Morgunblaðið - 19.01.2000, Side 1

Morgunblaðið - 19.01.2000, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 2000 ■ MIÐVIKUDAGUR19. JANÚAR BLAD 650 milljónir fýrir sigur á EM ÞAÐ verður ekki einungis leikið upp á heiður- inn og keppt um veglegan verðlaunagrip í Evrópukeppninni í knattspyrnu sem fram fer í Hoilandi og Belgíu í sumar. Knattspyrnusam- band Evrópu, UEFA, hefur yfír ríflegum sjóði, 5,4 milljörðum króna, að ráða, sem greitt verð- ur úr til þátttökuþjóðanna sextán eftir árangri. Það landslið sem vinnur keppnina fær til að mynda 650 milljónir króna í sinn hlut og sú þjóð sem hafnar í öðru sæti um 590 milljónir. Fyrir það eitt að vera með eru hverri þátt- tökuþjóð tryggðar 215 milljónir króna. Þá upp- hæð fær hvert hinna íjögurra landsliða sem reka lestina í riðlunum fjórum. Þriðja sæti í riðli tryggir rúmlega 240 milljónir króna. Helt- ist landslið úr lestinni í 8 liða úrslitum fer það með rúmlega 350 milljónir heim í farteskinu og sæti í undanúrslitum gefur 460 milljónir króna. Þrír íslending- armeð Xanthi? GRÍSKA knattspyrnufélag- ið Xanthi hefur sýnt mikinn áhuga á að fá til sín þijá ís- lenska leikmenn til að styrkja leikmannahóp sinn fyrir seinni hluta 1. deildar- keppninnar. Þremenning- arnir sem em inni í mynd- inni eru Bjarni Þorsteinsson og Sigþór Júlíusson úr KR og Kristinn Lárusson úr Val og það skýrist á næstu dög- um hvort af því verður að þeir fari til Grikklands. Þeir yrðu þá leigðir til gríska fé- lagsins, sem ætti síðan kost á að kaupa þá i lok túnabils- ins. Xanthi, sem er frá samnefndri borg í Norð- austur-Grikklandi, er í 10. sæti í grísku deildinni eftir að hafa hafnað í þvi sjöunda á síðasta tímabili. Stefnan var sett á að vera meðal sex efstu og komast þar með í Evrópukeppni, en frammi- staðan til þessa hefúr valdið vonbrigðum. Leikmanna- hópurinn er fullþunnskipað- ur að mati þjálfarans og hann vill breikka hann með því að fá til sín islenska leik- menn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnar Oddsson í hinni glæsilegu nýju Reykjaneshöll í Reykjanesbæ, þegar hún var opnuð til æfinga í gærkvöldi KNATTSPYRNA Gunnar Oddsson og félagar hjá Keflavík í nýrri glæsilegri Reykjaneshöll Mikil lyftistöng fyrir knattspymuna „ÞETTA er stórkostleg tiifinning - miklu betri en ég þorði að vona. Ég hef ekki verið mikið á ferðinni hér, var ákveðinn að njóta þeirra stundar þegar völlurinn væri tilbúinn. Þessi aðstaða er í einu orði sagt stórkostleg,“ sagði Gunnar Oddsson, leikmaður- inn kunni hjá Keflavíkurliðinu í knattspyrnu, eftir að hann og samherjar hans mættu á fyrstu æfinguna f nýrri og glæsilegri Reykjaneshöll í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Gunnar sagði að það hefði verið stórkostleg sjón að sjá stóran grænan gervigrasflötinn blasa við, er inn í salinn var komið. „Þegar ég kom hingað inn gerði ég mér grein fyrir hvað þetta glæsilega hús er mikil lyftistöng fyrir knattspyrn- una á Suðumesjum og öllu landinu. Við knattspymumenn á Islandi höfum beðið eftir þessari stund lengi og við eigum eftir að koma til með að njóta stundanna hér.“ Komið þið, leikmenn Keflavíkur- liðsins, út sem sterkustu leikmenn landsins í sumar, eftir dvölina sem eftir er vetrar í húsinu? „Við eigum eftir að bæta okkur mikið sem knattspymumenn - það er engin spurning. Nú þurfum við ekki lengur að byggja okkur upp eingöngu með þrekæfingum, lyft- ingum og hlaupum í roki og rign- ingu. Við eigum eftir að kunna vel við okkur hér - léttklæddir í fimm- tán stiga hita,“ sagði Gunnar. Það er hugur í leikmönnum Keflavíkurliðsins, en þeii- fá liðs- styrk á næstu dögum, er þrír leik- menn frá Brasilíu mæta til landsins og taka eflaust sambatakta á græn- um vellinum í Reykjaneshöllinni. Eins og hefur komið fram geta ellefu leikmenn leikið í liði á nýja vellinum. Fyrsti opinberi leikurinn í höllinni verður leikur Keflavíkur og ÍR í deildarbikarkeppni KSÍ 3. mars, en þess má geta að 52 leikir af 90 leikjum í riðlakeppni karla og 15 af 20 í keppni kvenna fara fram í höllinni. Vala stökk 4,10 metra VALA Flosadóttir, stangar- stökkvari úr ÍR, sigraði í stangarstökki á móti í Malmö í Svíþjóð á sunnu- dag. Hún stökk 4,10 metra sem verður að teljast góð byrjun á keppnistímabilinu. Islandsmet Völu er 4,45 metrar. Þetta var fyrsta mótið sem Vala tekur þátt f á þessu ári en framundan er þátttaka í nokkrum mót- um. Hápunktur innan- hússkeppnistimabilsins verður án efa þátttaka í Evrópuineistaramótinu í Ghent í Belgíu siðustu helgi febrúarmánaðar. Sigur Völu í Malmö var mjög ömggur, önnur varð Lina Persson, sem stökk 3,50 metra. ÞÝÐIR EKKERT AÐ SENDA NÝLIÐA Á STÓRMÓT/C2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.