Morgunblaðið - 12.01.2000, Page 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR12. JANÚAR 2000 C 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Tindastóll - UMFG 64:73
Iþróttahúsið á Sauðárkróki, bikarkeppni
KKI, 8-liða úrslit, þriðjudaginn 11. janúar
2000.
Gangur leiksins: 0:5, 2:8, 7:16, 17:22, 25:27,
31:34, 37:40, 44:44, 51:50, 56:59, 60:69, 64:73.
Stig Tindastóls: Shawn Myers 20, Kristinn
Friðriksson 12, Svavar Birgisson 12, Sune
Hendriksen 11, Helgi Margeirsson 6, Frið-
rik Hreinsson 3.
Fráköst: 21 í vörn - 17 í sókn.
Stig UMFG: Brenton Birmingham 27, Pétur
Guðmundsson 10, Sævar Garðarsson 8,
Alexander Ermolinskij 8, Dagur Þórisson 6,
Bjarni Magnússon 6, Guðlaugur Eyjólfsson
5, Bergur Hinriksson 3.
Fráköst: 28 í vörn - 4 í sókn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján
Möller.
Villur: Tindastóll 18 - UMFG 20.
Áhorfendur: Um 350.
KFÍ - Njarðvík 67:88
íþróttahúsið Torfnesi:
Gangur leiksins: 3:0, 7:12, 16:26, 25:34, 30:52,
35:55,41:64,50:70,54:78,61:80,67:88.
Stíg KFÍ: Clifton Bush, 17, Vicos Pateli 16,
Baldur Jónasson 11, Halldór Kristmannsson
7, Tómas Hermannsson 7, Pétur Sigurðsson 5,
Guðmundur Guðmarsson 2, Þórður Jensson.
Fráköst: 17 í vörn - 5 í sókn.
Stig Njarðyikur: Teitur Örlygsson 22, Keith
Veney 19, Örlygur Sturluson 18, Hermann
Hauksson 14, Friðrik Stefánsson 8, Friðrik
Ragnarsson 5, Páll Kristinsson 2.
Fráköst: 19 í vörn - 9 í sókn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn
Óskarsson.
Áhorfendur: Um 150.
Snæfell - Hamar 89:72
íþróttahúsið í Stykkishólmi, íslandsmótið í
körfuknattleik, efsta deild karla (Epson-
deildin), þriðjudaginn 11. janúar 2000.
Gangur leiksins: 11:0, 15:5, 25:11, 34:24,
45:31, 50:33, 58:46, 63:57, 66:61, 68:65, 78:65,
85:69, 89:72.
Stig Snæfells: Kim Lewis 29, Pálmi Sigur-
geirsson 18, Jón Þór Eyþórsson 16, Adonis
Pomponis 12, David Colbac 9, Ágúst Jens-
son 5.
Fráköst: 21 í vörn - 9 í sókn.
Stig Hamars: Brandon Titus 35, Skarphéð-
inn Ingason 11, Ómar Sigmarsson 5, Oli S.
Barðdal 4, Hjalti Pálsson 4, Kristinn Karls-
son 2.
Fráköst: 19 í vörn - 18 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Egg-
ert Aðalsteinsson.
Villur: Snæfell 14 - Hamar 23.
Áhorfendur: Um 240.
1. deild kvenna
KR - ÍS..........................60:46
Knattspyma
England
Deildabikarkeppnin:
West Ham - Aston Villa..............1:3
Lampard 47. - Taylor 80., 118., Joachim 93.
Enska bikarkeppnin:
Gillingham - Bradford..............3:1
1. deild:
Wolverhampton - Charlton...........2:3
Bikarkeppni neðrideildarliða:
Cambridge - Barnet.................1:2
■ Barnet vann á „gullmarki“.
Hull - Chester.....................2:0
Mansfíeld - Blackpool..............0:1
Rochdale - Macclesfield ...........3:2
Rotherham - Chesterfield ..........1:4
Bournemouth - Brighton ............1:0
■ Bournemouth vann á „gullmarki“.
Exeter - Swansea ..................2:0
Northampton - Bristol Rovers.......0:0
■ Bristol vann, 5:3, eftir vítaspyrnukeppni.
Oxford - Wycombe ..................1:1
Peterborough - Brentford ..........0:1
Plymouth - Torquay.................0:1
HM félagsliða
A-RIÐILL:
Real Madrid - Raja Casablanca .....3:2
Hierro 49, Morientes 52, Njitap 88 - Achami
28, Moustaoudia 59.
