Morgunblaðið - 29.01.2000, Blaðsíða 1
I
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
B
2000
LAUGARDAGUR 29. JANUAR
BLAD
Landsliðið flutt
út fýrir Spánveija
ÍSLENSKA landsliðið býr á Hotel Intercont-
inental í Zagreb eins og öll hin liðin í
Evrópukeppninni. Þegar liðið kom til Zagreb
frá Rijeka sl. mánudag var það allt sett á 14.
hæð hótelsins, sem Spánveijar höfðu verið á
áður en lið þeirra fór til Rijeka að leika tvo
leiki. f gær kom spænska liðið aftur til Zagr-
eb og þá þurftu íslendingarnir að rýma her-
bergin og færa sig um set niður á níundu
hæð.
Ástæðan er sú að gríðarleg öryggisgæsla
er í kringum spænska liðið vegna þess að
spænski prinsinn, Inaki Urdangarin, er í lið-
inu. Hann er með fjölmarga lífverði og voru
þeir búnir að taka út 14. hæðina á hótelinu
fyrir mótið. Kom því ekki annað til greina en
að liðið fengi að vera þar fram á mánudag.
Leikið
,gegn
Úkraínu
í Rijeka
Islenska landsliðið í handknattleik
mætir Úkraínu í keppni um 11.
sætið á EM í Rijeka í dag kl. 14.00.
Liðið fór í morgun frá Zagreb til Rij-
eka og ætlar að keyra aftur til Zagr-
eb strax eftir leikinn. Fjögurra
klukkutíma akstur er á milli Rijeka
og Zagreb. Úkraína er að taka þátt í
Evrópukeppninni í fyrsta sinn eins
og íslendingar. Liðið hlaut eitt stig í
A-riðlinum, gerði jafntefli við Þjóð-
verja, 24:24, í fyrstu umferðinni. At-
hyglisverðasti leikmaður liðsins er
skyttan Oleg Velykyy, sem er
markahæsti leikmaður mótsins með
35 mörk ásamt Portúgalanum Carl-
os Resende. Þjálfari Ukraínu er Vla-
dyslav Tsyganok, sem tók við liðinu á
síðasta ári.
Hann var áður þjálfari unglinga-
landsliðs Úkraínu og stýrði því í HM
unglinga 1997 þar sem lið hans end-
aði í öðru sæti. Eftir það gerðist
hann aðstoðarlandsliðsþjálfari og
gegndi þeirri stöðu þangað til hann
tók við þjálfarastöðunni í byrjun síð-
asta árs.
íslendingar
tóku ekki
þátt í um-
ræðum EHF
SVÍINN Staffan Holmqvist, for-
seti Handknattleikssambands
Evrópu, EHF, boðaði til fundar í
Zagreb með leikmönnum sl. mið-
vikudag þar sem ræða átti m.a.
framtfð handboitans. Hann óskaði
eftir því að tveir leikmenn frá
hverri þátttökuþjóð í Evrópumót-
inu tækju þátt í fundinum. Enginn
íslenskur leikmaður mætti á fund-
inn. í gær var þjálfararáðstefna á
vegum EHF og var Þorbjöm Jens-
son, landsliðsþjálfari fslands, boð-
aður á fundinn ásamt öðmm þjálf-
umm liðanna á EM. Þorbjöm
mætti hins vegar ekki, sagðist
ekki hafa gefið sér tíma í það
vegna þess að hann var með æf-
ingu og fund með íslenska liðinu f
gær, á sama tíma og ráðstefnan
var.
Morgunblaðið/Kristinn
í góðu yfir
Hafðu góðar gætur á farseðlinum ... getur Halldór B. Jónsson,
varaformaður KSf, verið að segja við landsliðsþjálfarann Atla
Eðvaldsson við komuna til Noregs i gær. Birkir Kristinsson
markvörður fylgist með.
GOLF
læti í Ósló
Stefnt á tvöfald
an sigur á NM
Islenska landsliðið í knattspymu
kom til Óslóar um hádegi í gær og
gisti þar í nótt, en í morgun var hald-
ið til La Manga á
Skúli Unnar sPáni- Landsliðs-
Sveinsson mennirnir voru að
skrifar frá tínast inn á hótel við
Noregi Gardemoen-flugvöll í
Ósló í allan gærdag og allt fram á
kvöld, en í morgun komu þeir síð-
ustu; Rúnar Kristinsson og Indriði
Sigurðsson, en þeir leika báðir með
Lilleström og búa stutt frá flugvellin-
um.
Það voru reyndar ekki margir leik-
menn sem komu frá íslandi, aðeins
sex. Aðrir komu frá Englandi og víða
að úr Noregi í gær en tveir leikmenn
koma beint til Spánar; Þórður Guð-
jónsson og Arnar Viðarsson auk þess
sem Ti’yggvi Guðmundsson er í æf-
ingabúðum á Spáni með liði sínu,
Tromsö.
Leikmenn tóku lífinu með ró í gær,
sumir brugðu sér í miðbæ Óslóar en
flestir héldu kyrru fyrir á hótelinu og
létu fara vel um sig þar.
Fyrstu leikir mótsins verða á
mánudaginn. Þá mæta íslendingar
Norðmönnum, Færeyingar mæta
Finnum og Svíar og Danir eigast við.
Rúnarfyrirliði
Rúnar Kristinsson verður fyrirliði
íslenska liðsins í landsleikjunum á
Spáni. Atli Eðvaldsson landsliðsþjálf-
ari benti á að þeir Sigurður Jónsson
og Eyjólfur Sverrisson hefðu verið
fyrirliðar auk Rúnars og þar sem
Rúnar væri sá eini þeirra á svæðinu
yrði hann fyrirliði, en hann hefur tví-
vegis verið fyrirliði landsliðsins.
Fyrsta verkefni Staffans Johansson,
nýráðins landsliðsþjálfara í golfi,
verður Norðurlandamótið sem hald-
ið verður í Vestmannaeyjum 28.-29.
júlí. Johansson segir að hans helsta
skammtímamarkmið sem landsliðs-
þjálfara sé að vinna tvöfalt á NM-
mótinu. „Að keppa á mótinu er mikil
áskorun fyrir íslenska kylfinga en
við stefnum á að vinna tvöfalt.“
Karlaliðið lenti í fjórða sæti á NM í
Danmörku fyrir tveimur árum en
kvennaliðið lenti í þriðja sæti. Kar-
laliðið hefur einu sinni unnið NM-
mótið, árið 1992.
Fleiri verkefni eru framundan í ár
hjá íslenskum kylfingum. Golfsam-
bandið hefur rétt til þess að senda
tvo keppendur á Evrópumót kvenna,
sem fram fer í Póllandi 2.-5. ágúst. A
síðasta ári kepptu Ragnhildur Sig-
urðardóttir, GR, og Ólöf María Jóns-
dóttir, GK, á EM kvenna. Báðar
komust áfram eftir fækkun kepp-
enda.
Evrópumót karla verður haldið í
Austurríki 9.-12. ágúst. Golfsam-
bandið hefur rétt til þess að senda
tvo keppendur á mótið en óvíst er-
hvort af því verður, því landsmótið
verður haldið á sama tíma.
Stærsta verkefni landsliðanna
verður heimsmeistarakeppnin.
Kvennakeppnin verður haldin í Ber-
lín 23.-26. ágúst og karlakeppnin
verður einnig í Berlín, 31. ágúst til 3.
september.
■ Afreksstefna.../B2
ÓLAFUR STEFÁNSSON MEÐ FLESTAR STOÐSENDINGAR í KRÓATÍU/B4