Morgunblaðið - 04.01.2000, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
Reuters
e sýndi mestar framfarir allra knattspyrnumanna í efstu deild á ít- Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko, til hægri, var valinn besti erlendi leikmaðurinn á Ítalíu. Hann
Sport. Hér á hann í höggi við Paolo Maldini, fyrirliða AC Milan. gekk til liðs við AC Milan síðsumars.
Reuters
KORFUKNATTLEIKUR/NBA
Áhorfendur á
heimleið urðu af
sviptingum
Reuters
ilt ár vegna meiðsla, en leikur nú
« Carlos Ancelotti hjá Juventus.
en hann telur sjálfur skyldu sína að
verma það sæti. Vieri hlýtur ofan-
greinda heiðursnafnbót fyrir eldmóð-
inn þótt marga meðalskussana megi
finna sem náð hafa að bæta sig hlut-
fallslega meira; það er einfaldlega un-
un að horfa á einn af þeim allra bestu
leggja sig sífellt meira fram. Hann
hlýtur einnig verðlaun fyrir að hafa
bætt mestu við bankabókina sína...
Óvæntasta stjarnan:
Grigorios Georgatos, Interna-
zionale
Englendingurinn Roy Hodgson
taldi Roberto Carlos ekki sinna varn-
arskyldum sínum nægilega vel og
seldi hann til Real Madrid. Það hafa
áhangendur Inter aldrei getað fyrir-
gefið honum og vinstri kantur liðsins
hefur æ síðan verið heldur dapur þar
til í haust að liðið festi kaup á Grikkj-
anum Grigorios Georgatos frá 01-
ynipiakos. Hann hefur leikið firnavel
og iljað aðdáendum um hjartarætur
nieð eldsnöggum rispum upp kantinn
°g mögnuðum íyrirgjöfum og mark-
skotum. Hann skoraði t.a.m. 12 mörk
í fyrra með Olympiakos. Prísar
Marcello Lippi sig sælan yfii- að ekki
skyldi saman ganga með AS Roma
um kaup á bakverðinum franska
Vincent Candela því Georgatos
fékkst á brot af því verði sem Róm-
verjar settu upp fyrir Candela.
Georgatos hlýtur einnig þann heiður
að bera það nafn sem vefst íþróttaþul-
um hvað mest um tungu og blaða-
menn stafsetja oftast vitlaust. Lofar
undirritaður engu um að nafnið sé
stafsett rétt í pistli þessum!
Mestu vonbrigðin:
Predrag Mijatovic, Fiorentina
Þennan óvinsæla titil fær júgó-
slavneski leikmaðurinn Predrag
Mijatovic, sem kom til Fiorentina í
haust frá Real Madrid og hefur hreint
út sagt ekki getað nokkum skapaðan
hlut, er eigingjarn á boltann og þá
sjaldan að hann hefur reynt markskot
hefur innan við tíundi hluti þeirra hitt
á rammann og ekkert þeirra komist í
netið. Hann hefur kvartað yfir að fá
ekki næg tækifæri en heyrst hefur frá
Flórens að það sé ómögulegt að velja
manninn í liðið því hann sé svo lélegur
á æfingum að Trappatoni hafi beðið
um að hann yrði látinn æfa einhvers
staðar þar sem enginn sæi til, því
annars myndi maðurinn endanlega
ganga frá orðspori sínu dauðu og yrði
algjörlega verðlaus söluvara! Þess
ber þó að geta Júgóslavanum til vam-
ar að hann er mikill „stemmnings-
karl“ og hefur oft átt rysjótta tíð þótt
snilldin sé undirliggjandi og bíða nú
Flórensbúar þess að hún brjótist út.
