Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 7

Morgunblaðið - 05.11.1999, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1999 B 7/. DAGLEGT LÍF BRYNHILDUR: ATLI RAFN: „Það geta gerst skrýtnir hlutir þegar umboðsmenn- irnir fara að hringja í suma nemendur en ekki aðra. Það getur valdið óöryggi og afbrýðisemi í annars góðum vinahópi.“ vinna áður en hann lauk námi. Hann lék í sjónvarpsmyndaflokki fyrir unglinga sem gerður var af fínnska og íslenska sjónvarpinu og heitir Prettándi ríddarínn. Síðan hefur hann einkum leikið í Þjóðleikhúsinu, svo og Loftkastalanum og Hafnar- fjarðarleikhúsinu. Nú er hann að æfa hlutverk í leikriti Hrafnhildar Haga- lín, Hægan Elektra og í Gullna hlið- inu eftii- Davíð Stefánsson. Brynhildur er að æfa Krítm-hríng- inn í Kákasus eftir Bertholt Brecht. Þá mun hún fara með hlutverk Al- icar í breska leikritinu Closer eða Komdu nær eins og það heitir á ís- lensku eftir Patrick Marber og er eitt aðalhlutverkið í leikritinu. Loks leika þau bæði í Draumi á Jónsmess- unótt eftir Shakespeare sem verður fi’umsýnt með vorinu. Hvemig er annars að fara út á þennan vinnumarkað þar sem marg- ir eru kallaði en fáir útvaldir? Atli Rafn: „Það hefur ekki verið erfitt fyrir mig að fá vinnu sem betur fer. Öll bekkjarsystkini mín era líka að vinna við leiklist. Auðvitað er þetta erfitt og illa launað starf og ekki allir sem láta bjóða sér sfikt. Það segir sig sjálft að ef fólk fær ekki nóg að gera þá tekur það sér eitthvað annað fyrir hendur. Ég er til dæmis liðtækur húsamálari og blikksmíðin hefur alltaf heillað." Bi’ynhildur: „Ég hef verið óhemju heppin og nokkmm sinnum verið á réttum stað á réttum tíma. En vissu- lega er þetta gífurleg vinna. í Bret- landi fékk fékk maður að heyra að 80% leikara gengju um atvinnulaus þannig að þetta er ekkert grín. Til þess að búa okkur betur undir starfs- ferilinn var okkur kennt í skólanum að fara í prufur. Einnig var leitast við að auka sjálfstraust okkar og kenna okkur sjálfsaga svo við gætum unnið úi’ því sem fyrir okkur var lagt og þannig var reynt að gera okkur hæf- ari til að stjóma leikferli okkar.“ Tíðkast það að leikai’ar taki fram- kvæði að því að fá hlutverk og tali við leikstjórana? Brynhildur: „Það sakar aldrei að tala við fólk og láta í ljós óskir sínar. Hvort það hefur einhver áhrif skal ég ekkert segja um. Það er þó betra en að sitja heima og bíða eftir hlut- verkinu." Atli Rafn: „Ég er sammála þessu en ég tala einkum við leikhússtjór- ana til þess að minna á mig. Sem lausráðinn leikari er það mér nauð- „Eg hef ekki áhyggjur meðan ég nenni að vinna vinnuna mína og hef gaman af því sem ég er að gera. Gamlir sigrar færa manni þó ekki salt í grautinn." syn að reyna að hafa áhrif á hvaða hlutverk ég leik. Annars koma at- vinnutilboðin stundum eins og af hendingu. Maður hittir mann og sitthvað er gefíð í skyn. Þannig að maður veit yfirleitt í hvað stefnir áð- ur en formlegt tilboð berst.