Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 6
6 D FÖSTUDAGUR18. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF fylgd tónlistargyðjunnar hartnær áttatíu ár nornnum „Félagsskapurinn hefði getað verið verrí,u segir Andrés Kol- beinsson um lífsförunaut sinn, tónlistina. Sveinn Guðjónsson spurði líka um aðra förunauta eins og nóturnar og ljósmyndirnar. f >- 6 - P‘cmf ff P JfPffP ff P ff / din,-------------pp ff V ff f ---------------- SEGJA má að Andrés Kolbeinsson hafi drukk- ið í sig tónlistina með móðurmjólkinni. Móðir hans, Helga Jónsdóttir, spilaði á orgel og hún kenndi syni sínum nótnalestur. Eftir það varð ekki aftur snúið. „Móðir mín lærði á orgel í Reykjavík, hjá Brynjólfí Þorláks- syni, sem var um tíma organisti í Dómkirkjunni," sagði Andrés, sem fæddist á Þorvaldsstöðum í Hvít- ársíðu 7. september 1919. „Eg er alinn upp í Stóra-Ási, sem er kirkjujörð og mamma spilaði á orgelið við messur. Mamma kenndi mér að þekkja nótumar og spila þessar helstu æfingar á org- el. Ég fór síðan að reyna að spila á öll hljóðfæri sem hönd á festi og eignaðist snemma harmónikku. A hana spilaði ég fram eftir ung- lingsárunum og spilaði þá oft á böllum í sveitinni. Faðir minn, Kolbeinn Guð- mundsson, var bóndi í Stóra-Ási og stundaði jafnframt járnsmíðar. Hann smíðaði skeifur undir flesta hesta í sveitinni, að því er sagt var. Ég var elstur fimm systkina og undir eðlilegum kringumstæð- um hefði ég líklega fetað í fótspor föður míns og orðið bóndi. En um tvítugsaldurinn átti ég við heilsu- leysi að stríða og þótti því ekki mikið búmannsefni. Þess vegna flutti ég til Reykjavíkur árið 1942.“ í læri hjá Urbancic Eftir komuna til Reykjavíkur fór Andrés að læra rafvirkjun, en tónlistin togaði alltaf í hann og hann hóf jafnframt nám í Tónlist- arskóla Reykjavíkur. „Ég fór að læra á píanó og kennari minn var Victor Urbancic, al- veg einstakur maður og frábær kennari. Stuttu eftir að ég kom til Reykjavíkur eignaðist ég klarin- ett og fór fljótlega að spila með Lúðra- sveit Reykjavíkur eftir að hafa fengið tilsögn í nokkrar vikur hjá öðrum klarinettuleikara í sveitinni. Urbancic hvatti mig eindregið til að skipta um hljóðfæri og fara að læra á óbó enda var ekki vitað nema um einn annan óbóleikara í Reykjavík á þessum tíma, en þó nokkrir sem spiluðu á klarinett. Á þessum árum tók Tónlistarfé- lagið þátt í að starfrækja Hljóm- sveit Reykjavíkur og svo vildi til að það vantaði tilfinnanlega blás- ara, þar á meðal óbóleikara. Og málin þróuðust þannig að Tónlist- arfélagið bauðst til að styrkja mig til að fara til Englands í tónlistar- nám og þangað fór ég haustið 1944.“ Tónlistamám i Manchester Leið Andrésar lá til Manchester og með í för var Árni Björnsson tónskáld og hófu þeir félagar nám við „The Royal Manchester Coll- ege of Music“. Síðar bættist Egill Jónsson í hópinn. „í Manchester var ég í þrjú ár, sem þætti ekki langur tími við tónlistarnám nú á dögum, en þótti hæfilegur tími þá og tók ég burt- fararpróf árið 1947. Kennari minn Hold l*ft silck pointad on sk/n and brat iha stick with rijhj stick moving tjradually iowarcjj and away from tip oj left stick. K Ht Press »troo htxrd’4 making a vary short buzz. * # Hold I*ft stick pointad on akin, rub the. ati<k to and fro witft right stick. Andrés þykir hreinn listamaður í nótnaskrift. Hér hefur hann skrifað nótur fyrir slagverk úr tónverki eftir Áskel Másson. hét Evelyn Rothwell, eiginkona John Barbirolli, hljómsveitarstjóra hjá Hallé-hljómsveitinni, sem var mjög þekktur hljómsveitarstjóri á þeim tíma. Hann var aðlaður og þar með fékk frúin titilinn Lady Barbirolli. Það var gott tónlistar- uppeldi fólgið í því að sækja tón- leika hjá Hallé-hljómsveitinni, en við sóttum alla tónleika hljóm- sveitarinnar sem við gátum og höfðum efni á, en einhvern afslátt fengum við nú á þessa tónleika. Þessi hljómsveit þykir ein besta hljómsveit í Bretlandi. Þegar ég kom til Manchester var stór hluti af miðborginni í rúst vegna stríðsins, heilu göturnar voru bara tígulsteinahrúgur og hálffallnir veggir. Hið sama