Rauð spjöld: Gutierrez, Carlos og Karem-
beu, Real Madrid - E1 Moubarki, Raja,
Corinthians - AI Nassr .............2:0
Ricardinho 25, Rincon 82.
Staðan:
Corinthians ..............3 2 1 0 6:2 7
Real Madrid ..............3 2 1 0 8:5 7
A1 Nassr .................3 1 0 2 5:8 3
Raja Casablanca ..........3 0 0 3 5:9 0
•Corinthians leikur til úrslita.
B-RIÐILL:
Man. Utd. - S-Melbourne.............2:0
Quinton Fortune 8., 20.
Staðan:
Vasco da Gama ............2 2 0 0 5:1 6
Necaxa ...................2 1 1 0 4:2 4
Man. United ..............3 0 1 1 4:4 4
S-Melbourne ..............3 0 0 2 1:7 0
Frakkland
l.deild:
Metz - Bordeaux....................2:1
PSG - Lyon ..........................2:2
Ámi Gautur varði tvö vftí
Árni Gautur Arason varði tvívegis í víta-
spymukeppni norska liðsins Rosenborg og
Duisburg frá Þýskalandi í æfingamóti á
Kanaríeyjum í gærkvöldi. Rosenborg fór
með sigur af hólmi, en staðan var 1:1 í lok
hefðbundins leiktíma.
í KVÖLD
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Austurberg: ÍR - Stjarnn ...........20
KA-heimili: KA - Grótta/KR..........20
Valsheimili: Valur - FH.............20
Vestmannaeyjar: ÍBV - Haukar........20
Víkin: Víkingur - Fram .............20
2. deild karla:
Austurberg: ÍR B - Breiðablik....21.30
Flóðljós gestgjafa
Stoke brugðust
HÆTTA varð leik Stoke, sem Guðjón Þórðarson stjórnar, og
Oldliam í annarri umferð bikarkeppni neðrideildarliða í Eng-
landi er hann stóð sem hæst í gærkvöldi. Stoke hafði yfir-
höndina, 1:0, á heimavelli Oldham er fióðljósin á vellinum
gáfu sig. Ben Petty kom Stoke yfir á 52. mínútu, en tæpum sex
mínútum síðar varð rafmagnslaust á og við völlinn með fyrr-
greindum afleiðingum. Sigursteinn Gíslason og Brynjar Björn
Gunnarsson voru í byijunarliði Stoke. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvenær leikurinn skuli endurtekinn.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Njarðvík
heldur velli
BIKARMEISTARAR Njarðvíkur eru komnir í undanúrslit bikar-
keppni KKÍ ásamt nágrönnum sínum úr Grindavík, en liðin unnu
bæði góða sigra í gærkvöldi. Njarðvíkingar sóttu gull í greipar ís-
firðinga og Grindvíkingar gerðu slíkt hið sama á Sauðárkróki.
Grindvíkingar eru komnir í und-
anúrslit bikarkeppni KKÍ eft-
ir góðan sigur á Tindastóli á Sauð-
árkróki í gærkvöldi,
Bjöm 73:64- PeS'dr * UPP'
Björnsson hafi leiks var ljóst
skrifar að Grindvíkingar
voru ekki komnir til
þess að láta slá sig út úr keppninni.
Frá byrjun börðust þeir eins og
grenjandi ljón um hvern bolta.
Þetta virtist koma heimamönnum
í opna skjöldu og voru þeir fremur
seinir í gang og eftir örstuttan leik
höfðu gestirnir komið sér í þægilegt
forskot 5:16.
Smátt og smátt fóru heimamenn
að komast betur inn í leikinn, en
voru bæði óheppnir í skotum, og
eins var vítanýting mjög döpur og
má með sanni segja að með sömu
nýtingu á vitum og gestirnir, hefðu
þeir verið yfir, því að þó að Grind-
víkingar söfnuðu á sig villum strax í
upphafi, fyrir mjög harðan leik
nýttist heimamönnum það ekki til
þess að bæta stöðu sína. Þegar
nokkrar mínútur voru til hálfleiks
náðu Tindastólsmenn að minnka
muninn í eitt stig, en lengra komust
þeir ekki fyrir hálfleik og í hléi
skildu liðin þrjú stig.
