Morgunblaðið - 11.01.2000, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ
34
Mr
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Safnaðarstarf
s Kyrrðar-
stundir og
biblíulestr-
ar í Hall-
grímskirkju
HALLGRÍMSKIRKJA hefur lengi
lagt mikla áherslu á fjölbreytt
^helgihald og fræðslustarf. Á þessu
nýbyrjaða ári verður haldið áfram
á sömu braut og leitast við að auka
enn á fjölbreytnina. Á
sunnudögum verða
áfram messur og
barnastarf kl. 11 en
auk þessa verða næstu
mánuði fluttar kantöt-
ur e. J.S. Bach kl. 17
einn sunnudag í mán-
uði, fyrst sunnudaginn
16. janúar en kantatan
verður sett inn í einfalt
guðsþjónustuform og
áfram verða kvöld-
messur 1. sunnudag í
mánuði fram að föstu,
en þá hefjast föstuguð-
' Á.þjónustur, sem verða
á miðvikudagskvöldum
fram til páska.
I miðri viku verða
fyrirbænaguðsþjónustur á þriðju-
dögum kl. 10.30 og kyrrðarstundir
á fimmtudögum kl. 12 með orgel-
tónlist, íhugun og léttum málsverði
á eftir. Þá verður á hverju miðviku-
dagskvöldi biblíulestur kl. 20-21.
Fyrstu fjóra miðvikudagana frá 12.
janúar til 2. febrúar mun sr. Jón
Dalbú sjá um fræðsluna en 9. febr-
úar til 1. mars mun sr. Sigurður
Pálsson sjá um efnið. Kl. 21 alla
miðvikudaga verður sunginn nátt-
söngur í kirkjunni eins og verið
hefur í allan vetur. Efni fyrstu bibl-
íulestranna verða um bænina, þ.e.
við lesum texta sem fjalla um bæn
og reynum að gera okkur grein fyr-
ir því hvað ritningin kennir okkur
um bæn og bænariðju.
Morgunbænir
hafnar að nýju
í Laugarnes-
kirkju
l, NÚ hefjum við gönguna að nýju
mót rísandi sól og komum saman til
morgunbæna í Laugarneskirkju
hvern virkan morgun kl. 6.45-7.05.
Góður hópur stendur saman um
bænahaldið. Við finnum glöggt að
það gefur hverjum degi lit og hljóm
að byrja hann á bæn og fá um leið
að hlýða á lestur úr ritningunni.
Þess vegna hvetjum við nýtt fólk til
þátttöku með okkur.
Morgunhópur Laugarneskirkju.
Langholts-
kirkja
Þriðjudagar eru sérstaklega
helgaðir heimsóknarþjónustunni
Á)g starfí með sjálfboðaliðum. Svala
Sigríður Thomsen djákni hefur um-
sjón með því starfiog er til viðtals í
Langholtskirkju frá kl 10 - 16. Ver-
ið velkomin að líta við eða hafa
samband í síma 520 1314 (sími
djákna) einnig er hægt að skilja
eftir skilaboð til djákna hjá kirkju-
verði í síma 520 1300. Við viljum
efía þátt leikmanna í starfi
kirkjunnar okkar. Sjálfboðin vinna
er mikilvæg á hinum ýmsu sviðum
safnaðarstarfsins; helgihalds, kær-
le.iksþjónustu, tónlistarstarfs og
-^ieimsóknarþjónustu. Umsjónarað-
ilar verða með samstarfsfund með
sjálfboðaliðum einu sinni í mánuði í
vetur.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla al-
durshópa í safnaðarheimilinu kl.
10-14.Léttur hádegisverður.
Mömmu- og pabbastund í safnaðar-
áteimilinu kl. 14-16.
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöð-
um.
Dómkirkja. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn,
kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17
fyrir 10-12 ára börn. Æskulýðsfé-
lag Dómkirkju og Neskirkju. Sam-
eiginlegur fundur í safnaðarheimili
Neskirkju kl. 19.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Þriðjudagur með Þorvaldi
kl. 21. Fyrsta samvera á nýju ári.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nesk-
irkju og Dómkirkju. Sameiginlegur
fundur í safnaðarheimili Neskirkju
kl. 19.30. Litli kórinn, kór eldri
borgara kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backmann og Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra
kl.11.15. Leikfimi ÍAK, léttur máls-
verður, helgistund og samvera. Kl.
