar þannig
að menn geti ekki komið sér undan
því með því að skilgreina ekki inn-
herja sem eiga að vera
innherjar. Við teljum
og vitum að þetta eru
hugsanir sem búa í
brjósti þeirra sem
stjóma Verðbréfaþingi
Islands og munum
fylgjast vel með þeirri
vinnu sem þar fer
fram.“
Þetta kom fram í
máli Páls Gunnars
Pálssonar, forstjóra
Fjármálaeftirlitsins, á
kynningarfundi með
forsvarsmönnum fjár-
málafyrirtækja og full-
trúum úr stjómsýsl-
unni í gær. Að sögn
Páls Gunnars falla slík-
ar breytingar vel saman við raf-
ræna eignaskráningu verðbréfa
sem nú er í gangi.
Skil á milli hags-
muna endurskoðuð
„Annað mál sem vert er að huga
að er endurskoðun reglna um veggi
í starfsemi fyrirtækja sem stunda
verðbréfaþjónustu, þ.e. hvemig
skilið er á milli mismunandi hags-
muna sem menn eru að fást við í
rekstri verðbréfafyrirtækja, við-
skiptabanka og sparisjóða. Það er
ekki vakið máls á þessu hér út af
einhverju einstöku fyrirtæki heldur
er þetta atriði sem vert er að skoða
varðandi öll fjármálafyrirtæki á Is-
landi.“
Mikill vöxtur í umsvifum og út-
lánum lánastofnana er flestum vel
kunnur. Að sögn Páls Gunnars era
mörg hættumerki á lofti í þessu
efni. „Rétt er þó að halda því til
haga þegar dreginn er lærdómur af
reynslu fyrri tíðar að stjórnun
flestra stærri lánastofnana, þ.á m.
áhættustýring, hefur tekið stórstíg-
um framföram undanfarin ár.“
Þróun eiginfjárhlutfalls
áhyggjuefni
Eitt áhyggjuefni Fjármálaeftir-
litsins er þróun eiginfjárhlutfalls
lánastofana síðustu ár, en eigið fé
lánastofnana skal á hverjum tíma
nema að lágmarki tilteknu hlutfalli
(8%) á móti skilgreindum áhættu-
granni. Þetta hlutfall hefur almennt
farið lækkandi undanfarin ár.
Sömuleiðis hafa lánastofnanir í rík-
ari mæli tekið víkjandi lán til að
uppfylla þessar kröfur, en reynsla
erlendis sýnir að víkjandi lán hafa
ekki alltaf verið gott haldreipi í erf-
iðleikum.
-/elina
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473
„Fjármálaeftirlitið telur mikih
vægt að fá umræðu um þessi mál. I
þessu efni mun stofnunin leggja
mikla áherslu á að lánastofnanir
setji sér markmið við hæfi, en ein-
blíni ekki á þau lágmörk sem sett
eru í lögum með stórar erlendar
fjármálastofnanir sem fyrirmynd.
Fjármálaeftirlitið telur jafnframt
mikilvægt að tekið verði til umfjöll-
unar hvort rétt sé að gera strangari
kröfur hér en alþjóð-
legar lágmarkskröfur
gera ráð fyrir. I því
efni kemur tO greina
að styrkja í lögum og
reglum kröfur um eig-
infjárhlutfall, endur-
skoða vægi víkjandi
lána eða styrkja heim-
Odir Fjármálaeftirlits-
ins t0 að ákveða hærri
mörk gagnvart ein-
stökum lánastofnun-
um. Umræða um þetta
á sér stað á alþjóðleg-
um vettvangi í tengsl-
um við mótun nýrra al-
þjóðlegra eiginfjár-
reglna. Slíka umræðu
þarf einnig að taka upp
á vettvangi nýskipaðrar nefndar
viðskiptaráðherra um endurskoðun
á löggjöf um lánastofnanir," að því
er fram kom í máli Páls Gunnars.
