Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 4
Mmt
Reuters
CHRIS Armstrong skorar hér sigurmark Tottenham gegn Liverpool á White Hart Lane í Lundúnum í gær. Steven Gerrard (t.v.) gerir
övæntingarfulla tilraun til að komast í veg fyrir skotið.
Engar breytingar
STAÐAN í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar breyttist lítið þegar
21. umferðin fór fram í gær. Meistarar Manchester United gátu
fagnað úrslitum því þeir léku ekki vegna þátttöku í heimsmeist-
arakeppni félagsliða sem fram fer í Brasilíu og hefst um næstu
helgi. Leeds, sem tapaði fyrir Aston Villa, heldur efsta sætinu og
er með eins stigs forskot á United sem á nú tvo leiki til góða. Ar-
senal, sem er í þriðja sæti, náði aðeins jafntefli gegn neðsta liði
deildarinnar, Sheffield Wednesday.
Enski varnarmaðurinn Gareth
Southgate var hetja Aston
Villa gegn Leeds á Elland Road.
Hann skoraði bæði mörk liðsins í
2:l-sigri og var þetta í fyrsta sinn
sem hann gerir tvö mörk í leik.
Bæði mörkin komu eftir undirbún-
ing Paul Mersons, en hann lýsti því
yfir við fréttamenn fyrir leikinn að
Leeds væri ekki með nægilega
sterkt lið til að verða enskur meist-
ari. Harry Kewell gerði mark
Leeds og þótti afar glæsilegt -
skoraði af 30 metra færi þegar að-
■ eins 14 sekúndur voru iiðnar af síð-
ari hálfleik. Aston Villa var sterk-
ara liðið í síðari hálfleik og var nær
því að bæta við marki en Leeds að
jafna. Það var aðeins góð mark-
varsla Nigel Martyn sem kom í veg
fyrir fleiri mörk frá Villa. Þetta var
annað tap Leeds á heimavelli í
deildinni, en síðast tapaði liðið á
Ellan Road í ágúst.
„Við voram án fimm lykilmanna
og í vandræðum nær allan leikinn.
Allir leikmennirnir lögðu sig fram,
en það dugði ekki til. Eg er sann-
færður um að við getum leikið betur
r og við gáfum þeim tvö ódýr mörk,“
sagði David O’Leary, knattspyrn-
ustjóri Leeds. „Eg held að sumir
sem staddir eru í Ríó geti glaðst yf-
ir úrslitunum í dag,“ bætti hann við
og átti við leikmenn Manchester
United.
John Gregory, knattspymuþjálf-
ari Aston Villa, sem sætti harðri
gagnrýni í upphafi tímabilsins, gat
verið ánægður með liðið þrátt fyrir
að hafa horft á það úr áhorfenda-
stúkunni þar sem hann tók út leik-
bann. „Við erum ekki búnir að gefa
upp alla von. Staða okkar í deildinni
gefur ekki rétta mynd af styrk liðs-
ins og við sýndum það áþreifanlega
í þessum leik og ætlum að halda því
áfram,“ sagði hann.
Emmanuel Petit skoraði íýo'sta
mark sitt fyrir Arsenal síðan í ágúst
er liðið varð að sætta sig við jafn-
tefli, 1:1, gegn Sheffield Wednes-
day. Markið kom fjóram mínútum
Tom Lehman sigraði í alþjóð-
legu boðsmóti tólf valin-
kunnra kylfinga í Scottsdale í Ar-
izonaríki á sunnudag. Lehman
fékk fimm fugla á síðustu sex hol-
unum eftir að hafa háð mikla bar-
áttu við David Duval og hlaut eina
milljón Bandaríkjadala, tæpar 72
milljónir króna, í verðlaunafé.
fyrir leikhlé og var skorað af stuttu
færi eftir undirbúning Fredrik
Ljungbergs og Thierry Henry.
Wednesday jafnaði þegar tíu mín-
útur vora liðnar af síðari hálfleik og
var Gerald Sibon þar að verki, en
þetta var aðeins fjórði leikur hans
fyi’ir félagið síðan hann var keyptur
frá Ajax fyrir tvær milljónir punda
sl. sumar.
Arsenal varð fyrir áfalli á 20.
mínútu er Marc Overmars varð að
fara af leikvelli meiddur eftir
samstuð við Niclas Alexandersson.
Ginola góður gegn Liverpool
Chris Armstrong skoraði fyrsta
mark sitt í átta leikjum er Liver-
pool kom í heimsón á White Hart
Lane. Hann var reyndar ekki lík-
legur til að skora eftir að hafa mis-
notað tvö dauðafæri eftir undirbún-
ing Davids Ginola á lyrstu 20
mínútum leiksins. Hann bætti fyrir
það fjórum mínútum síðar er hann
skoraði hið mikilvæga mark sem
Lehman lék 72 holur á 267
höggum, þrettán undir pari og
þremur höggum færra en Duval.
Lehman, sem er fertugur, hafði
ekki sigrað á bandarísku mótaröð-
inni síðan 1996.
Leikur stöðvaðist í rúma
klukkustund á lokadegi mótsins
vegna rigningai- og hagléls, sem
réð úrslitum af 20 metra færi.
Tottenham hafði tögl og hagldir í
fyrri hálfleik þar sem Ginola fór á
kostum og dansaði milli mótherja
sinna með knöttinn. Hann sýndi þar
Gerard Houllier, knattspyrnustjóra
Liverpool og fyrram lands-
liðsþjálfara Frakka, hvað í hann er
spunnið. Houllier setti Ginola út úr
franska landsliðshópnum á sínum
tíma.
