Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.2000, Blaðsíða 1
BRANPARAR | [þrautir! Igátur | |LEIKIR j Heimilisfang: MYNDASÖGUR MOGGANS Morgunblaðinu Kringlunni 1 103 Reykjavík ✓ GLEÐILEGA PASKA! MYNDASÖGUR Moggans óska lesendum sínum, stórum og smáum, nær og f]ær gleðilegrar páskahátíðar. M Hvað gerðist um pásk- Jesús Kristur ana? PÁSKAR eru ein helsta hátíð kristinna manna. Þá minnast þeir þess, er Jesús reis upp frá dauðum á þriðja degi eftir að hann var krossfestur. Pálmasunnudagur: (Tilheyr- ir ekki beinlínis páskunum en er viss aðdragandi þeirra.) Jes- ús kemur til Jerúsalem sunnu- daginn fyrir páska. Skfrdagur (fímmtudagur): Síðasta kvöldmáltíðin (brauð og vín). Jesús borðar í síðasta sinn með lærisveinum sínum. Júdas Ískaríot svíkm- Jesú í Getsem- ane-garðinum í hendur æðstu presta gyðinga. Föstudagurinn langi: Jesús var sakaður um svik við Róm- verja, sem réðu yfir Israel á þessum tíma, og rómverski landshöfðinginn Pontíus Pílat- us yfirheyrði hann. Jesús var dæmdur til að krossfestast á hæðinni Golgata (Hauskúpu- stað), rétt hjá Jerúsalem. Þeg- ar hann var dáinn var líkið lagt í klettagröf. Páskadagur (sunnudagur): Á sunnudagsmorgni, þriðja degi eftir dauða Jesú, sáu menn að gröfin hans var tóm. Jesús hafði risið upp frá dauðum. SAS. Unginn á páskaegginu ÞESSA líflegu mynd af unga uppi á myndarlegu páskaeggi sendi Sigríður María, 6 ára, Barmahlíð 56,105 Reykjavík. krossfestur SVEINN Alexander Sveinsson var nemandi í 7 ára bekk Landakots- skóla í fyrra þegar hann gerði þessa fmu mynd af Jesú á krossinum. kaj, ^í‘> ^5a.r«t er gWua'fiþ/ji \,QÍ koÁbít' t j SöuindtiCtihi I OQÚjtCO(\OuW\ etipfoég \ QÓdó m / ti A pásk unum Á PÁSKUNUM er gaman því þá leika allir saman inni og úti og allir eru með. Svo skrifaði Þeódóra A. Thoroddsen fyrir ári þegar hún var í 7 ára bekk Landakotsskóla. Krossarnir voru þrir ÞEGAR Jesús var krossfestur á Golgata-hæð voru tveir ræn- ingjar krossfestir með honum, annar til hægri, hinn til vinstri handar honum. Höfundur myndar: Adam, 7 ára, öðrum bekk Landakotsskóla veturinn 1999-2000. Hvað merkir INRI mr, 3. ÁiS j&am (Mrtíu.r m ^ i Witiaiit 7 Ljósið skín í kirkjuglugganum ÞESSA látlausu en áhrifaríku mynd gerði Torfi Karl Ólafsson, 7 ára, nemandi í Landakotsskóla veturinn 1999-2000. FYRIR ofan höfuð hins krossfesta Jesú stóð á latínu, grísku og hebresku þessi áletrun: Jesús frá Nasaret konungur gyðinga. Á latínu (tungumáli Rómverja), sem var kirkjumálið um aldir, er það skammstafað INRI. Höfundur myndar: Hörður, 7 ára, nemandi í öðrum bekk Landakotsskóla veturinn 1999-2000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.