Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 3

Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 B 3 Bikardraumur fyrirliðanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Arnar Pétursson, fyrirliði Stjömunnar og Sebastian Alexand- ersson, fyrirliði Fram, bítast um bikarinn á morgun. Nær Fram að vinna bikarinn í fyrsta sinn eða Stjarnan í þriðja sinn? Morgunbiaðið/Ami Sæberg 'irliði Vals, takast á um bikarinn var orðið bikarmeistari. ■ 2 KA m PUNKTAR ■ VALUR varð fyrsti bikar- meistarinn í handknattleik karla, árið 1974. Ármann varð fyrst kvennaliða til að fagna bikarmeist- aratitli, árið 1976. ■ VIKINGUR og Valur hafa oftast allra liða orðið bikarmeistarar karla, eða sex sinnum hvort lið. Fram hefur hins vegar unnið flesta bikartitla kvenna, 12 alls. ■ FRAM, sem leikur nú til úrslita við Stjörnuna, hefur aldrei orðið bikarmeistari í handknattleik karla. Stjaman hefur tvisvar fagn- að sigri í bikarkeppninni. ■ GRÓTTA/KR, sem mætir Val í úrslitum í kvennaflokki, hefur aldrei orðið bikarmeistari og reyndar aldrei leikið til úrslita áður. Valur hefur tvisvar orðið bikar- meistari kvenna. ■ BJARNI Viggósson og Valgeir Ómarsson munu dæma úrslitaleik kvenna á laugardaginn. Óli Olsen veður eftirlitsmaður á leiknum, sem hefst kl. 13.30 í Laugardalshöll. ■ STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæma úrslitaleik karla, en Hákon Sigurjónsson verður eft- irlitsmaður HSI. Leikur Fram og Stjömunnar hefst kl. 17.00 í Höll- inni. ■ FRAMARAR verða með opið hús í f þróttahúsinu við Safamýri frá kl. 13.30. Það mun Ijómsveit sjá um upphitun, boðið verður upp á and- litsmálun og annað fyrir leikinn. ■ FYRIRLIÐ AR liðanna sem leika í bikarúrslitum karla og kvenna hafa aldrei leikið til úrslita í bikarkeppn- inni áður. Þau eru Sebastian Álex- andersson, Fram, Amar Péturs- son, Stjömunni, Brynja Steinsen, Val, og Ágústa Bjömsdóttir, Gróttu/KR. FYRIRLIÐAR Stjörnunnar og Fram, þeir Arnar Pétursson og Sebastian Alexandersson, eiga tvennt sameiginlegt. Báðir hafa leikið með ÍBV og einnig eru þeir báðir að leika sinn fyrsta bikarúrslitaleik á morgun í Laugardalshöllinni er Stjarnan og Fram mætast. Framarar hafa aldrei orðið bikar- meistarar karla en þann titil hafa StjömupUtar hlotið tvisvar sinn- um. Keppt hefur ver- ValurB 'ð Um bikarinn * Júnatansson karlaflokki frá árinu skrifar 1974 er Valur fagnaði bikarmeistaratitlin- um. Afturelding er núverandi bikar- meistari en liðið hefur nú verið slegið út af Stjömunni í 8 liða úrslitum. „ÞAÐ er draumur allra handknatt- leiksmanna að spUa úrslitaleik í bik- arkeppninni," sagði Sebastian Alex- andersson, markvörður og fyrirUði Fram. „Þessi draumur er nú að ræt- asthjámér. Égvarað æfameð Eyja- mönnum, þegar þeir urðu bikar- meistarar 1991, en var ekki gjaldgengur með A-liðinu, vegna þess að ég hafði spUað með B-liðinu í bikamum fyrr um veturinn. Ég var kominn með litlu tána inn í 14 manna hópinn þegar kom að bikarúrslita- leiknum og það vom mikU vonbrigði að fá ekki að vera með.“ - Hver er sterkasta hlið Stjöm- unnar? „Það er tvímælalaust vamarleik- urinn og markvarslan. Þessir hlutir hjálpa auðvitað en koma ekki til með að ráða úrslitum. Það er dagsformið sem ræður úrslitum. Það lið sem ger- ir færri mistök fær bikarinn." Sebastian sagðist bíða spenntur eftir úrshtaleUuium. „Ég hlakka til að takast á við þetta stóra verkefni sem bikarúrsUtaleikur er. Við fömm í leikinn til að gera okkar besta og sjá- um hvað miklu það skilar.