“ Finnst þér óvissan um hvort þú hefui' eitthvað að gera næstu vikum- ar ekkert óþægileg? Atli Rafn: „Ég veit að þessi vinna getur komið í tömum. Ef leikari er til dæmis að leika í kvikmynd þá vinnur hann myrkranna á milli og hefur þá efni á því að taka hlé í einhvem tíma á eftir. - Ég hef ekki áhyggjur með- an ég nenni að vinna vinnuna mína og hef gaman af því sem ég er að gera. Gamlir sigrar færa manni þó ekki salt í gi-autinn.“ Hvaða augum lítið þið leikstjór- ann? Brynhildur: „Ég horfi á hann eins og foreldri - hann er mamman og pabbinn! Leikstjórar hafa mismun- andi vinnuaðferðir en það er sama hver nálgun þeirra er á verkinu það er alltaf hlutverk leikarans að laga sig að því og í sameiningu skapa þeir hefldstæða sýningu." Hefur það aldrei komið fyrir ykk- ur að langa til að standa upp á æf- inguoglabbaút? Brynhfldur: „Nei, það hefur ekki gerst. Þetta starf er fólgið í að vinna með fólki og ef þú ert ekki sammála þá er það þitt aðyinna úr því.“ Atli Rafn: „Ég geng stundum í gegnum ákveðin skeið á æfingatíma- bflinu. í fyrstu lít ég á leikstjórann sem íbðm', síðan getur mér fundist hann vinna á móti mér. Brynhfldur: „Þá ertu unglingurinn..." Atli Rafn: Svo áttar maður sig á að hægt er að treysta honum, leikstjór- inn er örlátur og vill gera allt tfl að þér gangi vel...“ Biynhildm" „Þá er pabbinn orðinn vinur þinn og þú fullorðinn!“ Atli Rafn: „Ég hef líka verið svo heppinn með pabbana í faginu.“ Við föram að tala um spennuna sem myndast áður en leikarinn fer inn á sviðið. Jafnt ungir sem reyndir leikarar finna fyrir ákveðnum tauga- titringi. Hvernig lýsir hann sér? Brynhfldur: „Hjá mér er þetta þannig að ég fer að svitna um leið og ég finn hvemig adrenalínið pumpast út í líkamann, lófamir verða þvalir og sjáöldrin þanin! Þetta gerist fyrir hverja einustu sýningu en fer eftir því hver ábyrgðin er í sýningunni. Morgunblaðið/Ásdís Það þýðir samt ekki að ég sé hrædd við að fara inn á sviðið. Miklu írekar er þetta spenna sem hleðst upp af því að ég veit að ég er að fara að gera eitthvað sem krefst mikils af mér og ég vfl gera eins vel og ég get.“ Atli Ralh: „Tilfinningin á bak við spennuna er ekki ósvipuð því og þeg- ar gengið er fram á brún hengiflugs. Verið er að taka vissa áhættu og við það skapast spenna. Ég tel þessa til- finningu nauðsynlega tfl að ná fram þeim áhrifum í leik sem ég er að sækjasteftir.“ Brynhfldur: „Ef maður svitnaði ekki úti í væng og væri skítsama og lallaði inn á sviðið gersamlega orku- laus þá held ég að sýningin yrði ekki upp á marga fiska og ég ætti að kjósa mér eitthvað annað starf.“ Er ekkert erfitt að standa á brún- inni en halda samt ró sinni? Atli Már: „Nei, það finnst mér ekki. Ég hef áttað mig á því að leikarinn og áhorfendur eru í sama liði. Við eram í leikhúsinu til að njóta en ekki tfl að rífa niður. Ef ég er eitt- hvað taugaóstyrkm’ þá hugsa ég um þetta.“ Hvemig undirbúið þið ykkur fyrir hlutverkin? Brynhfldm-: „Það er mismunandi og fer eftir hlutverkinu hverju sinni og hvers það krefst. Að læra textann er minnsta vandamálið en það getur tekið tíma að finna út hvernig pers- ónan á að vera. Sundum verður hún til á fyrstu dögum æfinganna en það getur líka tekið mun lengri tíma.