Morgunblaðið - 23.03.2000, Síða 4
FRJALSIÞROTTIR
Fimmtíu kíló
af gulli í gull-
pottinum
ALÞJÓÐA frjálsíþróttasambandið
hefur ákveðið að hætta að greiða
eina milljón dala, rúmlega 70 millj-
ónir króna, í verðlaun til þeirra
''•sem standa uppi sem sigurvegarar
í Iok árlegrar „gullmótaraðar“
sem fram fer í sumar. Þess í stað
skipta sigurvegaramir á milli sín
50 gullstöngum. Þetta þýðir að
verðmæti verðlauna minnkar um
helming og ekki er víst að allir
íþróttamenn sætti sig við það.
Keppt hefur verið á „gullmótun-
um“ undanfarin ár, en mótaröðin
samanstendur af sex mótum í
Evrópu og síðan einu lokamóti í
lok keppnistúnabilsins. Fyrirfram
eru ákveðnar nokkrar greinar í
karla- og kvennaflokki og takist
einhverjum iþróttamönnum að
sigra í þessum tilteknu greinum
skipta þeir gullpottinum á milli
sín. Undanfarin tvö ár hefur ekki
verið gull til skiptanna í lok
keppnistúnabilsins heldur rúm-
lega 70 milljónir króna. Nú hefur
hins vegar verið ákveðið að hverfa
til þess fyrirkomulags sem var á
verðlaunagreiðslum áður en bein-
harðir peningar komu í spilið.
Fyrsta gullmótið verður 23. júní
í París en lokamótið fer fram á
Ólympíuleikvanginum íBerlúi 1.
september, hálfum mánuði áður
en Ólympiuleikarnir hefjast í
Sydney í Ástralíu.
Johnson frá-
bær í S-Afríku
|ichael Johnson, heimsmethafi
og ólympíumeistari í 200 og
400 m hlaupi karla frá Bandaríkjun-
um, sýndi það sl. helgi að hann er
langt í frá að gefa eftir á hlaupa-
•^brautinni. Á móti í Pietersburg í S-
Afríku hljóp hann 200 m á 19,71 sek-
úndu sem er fjórði besti tími sem
náðst hefur í greininni frá upphafi.
Um leið var þetta besti tími hann
hefur náð í greininni frá því hann
setti heimsmet sitt á Ólympíuleikun-
um í Atlanta 1996. Auk heimsmets-
ins hefur Johnson áður hlaupið á
19,66 en þriðja besta tímann í grein-
inni á Namibíumaðurinn Frankie
Fredericks, 19,68, en þeim tíma náði
hann er Johnson setti heimsmetið í
Atlanta.
„Tíminn sýnir að ég er á réttri leið
fyrir Ólympíuleikana,“ sagði John-
son er hann hafði kastað mæðinni, en
hlaupið var fyrsta keppnishlaup
hans í undirbúningnum fyrir Ólymp-
íuleikana í Sydney í september.
Hann vill ekki útloka þann mögu-
leika að keppa bæði í 200 og 400 m
hlaupi á leikunum, en líklegra þykir
þó að hann taki aðeins þátt í lengra
hlaupinu. „Mig langar til þess að
hlaupa 400 metrana á skemmri tíma
en 43 sekúndum, ég veit að ég get
það við réttar aðstæður og mig lang-
ar til þess áður en ég hætti,“ sagði
hinn 32 ára gamli Texasbúi á dögun-
um. „í 200 metrunum á ég ekkert
eftir að sanna, hvorki fyrir sjálfum
mér né öðrum.“
Reuters
Michael Johnson byrjar árið vel ef marka má 200 m hlaupið í S-
Afríku um liðna helgi. Nú hyggst hann sauma að besta tíma
sem náðst hefur í 400 m hlaupi á móti í S-Afríku á morgun.
Maurice Greene
vill ævilangt bann
| andaríkjamaðurinn Maurice
Greene, heimsmethafinn í 60
og 100 m hlaupi karla og heims-
meistarinn í 100 og 200 m hlaupi,
segir að hiklaust eigi að dæma
íþróttamenn í lífstíðar keppnisbann
verði þeir uppvísir að notkun ólög-
legra lyfja. Greene segir það vera
einu leiðina til þess að koma mönn-
um í skilning um hversu alvarlegt at-
hæfi þeirra sé og að íþróttir hljóti um
leið álitshnekki. Um leið sé þetta ein
áhrifamesta leiðin til þess að koma í
veg fyrir að ungir íþróttamenn noti
ólögleg lyf til að auka styrk sinn.
„Með því að dæma strax í lífstíðar-
bann sendum við íþróttamönnum
skýr skilaboð; það er ekki þörf fyrir
ykkur í íþróttum."
Greene hefur í hyggju að bæta
eigið heimsmet í 100 m hlaupi um 3/
100 úr sekúndu á árinu og hlaupa á
9,76 sekúndum.
„Margir telja að ég geti ekki
hlaupið svo hratt sem ég geri án þess
að nota ólögleg lyf. Þeir sem halda
því fram mega sitja við sinn keip. Eg
veit hins vegar hvað ég er að gera
auk þess sem ég hef fjölmörg lyfja-
próf mér til stuðnings. Þau sýna öll
að ég hef hreinan skjöld," segir
Maurice Greene.