“ - Ertu ánægður með árangur Fram-liðsins í vetur? „Já, ég er það. Við emm með rúm- lega 50 prósent árangur í deildinni, emm í þriðja sæti núna og komnir í úrslit bikarkeppninnar. Eg held að það sé alveg viðunandi miðað við það sem búist var við af okkur fyrir mót- ið. Okkur var spáð fimmta sætinu í deildinni í haust,“ sagði Sebastian. Nota tækifærið og njóta þess Amar Pétursson, fyrmm leikmað- ur ÍBV, tók undir þau orð Sebastians, að þessi leikur væri toppurinn á keppnistímabilinu. „Þessi leikur er stærsti viðburður hvers tímabUs og ég bíð spenntur eftir honum. Þetta er alveg nýtt fyrir mér að fá tækifæri til að leika bikarúrslitaleik í HöUinni. Ég hef auðvitað horft á þessa leiki í gegnum tíðina og alltaf blótað mér í sand og ösku fyrir að vera ekki að spila þessa leiki sjálfur. Nú er um að gera að nota tækifærið og njóta þess,“ sagði Amar. Hann sagðist nokkuð ánægður með gengi Stjömunnar í vetur. „Við töpuðum fjómm af fyrstu fhnm leikj- unum í deUdinni, en síðan kom gott tímabil, þar sem við töpuðum ekki ellefu leikjum í röð. Við töpuðum síð- an fyrir HK í síðustu umferð, en við látum HK ekki tmfla okkur í undir- búningnum fyrir bikarúrslitaleikinn. Eflaust vomm við farnir að hugsa um bikarúrslitaleikinn þegar við mætt- um HK.“ - Hver er sterkasta hlið Fram ? „Fram er með mjög gott lið, góða leikmenn í hverri stöðu. Liðið spilar agaðan sóknarleik og kröftugan varnarleik. Það em fáir veikleikar í liðinu, en við höfum verið að finna þessa örfáu veikleika og ætlum að reyna að nýta okkur þá í leiknum. Við ætlum okkur bikarinn,“ sagði Arnar. FOLK ■ SVÍINN Ulf Schefvert hefur verið ráðinn þjálfari þýska hand- knattleiksliðsins Wuppertal. Hann var meðal annars landslið- sþjálfari Dana, þegar íslendingar lögðu þá eftirminnilega í tvígang - í seinna skiptið í Álaborg 1. des- ember 1996 og tryggðu sér rétt til að leika á HM í Kumamoto. ■ TONI Kukoc, körfuknattleiks- maður frá Króatíu, var í vikunni seldur til Philadelphia 76ers frá Chicago. I staðin fékk Chicago, Larry Hughes, en hann þykir af- ar efnilegur bakvörður. ■ MEÐ brottför Kukoc frá Chicago fer einn síðasti leikmað- ur hins sigursæla liðs félagsins undir stjórn Phils Jacksons, sem vann NBA-titilinn fjórum sinnum á sex árum. ■ DENNIS Rodman komst upp á kant við dómara strax í öðmm leik sínum með Dallas í NBA- deildinni, í 112:99 í tapleik gegn Millwaukee. Var hann rekinn af velli eftir að hafa veist að dómara leiksins og sent honum tóninn. Rodman var dæmdur í eins leiks bann og sektaður um 700.000 fyr- ir atvikið. ■ HERBERT Arnarson skoraði 15 stig í fyrrakvöld þegar Donar Groningen vann góðan útisigur á Landstede Hammers, 61:89, í úr- slitakeppninni um hollenska meistaratitilinn. Donar náði þar með Landstede að stigum en liðin eru í 5.