Morgunblaðið - 03.11.1999, Side 52
>
52 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNB L AÐIÐ
KIRKJUSTARF
I DAG
Safnaðarstarf
j Áskirkja: Dagskrá í tilefni kirkju-
viku Askirkju. Upplestur: Helga
Bachmann. Söngur Shcola cantor-
um, stjómandi Hörður Askelsson.
BústaðakirkjarFélagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan: Samvera fyrir mæður
með ung böm kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl.
12.10 í safnaðarheimilinu. Orgel-
leikur á undan. Léttur málsverður
á eftir.
Grensáskirkja: Samvemstund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulest-
ur, samverustund, kaffiveitingar.
Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Mataræði. Hjördís Guð-
björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Náttsöngur kl. 21. Opið hús frá kl.
20-21 í safnaðarsal.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja: Starf eldri borg-
ai'a í dag kl. 13-17. Spil, lestur,
handavinna. Kaffi og meðlæti kl.
15. Djákni flytur hugvekju. Söng-
stund undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar organista.
Laugarneskirkja: Morgunbænir
kl. 6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30.
Starf fyrir 7-9 ára böm. TTT kl. 16.
- Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferm-
ingartími kl. 19.15. Unglingakvöld
kl. 20 á vegum Laugameskirkju,
Þróttheima og Blómavals. Nýtt og
spennandi tilboð fyrir unglinga í
Laugameshverfí.
Neskirkja: Mömmumorgunn kl.
10-12. Kaffi og spjall. Opið hús fyr-
ir eldri borgara kl. 16 í umsjá
Kristínar Bögeskov djákna. Dóm-
hildur Jónsdóttir sýnir myndir og
segir frá lífsstarfi Sesselju Sig-
mundsdóttur á Sólheimum í Gríms-
■j nesi. Allir velkomnir. Bænamessa
* kl. 18.05. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11-
12 ára böm kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja: Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins.
Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar-
\ ar, starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.
TTT starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15.
Fella- og Hólakirkja: Helgistund í
Gerðubergi á fímmtudögum kl.
10.30.
Digraneskirkja: Unglingastarf á
vegum KFUM og K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Grafarvogskirkja: Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður.
KFM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja: Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja: Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja: Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Tekið á móti
fyrirbænaefnum í kirkjunni og í
síma 567 0110.
Kristniboðssalurinn: Almenn sam-
koma verður í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, Reykjavík, í
kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 Betsy
Halldórsson kennari flytur þátt úr
kristnisögu: Um Odd Gottskálks-
son og þýðingu hans á Nýja testa-
mentinu. Valdís Magnúsdóttir
kristniboði hefur hugleiðingu. Allir
velkomnir.
Víðistaðakirkja: Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffí.
Vídalínskirkja: Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja: Kyn’ðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverð-
ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi,
kl. 13.
Keflavíkurkirkja: Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund
í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund
í Kirkjulundi kl. 12.25. Djákna-
súpa, salat og brauð á vægu verði.
Allir aldurshópar. Alfa-námskeið
kemur saman í Kirkjulundi kl. 19
og lýkur í kirkjunni kl. 21.30.
Þorlákskirlga: Mömmumorgnar á
miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest-
ur.
Landakirkja, Vestmannaeyjum:
Kl. 20 opið hús í KFUM og K-hús-
inu við Vestmannabraut.
Hvitasunnukirkjan Filadelfia:
Súpa og brauð kl. 18.30. Kennsla
kl. 19.30, krakkaklúbbur, unglinga-
fræðsla, kennsla fyrir enskumæl-
andi, biblíulestur og Alfa-nám-
skeið. Allir hjartanlega velkomnir.
Kletturinn, kristið samfélag:
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd: Kl.
12 bæn og súpa. Allir velkomnir.
Kl. 20.30. Ten-Sing, KFUM og K,
fyrir 13 ára og eldri.
Háteigskirkja.
Morgunblaðið/Arnaldur
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Öánægður
viðskiptavinur
SIGRÚN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri óánægju
með starfsfólkið hjá Skatt-
stofunni í Reykjavík.
Hafði hún þurft að leita til
þeirra vegna villu í skatt-
inum. Fannst henni starfs-
fólkið óskaplega óliðlegt
og með litla þjónustulund.
Henni var sagt að hún
þyrfti að koma með launa-
seðla og fleiri gögn, en
hún segir að þessi gögn
séu öll til á Skattstofunni.
Starfsfólkið vildi ekkert
fyrir hana gera og var lítið
hjálplegt. Finnst henni lé-
leg þjónusta og óliðlegt
starfsfólk einkenna ríkis-
stofnanir.
Börn og sundföt
BAÐVÖRÐUR í Breið-
holtslaug hafði samband
við Velvakanda og vildi
minna foreldra og forráða-
menn barna á að senda
bömin með sundfót og
handklæði í skólasund.
Sagði hann að það væri allt
of algengt að börn kæmu
sundfatalaus í sundið.
Tapað/fundið
Lesgleraugu
týndust
ILBLEIK sterk lesgler-
augu týndust fyrir nokkru.
Þau eru í svörtu tauhulstri
með silfruðum röndum.
Skilvís fínnandi hringi í
Sigurbjörgu í síma 557-
1282.
Barnahjól
í óskilum
NÝLEGT rautt Euro St-
ar-barnahjól fannst við
Túngötu. Ef einhver kann-
ast við hjólið, er haegt að
hafa samband við Ástu í
síma 551-9090.
