Morgunblaðið - 30.12.1999, Síða 4
SKIÐI/HEIMSBIKARMOTIÐ
Sabine Egger frá Austurríki fagnar hér sigri í svigi heimsbikarsins í Lienz í Austurríki í gær.
REUTERS
Egger
vann
lokamót
ársins
SABINE Egger fagnaði sigri á
heimavelli í lokamóti ársins í
heimsbikamum sem fram fór í
Lienz í Austurríki í gær. Hún var
með ellefta besta tímann eftir
fyrri umferð svigsins, en átti frá-
bæra síðari umferð og tryggði sér
sigur. Natasa Bokal frá Slóveníu
varð önnur og Karin Köllerer frá
Austurríki, sem var með rásnúm-
er 30 í fyrri umferð, þriðja.
Egger var ánægð með sigurinn
, og sagði að hann hefði komið sér
á óvart. „Þetta er ótrúlegt. Þegar
ég kom í markið var ég nokkuð
sátt og bjóst við að tíminn myndi
nægja til að vera innan við fimm,
en trúði ekki að hann nægði til
sigurs," sagði Egger sem er 22
ára og var heimsbikarhafi í svigi
síðasta tímabil.
Sænska stúlkan Anja Paerson
var með besta brautartímann í
fyrri umferð, en féll úr keppni í
síðari umferðinni. Trine Bakke
frá Noregi var með næstbesta
tímann í fyrri umferð en henni
^urðu á mistök í síðari umferð sem
kostuðu að hún féll niður í sjötta
sæti.
Næsta heimsbikarmótið hjá
konunum verður í Maribor í Slóv-
eníu 5. og 6. janúar og þá verður
keppt í stórsvigi og svigi.
Kjus bestu r í Noregi
SKÍÐAMAÐURINN Lasse Kjus
var kjörinn íþróttamaður ársins í
Noregi af Samtökum íþróttafrétta-
manna þar í landi. I öðru sæti varð
karlalandsliðið í knattspyrnu og
heimsmeistarar Norecs í kvenna-
handknattleik höfnuðu í þriðja
sæti. Arangur Kjus var einstak-
lega glæsilegur ár árinu og há-
punkturinn var heimsmeistaramót-
ið sem fram fór í Vail í febrúar. Þá
vann Kius enll i stórsvieri ocr risa-
svigi, silfur í bruni og svigi og
alpatvíkeppni.
íþróttamaður ársins hefur verið
útnefndur í Noregi frá 1947 en
þetta er í fyrsta skipti sem Kjus
verður fvrir valinu.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Baumann
ítveggja
árabann
Niðurstaða rannsóknar á síðara
sýni sem tekið var af þýska
langhlaupararnum Dieter Baumann
hefur leitt í Ijós sömu niðurstöðu og í
hinu fyrra, þ.e. það reyndist inni-
halda hormónalyfið Nadrolone. Þetta
staðfesti talsmaður þýska frjáls-
íþróttasambandsins í gær. Þar með
yirðist fátt geta komið í veg íyrir að
Ólympíumeistarinn í 5.000 metra
hlaupi Ólympíuleikanna í Barcelona
1992 verði dæmdur til þyngstu refs-
ingar af Alþjóða frjálsíþróttasam-
bandinu; tveggja ára keppnisbann.
Það er hins vegar í verkahring þýska
frjálsíþróttasambandsins að úr-
skurða Baumann strax í keppnisbann
þar til mál hans verður tekið fyrir á
efsta dómsstigi dómstóls Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins. Baumann
hefur neitað því að hafa notað ólög-
lega lyf og lögfræðingur hans segir
það koma til greina að höfða mál
gegn þýska frjálsíþróttasambandinu
til þess að fá banninu hnekkt, jafnvel
áður en lögreglurannsókn verði lokið,
en lögreglan hefur nú málið til rann-
sóknar eftir að merki um Nandrolone
fannst í tannkremstúbu á heimili
íþróttamannsins á dögunum.
Málið þykir hið pínlegasta, bæði
fyrir Baumann og þýsk frjálsíþrótta-
yfii’völd því Baumann hefur verið
einn helsti baráttumaður gegn lyfja-
Reuters
Fátt virðist nú geta komið í
veg fyrir að Dieter Baumann
verði dæmdur í tveggja ára
keppnisbann fyrir ólöglega
lyfjanotkun.
notkun innan þýska frjálsíþrótta-
sambandsins. Hann sagðist á dögun-
um gera hvað sem hann gæti til að
sanna sakleysi sitt, en væri ennfrem-
ur ljóst sú staðreynd að það yrði alls
ekki auðvelt viðureignar.