í síðari hálfleik fór allt eins og í
þeim fyrri, Grindvíkingar héldu for-
ystunni, en heimamenn héngu í
þeim og léku nú mun betri vöm en í
fyrri hálfleik. Þegar eftir voru tíu
mínútur af síðari hálfleik náðu
Tindastólsmenn að jafna, og kom-
ast yfir, en undir lokin voru það
Grindvíkingar sem náðu með harð-
fylgi að innbyrða sigur eftir mikla
og harða baráttu.
Bestu menn í liði Tindastóls voru
Shawn Myers, Sune Hendriksen,
Svavar Birgisson og Kristinn Frið-
riksson. Hjá Grindavík var Brenton
Birmingham yfirburðamaður en
einnig börðust þeir Pétur Guðmun-
dsson, Sævar Garðarsson og Bjarni
Magnússon mjög vel.
Leikur kattarins
að músinni á fsafirði
Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum bikarkeppnin-
ar þegar þeir unnu lið KFÍ á sam-
mmi færandi hátt þar
Magnús sem l°katölur urðu
Gíslason 67:88. Heimamenn
skrífar mættu algjörlega á
hælunum í þennan leik og Njarð-
víkingar nýttu sér það til fullnustu
og tóku leikinn strax föstum tökum
og náðu fljótlega tíu stiga forystu.
Þegar skammt var til hálfleiks
var staðan 25:34 fyrir gestina. Þá
tóku bikarmeistarnir góðan kipp og
gerðu átján stig gegn tveimur
heimamanna og léku leikmenn KFI
oft grátt með góðum samleik og ág-
ætri hittni sem skóp 22 stiga for-
ystu í hálfleik 30:52. í upphafi
seinni hálfleiks voru Njarðvíkingar
ekkert á þeim buxunum að hleypa
heimamönnum inn í leikinn heldur
juku við forystuna þar sem þeir
röðuðu niður þriggja stiga skotum
sem þeir nýttu sérlega vel í leikn-
um. En þær urðu alls 16 þegar upp
var staðið í lokin. Mestur varð mun-
urinn 29 stig um miðbik seinni hálf-
leiks og yfírburðirnir allgjörir gegn
lánlausum leikmönnum KFÍ sem
virtust eiga erfitt með að berja
saman sæmilegri liðsheild.
Lið KFI náði sér aldrei á strik í
þessum leik og er umhugsunarefni
fyrir aðstandendur liðsins hvað
leikmenn liðsins ná illa að vinna
saman og agaleysið i sóknarleik-
num hjá liðinu er áberandi. Þó má
ekki gleyma því að við raman var
reip að draga í þessum leik þar sem
Njarðvíkingar fóru á kostum á
löngum köflum í leiknum sem var
eins og gamla sagan um köttinn og
músina. Þeir frændur Teitur og Ör-
lygur fóru fremstir meðal jafningja
í þessum leik og fóru hreinlega á
kostum í þriggja stiga skotum sin-
um.
Ríkharður
Hrafnketsson
skrífar
Snæfell f framför
Snæfell lagði lið Hamars frá
Hveragerði að velli í fjörugum
leik í Stykkishólmi í gærkveldi,
89:72. Snæfell hóf
leikinn með miklum
látum og gerði 11
fyrstu stig hans.
Varnarleikur Snæf-
ells í fyrri hálfleik var mjög góður
og leikmenn Hamars komust lítt
áleiðis í sóknarleik sínum. Létu að-
komumenn mótlætið fara í skapið á
sér og voru duglegir við að lýsa-
skoðunum sínum á dómgæslunni,
sem endaði með því að þeir upp-
skáru tvö tæknivíti.
Snæfell hóf síðari hálfleikinn á
svipuðum nótum og þann fyrri og
náðu muninum upp í 19 stig eftir
fjórar mínútur. Eftir þetta slökuðu
heimamenn á, en gestirnir fóru að
leika mun harðari og fastari vörn,
gengu á lagið er dómararnir leyfðu
aukna hörku. Á þessum tíma sá
Brandon Titus um sóknarleikinn
hjá Hvergerðingum, en hann skor-
aði 25 stig í seinni hálfleik.
Þegar um fjórar mínútur voru
eftir var munurinn kominn í þrjú
stig. Þá sögðu Hólmarar hingað og
ekki lengra, tóku öll völd á vellinum
og skoruðu 21 stig gegn 7 stigum
gestanna.
