Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
NÚ ER komið aö því
að menningarborgin
opni ailarsfnargáttir
fyrirborgarbúum. Á
laugardag springur dagskráin út svo um munar meö fjölda viðburða um alla borg
og er þessi sérútgáfa Morgunblaðsins liður í samstarfi sem tekist hefur milli Morg-
unblaðsins og menningarborgarinnar um kynningu dagskrár menningarársins.
Morgunblaðið mun gefa út slík sérblöð um dagskrána á eins til tveggja mánaða
fresti út árið auk þess sem viðburðum verða gerð skil frá degi til dags eftir því sem
tök eru á. Að sögn Þórunnar Sigurðardóttur, stjórnanda menningarborgarinnar, er
það lykilatriði fyrir verkefni sem þetta að gott samstarf sé við fjölmiðla. „Þáttur
Morgunblaðsins við kynningu á dagskrá menningarborgarinnar og hinum ýmsu
viðburðum ogverk-
efnum ársins hefur
verið mjög myndar-
legur, en hjá okkur
sem ogöðrum menningarborgum eru ákveðnirfjölmiðlar samstarfsaðilarog koma
þannig sérstaklega að verkefninu. Við óskuðum eftir slíku samstarfi við Morgun-
blaðiö þar sem við töldum að það væri sá fjölmiðill íslenskur sem hefði mesta
burði til að taka að sér þetta stóra verkefni. Það er auðvitað ómetanlegt að vel sé
staðið að kynningu á viðburðum ársins í fjölmiölum, þannig að fólk geti gert sér
glögga grein fyrir hvað í boði er. Því ber sérstaklega að fagna því góða samstarfi
sem tekist hefur um kynningu dagskrárinnar milli menningarborgarinnar og Morg-
unblaðsins," segirÞórunn.
Samstarf Morgunblaðs og menningarborgar
„ Fjöl-
breyttir
viðburðir
um alla
borg“
Þórunn Sigurðardóttir stjórnandi
menningarborgarinnar í samtali viö
Hávar Sigurjónsson.
ÞÓTT LAUGARDAGURINN 29. janúar sé hinn form-
legi opnunardagur menningarársins, má segja að opnað
hafi verið í hálfa gátt um áramótin, þegar tekið var form-
lega við titlinum að viðstöddum kómum Raddir Evrópu
sem er skipaður 90 ungmennum frá öllum borgunum 9
sem sameiginlega hafa hlotið titilinn „Menningarborg
Evrópu árið 2000“. Borgimar em 9 vegna hinna miklu
tímamóta og ber að hafa það í huga að þessar ólíku borgir
endurspegla fjölbreytileika evrópskrar menningar á ár-
þúsundamótum.
Þómnn Sigurðardóttir stjórnandi menningarborgar-
innar segir ákveðna hugsun liggja að baki því að hefja
menningarárið í lok janúar.
„Það var ákveðið að fara ekki strax af stað með dag-
skrána eftir áramótin, heldur gefa borgarbúum tækifæri
til að hvíla sig eftir jólin, en opna síðan með trakki 29.
janúar með fjöldamörgum viðburðum um alla borg. Und-
anfarið hafa borgirnar verið að opna hver á fætur ann-
arri, og segja má að Reykjavík lendi svona í miðjunni,
Prag, Kraká, Bologna og Helsinki em farnar af stað,
Santiago er helgina á eftir okkur, Bergen um miðjan
febrúar, þá Avignon og loks Brassel í lok febrúar."
Endurspeglar lýðræðishefðina
Mikil hátíðahöld vora í Prag og Kraká, þar sem Þór-
unn var meðal viðstaddra gesta. „Þessar borgir era forn-
frægar menningarborgir sem fljótt á litið eiga fátt sam-
eiginlegt með Reykjavík. Öpnað var í gömlum
glæsihöllum með mikilli viðhöfn og í báðum tilvikum voru
beinar sjónvarpsútsendingar frá opnunarathöfninni.
Hinar norrænu systur þeirra og þá einkum Helsinki og
Reykjavík nálgast opnunina nokkuð á annan hátt í sam-
ræmi við sterka lýðræðishefð þessara landa. Boðið er
upp á fjölbreytta viðburði út um borg og bý, þar sem ekki
er eingöngu byggt á listviðburðum, heldur ýmsum
óvenjulegum uppátækjum í fyrirtækjum, úti á götu, í
strætisvögnum og jafnvel sundlaugum. Þarna nálgumst
við meira þá leið sem Kaupmannahöfn valdi, þegar hún
Morgunblaðiö/Ámi Sœberg
Þórunn Sigurdardóttir
var fyrst norrænna borga valin menningarborg Evrópu
árið 1996 og braut blað í þeirri hefð sem hafði mótast frá
því að Aþena var fyrst allra borga menningarborg árið
1985. Borgirnar 9 hafa hver valið sína yfirskrift og spila
úr henni með ýmsum hætti.“
Stýrum stærsta
verkefninu
Af dagskránni má sjá að lögð er áhersla á samspil
menningar og náttúra og þannig fæst bein skírskotun við
þá ímynd sem lögð er áhersla á við almenna kynningu á
Islandi og Reykjavík erlendis, að sögn Þórannar.
