Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 3

Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999 C 3 ÍÞRÓTTIR Miljkovic í Víking VÍKINGAR hafa samið við júgóslavneska varnarjaxlinn Zoran Miljkovic og mun hann leika með liði félagsins í 1. deildinni næsta sumar. Miljkovic hefur leikið um árabil hér á landi, fyrst með Skagamönnum í þrjú ár og síð- ar Eyjamönnum síðustu þrjár leiktíðir. Varð Miljkovic oft Is- lands- og bikarmeistari með þessum liðum og hlýtur að telj- ast einn sigursælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu á seinni árum. Víkingar féllu úr efstu deild sl. haust eftir skamma viðdvöl. Er Miljkovic, sem er 35 ára, ætlað að styrkja Iiðið með reynslu sinni, en Lúkas Kostic verður áfram þjálfari liðsins. Reuters Tomás Dvorák, heimsmethafi og heimsmeistari í tugþraut, átti einstaklega gott ár og því kom ekki á óvart að hann var valinn frjálsíþróttakarl Evrópu 1999. ■ INGEMAR Stenmark skíðamað- ur hefur verið kjörinn besti íþrótta- maður Svíþjóðar síðustu fimmtíu árin. Að kjörinu stóðu sænskir íþróttafréttamenn og fékk Sten- mark sex atkvæðum meira en tenniskappinn Björn Borg. Sten- mark er sigursælasti skíðamaður í sögu heimsbikarsins með 86 sigra að baki þrátt fyrir að hafa keppt að- eins í svigi og stórsvigi. Skíðamað- urinn Sixten Jernberg varð þriðji í — kjörinu, átta stigum á eftir Borg. Stigahæsta konan var skíðadrottn- ingin Pernilla Wiberg, margfaldur heims- og Olympíumeistari, en hún hafnaði í sjötta sæti. ■ MIKA Myllyla, skiðagöngukappi hefur verið útnefndur íþróttamað- ur ársins í Finnlandi af íþrótta- fréttamönnum þar í landi og var hann langefstur í kjörinu með 321 atkvæði. Myllyla vann þrenn gull- verðlaun á heimsmeistaramótinu í Austurríki í febrúar. Hakkinen, heimsmeistari í Formúlu- kapp- akstri, hafnaði í öðru sæti með 70 atkvæði og rallökuþórinn Tommi Makinen varð fjórði með 41 at- kvæði. y ■ MAGNUS Wislander, hand- knattleiksmaður sem leikur með þýska liðinu Kiel, var á dögunum kjörinn besti handboltamaður Sví- þjóðar á þessari öld. Þeir sem næstir komu voru þessir: Per Car- lén, Erik Hajas, Magnus Anders- son, Mats Olsson, Tomas Svens- son, Stefan Lövgren, Bo Andersson, Björn Jilsén og Claes Hallgren. ■ HARRY Kewcll leikmaður Leeds, hefur verið útnefndur besti knattspyrnumaður ársins í Eyja- álfu. Þjálfarar, stjórnendur og blaðamenn stóðu að kjörinu og hafði Kewell nokkra yfirburði, var 46 atkvæðum á undan Mark Vi- _ duka, leikmanni Celtic, sem hafn- aði í öðru sæti. ■ RIVALDO sem á dögunum var útnefndur knattspyrnumaður Evr- ópu, sagði blaðamönnum í Brasilíu í gær að hann myndi verða í herbúð- um Spánarmeistara Barcelona til loka leiktíðarinnar 2003 hið minnsta. Líkum hefur verið leitt að því að Rivaldo sé á förum frá Barcelona vegna ósáttis við Louie van Gaal þjálfara, en Rivaldo virð- ist nú sjálfur hafa kveðið slíkt tal í kútinn. ■ STAN CoIIymore fer ekki sem* lánsmaður til franska liðsins Montpellier eins og líklegt var tal- ið. Forráðamenn Montpellier vildu leigja kappann til vors, en settu sem skilyrði að hann léki einn æf- ingaleik fyrst með