Grikkinn Adonis Pomponis lék í
fyi'sta sinn með Snæfelli og lofar
góðu. Með tilkomu hans verður lið
Snæfells til alls líklegt það sem eft-
ir er vetrar og eygir nú möguleika á
því að komast í úrslitakeppnina. Lið
Hamars virkar ekki eins sterkt og í
upphafi leiktíðar en þó býr töluvert
í liðinu. Lið Snæfells lék einn sinn
besta leik í vetur og var liðsheildin
góð.
9-\
Aston Villa
komið í
undanúrslit
Ian Taylor var hetja Aston Villa er
liðið mætti West Ham í endur-
teknum leik liðanna í fjórðungsúr-
slitum deildarbikarkeppninnar.
West Ham, sem vann viðureignina í
síðustu viku eftir vítaspyrnukeppni,
tefldi fram ólöglegum leikmanni í
framlengingu, Manny Omoyimni,
sem áður hefði tekið þátt í fyrri um-
ferðum keppninnar er hann var láns-
maður hjá Gillingham.
Taylor rak
smiðshöggið
Allt leit út fyrir að West Ham tæk-
ist að bera sigurorð af Aston Villa
öðru sinni er Frank Lampard skor-
aði á 47. mínútu en 10 mínútum fyi-ir
leikslok tókst Taylor að jafna leik-
inn. Julian Joaehim kom Villa yfir á
93. mínútu og Taylor rak smiðshögg-
Bengt Johansson
Morgunblaðið/Gísli Þorsteinsson
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari íslands, og Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía, hittust í Frakklandi
um sl. helgi, þar sem Bengt fylgdist með landsliði íslands í tveimur leikjum gegn Frakklandi.
■ Fæddur: 26. júní 1942.
■ Lék með Drott í Halmstadt,
varð þrisvar sænskur meistari
með liðinu.
■ Árangur Bengts Johanssonar
með sænska landsliðinu frá
1988:
• Tvisvar Evrópumeistari - í
Portúgal 1994 og á Ítalíu 1998.
• Tvisvar heimsmeistari - í
Tékkóslóvakíu 1990 og
Egyptalandi 1999.
• Tvisvar silfurverðlaun á Ól-
ympíuleikum - í Barcelona 1992
ogÁtlanta 1996.
• Einu sinni silfur á heims-
meistaramóti - í Japan 1997.
• Tvisvar bronsverðlaun á
heimsmeistaramóti - í Svfþjóð
1995 og á f slandi 1997.
■ Samningi Bengts Johansson-
ar hjá sænska handknattleik-
ssambandinu lýkur 2001 eftir
HM í Frakklandi.
Bengt Johansson landsliðsþjálfari heimsmeistara Svía eftir að hafa séð íslenska landsliðið leika í Frakklandi
Lífsnauðsynlegt að
vinna íslendinga
|arkmið okkar í Evrópukeppn-
inni er að komast í undanúr-
slit, síðan í úrslit og reyna auðvitað
að vinna keppnina. Við erum með
gott lið, eiginlega aldrei betra en nú.
En árangur liðsins fer auðvitað eftir
því hvort allir leikmenn séu heilir.
Evrópukeppnin er sú erfiðasta af öll-
um keppnum, sem handknattleik-
slandslið taka þátt í, mun erfiðari
heldur en heimsmeistarakeppni eða
Ólympíuleikar. Öll lið eru erfið viður-
eignar og það verður ekki neinn auð-
fenginn sigur í okkar riðli í Króatíu.
Við leikum gegn íslandi í fyrsta leik
og það er lífsnauðsynlegt að vinna
sigur í þeim leik til þess að framhald-
ið verði auðveldara. Ég býst við að
Rússland verði okkar erfiðasti and-
stæðingur og svo megi búast við að
Spánn og Króatía séu með sterk lið.
Þá eru Danir á uppleið.
Leikir gegn íslendingum eru alltaf
erfiðir því liðin þekkja hvort annað
mjög vel. Við mættum íslendingum
síðast í Noregi í maí á síðasta ári og
sá leikur var fjarri því að vera auð-
veldur. íslendingar þekkja leikinn
vel og leika yfirleitt góðan handbolta.