“ Atli Rafn: „Við eram að skapa hugarheim annarrar persónu og fjöl- skyldualbúmið hennar og það getur tekið sinn tíma.“ Ytra útlit skiptfr leikara meira máli en flestar aðrar starfsstéttir - eða er ekki svo? Biynhildur: „Það tekur allavega ekki mflda orku fi-á mér að halda mér tfl. Ég er eins og ég er og von- andi boðleg fyrir það sem ég er að gera.“ Atli Rafn: „Ég held að máltækið heilbrigð sál í hraustum líkama eigi hér vel við. Vfljum við ekki sjá fólk með mismunandi útlit og persónu- leika en ekki alla steypta í sama mót?“ Finnst ykkur vera mildð að gerast í íslensku leiklistarlífi? Atli Rafn: „Já, hér er mikfll fjöldi sýninga sem ganga upp. Verkin era fjölbreytileg og við eigum marga góða listamenn. Það era töluverðfr fjármunir settir í leiklistina og fólk hefur efni á að fara í leikhús. Stund- um finnst mér leikhúsin samt meira vera að framleiða í stað þess að hlúa að listinni sjálfri. Það þarf að gefa þeim sem vinna í leikhúsunum meira svigrúm og tíma tfl hins skapandi starfs. Mér finnst ég hafa verið hepp- inn með verkefni og verið að vinna í skapandi umhverfi. En það vantar ákveðið sjálfstæði og hugrekki í hugsunarhátt Islendinga þannig að þeir geti greint hlutina á persónuleg- an og skapandi hátt. Það ætti að kenna börnum heimspeki og rök- fræði í skóla, ég held það væri skref í áttina að þessu marki.“ Svo við víkjum að öðra - hvemig' standa launamálin? Atli Rafn: „Ég skal ljósrita síðasta launaseðfl og senda þér. Miðað við vinnutíma og álag er þetta láglauna- staif. Við eram ríkisstarfsmenn og ríkið borgar sjaldnast vel. Þetta þýð- ir að við verðum að vera í annarri vinnu. Við æfum í leikhúsinu fi’á klukkan tíu til fjögur á daginn. Við geram eitthvað annað frá fjögur til sex eins og að talsetja teiknimyndfr eða syngja eða tala inn á auglýsing- ar. Svo mætum við í leikhúsinu klukkan sjö. Þeir leikarar sem vinna mest vinna líka á nóttunni við að" skemmta á einhverjum veitinga- staðnum." Brynhfldur: „Vinnutíminn er því afar óreglulegur og enginn dagur er eins. Stundum er maður að æfa til klukkan ellefu á kvöldin og þegar því er lokið er ég fegnust því að komast undir sæng. Tfl þess að njóta þess að vera í þessu starfi verður maður að þrífast í svona hringiðu og þess að vera á stöðugum þeytingi." Þið hafið samt orku tfl að skemmta ykkur? Atli Rafn: „Mér finnst gaman að skemmta mér en maður verður að reyna að stilla lastaballansinn!" Brynhildui’: „Eftir sýningar er maður gjaman hátt uppi og þá er ekkert annað en að smelia sér á gal- eiðuna og hlúa að partífíklinum í sér.“ Þau segja ekki mikið pláss fyrii- önnur áhugamál en vinnuna, hún er númer eitt. „Og barnauppeidið," seg- fr Atli Rafn sem á sjö ára gamlan dreng. „Eg verð einnig að játa það á migað stunda hestamennsku.“ „Ég nota frístundimar einkum tfl að rækta sambandið við fjölskyldu og vini,“ segii' Brynhfldur. En hvað ætlar Brynhildur að gera við frönsk- una sem hún lærði í HÍ? „Ég á hana - hún fer ekkert frá mér. Eg nota hana tfl að lesa bækur og aftan á vínflöskur! Hlýir hanskar á dömur og herra frá 1.400- krónum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.