-6. sæti. ■ FALUR Harðarson lék í 17 mínútur og skoraði 3 stig þegar lið hans, Honka, sigraði PuHu, 96:87, í finnsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik á þriðjudagskvöld- ið. Honka jók þar með enn for- skot sitt í deildinni. ■ MARC Overmars gefur ekki kost á sér í landslið Hollands sem mætir Þjóðverjum í vináttulands- leik í næstu viku. Overmars seg- ist hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess að hann vilji jafna sig betur af meiðlsum í ökkla sem plagað hafa hann upp á síðkastið. ■ ALLAN Smart, sem er nýkom- inn í lið Watford eftir langvarandi meiðsli, segist mjög spenntur fyr- ir því að leika við hlið Heiðars Helgusonar í framlínu liðsins. Smart segir að Heiðar dragi stöð- ugt að sér athygli varnarmanna og þar með fái aðrir sóknarmenn liðsins frelsi sem þeir eigi að geta nýtt sér. ■ BJARKI Gunnlaugsson heldur sæti sínu í framlínu Preston sem mætir Bury í ensku 2. deildinni um helgina. Bjarki meiddist á fæti gegn Chesterfíeld um síð- ustu helgi en í ljós kom að meiðsl- in væru ekki alvarleg. ■ SIGURÐUR Jónsson er byrjað- ur að æfa með Dundee United á ný eftir að hafa legið rúmfastur í tæpa viku. Ólíklegt er talið að hann verði kominn í nógu gott út- hald til að spila gegn Alloa í skosku bikarkeppninni um helg- ina. ■ ÍSLANDS- og bikarmeistarar KR sigruðu Breiðablik, 1:0, í æf- ingaleik í Reykjaneshöllinni í fyrradag og var markið sjálfs- mark Kópavogsbúa. Þetta var fyrsti leikur KR-inga í ár. Sláðu í gegn á Skaga Árgjald kr. 15.000 ef þú býrö á höfuðborgarsvæðinu. Siá nánari upplvsinqar: www.aknet.is/levnir Golfklúbburinn Leynir, Akranesi, símar 431 2711 og 863 4985. Nýtt íþróttahús í Dormagen ÁKVEÐIÐ hefur verið að hefja byggingu á íþróttahúsi í Dor- magen í Þýskalandi sem verður heimavöllur „íslendingaliðs- ins“ Bayer Dormagen í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Stefnt er að því að húsið verði tilbúið á næsta ári. Reyndar er þetta ekki í fyrsta skipti sem áform eru uppi umbyggingu íþróttahúss í bænum, en að sögn Guðmundar Þ. Guðmunds- sonar, þjálfara Bayer Dormagen, þá er alvara í málinu nú og menn trúa að húsið muni rísa á tilsettum tíma. M.a. hefur ver- ið skrifað undir samninga þess efnis. Núverandi íþróttahús í Dormagen er fyrir löngu úr sér gengið og svarar fáum kröfúm sem gerðar eru til íþróttahúsa. Auk þess tekur það fáa áhorfendur, aðeins á milli 1.200 og 1.300. Þá er húsið svo lítið að engin aðstaða er til sjónvarps- upptöku og útsendinga. „Nýja húsið á eftir að breyta gríðarlega milklu hjá félaginu, ekki síst stórbæta aðgengi og aðstöðu áhorfenda, við getum fengið mun fleiri áhorfendur auk þess sem við getum tekið á móti myndatökumönnum sjónvarps, en eins og aðstaðan er nú er vart mögulegt að senda beint út frá Ieikjum okkar,“ sagði Guðmundur. Barátta Svíþjóðar og Rússlands ísland ekki með í úrslitakeppni 6 af 9 stórmóta í handknattleik frá 1994 1. sæti 2. sæti Frakkland Rússland 3. sæti Rúmenia 4. sæti Júgóslavfa 5. sæti Spánn 1 íslands JB Króatía <%m Spánnk Spánn mmmmmmmm Rússlánd / \ Jrw / N Júgóslavía ' Spánn Frakkland Þýskaland Júgóslavía Spánn jk M Frakkland Ungveijal. H Ísíand HM 1990 Tékkó- slóvakíu OL i HM 19921 1993 í f Barcelona Svíþjóð HM EM OL | HM 1995 I 1996 I 1996 B1997 í í [ EM I HM 998 I 1999 Portúgal . EKKI . “ MEÐ “ Atlanta Japan á italíu Egypta- landi 13.-16. sæti „ EKKI . EKKI J “ MEÐ “ MEÐ ' EKKI « EKKI MEÐ “ MEÐ Þjóðirnar sem keppa á ÓL í Sidney: Spánn Frakkland Júgóslavía Þýskaland Slóvenía Sviþjóð Rússland Frakkiand Slóvenia Spánn Þýskaland Júgóslavia Kúba S-Kórea Egyptaland Túnis Ástralía

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.