Það er ávallt erfitt að spila fyrsta leik
í keppni og góður árangur í honum
gefur liðum byr undir seglin. Við
þurfum að hafa góðar gætur á Ólafi
Stefánssyni sem er góður á hægri
vængnum. Þá er Dagur Sigurðsson
Bengt Johansson, þjálfari sænsku heimsmeistaranna í
handknattleik, segir að Svíar muni mæta öflugri mót-
spyrnu liða á Evrópumótinu í Króatíu undir lok mán-
aðarins og að það sé sérstaklega mikilvægt að vinna
sigur á íslenska liðinu, en liðin eigast við í fyrstu um-
ferð keppninnar. Johansson sagðist í samtali við Gísla
Þorsteinsson ekki draga dul á að Svíar ætli sér að
. -
vinna keppnina og stefni á sigur á Olympíuleikum í
sumar enda sé það eina landsliðið sem þrói leik sinn á
markvissan hátt - önnur lið fari villur vegar.
hættulegur miðjumaður. Ég er að
kynna mér leik íslenska liðsins og
ætla að skoða Dani, er við mætum
þeim á æfingamóti, ásamt Frökkum
og Egyptum, síðar í mánuðinum.
Leiðin í úrslit á EM í Króatíu verður
erfið, en mér finnst líklegt að Spánn,
Króatía, Rússland og Svíþjóð verði í
fjórum efstu sætunum.“
Aldur leikmanna
engin fyrirstaða
Bengt segir að þrátt fyrir að marg-
ir leikmenn liðsins, svo sem Staffan
Olson og Magnus Wislander, séu
komnir vel á fertugsaldur, séu þeir
hungraðir sem fyrr að standa sig og
vinna keppnina. „Þeir sem eru komn-
ir á aldur eru enn í góðu líkamlegu
ástandi og æfa vel til þess að halda
sér í formi. Þeir hafa enn yndi af því
sem þeir eru að gera enda fá þeir vel
borgað fyrir að stunda þessa íþrótt.
Þess vegna halda þeir áfram. Þeir
eru yngri leikmönnum engir eftirbát-
ar en við leggjum hart að okkur á æf-
ingum enda leggjum við mikið upp úr
hraðaupphlaupum í leikjum. Þá höf-
um við marga leikmenn sem geta
skotið fyrir utan. Við höfum yfirleitt
skamman tíma til stefnu á æfingum
en tökum saman helstu atriðin í
handbók sem leikmenn fá og geta þar
farið yfir ákveðin leikatriði. Ef eldri
leikmenn væru ekki í lagi væri ég
búinn að skipta þeim út fyrir yngri.“
Johansson segir að margir leik-
menn geti tekið við hlutverkum
þeirra sem eldri eru. Hann viti af
mörgum hæfileikaríkum leikmönnum
úr yngri landsliðum sem þegar eru
farnir að banka á dyrnar hjá aðal-
landsliðinu.
„Ég býst við að geta valið úr 25
sterkum leikmönnum fyrir keppnina
í Ki’óatíu, þar af eru þrír ungir leik-
menn sem fara á mótið.“
Hann segir að ef liðinu gangi ekki
sem skyldi í Króatíu muni hann
breyta því á einhvern hátt og leyfa
yngri mönnum að spreyta sig. „Við
munum áfram leggja áherslu á að
leika sambærilegan leik og við höfum
ætíð gert er við mætum til Króatíu,"
segir Johansson en leggur áherslu á
að leikur sænska liðsins taki samt
breytingum í tímans rás.
„Við erum sífellt að þróa leik okk-
ar, bæði í vörn og sókn, og erum með
ýmis atriði, sem við ætlum að nota í
næstu leikjum. Mér finnst, sem
sænska liðið sé það eina, sem þróar
leik sinn á markvissan hátt, það er að
minnsta kosti mín skoðun. Önnur lið
svo sem Þýskaland og Rússland gera
það ekki og eru að færa leik sinn nær
miðju. Ég skil það ekki.“
Löngun Svía
í Óiympíugullið
Bengt hefur starfað sem landslið-
sþjálfari frá því um haustið 1988 og
frá þeim tíma hefur liðið unnið til níu
verðlauna á stórmótum. Liðið hefur
undir hans stjórn oftar en einu sinni
unnið Evrópumeistaratitil ogheims-
meistaratitil, en liðið hefur aldrei
orðið Ólympíumeistari, en þar hefur
liðið hafnað tvívegis í öðru sæti.
Þjálfarinn segist stefna leynt og ljóst
að betri árangri í Sydney í sumar
heldur en á fyrri Ólympíuleikum, en
til að svo verði þurfi liðið að ná því að
komast í undanúrslit.