Hermann og félagar unnu
Hermann Hreiðarsson, sem átti
mjög góðan leik, og félagar í Wim-
bledon unnu góðan sigur á Sunder-
land, 1:0, á Selhurst Park. Carl
Cort skoraði sigurmarkið og var
það 13. mark hans á tímabilinu.
Belginn Branco Strapar, sem
Derby keypti frá Genk á þrjár millj-
ónir punda íýrir skömmu, gerði
bæði mörk liðsins í 2:0-sigri á Wat-
ford.Jóhann B. Guðmundsson var
ekki í leikmannahópi Watford, sem
er í bullandi fallhættu sem fyrr.
mótshaldarar bjuggust ekki bein-
línis við í miðri eyðimörk Arizona-
ríkis.
Nýtt keppnistímabil á aðalmót-
aröð Bandaríkjanna hefst um
næstu helgi og segir Lehman að
hann vilji endurheimta sjálfstraust
sitt á nýju ári, en hann hafnaðí
fjórum sinnum í öðra sæti í fyrra.
■ ÍVAR Ingimarsson lék með
Brentford sem tapaði 1:0 fyrir Sto-
ke í ensku 2. deildinni í gær. Einar
Þór Daníelsson kom inn á á 82. mín-
útu en Sigursteinn Gislason sat á
bekknum hjá Stoke, sem er í 8. sæti.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék ekki
með WBA sem tapaði 2:0 fyrir
Barnsley í ensku 1. deildinni. Lárus
Orri tók út leikbann.
■ EIÐUR Smári Guðjohnsen og
Guðni Bergsson vora í byrjunarliði
Bolton sem tapaði 2:0 gegn Walsall.
Hvorki Bjamólfur Lárusson né
Sigurður Ragnar Eyjólfsson voru í
leikmannahópi Walsall. Þrátt fyrir
sigur er Walsall enn í fallbaráttu.
Bolton er í 14. sæti.
■ EIÐUR Smári Guðjohnsen var
um liðna helgi orðaður við Liver-
pool , að því er kemur fram á
spjallsíðu Bolton á Netinu. Sagt var
frá þvi að Robbie Fowler væri jafn-
vel á leið frá Liverpool til Ma-
nchester United og að Eiði Smára
væri ætlað að fylla hlutverk
Fowlers ef hann færi.
■ HERMANN Hreiðarsson lék sem
fyrr með Wimbledon, sem vann
Sunderland 1:0 í ensku úrvalsdeild-
inni.
■ BJARKI Gunnlaugsson var í leik-
mannahópi Preston North Enda
sem vann Cardiff City 4:0 í 2. deild-
inni í Englandi. Hann lék síðustu 20
mínútur leiksins. Preston er í öðru
sæti deildarinnar.
■ ARNAR Gunnlaugsson var í leik-
mannahópi Leicester gegn Everton
í ensku úrvalsdeildinni, en kom ekki
við sögu - sat á varamannabekknum
allan leikinn, sem lauk með 2:2 jafn-
tefli.
■ RIVALDO, sem var útnefndur
besti knattspymumaður síðasta
árs, er ekki í náðinni hjá Louis van
Gaal, þjálfara Barcelona, þessa
dagana. A fyrstu æfingu ársins
þurfti Rivaldo að æfa með varalið-
inu. Hann verður því ekki með
Barcelona í leiknum gegn Real
Sociedad annað kvöld.
■ LOUIS van Gaal hefur ekki verið
sáttur við framkomu Rivaldos eftir
að hann neitaði að leika á kantinum.
Brasilíumaðurinn hefur hingað til
fengið að leika lausum hala á miðj-
unni og vill halda því áfram.
■ NICOLAS Anelka náði loks að
skora fyrsta mark sitt fyrir Real
Madrid er hann lék með liðinu í
ágóðaleik sl. fimmtudag. Hann
gerði þá fyrsta mark liðsins í 3:2-
sigri á úrvalsliði spænsku deildar-
innar. Hann hafði ekki skorað síðan
hann kom til liðsins frá Arsenal í
ágúst.
■ DENNIS Wise, miðvallarleikmað-
ur hjá Chelsea, og unnusta hans,
Claires, eignuðust son þegar aðeins
87 mínútur voru liðnar af nýju ári.
Þetta er fyrsta barn þeirra og hefur
hann þegar verið nefndur Henry.
■ BRAS Friedel, varamarkvörður
Liverpool, gæti verið á förum til
norsku meistaranna í Rosenborg.
Forráðamenn Rosenborg, sem
Árni Gautur Arason leikur með,
hafa lýst áhuga sínum á markverð-
inum. Félagaskiptafrestur fyrir
Meistaradeild Evrópu, sem hefst að
nýju síðasta dag febrúarmánaðar,
rennur út 31. janúar og vilja for-
ráðamenn Rosenborgar að mark-
varðamál liðsins verði komin á
hreint fyrir þann tíma.
■ NOKKRIR markverðir hafa verið
orðaðir við Rosenborg að undan-
fömu. Þar á meðal era Frode Olsen,
markvörðm- Stabæk og norska
landsliðsins, og Magnus Kihlstedt,
sem leikur með Brann. Þótti koma
til greina að Árni Gautur færi til
Brann í skiptum við Kihlstedt, en
það datt upp fyrir eftir að Kihlstedt
meiddist á dögunum og verður frá
næstu þrjá mánuðina.
GOLF
Lehman byijar vel