Ársreikningar trygginga-
félaga til skoðunar
Páll Gunnar vék að nýafstaðinni
iðgjaldaathugun Fjármálaeftirlits-
ins þar sem skýrt kom fram að huga
þyrfti að gagnsæi í rekstri vátrygg-
ingafélaga sem bjóða þjónustu hér.
„A þetta bæði við um hérlend og er-
lend fyrirtæki. I þessu efni hefur
Fjármálaeftirlitið ákveðið að taka
tO skoðunar hvort breyta þurfi
reglugerð um ársreikninga vátrygg-
ingafélaga og hvort setja skuli regl-
ur um tjónaskuld vátryggingafé-
laga. Þessi vinna er nú að hefjast.
Eitt af því sem ná þarf niðurstöðu
um er það hvernig vátryggingafélög
gera grein fyrir endanlegri niður-
stöðu tjónaárs. Nayðsynlegt er, að
mati Fjármálaeftirlitsins, að vá-
tryggingafélögunum beri að gera
grein fyrir þessu þegar nokkur vissa
er fengin um endanlega niðurstöðu
þannig að skýr mynd fáist á það
hver rekstramiðurstaða viðkomandi
árs var. Jafnframt er mikilvægt að
Fjármálaeftirlitið herði eftirlit með
viðskiptaháttum á vátryggingasviði
hér á landi, m.a. því hvemig upplýs-
ingum er komið á framfæri við neyt-
endur,“ segir Páll Gunnar.
Lítil hagræðing
hjá lífeyrissjóðum
Fjármálaeftirlitið hefur undan-
farið lagt mikla vinnu í umsagnir
um starfsleyfi lífeyrissjóða. Að sögn
Páls Gunnars vekur athygli hversu
lítO hagræðing hefur átt sér stað í
greininni við þessa aðlögun að nýj-
um lögum. Þannig megi nefna að líf-
eyrissjóðir vora 66 í árslok 1997 en
verða að öllum líkindum 60 í árslok
1999.
Að lokum vék forstjóri Fjármála-
eftirlitsins að því hvort styrkja þurfi
heimOdir Fjármálaeftirlitsins.
„Fjármálaeftirlitið er þeirrar skoð-
unar að tilefni sé tO þess nú að gera
breytingar á lögum sem um starf-
semi þess gilda í því skyni að gera
stofnuninni kleift að sinna hlutverki
sínu með skOvirkari hætti. I því efni
bendir Fjármálaeftirlitið einkum á
nauðsyn þess að styrkja aðgang
Fjáimálaeftirlitsins að upplýsing-
um, m.a. hjá eigendum, dótturfyrir-
tækjum og h 1 utdei 1 darfyrirta;kj um
fjármálafyrirtækja. Jafnframt því
að styrkja úrræði þess tO þess að
knýja á um skO upplýsinga og úr-
bætur,“ segir Páll Gunnar Pálsson.
Páll Gunnar
Pálsson
MARGEIR Pétursson, fram-
kvæmdastjóri MP verðbréfa, segir
fjárfestingartækifæri á næstu öld
m.a. liggja í ýmiss konar lyfja- og
líftæknnðnaði, auk fjarskipta og
upplýsingatækni. Þetta kom fram í
erindi Margeirs eftir hefðbundin
fundarstörf á aðalfundi Samtaka
fjárfesta almennra hlutabréfa og
sparifjáreigenda sem haldinn var í
gær.
Margeir horfði til nýrrar aldar í
erindi sínu og sagði ýmsar stað-
reyndir liggja fyrir, m.a. að meðal-
aldur heimsbúa færi hækkandi.