Núverandi samningi Bengt
Johansson við sænska handknattleik-
sambandið lýkur árið 2001. Hann
sagðist ekki vita hvert framhaldið
yrði, annað en að sænska handknatt-
leikssambandið hefði falast eftir að
halda heimsmeistarakeppnina árið
2002, en það verður ákveðið í apríl
næstkomandi.
„Ég hef ekkert ákveðið um fram-
haldið. Ég ætla að ljúka samningi
mínum við handknattleikssambandið
áður en lengra er haldið, en það eru
ýmis stórmót framundan, sem við
ætlum okkur að ljúka, áður en ein-
hver ákvörðun verður tekin.“
ið á leik liðsins með sínu öðru marki.
West Ham fékk tækifæri til þess að
koma sér inn í leikinn í framlengingu
en David James varði vítaspyrnu írá
Paolo di Canio.
Ian Taylor sagði að liðið væri
greinilega búið að rita nafn sitt á
bikarinn í ljósi þess hve liðið hefði
reynst lánsamt. „Sigurinn gefur okk-
ur byr undir báða vængi. Við þurfum
að mæta þeim að nýju á þeirra
heimavelli í deUdinni og sá leikur
verður án efa erfiður. Þá ætlum við
okkur annan sigur.“ Aðspurður um
hvort leikmenn hefðu ekki verið
farnir að örvænta sagði Taylor svo
ekki vera. Þeir hefðu einfaldlega
haldið sínu striki þrátt fyrir slæma
stöðu. David James markvörður Ast-
on Villa var á sama máli og félagi
sinn Taylor og taldi að liðið væri á
leið í úrslit keppninnar. „Nú þurfum
við sigur í undanúrslitum keppninn-
ar og þá er liðið komið í úrslit.“
Óvæntur sigur
Gillingham
Peter Taylor, knattspymustjóri 2.
deildarliðs Gillingham, kvaðst stolt-
ur af frammistöðu leikmanna sinna
sem báru sigurorð af úrvalsdeildar-
liði Bradford 3:1 í fjórðu umferð bik-
arkeppinnar. Heimamenn sýndu fá-
heyrða yfirburði og komust í 2:0
áður en Bradford náði loks að svara
fyrir sig. „Þetta er stórkostleg stund
fyrir okkur og félagið og það er ekki
hægt annað en að vera stoltur af
frammistöðu leikmanna," sagði
Taylor, er áður stjórnaði 21 árs
landsliði Englendinga. Paul Jewell,
knattspyrnustjóri Bradford, var
fyrstur til þess að óska Taylor til
hamingju en Jewell gat vart leynt
vonbrigðum sínum. Hann kenndi
leikmönnum um hvernig fór og sagði
að þeir hefðu ekki lagt sig fram sem
skyldi. En Gillingham var vel að sigri
sínum komið.
ívar og félagar áfram
Ivar Ingimarsson og félagar í
Brentford, sem leika í 2. deild, unnu
þriðju deildarlið Peterborough 1:0
og eru komnir áfram í þriðju umferð
bikarkeppni neðri deildarliða. ívar
lék með allan leikinn.
Lokaund-
irbúning-
ur Svía
og Dana
SVIAR og Danir, væntan-
legir andstæðingar íslenska
liðsins á Evrópumeistara-
mótinu í Króatíu, Ieika síð-
ustu undirbúningsleiki sína
fyrir mótið um næstu helgi.
Þá taka þjóðirnar þátt í
fjögurra landa móti ásamt
Frökkum og Egyptum og
fermótið fram í Svíþjóð.
Á föstudag leika Svíar og
Frakkar og Danir mæta
Egyptum í Helsingborg.
Daginn eftir leika heima-
menn við Egypta í Kristi-
anstad en Danir reyna sig
við Frakka. f síðustu um-
ferð á sunnudag leika
frændurnir, Svíar og Danir
og Frakkar og Egyptar. Þá
verður leikið í Malmö. Þetta
eru jafnframt siðustu leikir
Frakka sem einnig eim á
meðal þátttakenda á EM.
■ MAGIC Johnson hefur gert
tveggja ára samning við körfuknatt-
leikslið sitt í Svíþjóð, M7, um að
leika með því á næsta tveimur leik-
tíðum. Johnson keypti liðið í fyrra
en það er frá bænum Buraas.
