Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 2

Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR Þór Ak. - Hamar 102:97 ískindsmótið í körfuknattleik, úrvalsdeild karla (Epson-deildin), íþróttahöllin á Ak- ureyri 17. febrúar2000. Gangur leiksins: 8:2, 10:13, 20:20, 31:36, 41:40. 49:45, 63:50, 72:65, 82:71, 85:85, 86:86.86:90,90:92,95:92,102:97. Stíg Þórs: Maurice Spillers 32, Magnús Helgason 18, Hafsteinn Lúðvíksson 17, Sigurður Sigurðsson 9, Óðinn Ásgeirsson 9, Einar Öm Aðalsteinsson 9, Davíð Jens Guðlaugsson 4, Konráð Óskarsson 2, Einar Hólm Daviðsson 2. Fráköst: 30 í vöm - 6 í sókn. Stíg Hamars: Brandon Titus 37, Skarphéð- inn Ingason 15, Pétur Ingvarsson 14, Ómar Sigmarsson 12, Kristinn Loftur Karlsson 4, Hjalti Jón Pálsson 4, Kjartan Kárason 4, Óli Barðdal 4, Ólafur Guðmundsson 3. Fráköst: 19 í vöm - 6 í sókn. Villur: Þór 32 - Hamar 27. Dðmarar: Einar Einarsson og Rúnar B. Gíslason. Hafa vonandi átt betri daga. Áhorfendur: 250. 1. deild kvenna Grindavík - KR..................34:96 Sólveig Gunnlaugsdóttir 11, Þuríður Gísla- dóttir 10 - Gréta Grétarsdóttir 19, Hanna Kjartansdóttir 16, Linda Stefánsdóttir 13. 1. deild karla ÍS - Stafholtstungur............77:60 NBA-deildin Indiana Pacers - Toronto......109:101 Charlotte - LA Lakers...........85:92 New York Knicks - Minnesota.....93:89 Orlando Magic - LA Clippers....129:96 Portland - Golden State.........99:95 Vancouver - Washington..........92:87 KNATTSPYRNA Ítalía Bikarkeppnin, undanúrslit, sfðari leikur: Inter Milano - Cagliari........1:2 Ivan Zamorano 11. - Giovanni Sulcis 21., Bemardo Corradi 27. ■ Inter áfram, 4:3 samanlagt, og mætir Lazio í úrslitaleik. Spánn Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, seinni leikur: Merida - Real Madrid...........2:1 Ramon de Quintana 42., Juan Manuel Prieto 119. - Rolando Zarate 104. ■ Jafnt, 2:2, samanlagt. Real áfram á marki á útivelli. Holland Bikarkeppnin, 8-liða úrsHt: Willem II - AZ Alkmaar.......(frl.) 1:2 Grikkland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: OFI Iraklion - Kalamata..........1:0 Ameríkubikarinn A-riðUl: Hondúras - Kólumbía..............2:0 Lokastaðan: Hondúras..........2 2 0 0 4:0 6 Kólumbía..........2 1 0 1 1:2 3 Jamaíka...........2 0 0 2 0:3 0 ■ Hondúras og Kólumbía í 8-liða úrslit. B-riðiU: Bandaríkin - Perú.............1:0 Lokastaðan: Bandaríkin........2 2 0 0 4:0 6 Perú..............2 0 1 1 1:2 1 Haiti.............2 0 1 1 1:4 1 ■ Bandaríkin og Perú í 8-Uða úrslit. HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Flensburg - Gummersbach.......25:22 ■ Dregið var til undanúrslitanna í gærk- völd. Kiel mætir Frankfurt og Flensburg mætir Minden. SKÍDI Heimsbikarinn Risasvig kvenna í Áre í Svfþjöð: 1. SonjaNef, Sviss.............2:27,79 2. Anita Wachter, Austurríki...2:28,80 3. Brigitte Obermoser, Austurr.2:29,87 4. Birgit Heeb, Liechtenst.....2:30.09 5. Anna Ottosson, Svíþjóð......2:30.69 6. Renate Götschl, Austurríki..2:30.70 7. Anja Párson, Svíþjóð........2:30.73 8. Silke Bachmann, Italíu......2:30.98 9. Maria Contreras, Spáni......2:31.21 í KVÖLD Úrvalsdeild karla: ísafjörður: KFÍ-ÍA.......... 1. deild kvenna: Keflavík: Keflavfk-KFÍ...... Sauðárkrókur: TindastóU - ÍS. Óbreytt afstaða EGGERT Maguiísson, for- maður Knattspyrnusam- bands íslands, fundaði í gær með fulltrúum landsliðs- kvenna. Eins og áður hefur