Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1999
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER
BLAÐ
c
soPBHmnsnnB
McKinleyvar
sendurheim
frá Snæfellli
ROBERT McKinley, bandarískur leikmaður
sem hugðist leika með úrvalsdeildarliði Snæ-
fells, var látinn fara frá liðinu eftir nokkurra
daga dvöl í Stykkishólmi. Forráðamenn Snæ-
fells fengu þær upplýsingar hjá umboðsmanni
McKinleys að leikmaðurinn gæti leikið flestar
stöður á vellinum og að hann hefði leikið við
góðan orðstír hjá New York State-háskólanum.
Þegar til kastanna kom var leikmaðurinn í
engri æfingu né var talið að hann gæti komið að
einhverjum notum með Snæfelli í úrvalsdeild
þegar keppni hæfíst eftir áramót. Leikmaður-
inn óskaði sjálfur eftir að fara frá liðinu og til
síns heima í gær.
HANDKNATTLEIKUR/EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA I KROATIU 2000
Ljósmynd/Stadtsparkasse Magdeburg
Ólafur Stefánsson verður væntanlega í sviðsljósinu með íslenska landsliðinu á EM í Króatíu sem hefst eftir þrjár vikur. Hér er hann
að skora í leik með liði sínu Magdeburg gegn Barcelona.
Enn bið-
staða hjá
Brynjari
EKKI er enn komin niður-
staða varðandi féiaga-
skipti Brynjars Björns
Gunnarssonar frá sænska
liðinu Örgi-yte til Stoke
City. Á heimasiðu Stoke
City í gær er viðtal við
Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnusljóra félagsins, þar
sem hann er geinilega far-
ið að lengja eftir því að fá
svar frá Orgryte.
Brynjar Björn sagði við
Morgunblaðið í gær að enn
væri biðstaða í málinu.
„Það er í raun ekkei*t nýtt í
þessu. Örgryte og norska
liðið Válerenga eru enn að
ræða saman og freista þess
að ná sáttum. Það eina sem
ég veit er að félögin eru að
ræðast við þessa dagana.
Það hlj^tur að skýrast á
mogun (í dag) hvort af söl-
unni verði eður ei,“ sagði
Brynjar Björn.
Eins og fram hefur kom-
ið gerir Válerenga, sem
Brynjar Björn lék nieð áð-
ur en hann fór til Örgryte,
kröfu um allt að 40% af
söluverðinu. Stoke hefur
boðið Örgryte 60 milljónir
íslenskar Jkr. fyrir Brynjar
og hefur Örgryte verið að
reyna að fá Válerenga til
að lækka prósentuhlut
sinn, en án árangurs.
Þorbjörn Jensson ekki tilbúinn með landsliðshóp sinn fyrr en eftir áramót
Lykilmenn á sjúkralista
ÞORBJÖRN Jensson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
hefur frestað því að tilkynna
íslenska landsliðshópinn fyrir
EM í Króatíu fram yfir áramót
vegna meiðsla lykilmanna.
Landsliðið leikurtvo æfinga-
leiki við Frakka ytra 7. og 9.
janúar, en fyrsti leikurinn í EM
verður í Rijeka gegn Evrópu-
meisturunum sjálfum, Svíum,
21. janúar.
Fjórir leikmenn, sem hafa gegnt
mikilvægum hlutverkum í ís-
lenska landsliðinu á undanförnum
árum, eru meiddir og óvíst hvort
þeir verða tilbúnir fyrir Evrópu-
mótið. Það eru hornamennirnir
Bjarki Sigurðsson og Valdimar
Grímsson og síðan leikstjórnend-
urnir Dagur Sigurðsson og Aron
Kristjánsson, sem meiddist á fæti
í leik með liði sínu Skjern á dögun-
um. Þetta setur Þorbjörn í nokk-
urn vanda varðandi valið á liðinu
og því hefur hann ákveðið að bíða
með að tilkynna það í von um að
skýrari línur fáist varðandi
meiðsli þeirra upp úr áramótum.
Landsliðshópurinn mun vænt-
anlega ekki koma saman fyrr en
liðið fer til Frakklands 6. janúar.
Þar verða tveir leikir eins og áður
segir. Síðan mun liðið leika tvo til
þrjá æfingaleiki hér heima gegn
úrvali erlendra leikmanna sem
spila hér í 1. deildinni. Liðið fer
síðan til Króatíu 19. janúar og
verða 16 leikmenn í þeim hópi.
Reiknað er með að Þorbjöm velji
hóp 20 leikmanna strax upp úr
áramótum sem síðan verður skor-
inn niður í 16 áður en haldið verð-
ur til Króatíu.
íslenska liðið er í B-riðli keppn-
innar ásamt Svíum, Rússum, Dön:
um, Slóvenum og Portúgölum. í
A-riðli leika Spánverjar, Þjóðverj-
ar, Frakkar, Norðmenn, Ukraínu-
menn og Króatar. Tvær efstu
þjóðirnar í hvorum riðli komast í
undanúrslit. Leikið verður í Rij-
eka og Zagreb frá 21.-30. janúar.
Handknattleikssambandið hef-
ur þegar sent leikmannalista með
26 nöfnum til Króatíu. En það er
ekki endanlegur listi eins og gefur
að skilja. A þeim lista eru eftir-
taldir:
Markverðir:
Sebastian Alexandersson, Fram
Guðmundur Hrafnkelsson,
Nordhorn
Bergsveinn Bergsveinsson,
UMFA
Reynir Reynisson, KA
Birkir Guðmundsson, Stjörnunni
Aðrir leikmcnn
Sigurður Bjarnason, Wetzlar
Björgvin Björgvinsson, Fram
Bjarki Sigurðsson, UMFA
Valdimar Grímsson, Wuppertal
Dagur Sigurðsson, Wuppertal
Patrekur Jóhannesson, Essen
Gústaf Bjarnason, Willstatt
Konráð Ölavson, Stjörnunni
Ólafur Stefánsson, Magdeburg
Robert Duranona, Eisenach
Róbert Sighvatsson, Dormagen
Njörður Arnason, Fram
Rúnar Sigtryggsson, Göppingen
Ragnar Oskarsson, IR
Ai-on Kristjánsson, Skjern
Magnús Már Þórðarson, UMFA
Guðjón Valur Sigurðsson, KA
Heiðmar Felixson, Wuppertal
Daði Hafþórsson, Dormagen
Magnús Sigurðsson, Willstatt
Páll Þórólfsson, Essen
HELGISIGURÐSSON SKORAÐI TVÖ í GRIKKLANDI/C2