■ JOHNSON lék einn leik með lið-
inu í haust og gekk vel og vakti að
vonum mikla athygli. Fyrsti leikur
hans með liðinu nú verður í Gauta-
borg á föstudaginn.
■ GRANT IJill, leikmaður Detroit
Pistons, var á mánudag útnefndur
leikmaður vikunnar í NBA-deild-
inni í körfuknattleik. Hann skoraði
40 stig eða meira í þremur af fjórum
leikjum liðsins í síðustu viku. Meðal-
skor hans var 38,8 stig, tók 5,3 frá-
köst að meðaltali og átti 7,5 stoð-
sendingar.
■ TIM Duncan skoraði 46 stig fyrir
San Antonio Spurs sem vann Utah
Jazz 93:86 í NBA-deildinni í körf-
uknattleik á mánudag. Hann skor-
aði 18 stig í fjórða og síðasta leik-
hluta, en Utah hafði forystu 68:59 að
loknum þriðja leikhluta.
■ KOBE Bryant gerði 17 af 30 stig-
um sínum í íyrsta leikhluta fyrir
Los Angeles Lakers sem vann Den-
ver 130:95. Þetta var 15. sigur Lak-
ers í röð. Shaquille O’Neal átti enn
einn stórleikinn, gerði 31 stig, tók 19
fráköst, átti 9 stoðsendingar og
varði 5 skot.
■ SCOTTIE Pippen, Damon Stou-
damire og Detlef Schrempf gerðu
17 stig hver fyrir Portland sem
vann Dallas Mavericks 107:94.
■ IAN Thorpe, sundmaðurinn efni-
legi frá Ástralíu, hefur í hyggju a.ð
keppa í 1.500 metra skriðsundi á Ól-
ympíuleikunum í Sydney.
Hann setti þrjú heimsmet í 200 og
400 metra skriðsundi á síðasta ári.
Keppnin í 1.500 metra skriðsundinu
fer fram á eftir 100, 200 og 400
metra skriðsundið þannig að Thor-
pe, sem er 17 ára, þarf ekki að hafa
áhyggjur af að eyðileggja hinar
greinamar, sem eru hans sterkustu.
■ MONCIA Seles, sem hefur fjórum
sinnum sigrað á opna ástralska
meistaramótinu í tennis, getur ekki
tekið þátt í mótinu að þessu sinni
vegna meiðsla. Hún er númer sex á
heimslistanum og gat ekki tekið
þátt í upphitunarmótinu í Perth í
síðustu viku af sömu ástæðu. Hún
hefur ekkert keppt síðan í septem-
ber.
■ MIROSLAV Polak hefur verið
nefndur sem eftirmaður Hans
Krankl sem þjálfari austurríska
liðsins SV Salzburg. Polak er 41 árs
Júgóslavi og hefur þjálfað unglinga-
lið félagsins. Krankl, sem er fyrr-
verandi framherji austurríska
landsliðsins, hefur tekið við þjálfun
þýska 2. deildar liðsins Fortuna
Köln.
■ GEORGE Weah, miðherji AC
Milan, hefur verið lánaður til Chels-
ea út keppnistímabilið. Leikmenn
liðsins hafa ekki verið á skotskónum
að undanfömu og á Weah að bæta
úr því. Hann hefur verið í herbúðum
AC Milan síðan liðið keypti hann
1995 frá París St Germain.
■ WEAH var orðaður við ensku lið-
in Arsenal, Leeds og franska liðið
Marseille, en hann hafði lýst áhuga
að fara til liðsins að ljúka knatt-
spymuferli sínum með því. Svo
verður ekki að sinni, þar sem hann
mun leika með Chelsea og fær ef-
laust fleiri tækifæri með liðinu en
AC Milan að undanförnu,
■ TOSH McKinaly, fyrrverandi-
landsliðsmaður Skota, hefur gengið
til liðs við Kilmamock frá sviss-
neska liðinu Grasshoppers. Hann
er 35 ára vamarmaður og gekk til
liðs við svissneska félagið fyrir
þremur mánuðum frá Celtic.
■ NORSKI landsliðsmaðurinn Stig
Inge Bjömeby hefur óskað eftir að
vera seldur frá Liverpool, en hann
hefur ekki fengið tækifæri með lið-
inu í vetur. Leicester og Nott. For-
est hafa sýnt áhuga á að fá hann til
sín.