„Reykjavík nýtur sérstöðu sinnar við hlið systurborg-
anna 8 sem höfuðborg í fámennu eylandi þar sem menn-
ingarlíf er kröftugt og náttúruöflin skipa mikilvægan
sess í atvinnulífi landsmanna. í samvinnu borganna
leggjum við áherslu á að kynna Island og íslenskt hugvit
og þekkingu sem allra best og við tökum þátt í öllum
stærstu samstarfsverkefnunum og stýram því allra
stærsta, kómum sem getið var um hér að framan, en það
verkefni nýtur sérstakrar velvildar og áhuga Evrópu-
sambandsins, þótt Island sé ekki Evrópusambandsland.
Enginn vafi er á því að það var mikil gæfa fyrir Reykja-
vík að vera í samfloti með þessum miklu menningarborg-
um því hætt er við því að erfitt hefði verið að fjármagna
verkefnið sem skyldi, værum við ein á báti.“
Skýrar vinnureglur
Þórann segir að strax í upphafi hafi verið settar mjög
skýrar vinnureglur um hvernig skyldi staðið að skipulagi
menningarársins. „Verklag okkar hefur vakið athygli
þótt ég segi sjálf frá og það skiptir höfuðmáli að þótt hér
sé fámennt þá er starfsfólkið afar öflugt. Við vinnum al-
gerlega eftir þeim áætlunum sem gerðar vora i upphafi.
Við semjum um alla hluti fyrirfram og höfum einsett okk-
ur að skila verkefninu á sléttu í lokin, en ég veit reyndar
ekki til þess að nokkurri menningarborg hafi tekist það
til þessa,“ segir Þórann og horfir glaðbeitt fram til þeirra
menningar- og listviðburða sem reka munu hver annan
viðstöðulaust árið á enda.
Nykur við
Hallgrímstorg
Vatnspósturinn Nykurer
útilistaverk eftirÞórð
Hall sem vígt veröur á
opnunardaginn á Hall-
grímstorgi kl. 13.00.
„NYKUR er upphaflega dulnefni
með tiMsun í þjóðsögulega vatna-
vætti sem ég gaf verkefninu þegar
ég lagði það inn í samkeppni Vatns-
veitunnar. Nafnið hefur svo fest á
verkinu,“ segir Þórður Hall. „Sam-
keppnin gerði ráð fyrir að útbúinn
yrði vatnspóstur sem hentaði jafnt
fullorðnum sem bömum og fólki í
hjólastólum. Allir hafa semsagt
greiðan aðgang að drykkjarvatni án
tillits til stærðar. Verkið er höggvið
út í granít og mér til aðstoðar var
ungur
steinhöggvari, Þór Sigmundsson.
Það þarf sérþekkingu til að höggva
grjót og er alls ekki á allra færi þótt
þetta verk sé mjög einfalt í forminu.
Af minni hálfu kom til greina að hafa
verkið úr steinsteypu eða eðalgrýti
og endanleg ákvörðun um efnið var
tekin í samráði við landslagsarki-
tektinn Ragnhildi Skarphéðinsdótt-
ur og var álitið að eðalgrýti myndi
falla best inn í umhverfið," segir
Þórður Hall myndlistarmaður.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
veitustofnana Reykjavíkur, afhjúpar
Nykur og herra Karl Sigurbjörnsson
biskup mun flytja blessunarorð.
Caput-hópurinn flytur nýtt tónverk
eftir Guðna Fi-anzson við vígslu
Nykurs.
„Ég er í miðjum klíðum að semja
verkið,“ sagði Guðni Franzson í byrj-
un vikunnar. „Hugmyndin sem ég
vinn út frá er að tónverkið sé hægt
að flytja við hvaða hitastig sem er.
Hljóðfæraskipan tekur mið af því að
það verði flutt úti. Það er samið fyrir
hljóðfæri sem þola frost. Frost- og
rakaþolið verk til heiðurs vatnspóst-
inum Nykri,“ sagði Guðni Franzson.
Morgunblaðið/Jim Smart.
rntmsMm
Þórður Hall við vatnspóstinn Nykur.