„Þetta veldur miklum þrýstingi á
velferðarkerfi," sagði Margeir og
nefndi velferðarkerfi í Frakklandi
og á Ítalíu þar sem ekki er lífeyris-
kerfi heldur vinna launþegar einnig
fyrir eldri kynslóðir. „Þama gæti
skapast kreppa af þessum sökum og
áhrifa hennar gæti gætt hér.“
Meðal annars vegna hækkandi
meðalaldurs sagði Margeir fjárfest-
ingartækifæri á nýrri öld felast í
heOsuvernd, aðhlynningu og hjúkr-
un og fyrirtækjum á sviði erfða- og
líftækni. Auk þess væru þekkt tæki-
færi í fjarskiptum og upplýsinga:
tækni þar sem þróunin er hröð. I
fyrirtækjum á tveimur síðastnefndu
sviðunum hefði markaðurinn þegar
tekið möguleika þeirra inn í verðið
þar sem það væri hátt.
Fjárfestar þurfa að
varast gylliboð
I erindi sínu ræddi Margeir m.a.
um 2000-vandann á fjármálamörk-
uðum og þær hættur sem fyrir
hendi eru í íslensku efnahagslífi.
Hann segir starfsemi Samtaka fjár-
festa nauðsynlega til að veita aðhald
á fjármálamarkaði. Hið opinbera
þyrfti aðhald og bankar og verð-
bréfafyrirtæki einnig.
Margeir ræddi um fjárfestingar á
komandi öld og sagði hinn skyn-
sama fjárfesti eiga að gera það
sama um aldamót og alla aðra daga.
„Það er mikilvægast að vinna
heimavinnuna vel og afla upplýs-
inga um fyrirtæki eða sjóði og
stefnu þeirra. Alls ekki að ana út í
óvissu því það verða ávallt tæki-
færi,“ segir Margeii- og leggur
áherslu á að fjárfestar þurfi að var-
ast gylliboð. „Það sem hljómar of
gott til að vera satt er yfirleitt ekki
satt!“
2000-vandinn hefur
áhrif á alla markaði
Hvað 2000-vandann í bankakerf-
inu varðar segir Margeir sparifé
fólks betur komið í banka en heima.
Mikilvægt sé, sem endranær, að
fólk geymi viðskiptayfirlit um inn-
eignir sínar. „2000-vandinn mun
hafa áhrif á ólíklegustu stöðum en
það er ómögulegt að sjá fyrir hvar
áhrifin munu verða. Einhvers stað-
ar í framleiðslukeðjunni getur eitt-
hvað gerst sem leiðir til áhrifa á
fjármálamarkaði. Oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi,“ segir Margeir.
Vegna tímamismunar í heiminum
geta íslendingar frétt af því hvernig
áramótin ganga fyrir sig í öðrum
heimshlutum með því að fylgjast
með fréttum á gamlársdag og segir
Margeir það vel til fundið. „Við
komum til með að vita um hádegis-
bOið hvemig hefui- gengið í Ástralíu
og svo framvegis."
Margeir segii- mikOvægt að átta
sig á því að markaðurinn sé nú þeg-
ar búinn að „afgreiða" 2000-vand-
ann. „Að næstu áramót yrðu hugs-
anlega vandi kom fyrst upp á árabii-
inu 1994-1995. Og nú er skekkja
fyrst og fremst á lánsfjármarkaði
því það er dýrara að taka lán ef það
nær fram yfir áramótin. Síðustu
þrjá mánuði ársins verður eftir-
spum eftir rafhlöðum og niðursuðu-
dósum meiri en endranær og það er
Margeir Pétursson, framkvæmdastjdri MP verðbréfa: „Verðbólgan
eykur allan viðskiptakostnað og getur dregið úr arðsemi hlutabréfa."
komið inn í verð á slíkum fyrirtækj-
um,“ segir Margeir. ,Áhrifanna
gætir þó víðar og 2000-vandinn mun
hafa einhver áhrif á alla markaði."
Halli sveitarfélaganna
áhyggjuefni
Margeir ræddi um hagvöxt og
verðbólgu og telur harða lendingu
mögulega. „Flestir vonast eftir því
að hagvöxtur dragist hægt saman
og lendingin verði mjúk. Verðbólgu-
hættan er fyrir hendi. Verðbólgan
eykur allan viðskiptakostnað og
getur dregið úr arðsemi hlutabréfa.
