Morgunblaðið - 15.01.2000, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
■ LAUGARDAGUR15. JANÚAR BLAÐ
Guðjón feng-
sæll hjá Stoke
Enska götublaðið The Mirror segir að engu
hefði mátt muna að Guðjón Þórðarson, knatt-
spymustjóri Stoke City, hefði orðið sjómaður í
stað þess að leggja knattspyrnu fyrir sig. I blað-
inu er vitnað í Guðjón, sem segir að faðir sinn
hafí verið skipstjóri á fískibát og að hann hefði
unnið með honum í tvö ár á unglingsárum og
Iitlu munað að hann fetaði í fótspor föður síns.
Segir í blaðinu að ef Guðjón hefði orðið sjómað-
ur hefði hann hugsanlega geta unnið á togara á
Norður-Atlantshafi í stað þess að stjóma knatt-
spymuliði á Englandi. Guðjón hafí aflaðl8 stiga
fyrir Stoke frá því að hann tók við liðinu fyrir
tveimur mánuðum, en 2:l-sigur gegn Luton um
síðustu helgi var fyrsti heimasigur liðsins undir
hans stjóm. Guðjón hélt uppteknum hætti í
gærkvöld er Stoke lagði Preston, 2:1.
Stoke
dregur
áefstu
liðin
GUÐJÓN Þórðarson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Islendinga í
knattspymu, og lærisveinar hans í
Stoke City bám sigurorð af Prest-
on North End í ensku 2. deildinni í
gærkvöldi, 2:1. Með sigrinum
komst Stoke í 4. sæti deildarinnar
og er sjö stigum á eftir Wigan,
sem er efst með 54 stig. Preston er
í öðm sæti með 52 stig og hafði
farið ósigrað í tuttugu leikjum í
röð fram að tapinu á Britannia-
vellinum í Stoke. James O’Connor
gerði sigurmark Stoke ljómm
minútum fyrir leikslok, þremur
minútum eftir að gestimir höfðu
jafnað metin úr vítaspymu.
Norski varnarmaðurinn Frode
Kippe, sem Guðjón fékk að láni
frá Liverpool, kom Stoke yfir eftir
aðeins þriggja múiútna leik með
góðu, viðstöðulausu skoti. Brynjar
Bjöm Gunnarsson var í bytjunar-
liði Stoke og Sigursteinn Gislason
kom inná sem varamaður í síðari
hálfleik. Einar Þór Daníelsson var
ekki í leikmannahópi Stoke í
gærkvöldi.
^ * i fj/
JSl I '
Sentinel
Bjarki Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður fyrir Preston, sem tapaði fyrir Stoke City, sem Guðjón Þórðarson stjórnar. Hér gætir
Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Stoke, Bjarka á Britannia-leikvanginum í gærkvöldi.
27 íþróttamenn og handboltalandsliðið eiga enn möguleika á að komast á ÓL í Sydney
Rúnar hefur náð lágmarki
ÍÞRÓTTA- og Ólympíusamband íslands tilkynnti á blaðamanna-
fundi í gær að 27 íþróttamenn ættu möguleika á þátttöku á Ól-
ympíuieikunum í Sydney sem hefjast eftir 244 daga, 15. sept-
ember. Auk þess á karlaiandsliðið í handknattleik enn von.
Fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson er sá eini sem hefur
þegar náð lágmörkum til þátttöku.
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri íþrótta- og Ól-
ympíusambandsins og aðalfarar-
stjóri á leikana í Sydney, segist
búast við að þátttakendur frá Is-
landi verði á bilinu tíu til fimmtán
talsins. En bætti við að ef hand-
boltalandsliðið kæmist inn myndi
það fjölga þátttakendum um helm-
ing. „Ég vil ekki útiloka
handboltalandsliðið strax. Það á
enn von og við höldum í hana fram
yfir Evrópumótið í Króatíu."
Þeir sem eiga möguleika á þátt-
töku eru þessir:
Badminton (8):
Brynja Pétursdóttir
Sveinn Logi Sölvason
Tómas Viborg
Fimleikar (1):
Rúnar Alexandersson
Siglingar (1):
Hafsteinn Ægir Geirsson
Fijálsíþróttir (8):
Jón Arnar Magnússon
Vala Flosadóttir
Guðrún Arnardóttir
Þórey Edda Elísdóttir
Einar Karl Hjartarson
Martha Emstdóttir
Magnús Aron Hallgrímsson
Vigdís Guðjónsdóttir
Júdó (4):
Vernharð Þorleifsson
Þorvaldur Blöndal
Bjarni Skúlason
Gísli Jón Magnússon
Skotfími (1):
Alfreð Alferðsson
Sund (9):
Eydís Konráðsdóttir
Lára Hrund Bjargardóttir
Örn Amarson
Ómar Snævar Friðriksson
Hjalti Guðmundsson
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
Sævar Sigurjónsson
Ríkharður Ríkharðsson
Jakob Jóhann Sveinsson
Handknattleikur:
16 leikmenn.
Skotsamband íslands og Sigl-
ingasambandið hafa óskað eftir
því að senda einn keppanda hvort
samband á svokölluðu „wild card“,
eða án þess að ná lágmarki. Þau
hafa þegar valið fulltrúa sinn, eins
og fram kemur hér að ofan, en
ekki hefur fengist staðfesting á því
hvort þeir fái keppnisrétt á leikun-
um.
Á blaðamannafundinum hjá ól-
ympíunefndinni var einnig til-
kynnt að búið væri að ráða sex
sérfræðinga til aðstoðar ólympíu-
liði íslands. Þeir eru Ágúst Kára-
son, bæklunarlæknir, sálfræðing-
arnir Eiríkur Örn Arnarson og
Jóhann Ingi Gunnarsson, Fríða
Rún Þórðardóttir, næringarfræð-
ingur, Gauti Grétarsson, sjúkra-
þjálfari, og Guðbrandur Einars-
son, nuddari.
Á fundinum var jafnframt skrif-
að undir samstarfsamning við
fimm fyrirtæki sem er eins konar
búnaðarsamningur (suppliers).
Fyrirtækin munu styðja ólympíu-
hópinn við undirbúning með vör-
um sínum. Verðgildi samnings er
um þrjár milljónir. Fyrirtækin
eru: Stoð-Rehband, J.S. Helga-
son, TVG-Zimsen-United Parel
Service, Flugfélag Islands og
Vífilfell.
HEIÐAR HELGUSON í BYRJUNARLIÐIWATFORD GEGN LIVERPOOL / B4