Endurkoma ársins:
Antonio Conte, Juventus
Antonio Conte, fyrirliði Juventus,
varð fyrh- hroðalegum meiðslum fyrir
þremur árum og missti heilt ár úr
boltanum. Eftir það átti hann í erfið-
leikum með að ná fyrri styrk og var
látinn leika hér og þar á vellinum ef
einhver var meiddur hjá Marcello
Lippi fyrrverandi þjálfara Juve. En
þegar Carlo Ancelotti tók við Juvent-
us í fyrra vænkaðist hagur Sveinka
og Conte leikur við hvum sinn fingur,
nú á hægri kanti þar sem hann hrakti
í burtu landsliðsmanninn Angelo Di
Livio. Conte er jafnvel faiinn að
skora mörk, 5 em komin í ár, sem er
jafnmikið og hann hefur áður gert á
heilu tímaþili. Hann er einnig kominn
í landslið ítala á ný og verður eflaust
einn af lykilmönnum í úrslitakeppni
EM næsta sumar. Leikgleðin geislar
af Conte og hann virðist yngri en þeg-
ar hann hóf að leika með Juve fyrir
áratug, en það kann reyndar að skrif-
ast á reikning sérfræðinga sem hafa
dubbað upp á koll meistarans, sem
heldur vai' farinn að þynnast.
■ ÓLAFUR Stefánsson skoraði 4
mörk er Magdeburg vann meistara
Kiel, 28:25, á heimavelli á öðmm degi
nýs árs.
■ ÞÁ tapaði TUSEM Essen, lið Pat-
reks Jóhannessonar og Páls Þórólfs-
sonar á útivelli, 24:20, fyrir Gum-
mersbach á næstsíðasta degi nýliðins
árs. Patrekur og Páll vora ekki á
meðal markaskorara Essen.
■ ÞAR með er komið hlé í þýska
handknattleikinn þar til í byrjun
febrúar vegna lokakeppni EM. Mag-
deburg er í 4.-6. sæti 1. deildar með
26 stig ásamt Nordhom og
Grosswallstadt. Kiel og Lemgo em í
2.-3. sæti með 27 stig en Flensborg
er efst með 30 stig. Keppni er nú
hálfnuð í efstu deild þýska hand-
knattleiksins.
■ ÁSGERÐUR H. Ingibergsdóttir
var á gamlársdag útnefndur íþrótta-
maður Vals fyrii’ 1999. Þetta var í átt-
unda sinn sem íþróttamaður Vals er
útnefndur og í annað skiptið sem
knattspyrnumaður verður fyrir val-
inu.
■ ÁSGERÐUR var markadrottning
efstu deildar kvenna sl. sumar, skor-
aði 20 mörk í 14 leikjum. Þá var hún
valin besti leikmaður meistaraflokks
kvenna hjá Val og var auk þess fasta-
maður í landsliði íslands í knatt-
spyrnu á árinu 1999.
■ ÞORSTEINN Halldórsson, fyrr-
verandi leikmaður KR, Fram og
Þróttar, hefur verið ráðinn þjálfari 2.
flokks karla hjá Val í knattspymu.
■ JOHN Amaechi, breski miðherjinn
í liði Orlando Magic í NBA-deildinni
í körfuknattleik, skoraði fyrstu körfu
deildarinnar á nýju árþúsundi. Treyj-
an sem hann lék í verður höfð til sýnis
í húsakynnum hinnar svonefndu
„heiðurshallar" NBA-deildarinnar.
■ MIAMI Heat lék í nýrri íþróttahöll
gegn Orlando í fyrrinótt. Hún er
kennd við bandaríska flugfélagið
American Airlines og kostaði 215
milljónir Bandaríkjadala, eða rúma
fimmtán milljarða króna, í byggingu.
Margir hinna tæplega tuttugu
þúsund áhorfenda á leik Flórí-
daliðanna Miami og Orlando í NBA-
deildinni í fyrrinótt höfðu þegar yfir-
gefið íþróttahöllina í Miami þegar
leikurinn tók óvænta stefnu. Miami
vann skyndilega upp tíu stiga forskot
gestanna undir lokin og sigraði síðan
í framlengingu, 111:103.