Bankamir verða að draga saman
útlánin," segir Margeir. Að hans
sögn eykur verðbólga hættu á tapi
hjá bönkunum og hugsanlegri
bankaki-eppu. „Bankarnir era nú að
endurfjármagna sig tO lengri tíma
og virðast njóta mikOs trausts er-
lendis eins og staðan er núna.“
Að mati Margeirs er hallarekstur
sveitarfélaganna í því góðæri sem
nú er, áhyggjuefni. „Nú snúast hjól
atvinnulífsins hratt og hið opinbera
tekur þátt af fullum krafti. Þetta er
þvert á það sem þekktir hagfræð-
ingar eins og Keynes segja: Þegar
harðnar á dalnum á ríkið að grípa
inn í og auka framkvæmdii-.“
Hluthafar í ríkisbönk-
unum e.t.v. aðilar að SF
I skýrslu stjórnar, sem Guð-
mundur Einarsson flutti, kom fram
að æskOegt væri að ríkisvaldið
styddi við bakið á Samtökum fjár-
festa tO að stuðla að almannaheOl.
Hugmynd stjórnar Samtaka fjár-
festa er að hluthafar í Búnaðar-
banka og Landsbanka gerðust aðil-
ar að samtökunum. „Það eru sam-
eiginlegir hagsmunir okkar og ríkis-
valdsins," sagði Guðmundur og
nefndi jafnframt að hluthafar í
þessum tveimur bönkum væra nú á
fjórða tug þúsunda. „Margir þeirra
hafa aldrei átt hlutabréf áður og
hugmyndin er sú að samtökin taki
að sér að halda þessum hlutafjár-
eigendum upplýstum um verkefni
og skyldur hlutafélaganna gagnvart
þeim sem eigendum." Guðmundur
sagði samkomulag við rfldsvaldið
ekki fyrir hendi en sagðist vonast tfl
að svo yrði sem fyrst.
Lögð var fram tillaga um nýja
stjóm Samtaka fjárfesta og var hún
samþykkt. I nýrri stjórn eru: Jón
Arnalds, Halldór Halldórsscn,
Valdimar Tómasson, Bolli Héðins-
son og Sigurður Jónsson.
(_ ufsa mest seldu fólksbíla- “ -r jtegundirnarí Breyt frá —I ■—jan.- okt. 1999 fyrraári Fjöldi % %
1. Toyota 2.420 17,7 +22,0
2. Volkswaqen 1.334 9,8 +12,4
3. Nissan 1.260 9,2 +21,3
4. Mitsubishi 840 6,1 +11,1
5. Subaru 812 5,9 -19,8
6. Opel 705 5,2 +0,1
7. Renault 605 4,4 +30,1
8. Suzuki 557 4,1 -16,6
9. Daewoo 534 3,9 +94,9
10. Honda 512 3,7 -1,9
11. Ford 492 3,6 +50,9
12. Hvundai 470 3,4 . -18,5
13. Peuqeot 450 3,3 +10,8
14. Isuzu 438 3,2 +682,1
15. Skoda 360 2,6 +96,7
Aðrar teg. 1.872 13,7 +8,0
Samtals 13.661 100,0 +14,9
IMU Bifreiða-
innflutn.
í janúar
til október
1998 og
1999
VÖRU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
1.079
1.436
1998 1999 1998 1999
Bifreiðasala 14,9% meiri en í fyrra
Bifreiðasala jókst um 14,9% fyrstu tíu mánuði ársins miðað við
sama tímabil í fyrra. Alls voru skráðar 13.661 ný fólksbifreið á
fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra voru skráðar
11.891 bifreið. Toyotaskiparsemfyrrfyrstasætiðyfirmestseldu
bifreiðarnar með 2.420 bifreiðar seldar. Hlutfallslega var mest
aukning í sölu á Isuzu bifreiðum en alls hafa nú selst 438 Isuzu
bifreiðar það sem af er ári sem er 682% aukning frá því á sama
tímabili í fyrra.