má segja um London, en þangað kom ég í fyrsta skipti um páska 1945. Þá komu V-skeytin frá Þýskalandi á hverjum morgni milli klukkan fimm og sex og mað- ur heyrði sprengjudynkina í fjarska." Efnilegur óbóleikari Sagt var frá tónlistarnámi Andr- ésar í íslensku dagblaði árið 1946 undir fyrirsögninni: „Fjöldi ís- lenskra tónlistarmanna við nám í Englandi." I ^greininni segir meðal annars: „I morgun fór héðan flugleiðis til Englands ungur hljómlistar- maður, sem stundað hefur nám í óbóleik um tveggja ára skeið í Englandi, en dvaldi hér heima skamma stund í sumarleyfi. Þessi ungi maður er Andrés Kolbeinsson frá Stóra-Ási í Borg- arfirði. Fyrstu stríðsárin fluttist hann til Reykjavíkur, stundaði tónlistarnám í hjáverkum sínum og lék jafnframt bæði í Lúðrasveit Reykjavíkur og Hljómsveit Tón- listarskólans. Stjórn Tónlistarfélagsins þótti Andrés vera svo efnilegur tón- listarmaður, að hún ákvað að styrkja Andrés til framhalds- náms í Englandi með það fyrir augum, að hann gerðist kennari við Tónlistarskólann að námi loknu. Nú hefir Andrés stundað óbóleik um tveggja ára skeið sem sérnámsgrein við tónl- istarskólann í Manchester. Hann mun ljúka prófi á næsta ári. Aðalkennari Andrésar er frú Evelyn Barbirolli, einn þekktasti óbóleikari Bret- lands og kona hins heims- Andrés Kolbeinsson með klarin- ettu í höndum og nótnablað fyr- ir framan sig. þekkta hljómsveitarstjóra Barbir- olli, sem stjórnar Hallé-hljóm- sveitinni, einni þekktustu hljómsveit Breta. Frúin leikur jafnan óbósóló með þeirri hljóm- sveit.“ Ekki hægt að lifa af tónlistinni Á námsárum sínum í Englandi kvæntist Andrés enskri konu, Ber- yl Joy, og eiga þau tvö börn en þau skildu eftir 12 ára hjónaband. Eftir heimkomuna 1947 reyndi hann að útvega sér einhverja vinnu við tónlistina þótt ekki væri um auðugan garð að gresja. „Þeir hjá Tónlistarfé- laginu greiddu götu mína og ég komst í Ú tvarpshlj ómsveit- ina, sem þá var enn- þá starfandi, en stjórnandi hennar var Þórarinn Guð- mundsson tón- skáld.“ - Var hægt að lifa ein- göngu af tónlistinni hér á landi á þessum ár- um? „Nei, það var ekki Rótgrónir hönnuðir sýna á tískuvikunnni í Bella Center en í ■ Oksnehallen sýna ungu hönnuðirnir vetrartískuna. Sigrún Davíðsdóttir skoðaði sig um í gömlu kjöt- miðstöðinni og gaf framleiðslu þriggja ís- lenskra fyrirtækja sérstakan gaum, ^ í GÖMLU kjötmiðstöðinni í ^ Kaupmannahöfn hefur blóðið í verið þvegið af gólfunum og dZÍ í staðinn er komið stórt, opið H og bjart rými, sem fer einkar vel utan um unga og fram- ,-sækna hönnun eins og þá sem nú fyllir sali. í hópnum eru íslensku snidqsmJM og ævintýrakjol fyrirtækin SVO, Spaksmanns- spjarir og The Collection Reykja- vík og glöggt sést að þau eru fyllilega með á nótunum. Síð- astnefnda merkið sýnir kvenföt í fyrsta skipti, en SVO er einnig með karlmannsföt. íslendingar í spennandi hópi Á tískusýningunni fyrir blaða- menn, áttu Spaksmannsspjarir fimm framkomur og SVO eina. Frá þeim fyrri voru flíkurnar flokkaðar undir þjóðlegan stíl, „Folklore", þar sem mikið bar á litum, útsaumi og öðru þjóðlegu ívafi. Spaksmannsspjarir sóru sig þó fremur í ætt við ævintýri, með viðamiklum kjólum, sem minntu á hátískuföt sökum þess hve mikill saumaskapur er á þeim. Þessar flíkur má setja saman á margan hátt, hneppa stykkjum af og á, svo úr einni flík verða margar. Litirnir eru áfram náttúrulitir, en með pastel líka. Efnin eru mjög spennandi, bæði léreft og gervi- leður, svo þau spanna vítt svið. SVO sýndi hvítt sett, stílhreint pils og jakka undir þemanu „Polar“. Firna einföld snið í hugvits- samlegri útfærslu minnir á ákveðna tegund japanskrar framúrstefnutísku og vísast ekki tilviljun að SVO selur þangað. Þeim var nýlega boðið að vera með á sýningu í Japan, sem stórt tískurit þar efndi til. Fötin fylgja naumstefnunni, ein- falt en með spennandi atriðum eins og sérkennilega heillandi hálsmáli, sem rennur út í eitt með kraganum. Naumstefna Hönnun hinnar sænsk-japönsku El- isabet Yanigasawa birtist í látleysi formanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.