Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
■ FIMMTUDAGUR 23. MARS
BLAÐ
Ágúst taki
við kvenna-
landsliðinu
HANDKNATTLEIKSSAMBAND fslands á í við-
ræðum við Ágúst Jóhannsson, þjálfara Vals, um
að hann taki við þjálfun kvennalandsliðsins.
Viðræður hafa átt sér skamman aðdraganda en
sterkar líkur eru á að Ágúst taki við starfinu af
Tlieódóri GuðHnnssyni, sem er með samning út
maf. Ef það gengur eftir mun Ágúst ekki þjálfa
bikarmeistara Vals næsta vetur. Theódór hefur
þjálfað kvennalandsliðið undanfarin þrjú ár en
Herdís Sigurbergsdóttir var nýverið ráðin að-
stoðarþjálfari landsliðsins til tveggja ára.
■-------------:
ggggj
Sentinel
Leika
fyrir
iuktum
dyrum
ENGUM áhorfendum verður
hleypt inn á fyrri kvennalandsleik
Bandaríkjanna og íslands í knatt-
spyrnu sem fram fer í Charlotte
þann 5. apríl.
Þjóðimar mætast aftur í sömu
borg þremur dögum síðar og þá
verður leikið á aðalleikvangi borg-
arinnar, Ericsson Stadium, sem
tekur 50 þúsund áhorfendur.
Bandaríkjamenn ætla greinilega
ekki að dreifa aðsókninni á leikina
og vilja einbeita sér að því að fá
sem flesta á þann síðari. Fyrri leik-
urinn fer fram á velli Davidson-
háskóla. Forsala á síðari leikinn er
haflnn, en talsverður áhugi er fyr-
ir bandariska iandsliðinu heima-
fyrir enda er það heimsmeistari.
Logi Ólafsson, nýráðinn lands-
liðsþjálfari, hefur valið fjórtán ný-
liða í æflngahóp fyrir landsleikina
tvo við bandarfsku heimsmeistar-
ana.
Heimir
með
KA
HEIMIR Örn Ámason,
handknattleiksmaðurinn
efnilegi úr KA, getur leikið
með Akureyrarliðinu í úr-
slitakeppninni. Hann er
ekki með slitin liðbönd í
fingri eins og óttast var
heldur með rifnar vöðva-
festingar og getur leikið
með spelku, að því er fram
kemur á heimasfðu KA.
Jóhann Gunnar Jó-
hannsson hefur náð sér af
meiðslum og verður með
KA gegn FH á sunnudag-
inn en tvísýnt er um Lars
Walther sem er meiddur á
öxl. Halldór Sigfússon og
Geir Aðalsteinsson verða
ekkert með KA-liðinu í úr-
slitakeppninni.
Það ríkti mikill fögnuður í herbúðum Stoke eftir sigurinn á Rochdale í gær og Ijóst að félagið var
komið í úrslitaleik á Wembley í fyrsta sinn í 28 ár. Hér gleðst Guðjón Þórðarson knattspyrnustjóri
yfir sigrinum ásamt John Rudge aðstoðarþjálfara í leikslok.
■ Fjórtán nýliðar/B3
Guðjón og læri-
sveinar á Wembley
GUÐJÓN Þórðarson og lærisveinar hans í enska knattspyrnulið-
inu Stoke City öðluðust í gærkvöldi rétt til að leika til úrslita í bik-
arkeppni neðrideildarliða við Bristol City á Wembley, þjóðarleik-
vangi Englendinga 16. apríl nk.
Tæplega sautján þúsund áhorf-
endur sáu Stoke bera sigurorð
af Rochdale, 1:0, í síðari viðureign
liðanna í úrslitarimmu norðurriðils
á Britannia-leikvanginum í Stoke-
on-Trent í gærkvöldi. Fyrri leik
liðanna lauk með sigri Guðjóns og
lærisveina, 3:1. Urslitaviðureignin
á Wembley fer fram hinn 16. apríl
nk. Andstæðingurinn, Bristol City,
er þremur sætum fyrir neðan
Stoke í ensku 2. deildinni. Liðin
hafa mæst einu sinni áður á yfir-
standandi keppnistímabili. Þá
skildu liðin jöfn á heimavelli Stoke.
Upphaflega var ráðgert að liðin
mættust aftur í gærkvöldi, en
leiknum var frestað vegna viður-
eignar Stoke við Rochdale.
Stoke City lék síðast á Wembley
árið 1972. Þá bar liðið sigurorð af
Chelsea í úrslitaleik deildabikar-
keppninnar. Lokatölur urðu 2:1, en
til gamans má geta að Gordon
Banks stóð þá í marki Stoke, en
hann var þá aðalmarkvörður Eng-
iendinga.
Brynjar Björn Gunnarsson lék
allan leikinn fyrir Stoke í gær-
kvöldi. Bjarni, sonur Guðjóns
knattspyrnustjóra, kom inn á sem
varamaður fyrir Arnar Gunnlaugs-
son á 57. mínútu.
Leikmönnum Rochdale var mik-
ið í mun að skora snemma til að
eygja von um farseðil til Wembley,
en vörn Stoke stóð fyrir sínu.
Leikurinn var í járnum fram að
leikhléi, en eftir það dró til tíðinda.
Peter Thorne, sem skoraði mark
Stoke fjórum mínútum fyrir leiks-
lok, slapp með skrekkinn þegar
hann braut illa á andstæðingi sín-
um, Evans að nafni, en dómarinn
virtist ekki taka eftir brotinu.
Bæði lið fengu eitt kjörið mark-
tækifæri áður en Thorne gerði
eina mark leiksins. Það gerði hann
eftir aukaspyrnu frá manni leiks-
ins, Graham Kavanagh.
BEINA BRAUTIN FRAMUNDAN HJÁ ÞÓREYJU EDDU/B2