Morgunblaðið - 22.12.1999, Síða 29
Haukur Hlíðkvist Ómarsson
er einn þeirra sem sigldi
niður Jökulsá á Brú síðast-
liöið sumar.
Morgunblaóið/Þorkell
Áin var straumþung og oft erfið viðureignar.
Morgunblaðlð/Sverrir
Vatnið gengur yfir annan gúmmíbátinn.
Fagnað sigri er landl var náð eftlr 14 tíma í gljúfrunum.
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/RAX
straumi auk þess sem grjót
gat fallið úr snarbröttum
hamraveggjunum.
„Við vorum fjórtán tíma ofan
f gljúfrunum og meðan á sigl-
ingunni stóð sáum við ána
vaxa ört á stuttum tíma.
Einnig lentum við í minniháttar
óhöppum en okkur brá mest
þegar einn okkar datt út fyrir
rétt fyrir ofan aðrar stærstu
flúðirnar. Þetta geröist mjög
snögglega og hann komst
fljótlega upp úr en þarna mátti
ekki miklu muna. Áin er bæði
köld og mjög gruggug og kraft-
urinn alveg gríðarlegur. Við
sögðum oft í gríni að þetta
væri eins og að vera inni í
stórri garöslöngu."
Jökulsá á Brú er metin 5-6
á áhættukvarða fyrir straum-
vatnssiglingar og Jökulsá
eystri er metin á um 4. „Flúð-
irnar sem við sigldum ekki eru
6, en gráðan 6 þýðir að það
sé ófært," útskýrir Haukur.
„Daginn áður, þegar Nepalarn-
ir fóru Jöklu, sögðu þeir hana
vera um 5. En þeir sögðu
einnig að það væri mjög erfitt
aö gráða ána því ef eitthvaö
kemur upp á er maður í mjög
slæmum málum. Áhættustuð-
ullinn hækkar því það er mikiö
mál að koma slösuðum manni
upp úr gljúfrunum."
HVERS VEGNA?
Þegar Ijóst er hverjar hætt-
urnar eru og að Jökulsá á Brú
er illfær og á köflum ófær að
mati færustu manna er ekki
skrítið að fólk velti fyrir sér
hvað það sé sem fær menn til
að fara í slíka ferð. „Þetta er
auövitað ekkert annaö en æv-
intýramennska," svarar Hauk-
ur um hæl. „Við höfum allir
verið að klifra og feröast á
jeppum bæði sumar og vetur.
Siglingin var skemmtileg til-
breyting og gaman fyrir okkur
að vera fyrstir til að gera þetta
og taka þátt í að búa til kvik-
mynd um ferðina."
En myndi Haukur fara aftur
niður Jöklu ef honum byðist
það?
„Nei, ég hugsa ekki. Ég
myndi ekki sækjast eftir því.
Þetta var mikil vinna og fyrir-
höfn og alls ekki óhætt að
fara nema hafa björgunarsveit
til taks fyrir ofan sig. En þetta
er alveg gríðarlega fallegt
svæði og rosalega hrikalegt,
alveg einstakt, hvernig sem á
þaö er litið."
29