Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 2
2 B PÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Af Rósari tannlækrii, tannlæknunum þremur sonum hans og dótturinni tannfræðingnum Sumum finnst þeir þögl- ar og ógnvekjandi manngerðir og atvinnu- tæki þeirra hin mestu hryllingstól. Einungis neyð fær sumt fólk til að biðja mennina með grímurnar ásjár en aðr- ir eru upplitsdjarfari og heimsækja þá jafnvel með glöðu geði. Eins og Yalgerður Þ. Jónsdótt- ir, sem hitti Rósar Vig- fús Eggertsson tann- lækni, syni hans tannlæknana Sigurð Eggert, Gunnar Qdd og Gunnlaug Jón og dótt- urina Huldu Björgu tannfræðing - grímu- laus á góðri stund. ÞÖGNIN ræður aldrei ríkjum þegar stórfjöl- skyldan er samankom- in,“ segja Rósar V. Eggertsson tannlæknir og eiginkona hans Magdalena Mar- grét Sigurðardóttir. Ekki heldur þegar sá hluti fjölskyldunnar, sem gerir út á tennur, er búinn að tylla sér kringum sófaborðið í stofunni á æskuheimilinu í Hvassaleitinu. „Þeir geta svo lítið talað í vinnunni, blessaðir,“ segir Magdalena Mar- grét góðlátlega um leið og hún kemur færandi hendi með kók handa mannskapnum. „Mamma þó ... að þú skulir koma með kók einmitt núna. Hvað held- ura að fólki hugsi um tannlækna, sitjandi að kóksumbli heima hjá sér, en finna drykknum allt til for- áttu við viðskiptavini sína,“ segir dóttirin, tannfræðingurinn, og reynir að vera ströng á svip. Mamman, pabbinn og synimir hlæja bara dátt og keppast við að skálda upp fyrirsagnir eins og; Tannlæknafjölskylda á kafi í kók, Tannlæknar uppvísir að stórfelldu sykursukki, og fleiri í þeim dúr. Tannfræðingurinn fær sér penan sopa, en trú starfi sínu heldur hún smáfyrirlestur um skaðsemi stöð- ugs gosdrykkjaþambs á tennur. Feðgamir segja alveg merkilegt með stúlkuna, hún noti hvert tilefni og tækifæri til að koma boðskap sínum á framfæri og sjá þannig til þess að tannlæknar hafi á endanum lítið sem ekkert að gera. „Og þetta sem hefur verið lifibrauð fjölskyld- unnar í áratugi,“ segir pabbinn sár- móðgaður. Óþekktarormarnir til Huldu Þeir eru búnir að kasta grím- unni, tannlæknafeðgamir Rósar Vigfús, Sigurður Eggert, Gunnar Oddur og Gunnlaugur Jón. Hús- móðirin, Magdalena Margrét, þarf aldrei á henni að halda og alla jafna ekki tannfræðingurinn Hulda Björg, sem ákveður að fylgja í fót- spor föður síns og bræðra og kasta þessari óáþreifanlegu sem hún rétt áðan myndaðist við að setja upp. „Þeir em svo elskulegir að leyfa mér að vera á stofunum sínum og fræða viðskiptavinina um forvam- ir, tannhirðu og þessháttar og svo tek ég líka myndir og hreinsa tenn- urnar," segir Hulda. „Okkur finnst voðalega þægilegt að senda alla óþekktarormana til Huldu,“ segir Gunnar digurbarkalega. Feðgamir kinka kolli til samþykkis og em Morgunblaðið/Kristinn Rósar Vigfús Eggertsson Sigurður Eggert Rósarsson Gunnar Oddur Rósarsson Gunnlaugur Jón Rósarsson íhugulir á svip stutta stund. Mjög stutta, því síðan er eins og þeim finnist þeir hafa gengið heldur langt í stríðninni. Hver í kapp við annan hefja þeir starf tannfræð- inga til skýjanna. Hulda stöðvar þá í miðju orðskrúðinu og kveðst vera einfær um að tala fyrir sig sjálf. „Ég vinn fyrst og fremst fyrir- byggjandi starf og í samstarfi við tannlækna. Hluti starfsins er að fara í skóla, fyrirtæki og stofnanir og fræða fólk um þátt þess sjálfs í að viðhalda góðri tannheilsu. Einn- ig bý ég fólk undir að hitta þessa menn, sem sumum stendur svo mikill stuggur af,“ segir Hulda og lítur snöggt á föður sinn og bræð- urna þrjá, sem sitja þama svo ósköp prúðir og ljúfir og hlýða á út- skýringamar. Hulda lærði tannfræði í Arósum og útskrifaðist eftir tveggja ára nám árið 1981. Hún er með fyrstu starfandi tannfræðingum hérlend- is, en núna eru þeir rúmlega tutt- ugu. Að námi loknu hóf hún sam- starf við Rósar og Sigurð og síðan hina bræðuma, koll af kolli, um leið og þeir hömpuðu prófskírteinun- um. Eins og öll fimm böm Rósars hefur Hulda verið viðloðandi stof- una hjá foður sínum frá unga aldri. Þar var hún áður klínikdama eins og móðir hennar, sem ber starfs- heitið aðstoðarmaður tannlæknis samkvæmt leyfisbréfi frá heil- brigðisráðuneytinu, og yngri syst- ir, Ragnheiður Erla, efnafræðing- ur. Þar sem sú síðarnefnda er nú fjarri góðu gamni eru þau spurð af hverju hún hafi ekki líka fetað í fót- spor föðurins. Systkinin verða ar- mæðuleg á svip og ýja að eðlislægri þvermóðsku, tiktúmm og óþekkt. „Hún hefur samt spjarað sig ágæt- lega og við erfum ekkert við hana þótt hún hafi hlaupist svona undan merkjum," segja þau síðan, um- burðarlyndið uppmálað. Rósar og Magdalena Margrét kíma og segj- ast vön hálfkæringi af þessu tagi. „Ragnheiður Erla hefði ekki verið í vandræðum með að svara fyrir sig,“ segir Rósar og kveðst jafn stoltur af öllum bömum sínum. Þeim finnst ekkert sérstaklega merkilegt þótt svona margir í fjöl- skyldunni hafi lagt fyrir sig tann- lækningar, segja mýmörg dæmi um að bifvélavirkjun, pípulagnir og ýmis fleiri störf leggist í ættir. „Við lentum eiginlega alveg óvart í þessu. Kannski vegna einhvers konar erfðagalla, sem Kári á eftir að rannsaka..." segja bræðurnir. Til þess að fara ekla nánar út í þá sálma - og áður en þeir fara á flug, era þeir snarlega beðnir um að gera grein fyrir tildrögum starfs- valsins. „Þessi meinti erfðagalli hlýtur að vera frá mér kominn, því faðir minn var söðlasmiður og eng- inn tannlæknir í minni ætt þegar ég hóf nám árið 1950,“ segir Rósar, sem rekið hefur eigin tannlækna- stofu í fjörutíu og fjögur ár í húsinu sem hann fæddist og ólst upp í að Laugavegi 74, en þar hafði faðir hans söðlasmiðju á áranum áður. „Eftir stúdentspróf var ég frekar óráðinn í hvað gera skyldi. Krón- prins Sigurður var fæddur og sem ábyrgur fjölskyldufaðir fannst mér ég ekki geta farið í langt háskólan- ám. Framan af var verkfræðin mér ofarlega í huga, en í sannleika sagt varð góð afkoma tannlækna til þess að ég afréð að skella mér frekar í tannlækningar," viðurkennir Rósar og hefur aldrei séð eftir ákvörðun- inni. Hann segir fjarri því að starfið sé einhæft og einmanalegt eins og margir haldi. „Af skiljanlegum ástæðum eiga viðskiptavinirnir stundum erfitt með að halda uppi samræðum, en þeir era þeim mun viðræðubetri þegar þeir eru lausir úr stólnum. Starfið er í senn afar gefandi og Hulda Björg Rósarsdóttir skapandi. Þeim sem liðið hafa fyi-ir Ijótar tennur finnst oft sem þeir hafi fengið nýtt og betra andlit þeg- ar meiriháttar tannviðgerðum eða jafnvel ísetningu falskra tanna er lokið.“ Falskar tennur í fermingargjöf I tannlæknatíð Rósars hefur ým- islegt breyst og flest til bóta. Hann segir þá tíð löngu liðna að rífa þurfi allar tennur úr fermingarbörnum og setja í þau falskar. Tannlækna- skort úti á landi telur hann hafa valdið því að einu sinni þótti slíkt bara eðlilegt og jafnvel liður í for- vörnum. „Trúi því hver sem vill en

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.