komið fram hdtaði liluti þeirra að gefa ekki kost á sér á meðan Þórður Lárus- son væri landsliðsþjálfari. „Ég áréttaði bara okkar afstöðu sem er óbreytt. Þórður Lárusson er þjálfari kvennalandsliðsins og verð- ur það út þetta ár,“ sagði Eggert við Morgunblaðið í gærkvöld. Rafmagnað í Þórssigri ÓRSARAR unnu mikilvægan sigur á Hamri, 102:97, í fram- lengdum leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á Ak- ureyri í gærkvöld. Sæmundsson ^ hálfleikur skrifar var kannski ekki mikið fyrir augað en baráttan var mikil og í hléi var stað- an 41:40 Þór í vil. Eftir leikhlé sáust betri tilþrif og framan af hálfleiknum voru það heimamenn sem sýndu sparihliðarnar og náðu þægilegri for- ystu. Þór var yfir, 82:71, þegar innan við tvær mínútur lifðu af leiknum. Þá hófst ótrúlegur lokakafli og þegar 11 sekúndur voru eftir komst Hamar yfir, 85:86. Maurice Spillers brunaði upp völlinn og krækti í tvö vítaskot þegar 4 sekúndur voru eftir. Hann náði að hitta úr seinna skotinu ogjafna leikinn. Hamar byrjaði framlenginguna betur en Þórsarar komust yfir þegar tvær mínútur voru eftir. Þeir léku af öryggi eftir það og tryggðu sér sigur. í liði heimamanna átti Maurice Spillers stórleik. Hann tók rispur í stigaskorun þegar á þurfti að halda og var duglegur að vinna fyrir félaga sína og mata þá. Hafsteinn Lúðvíks- son var góður og Magnús Helgason var í stuði í seinni hálfleik. Brandon Titus var langatkvæðamestur gest- anna og Skarphéðinn Ingason og Pétur Ingvarsson áttu ágætan síðari hálfleik. Vert er að geta þess að í lok- in voru villuvandræði nokkuð farin að herja á liðin. Fimm leikmenn úr hvoru liði þurftu að fara út af með fimm villur og því fengu allir vara- menn liðanna að spreyta sig! Sigþór til Nijmegen SIGÞÓR Júliusson, knattspyrnumaður úr KR, fer á sunnu- dag til Hollands og verður til reynslu hjá úrvalsdeildarliði NEC Nijmegen í viku. „Liðinu hefur ekki gengið nógu vel að undanfömu, er neðarlega í deildinni og er að leita eftir liðstyrk. Mér skilst að þeir vilji fyrst og fremst kaupa leikmann, ekki leigja. Það væri mjög góður kostur að spila í Hollandi, ég held að knattspyrnan þar henti mér og nú verð ég bara að standa mig á þessum reynslutíma," sagði Sigþór við Morgunblaðið í gær. Sigþór er 24 ára og lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Nor- egi á La Manga um síðustu mánaðamót. BIKARINN < FITART í FTFTFfTT IT > Bikarúrslitaleikur karla í Laugardalshöll á laugardaginn kl. 17 Framarar og aðrir stuðningsmenn! n/lætum allir og styðjum við bakið á strákunum okkar Frænkurnar Ágústa Bjömsdóttir, fyrirliði Gróttu/KR, og Brynja Steinsen, fyr á morgun. Grótta/KR leikur í fyrsta sinn til úrslita, en Valur hefur tvis Frænkur mætast GRÓTTA/KR og Valur eigast við í úr- slitaleik kvenna í handknattleik í Laugardalshöllinni á morgun. Grótta/KR hefur aldrei áður leikið til úrslita í bikarkeppninni, enda er lið- ið aðeins þriggja ára gamalt. Valur hefur ágæta reynslu af bikarúrsiit- um og hefur tvisvar orðið bikar- meistari. Fyrirliðar Vals og Gróttu/KR, þær Brypja Steinsen og Ágústa Björns- dóttir, hafa spilað saman með Gróttu/KR °® Þekkiast Því ve* >nnan Efíir vallar sem utan og eru Vaj q auk þess frænkur. Þær Jónatansson segja að það verði engin frændsemi sýnd í bikarúr- slitaleiknum á morgun. „Það verður ekkert gefið eftir. Ég á reyndar þrjár frænkur í Valsliðinu en ég gleymi því rétt á meðan á úrslitaleiknum stendur," sagði Ágústa Björnsdóttir, fyrirliði Gróttu/KR. Brjáluð barátta Brynja Steinsen, fyrirliði Vals, segir að leikurinn verði brjáluð barátta. „Þetta verður leikur upp á líf og dauða. Ég held að það lið sem byrjar betur sigri,“ segir Brynja, sem er að leika til úrslita í bikar- keppninni í fyrsta sinn. „Ég ætla að reyna að ná jafn mörgum titlum og Arna systir, og eigum við ekki að segja að þetta verði fyrsti titillinn af mörgum hjá mér.