liðinu. CoIIym- ore tók slíkt ekki í mál, taldi sér stórlega misboðið og er nú snúinn aftur til Aston Villa. f laikos. Hann skoraði tvívegis í gær í stórsigri liðs síns. stórsigri Panathinaikos í Grikklandi lertgur /onum“ nú er bara að halda sínu striki og bíða eftir að andstæðingnum skriki fótur,“ sagði Helgi Sigurðsson. GABRIELA Szabó og Tomás Dvorák hafa verið útnefnd frjálsíþróttamenn Evrópu í ár- legu vali Frjálsíþróttasam- bands Evrópu. W Iöðru sæti í kvennaflokki varð Rússinn Svetlana Masterkova og Svíinn Ludmila Engquist hafnaði í því þriðja. Daninn Wilson Kipketer varð annar í karlaflokki og Colin Jackson, Bretlandi, þriðji. Szasbó átti einstaklega gott tíma- bil og vann öll keppnishlaup utan- húss sl. sumar í 3.000 og 5.000 metr- um. Hún fékk 930 stig í kjörinu, Masterkova 371 og Engquist 367. Dvorák vann sér það helst til frægð- ar á árinu að hann bætti sjö ára gamalt heimsmet Bandaríkja- mannsins Dans O’Briens í tugþraut í sumar um 102 og var auk þess heimsmeistari í greininni. Dvorák, sem er frá Tékklandi, fékk 752 stig, Kipketer 694 og Jackson 396. Þá hefur virtasta frjálsíþróttarit heims, bandaríska tímaritið Track & Field News kosið frjálsíþróttamenn árs- ins. Þar varð Szabó einnig fyi-ir val- inu í kvennaflokki, Marion Jones, Bandaríkjunum, varð önnur og landi Szabó, Rúmeninn Mihaele Melinte, heimsmeistari í sleggjukasti varð þriðja. „Eyðimerkurprinsinn" Hicham E1 Guerrouj er að mati blaðsins sá sem stendur upp úr karlaflokki. Heimsmethafinn í 100 metra hlaupi karla, Maurice Greene, varð annar og Dvorák varð þriðji. Að mati blaðsins var heimsmet Michael Johnsons, Bandaríkjunum, í 400 metra hlaupi, 43,18 sekúndur, mesta afrek ársins í karlaflokki og heimsmet Teglu Loroupe, Kenýa, í maraþonhlaupi kvenna, 2:20.43 mín- útur, er talið helsta afrek konu í frjálsíþróttum á árinu sem nú er senn á enda. KÖRFUKNATTLEIKUR Bandaríkjamaður líklega í Njarðvík NJARÐVÍKINGAR eiga í við- ræðum við Keith Veney, 25 ára bandarískan leikmann, sem leik- ið hefur með 1. deildar félögum í Frakklandi og Israel síðastliðin ár. Veney er bakvörður og reyndi í sumar fyrir sér hjá bandaríska NBÁ-Iiðinu Sacra- mento Kings og gerði 15 stig að meðaltali í leik með liðinu á sum- armóti en fékk ekki samning í haust. Aðspurður af hverju Njarðvíkingar hefðu ákveðið að ræða við bakvörð sagði Gunnar Þorvarðarson, formaður körfu- knattleiksdeildar félagsins, að liðið þyrfti á góðum skotmanni að halda. Gunnar sagði góðar líkur á að samið yrði við leik- manninn og ef af því verði komi hann 3. janúar til landsins. Gunnar sagðist hafa fengið þær upplýsingar frá umboðsmanni Veney að leikmaðurinn væri í þokkalegu formi. Njarðvíking- um hefur ekki haldist vel á er- lendum ieikmönnum, en þrír leikmenn hafa farið frá liðinu það sem af er tímabilinu. Fyrst kom Purnell Perry sem stóð ekki undir væntingum, Jason Hoover kom í hans stað en hann undi hag sínum ekki hér og því fékk félagið Donell Morgan til sín. Hann þótti slakur og var lát- inn fara eftir skamma viðdvöl. FRJALSIÞROTTIR og Dvorák þau bestu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.