Fari svo að Baumann verði dæmd-
m’ í bannið er ekki ósennilegt að hann
leggi keppnisskóna á hilluna. Bau-
mann er nú 34 ára og á Evrópumetið í
5.000 metra hlaupi, 12.54.70.
■ BJARKI Gunnlaugsson var vara-
maður í liði Preston sem lagði
Bristol Rovers, 2:1, í 2. deild ensku
knattspyrnunnar í fyrradag. Bjarka
var ekki skipt inn á í leiknum.
■ PETER Schmeichel, lyrrverandi
markvörður Machester United,
sem nú er í herbúðum Sporting í
Lissabon hefur keypt knattspyrnu-
félag í heimalandi sínu, Danmörku.
Félagið sem um er að ræða er Hvid-
ovre Fodbold A/S og er í 2. deild.
■ FIFA, Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, hefur fengið senda kvörtun
frá Knattspymusambandi Nígeríu
vegna þess að Arsenal og Chelsea
vildu ekki gefa eftir nígeríska
knattspyrnumenn sem er á mála fé-
laganna til þess að vera í æfinga-
búðum landsliðs Nígeríu í kiingum
jólin.
■ NÍGERÍA býr sig nú undir Afr-
íkukeppnina í knattspyrnu sem
fram fer í næsta mánuði í Gana og
vildu forráðamenn landsliðsins fá
sína sterkustu sveit saman til æf-
inga yfir jólin.
■ LEIKMENNIRNIR sem um er að
ræða eru Celestine Babayaro hjá
Chelsea og Nwanko Kanu sem er í
herbúðum Arsenal. Fleiri félög
virðast hafa hundsað beiðni Knatt-
spyrnusambands Nígeríu því að-
eins 16 af 29 leikmönnum sem boð-
aðir voru mættu í æfingabúðirnar.
■ DAVID O’Leary, knattspymu-
stjóri Leeds, hefur í hyggju að kló-
festa tvo sterka framherja fyrir lið
sitt. Mario Jardel hjá Porto og
Hakan Sukur, liðsmaður Galatas-
ary em undir smásjá O’Learys,
sem hefur um 25 milljónir punda,
nærri 3 milljarðar króna, til ráðstöf-
unnar til leikmannakaupa.
■ RICHARD Möller Nielsen, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari Dana í
knattspyrnu, var í gær ráðinn
landsliðþjálfari Israels. Möller, sem
er 62 ára, gerði tveggja og hálfs árs
samning við ísraelska knattspymu-
sambandið en í samningnum er
ákvæði um að hægt verði að fram-
lengja hann um tvö ár.
■ MÓLLER stýrði danska landslið-
inu til sigurs í Evrópukeppni lands-
liðaí Svíþjóð 1992. Fyrsti landsleik-
ur Israels undir hans stjóm verður
23. febrúar gegn Rússum. Verður
þar um vináttulandsleik að ræða.
■ ROBERT Pires miðvallarleik-
maður Marseille vill ekki ganga til
liðs við Arsenal því hann óttast að
það muni rýra verulega möguleika
sína á að komast í franska landsliðið
í knattspyrnu sem tekur þátt í loka-
keppni EM í Hollandi og Frakk-
landi á næsta sumri.
■ PIRES segir að hann geti ekki
verið viss um að eiga víst sæti í liðið
Arsenal en hjá Marseille hafi hann
tryggt sæti. Pires var í franska
landsliðinu sem varð heimsmeistari
ííyrra.
■ DYNAMO frá Kænugarði hefur
keypt georgíska framherjann
Georgi Demetradze. Félagið
greiddi um 370 milljónir íslenskra
króna fýrir leikmanninn. Er þetta
hæsta upphæð sem nokkurt félags-
lið frá gömlu Sovétríkjunum hefur
greitt fyrir leikmann, en Demetra-
dze, sem er 23 ára gamall, er
markahæsti leikmaður rússnesku
úrvalsdeildarinnar með 21 mark í
27 leikjum. Er honum ætlað að fylla
skarð Andriy Shevchenkos, sem
var seldur fyrr á árinu til AC Milan
fyrir um 1,8 milljarða ísl. króna.
■ KEVIN Keegan, landsliðs-
þjálfari Englendinga, hefur borið
til baka sögusagnir um að hann
hyggist hætta með liðið ef því vegn-
ar illa í lokakeppni Evrópu-
keppninnar næsta sumar. Hann
sagði í samtali við enska fjölmiðla
að hann vildi halda starfi sínu eins
lengi og hann gæti.