17 TTT 10-12 ára starf á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 15-16. Starf fyrir 11-12
ára stúlkur kl. 16.30-17.30. Æsku-
lýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Opið hús eldri
borgara kl. 13.30-16 fyrir eldri
borgara, kyrrðarstund, hand-
avinna, söngur, spil og spjall. Kaffi-
veitingar. Kirkjukrakkar í Rima-
skóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára börn.
KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl.
18-19. Æskulýðsstarf fyrir ungl-
inga 15 ára og eldri kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldrastund í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30. Hafnar-
fjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12
ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi,
kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl.17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorgunn
kl. 9.30-11.30. Umsjón: Þórdís og
Þuríður.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu-tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15- 19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsf-
undur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. KI. 10
mömmumorgunn í félagsheimilinu
Fellaborg. Kl. 16 KFUM og KFUK
fyrir börn 9-12 ára.
KEFAS. Almenn bænastund kl.
20.30.
Dómkirlgan
SKAK
Umsjón Margeir
Pctursson
og vinnur.
STAÐAN kom upp á móti í
Saratov í Rússlandi í fyrra.
Arseny Alavkin hafði hvítt
og átti leik gegn Dmitri
Drjamin
25. Dg6!! og svartur gafst
upp, því eftir 25. - Bxg6 26.
Rxg6+ - Kh7 27. Rxfö++-
Kh8 28. Rg6+ - Kh7 29.
Re7+ vinnur hvítur drottn-
inguna til baka og á þá manni
meira. Svartur er nauð-
beygður að þiggja drottning-
arfómina, því að öðmm kosti
leikur hvítur næst 26. Rf7+
- Dxf7 27. Dh7 mát.
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Viðhald Stýri-
mannaskólans
ER það satt að viðhald
húss í eigu ríkisins sé
aldrei sett inn í fjárhags-
áætlun? Hvernig var með
Þjóðleikhúsið á sínum
tíma? Eg spyr vegna
Stýrimannaskólans. Jafn-
framt finnst mér óhæfa
að skólinn, sem hefur
verið undirstaða sjó-
mennskunnar, skuli vera
látinn grotna niður án
alls viðhalds. Ráðamenn
hafa engar áhyggjur ef
Stjórnarráðið og Þjóð-
leikhúsið em í lagi. Bara
að sjómenn færi þeim
nóg í kassann til þess.
Loksins lét Stýrimanna-
skólinn undan og dýrmæt
tæki eyðilögðust þegar
þakið brast. Stýrimanna-
skólinn er virðuleg bygg-
ing sem ætti að vera stolt
Islendinga. Að hann skuli
vera að hruni kominn er
niðurlæging fyrir þjóðina
og það á hæsta stigi. Ég
hef komið á Hvanneyri,
þar er aðbúnaður og við-
haid til fyrirmyndar. Að-
búnaður nemenda í Stýri-
mannaskólanum er fyrir
neðan allt. Er ekki nógur
afgangur í ríkiskassanum
til að reyna að bjarga
byggingunni?
Vigga í vesturbænum.
Ábending til
áskrifenda
ÁSKRIFENDUR Morg-
unblaðsins eru vinsam-
lega beðnir að hafa
kveikt á ljósum við útidyr
og hreinsa snjó frá dyr-
um svo blaðburðarfólkið
eigi auðveldar með að
koma blaðinu frá sér á
morgnana.
Tapaö/fundiö
Nokia gsm-sími
týndist
NOKIA 5110 GSM-sími
með fjólubláa framhlið
týndist 28. desember,
annaðhvort í Garðabæ
eða Seljahverfi. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 567-0443.
Dýrahald
Kettlingar óska
eftir lieimili
ÞRIR kettlingar, ljós-
brúnn högni, svartur og
hvítur högni og svört og
hvít læða óska eftir heim-
ili. Upplýsingar í síma
588-5930.