„Svo virtist sem við væmm dauð-
ans matur er þrjár mínútur vora til
leiksloka,“ sagði Pat Riley, þjálfari
Miami. „Við verðum að leika betur en
í þessum leik ef við viljum skemmta
áhorfendum okkar."
Eins og áður segir var munurinn
tíu stig, 93:83, er tvær og hálf mínúta
lifðu leiks. Þá létu heimamenn hend-
ur standa framúr ermum og Alonzo
Mouming jafnaði metin, 96:96, með
stökkskoti af stuttu færi er sex sek-
úndur vora eftir. I kjölfarið brást Pat
Garrity, leikmanni Orlando, bogalist-
in á lokasekúndu leiksins.
Mourning hitti síðan úr þremur
vítaskotum í upphafi framlengingar.
Dan Majerle gerði því næst út um
leikinn með þriggja stiga körfu. Or-
lando gerði ekki stig í fjórar mínútur
og heimamenn skoraðu úr fimm víta-
skotum á síðustu fjöratíu sekúndum
leiksins.
Voshon Lenard var stigahæstur
Miami með 24 stig. Mouming hafði
aðeins gert tvö stig í leikhléi, en lauk
leiknum með 21 stig, þótt hann hefði
misnotað fjórtán af átján skotum sín-
um. Jamal Mashburn lék með liðinu í
fyrsta sinn eftir að hafa náð sér af
ökklameiðslum. Hann gerði 22 stig
og tók tíu fráköst.
„Orlando bar lengstum ægishjálm
yfir okkur, en úrslitin sanna að leik-
urinn er ekki á enda fyrr en leiktím-
inn er runninn út,“ benti Mouming á.
„Við fundum leið til þess að sigra,“
bætti hann við.
Tariq Abdul-Wahad skoraði 22
stig fyrir Orlando og Darrell Ann-
strong gerði 16 stig, en bakverðirnir
tveir nýttu skot sín illa, hittu aðeins
úr þrettán af 38 skotum samanlagt.
Athygli vakti að Orlando tapaði
leiknum þrátt fyrir yfirburði í frá-
köstum. Liðið tók 63 slík gegn 45 frá-
köstum heimamanna.
„Heimleiðin verður erfið,“ sagði
Chris Gatling, leikmaður Orlando.
Anthony Carter, nýliði Miami,
framkallaði neistann sem kveikti bál-
ið undir lok hefðbundins leiktíma.
Hann skoraði fyrstu þriggja stiga
körfuna á ferli sínum í NBA-deild-
inni er rúm mínúta var eftir. Þannig
minnkaði hann muninn í þrjú stig.
„Þá vissi ég að við myndum sigra,“
sagði P.J. Brown, félagi Carters hjá
Miami. Nýliðinn hafði misnotað sjö
fyrstu skot sín handan þriggja stiga
línunnar á vetrinum.
Þetta var þriðji sigurleikur Miami
í röð og annar sigur liðsins á ná-
grönnum sínum frá Orlando á aðeins
fimm dögum. Á hinn bóginn var
þetta fjórði leikur Orlando í röð án
sigurs.
„Svo virðist sem hver einasti leik-
ur sé sá allra erfiðasti á keppnis-
tímabilinu, en þetta tap er sárast
þeirra allra,“ sagði Doc Rivers, þjálf-
ari Orlando. „Við höfðum verið betra
liðið þar til á siðustu andartökunum."
Miami er enn án helsta leikstjórn-
anda síns, Tim Hardaway, sem á við
hnémeiðsl að stríða. Hann hefur >
misst af átján síðustu leikjum liðsins
sökum þeirra. Pat Riley sagði að
hann myndi íhuga að afla liðinu ann-
ars leikmanns í umrædda stöðu ef
Hardaway verður enn ekki orðinn
leikfær er 24. febrúar nálgast, en þá
rennur félagaskiptafrestur NBA-
deildarinnar út fyrir yfírstandandi
tímabil. -x