Barnakuldaskór
BRÚNN loðfóðraður
barnaleðurkuldaskór
fannst við götuljósin á
Garðatorgi laugardaginn
30. október. Upplýsingar í
síma 554-3358.
Brúnt seðlaveski
týndist
BRÚNT seðlaveski týndist
með öllum skilríkjum. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 561-2276.
Grá
sparikápa
GRÁ sparikápa úr næloni,
meðalsíð, fannst fyrir utan
Glaumbar aðfaranótt laug;
ardagsins 27. október sl. I
kápuvasanum eru lyklar.
Upplýsingar um kápuna
veitir Sigi'ún Dögg í síma
699-8106.
Dýrahald
Páfagaukur
fannst
LJÓSGULUR og blár
páfagaukur fannst við
Haukshóla, föstudaginn
29. október sl. Upplýsing-
ar um páfagaukinn gefur
Anna í síma 862-0542.
Kettlingur
týndist
GRÁR hálfstálpaður kett-
lingur týndist frá heimili
sínu að Ásbúðartröð í
Hafnarfirði, föstudaginn
29. október sl. Það gæti
verið að hún væri með
rauða ól. Ef einhver gæti
gefið upplýsingar um kett-
linginn, er sá hinn sami
beðinn að hafa samband
við Rut í síma 565-2236.
Fundarlaun.
Perla
er týnd
HÚN Perla er búin að
vera týnd síðan 11. októ-
ber sl. Hún hvarf frá
Furulundi 4 í Garðabæ.
Perla er grábröndótt og
merkt. Ef einhver veit um
ferðir hennar er hann
beðinn um að hafa sam-
band við Ara í síma 565-
7524.
I skólanum.
Morgunblaðið/RAX
Víkverji skrifar...
ETTA hefur ekki verið endan-
lega ákveðið11, eða eitthvað í
þessa átt heyrist stundum sagt og
sést stundum skrifað í fjölmiðl-
um... „ekki endanlega ákveðið“.
Víkverja fínnst þetta hvimleitt
orðalag og er spurn hvort tiltekið
mál sem verið er að fjalla um sé
ekki annaðhvort ákveðið eða ekki
ákveðið. Ef mál er til umfjöllunar
eða athugunar hefur ákvörðun
ekki verið tekin. Þá er það ennþá
til umræðu. Þegar ákvörðun ligg-
ur fyrir er málið ákveðið. Endan-
lega í þessu sambandi er því bara
aukaorð sem þvælist fyrir og á
ekkert erindi í þetta samhengi.
Þeir voru ekki með neinar
vífilengjur, ræningjarnir í Kar-
demommubænum og töluðu sem
sagt vafningalaust: „Þá er það á-
kveð-ið!“ Þeir voru nefnilega ekki
svo vitlausir.
xxx
UR því að Víkverji er kominn af
stað í málfarsumræðunni (og
nöldrinu ef menn vilja kalla það
svo) getur hann ekki stillt sig um
að benda á annað hvimleitt orðalag
sem veður uppi. Það er sú árátta að
hnýta orðinu stig aftan við hitt og
þetta. Þjónustustigið versnar, at-
vinnustigið minnkar, verðbólgu-
stigið hækkar og svo framvegis.
Stig í þessu sambandi er hreinn
óþarfi. Þjónustan batnar eða
versnar, atvinna fer vaxandi - nú
eða atvinnuleysið - og verðbólgan
rís ýmist eða hnígur. Víkverji er
ekki frá því að þetta hafi stigmagn-
ast síðustu misserin. Því ekki að
reyna að vera samstiga í því að
vera gagnorð og sleppa alls konar
óþarfa?
x x x
EKKI tókst Víkverja að fylgjast
með fyrstu útsendingu morg-
undagskrárinnar á Stöð 2 síðastlið-
inn mánudag. Og hann saknar þess
ekki heldur neitt sérstaklega.
Morgunrútínan er nefnilega í
nokkuð föstum skorðum. Eftir að
hafa hálfsofandi sett kaffivélina í
gang (það er alltof sjaldan sem
hann nennir að elda hafragrautar-
spón eins og hann er nú góður) og
skafið á sér kjálkana liggur fyrir að
gá til veðurs, rista brauð og líta i
blöðin. Hann kveikir ekki einu
sinni á útvarpinu. Fyrsti hluti
morgunsins líður nefnilega við að
sötra kaffi og blaðalestur í ró og
friði, ótruflaður af masi og músík í
útvarpi. Það er ekki fyrr en komið
er út í bíl sem útvarpið fer að heyr-
ast og þá viðeigandi fréttir og
stemmning morgunsins. Víkverji
viðurkennir að hann er kannski dá-
lítið úr sambandi svona fyrst í stað
en það lagast mjög fljótt og þannig
nær strax því helsta sem hefur
gerst í þjóðfélaginu meðan hann
svaf á sitt græna eyra og skolaði
niður morgunmatnum í þögninni.
Hávaðinn kemur alveg nógu
snemma þótt ekki sé byrjað að
skrúfa frá um leið og komið er á
ról.
Hins vegar er það áreiðanlega
góð hugmynd að bjóða uppá morg-
unsjónvarp og kannski mesta furða
að þetta skuli nú fyrst komast á
dagskrá. Kannski fer að aukast
samkeppni fjölmiðla á morgun-
markaðinum?