Morgunblaðið - 14.11.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 14.11.1999, Síða 2
2 C SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ H FERÐALÖG LITHAEN h RUSSL. VARSJA froclaw "•Kraká SLÓVAKlA , 200 km SVÍÞJÓÐ TEKKLAN AUSTURR. Ein fallegasta borg sem Sigríður Sveinsdóttir hefur komið til er Krakó í Póllandi Segovía er lítil borg ó Spóni Grillaðir grísir og ævintýrið um Þyrnírós Jafnvel Ijósa- krónurnar í nómunni eru úr saltkristöllum í OKTÓBER sl. fór Sigríður Sveins- dóttir, tónlistarkennarafulltrúi hjá Kennarasarabandi Islands, til Pól- lands. Tilgangurinn var að hitta eig- inmanninn, Guðmund Helga Guð- mundsson, sem var staddur þar í hafnarborginni Szczecin vegna starfs síns. Hún náði sér í tilboðs- miða á Netinu til Kaupmannahafnar og hélt þaðan með ferju til Swinou- jscie sem er við landamæri Póllands og Þýskalands. Siglingin tók um tólf tíma og þaðan tók við ferð með rútu til Szezecin. Sigríður segist alltaf festa kaup á ferðahandbók áður en hún fer til útlanda til að fræðast um land og þjóð. Að þessu sinni var það Turen gár til Polen. Upphaflega ætluðu hún og Guðmundur, að leggja leið sína austur á bóginn, t.d. til Gdansk en söðluðu um og ákváðu að heimsækja Kraká. Þau tóku næt- urlest frá Szczecin og komu að morgni til Kraká. Merkar byggingar „Kraká er óneitanlega ein falleg- asta borg sem ég hef komið til þó auðvitað hafí hver borg sín sérk- enni. Kraká verður ein af menning- arborgum Evrópu næsta ár. Við höfðum pantað hótel sem heitir Cracovia og er nálægt gömlu borginni. Gamla borgin dregur að sér ferðamenn en hún var umlukin varnarmúrum sem nú hafa að mestu verið rifnir niður og í þeirra stað komnir fagrir trjágai’ðar. Þar sem vegalengdimar eru ekki miklar er auðvelt að ganga um hana.“ Sigríður segir að borgin hafi sloppið vel frá eyðileggingu síðari heimsstyrja- ldarinnar og þar er að finna mjög fjölbreytilegan byggingarstíl. „Við höfðum einungis þrjá daga til að skoða borgina og komumst því ekki yfir að gera allt sem við vildum. En minnisstætt er til dæmis torgið Rynek Glówny sem er í miðri gömlu borginni. Torgið iðaði af lífi þótt komið væri fram í október og við það eru einnig nokkrar mjög merki- legar byggingar. Veitingastaðir eru allt í kring og sölutjöld þar sem ver- KLUKKAN er að nálgast miðnætti í borginni Segovíu á Spáni. Upp- lýstar hallir, kirkjur og klaustur gefa borginni ævintýraljóma og ef maður lokar augunum þéttingsfast sést jafnvel til Þymirósar á slaginu tólf hlaupa niður tröppur miðalda- kastalans Aleázar sem gnæfir yfir borgina og minnir óneitaniega á Disney-ævintýri. Segovía er lítil borg með um 60.000 íbúa í Kastillu og León- heraði skammt frá Madríd. Þar er margt að sjá og skoða, meðal ann- ars vopnasafn í Alcázar-kastalanum og dómkirkjuna sem var síðasta gotneska kirkjan sem vígð var á Spáni árið 1678. Auk þess er þar fjöldi fallegra bygginga frá miðöld- um sem gaman er að skoða, ekki síst í mánaskini. Vinsælt er meðal höfuðborgar- búa að skjótast til Segovíu um helg- ar og fá sér snæðing en þangað er ríflega klukkustundar akstur. Á næstunni stendur til að koma á hraðlestarsamgöngum þar á milli. Vatnsveita frá tímum Rómverja Borgin Segovía er meðal annars fræg fyrir þær sakir að við borgar- mörkin stendur vatnsveita, vel ið var að selja minjagripi, handverk og blóm. Þarna voru listamenn við vinnu sína, t.d. ung kona að vinna geysilega falleg myndverk á pappír og notaði til þess liti í úðabrúsum. Þarna voru líka hljóðfæraleikarar sem léku áhugasamir fyrir þá sem vildu hlusta. Ur stórri ámu á miðju torgi var verið að selja heita glögg.