Olympíumeistarinn færð-
ur niður um styrktarflokk
DONOVAN Bailey, ólympíu-
meistari í 100 m hlaupi karla,
hefur verið færður niður um
einn styrktarflokk hjá kanadísk-
um íþróttayfirvöldum. Ástæðan
er sú að Bailey er ekki lengnr á
meðal átta bestu í heiminum á
sl. ári. Þar af leiðandi telja
kanadisk íþróttayfirvöld ekki
réttlætanlegt að hann njóti A-
styrks. Þarf Bailey þvi að sætta
sig við B-styrk.
A-styrkurinn nemur rúmlega
40.000 króna en B-styrkurinn er
sex þúsund krónum lægri. Einn-
ig er til C-st.yrkur sem er
nokkru lægri og eru alls 62
íþróttamenn á þessum styrkjum.
Bailey hefur ekki náð sór á
strik undanfarin tvö ár eftir að
hann meiddist á hásin er var að
leika sér í körfuknattleik við fé-
laga sína á æfingu. Meðal ann-
ars hefur honum ekki tekist að
hlaupa 100 metrana á skemmri
t.íma en 10 sekúndur í t.vö ár.
Hann segist þó vera staðráðinn
að komast í fyrri æfingu áður en
kemur að Ólympfuleikunum í
Sydncy í haust og freista þess
að verja tign sína frá síðustu
leikjum er hann vann og setti
heimsmet, 9,84 sekúndur sem
stóð þar til i fyrrasumar.
Ekki er talið að Bailey verði á
flæðiskeri staddur fjárhagslega
þótt styrkur hans lækki. Hann
hefur fyrir löngu efnast, vel á
íþróttaiðkunn sinni og þeirri
staðreynda að hann var um
nokkurra ára skeið hraðskreið-
asti hlaupari heims.
Reynir Þór
hættir
hjáKA
REYNIR Þór Reynisson,
sem leikið hefur í marki
KA í handknattleik undan-
farin tvö ár, mun ekki
leika áfram með Iiðinu
næsta vetur. Reynir, sem
er 27 ára, hyggst flytja á
höfuðborgarsvæðið og
segir að þijú iið hafi þegar
haft samband við sig, en
hann vildi ekki nafngreina
þau. Hann sagðist ekki
gera ráð fyrir að taka
ákvörðun um hvaða lið
hann gangi til liðs við fyrr
en í aprfl. Reynir, sem Iék
áður í marki Víkings og
Fram, segir að hann sé
einnig opinn fyrir að leika
erlendis og meðal annars
hafi hann fengið fyrir-
spurn frá danska liðinu
FIF fyrr í vetur. „Ég hef
nú ekki trú á að ég fari til
FIF enda hefur liðið ekki
haft samband á ný. Eg hef
verið mikið meiddur und-
anfarna tvo vetur, slitið
krossband og meiðst í baki,
og hef þvf ekki haft tæki-
færi á að sýna mikið hvað í
mér býr.“
FOLK
■ GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spymustjóri Stoke, vonast til þess
að geta tryggt sér Richard Dryden
að láni frá Southampton út leiktíð-
ina áður en lokað verður fyrir fé-
lagaskipti á Englandi í dag. Dryden
er vamarmaður og var um tíma hjá
Stoke sl. haust og lék þrjá leiki með
félaginu áður en hann meiddist og
hélt til Southampton á nýjan leik.
■ NÍGERÍSKA knattpymusam-
bandið segist reiðubúið að kæra
enska knattspyrnufélagið Chelsea
til alþjóðaknattspyrnusambands-
ins, FIFA, ef það gefur Celestine
Babayaro ekki lausan í mikilvæga
viðureign Nígeríu og Zimbabwe í
undankeppni Ólympíuleikanna.
■ CHELSEA neitar að gefa m'ger-
íska bakvörðinn lausan og máli sínu
til stuðnings bendir félagið á að
ekki sé um fullgildan A-landsleik að
ræða, þar sem liðin í umræddri
keppni era skipuð leikmönnum 23
ára og yngri.
■ BOLTONvarð fyrir áfalli í sigur-
leiknum gegn Sheffield United í
ensku 1. deildinni í íyrrakvöld.
Dean Holden meiddist illa þremur
mínútum eftir að hann kom inn á
sem varamaður og er jafnvel fót-
brotinn og Paul Warhurst fékk
slæman skurð á kálfa og vom
saumuð í hann 20 spor.
■ JOE Co/e, einn efnilegasti knatt-
spymumaður Englands, hefur
framlengt samning sinn við West
Ham til 2004. Cole er aðeins 18 ára
en hefur vakið mikla athygli með
West Ham og hefur unnið sér sæti í
enska 21-árs landsliðinu.
■ DANNY Wilson hefur verið sagt
upp starfi sínu sem knattspymu-
stjóri Sheffíeld Wednesday,
næstneðsta liðs ensku úrvalsdeild-
arinnar. Wednesday hefur verið í
öðru tveggja neðstu sæta deildar-
innar í allan vetur og tap gegn
botnliði Watford síðasta laugardag
var komið sem fyllti mælinn.
■ PETER Shreeves, fyrrverandi
þjálfari Wednesday, stýrir því til
loka tímabilsins, en hann hefur
áhuga á að halda áfram þótt ekki
séu miklar líkur til þess.