“ - Hverning hefur ykkur Valsstúlkum gengið á móti Gróttu/KR í vetur? „Það hefur ekkert gengið sérstaklega vel. Við töpuðum fyrri leiknum í deildinni með tveimur eða þremur mörkum og síðari leikurinn var herfilegur - töpuðum með sjö mörkum. Við höfum því harma að hefna.“ - Nú þekkir þú Gróttu/KR frá því þú spilaðir með því, hver er helsti styrkleiki liðsins? „Það eru fáir leikmenn í þessu liði Gróttu-stúlkna sem ég spilaði með á sínum tíma. Liðið er nú komið með reynslumikla leikmenn eins og Fanneyju Rúnarsdóttur og Öllu Gokoryan. Sterkasta hlið liðsins er líklega markvarslan og hraðaupphlaupin.“ - Er Valsliðið yngra en Gróttu/KR-Iiðiff! „Já, ég held það. Við erum með stúlkur frá 18 til 25 ára, ætli meðalaldurinn hjá okkur sé ekki í kringum 21 ár en kannski einu til tveimur árum meira hjá þeim. Það var kominn tími til að yngja upp og Valslið- ið á framtíðina fyrir sér.“ Tímamótaleikur Ágústa Björnsdóttir er að spila bikarúr- slitaleik í fyrsta sinn eins og flestar í liði hennar. „Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að spila þennan leik. Markmiðið hjá okkur er að gera þennan dag eftirminnilegan og skemmtilegan og auðvitað að sigra. Ef okk- ur tekst að vinna yrði það fyrsti stóri titill félagsins og það yrðu mikil tímamót. Við finnum að stjórnin stendur vel við bakið á okkur. Það er góð stemmning í kringum þennan leik í Vesturbænum og úti á Sel- tjamamesi," sagði Ágústa. - Hver er helsti styrkleiki Vals? „Þær em með sterka vöm og spila agað- an sóknarleik. Á góðum degi er mjög fín stemmning í Valsliðinu og það getur hjálp- að í svona leik.“ Gróttu/KR-stúlkur em í toppbaráttunni í deildinni - í þriðja sæti með 25 stig, en Val- ur er þremur stigum á eftir - í fimmta sæti. „Við höum verið á uppleið núna á síðustu vikum, eftir misjafnt gengi þar á undan. Jóna Björg Pálmadóttir er nýkomin inn í liðið og fellur alltaf betur og betur að leik okkar. Það hefur tekið smá tíma að stilla saman strengina, en ég held að þetta sé allt að koma.“ Hún sagði að Gróttu-stúlkur færa í úr- slitaleikinn til að sigra. „Við ætlum allar að gera okkar allra besta og það er ekki hægt að biðja um meira. Sigur er það eina sem kemur til greina," sagði íyrirliði Gróttu/ KR. ÍBV mætir Kosice á Kýpur K ARL ALIÐ ÍB V í knattspyrnu heldur í æfinga- og keppnisferð til Kýpur á þriðjudaginn í næstu viku. 25 ieikmenn fara utan með liðinu og verða spil- aðir tveir leikir. Fyrst við rússneska 1. deildarliðið Melallaurg Lipitsk og síðan FC Koice frá Skóvakíu. Þetta verður í fjórða sinn á fimm árum sem ÍBV fer til Kýpur í æfíngaferð. Kvennalið IBV heldur sama dag til Englands í æfingaferð. Stúlkurnar verða í vikutúna í Middlesborough og mun væntanlega leika við ensk lið. Það er enski leikmaðurinn í liði IBV, Karen Burek, sem liefur skipulagt ferðina til Englands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.