Morgunblaðið/Ásdís
gongu.
Yíkveiji skrifar...
RÚÐUGLERIÐ í Bústaðavegs-
húsin er nú komið til landsins og
var byrjað setja rúður í húsin á föstu-
daginn. Nokkuð hefir staðið á gler-
inu, en af þeim sökum hefir ekki verið
hægt fyrir íbúðareigendur að vinna
sem skyldi við íbúðir sínar.
Það er glerslípun og speglagerð
Pjeturs Pjeturssonar í Hafnarstræti
7 sem annast allan rúðuskurð í húsin
og mun þurfa nokkuð á 4000 rúður í
þau hús, sem þegar eru komin undir
þak.“
Þannig hljóðar lítíl frétt á baksíðu
Morgunblaðsins frá því í ágúst 1950.
Það er óhætt að segja að fréttin beri
með sér mynd af mjög svo frábrugðn-
um aðstæðum og þeim, sem við búum
við í dag. Það breytist margt á hálfri
öld og ólíklegt má telja að frétt af
þessu tagi myndi sjást á baksíðu
Morgunblaðins úr þessu.
XXX
IUMRÆDDU blaði er önnur at-
hygliverð frétt á baksíðu blaðsins.
Hún fjallar um bráðabirgðalög um
vistakaup til síldveiðiflotans. Fréttin
er svohljóðandi. „í gærdag gaf forseti
íslands út bráðabirgðalög um breyt-
ing á lögum nr. 30.1936 um breyting
á viðauka við siglingalög nr. 56,1914,
vegna fjárhagsörðugleika síldveiði-
flotans, sakir aflabrests á yfirstand-
andi vertíð. En mjög hefii- reynst erf-
itt að fá keyptar vistir til skipanna
nema því aðeins að kröfur sem stofn-
aðar hafa verið eða stofnaðar verða
vegna kaupa á vistunum, verði látnar
njóta sjóveðsrjettar.
Vegna þessa gaf forsetinn út bráð-
abirgðalögin, en þau eru svohljóð-
andi: Aftan við 2. gr. laganna komi ný
málsgrein svohljóðandi: Þó skulu
kröfur sem skipstjóri hefir stofnað til
vegna úttektar á vistum til skipa
þeirra, er síldveiðar stunda sumarið
1950, vegna síldveiðanna, njóta sjó-
veðsrjettar þrátt íyrir ákvæði 1. gr.
þessarar greinar."
xxx
AÐ er ljóst af þessari frétt að
dæma að ekki hafi síldveiðamar
gengið vel fyrir hálfri öld, því svo bág-
borin er afkoman að ekki eru til pen-
ingar fyrir vistum handa síldarsjó-
mönnum og vistirnar fást ekki upp á
krít, nema veð sé sett fyrir skuldinni.
Þetta er einnig dæmi um þau af-
skipti stjómvalda sem þá tíðkuðust af
fiskveiðum og fiskvinnslu, en era nú
að mestu íyrir bí, til allrar lukku. Slík
afskipti eiga ekki rétt á sér í þjóðfé-
lagi nútímans og telur Vikverji rétt
að rifja þetta hér upp í Ijósi þess að
hann man vart til þess að sjómenn og
útgerðarmann hafi getað samið um
kaup og kjör nema með afar umdeild-
um afskiptum stjómvalda. Sem dæmi
um það má nefna hið umdeilda
Kvótaþing, sem virðist aðeins hafa
orðið til þess að draga úr viðskiptum
með aflaheimildir og hækka leigu-
verð á þeim. Reyndar hafa kröfur sjó-
manna í kjarasasmningum undanfar-
in ár ekki beinzt að útgerðinni sjálfri
nema að litlu leyti, heldur stjómvöld-
um, þar sem kröfur þeirra fela einatt í
sér lagabreytingar, sem LÍÚ ræður
engu um. Vonandi kemur að þvi nú,
þegar samningar em enn einu sinni á
döfinni, að þessari hringavitleysu
verði hætt.