“ Ein stærsta altaristafla í Evrópu „Við torgið er forkunnarfögur kirkja, Maríukirkja, sem við skoðuð- um. Þar er m.a. ein stærsta altaris- tafla í Evrópu sem er unnin úr tré og sýnir Maríu mey og sögu hennar. Taflan er þrískipt og lokuð frá kvöldi og fram að hádegi. Þá er hún opnuð og sýnir 12 myndir úr lífi Maríu meyjar. Handbragðið er ein- stakt en heiðurinn að því á tréskurðarmeistarinn Wit Stwosz frá Nurnberg. Myndirnar í töflunni eru allt að 2,7 metrar á hæð. Þar sem við höfðum gluggað í ferðahandbókina á leiðinni til Kraká mundum við eftir því að á klukku- stundar fresti heyrist trompetleikur frá kirkjuturninum á torginu. Til forna blésu trompetleikarar í fjórar höfuðáttimar til að vara við innrás tatara. Hefðinni hefur verið haldið við.“ Hún segir að á torginu sé einn- ig ráðhústurn frá 14. öld og mjög stór og falleg bygging sem kölluð er markaðshöll í dag. Þar inni era sölu- básar og hægt að fá vaming eins og pólskan kristal, fallega trémuni og fjölbreytt úrval af skartgripum úr rafi og silfri en raf er unnið úr trjá- kvoðu af hafsbotni. Mynd eftir Leonardo da Vinci Sigríður og Guðmundur Helgi lögðu leið sína á safnið Czartoryski í Kraká, ekki síst til að sjá með eigin augum mjög fræga mynd eftir Leonardo da Vinci, sem heitir „Kona með hreysikött." „Við náðum því miður ekki að skoða Þjóðlista- safnið sem er í markaðshöll- inni á torginu en þar er m.a. að finna ýmsar af myndum Jans Matejkos varðveittur minnisvarði frá tímum Rómverja. E1 Puente kallast vatns- veitan á spænsku, hún var reist á fyrstu öld og var í notkun langt fram á þá nítjándu. Mikil bílaumferð hefur verið við þetta gífurlega mannvirki en ný- lega var skipulaginu breytt þannig að nú er þar göngusvæði; torg og göngugata. Ef ætlunin er að sækja Segovíu heim er því upplagt að leggja farartækinu skammt frá vatnsveitunni og virða hana fyrir sér úr örlítilli fjarlægð áður en gengið er inn í gamla bæinn. Grísir eru stolt kokkanna Göngugatan í gamla bænum iðar af lífí þetta laugardagskvöld, ungt fólk, gamalmenni og foreldrar með sem er einn þekktasti málari Pól- verja.“ Þau skoðuðu Wawel sem er gömul konungshöll og virki í syðsta hluta bæjarins. „Þetta er 25 metra há kalksteinshöll og það sem vakti að- allega athygli okkar þar voru mjög stór og falleg góbelínteppi á veggj- um. Konungshöllinn er við ána Wisla og þar er mannlífið líka mjög skemmtilegt. Meðfram ánni er t.d. búið að koma fyrir borðum þar sem fólk situr og teflir í góðu veðri." Saltnámurnar stórkostlegar „Það fara líklega fáir til Kraká öðruvísi en heimsækja saltnámurn- ar Wieliczka. Þær era í um 13 km fjarlægð frá Kraká og við tókum þann kost að taka leigubfl aðra leið- ina og rátu til baka að lestarstöð- inni. Sigríður Sveinsdóttir stendur hér við markaðshöllina á torginu Rynel Torgið er í miðri gömlu borginni og þar er mannlífið íjölskrúðug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.