Taktu þátt frá byrjun
REYKJAVÍK verður að einu stóru leiksviði þegar
menningarborgin opnar upp á gátt laugardaginn
29. janúar. Rúmlega 80 staöir um alla borg
verða opnir og aögangur ókeypis en hátt á ann-
að hundrað viðburðir hafa veriö skipulagðir í til-
efni af upphafi menningarborgarársins. Víða
verður heitt á könnunni en alls staðarer hægt
að lofa hlýjum móttökum ogöll fjölskyldan getur
fræðst, skemmt sérogtekiö þáttí þeirri fjöl-
breyttu dagskrá sem í boði er. Hér á eftir verður
getiö um brot af þeim viðburðum sem hægt er
að velja úr- en heildarlisti viöburða birtist á síð-
unni á móti.
Dagurinn hefst með morgunverði f Lands-
bókasafni íslands - Háskólabókasafni þar sem
opnaður verður kassi með gögnum úrfórum Er-
lendaríUnuhúsi.
Síöan rekur hver viðburðurinn annan fram á
kvöld erblásið verðurtil þríþættrartónlistar-
hátíðarTónskáldafélags íslands erstanda mun
allt árið. Menningarborgurum verður boðið að
feröast milli staða, gæða sér á gómsætum
listakrásum ogtaka þátt í skemmtilegum
stjörnuleik sem jafnvel geturfært óvæntan
glaöning. Kort og upplýsingar um alla viðburði
dagsins fylgir með Morgunblaðinu í dag. Erlend-
ir listamenn frá hinum menningarborgunum
munu komafram oggefa deginum alþjóðlegtyf-
irbragð.
Kringlan, sem er upplýsinga- og við-
burðamiöstöó Menningarborgarinnar, verður
einnig iðandi af lífi á opnunardaginn. Meðal at-
riða í dagskrá sem stendur á milli 13.00-17.00
má nefna lifanditónlistarflutningafýmsu tagi
og kynningu á risaskjá á nýjum, íslenskum
heimildamyndum f tengslum við hátíð í Há-
skólabíói sem hefst síðar sama dag með mynd
um frumkvööulinn og Ijósmyndarann Sigríði
Zoéga. í Kringlunni verðurjafnframt sett upp
tfskusýning 21. aldarinnar þegar Eskimo
Models kynna Futurice-verkefniö.
Ekki verður minna um að vera fyrir þá sem
leggja leið sína í miöbæ Reykjavíkur. Listasafn
Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum hefur opið hús,
Listahátíö í Reykjavík og ýmis félög listamanna
kynna starfsemi sína og verkefni menningarárs-
ins.
Dagskrá hefst í Ráðhúsinu klukkan 13.00
með fimleikasýningu og síðan taka við leiksýn-
ingar, sígaunasveitin Janosi Ensamble frá Ung-
verjalandi, fjöltefli, skákkennsla og margtfleira.
í lönó verður einnig brugöið á leik með þjóðlagið
um Höllu keriingu, leikbrúðursegja sögurfrá
menningarborgunum níu, semjafnframtverða
fluttar á sjúkrahúsum borgarinnarogfagotta-
sveitin Sabottröörit frá Finnlandi lætureinnigtil
sín taka með eftirminnilegum hætti.
Annars konartónlistarflutnings er hægt að
njóta f Hinu húsinu við Aðalstræti, en þar á bæ
stíga á stokk skífuþeytar og eðalsveitin Mínus
ogfleiri auk þess sem fjölbreytt verkefni ársins
verða kynnt. Þeir sem dvelja fram á kvöld í mið-
bænum geta einnig brugöiö sér á litskyggnusýn-
ingu nemenda á skólalóð Austurbæjarskóla við
Vitastíg en margir grunnskólar borgarinnar taka
þáttíopnuninni með metnaðarfullum hætti.
í Árbæjarsafni verður hellt upp á könnuna á
gamla mátann, bakaöargrautarlummur, gest-
um leiðbeint um svæðið og þeir kynntir fyrir
tímamótasýningu um sögu Reykjavíkur, sem
opnuð verður í vor. t Breiðholtinu heldur Gerðu-
berg að venju úti skemmtilegri dagskrá sem
helguö er að hluta verkefnum ársins, en dagur-
inn verður einnig notaðurtil að hvetja íslensk
tónskáld til dáða með nýstárlegum hætti.
Þar eð yfirskrift menningarársins er „menn-
ing og náttúra" er á opnunardeginum sitthvaö
að finna fyrir þá sem hafa áhuga á útivist og um-
hverfismálum. Landsvirkjun, sem jafnframter
einn af máttarstólpum Menningarborgarinnar,
býðurí opið hús í stjórnstöðinni við Bústaðaveg
sem að öllu jöfnu er ekki opin almenningi.
Allar nánari upplýsingar um dagskrána er aö
finna á menningarborgarvefnum www.reykja-
vlk2000.ls sem einnig er hægt að komast inn á
afmbl.is.