Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 4
4 C MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 C 5 HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Okkur hungraði í sigur Þetta er alveg rosalega skemmti- legt,“ sagði Norðmaðurinn Kjetil Ellertsen, mitt í fögnuðinum með félögum slnum í leikslok gegn Fram, en Kjetil flytur á ný til Nor- egs á næstunni eftir að hafa leikið í tvö ár með Haukum. „Á fyrstu leik- tíð minni í Noregi varð ég norskur meistari og nú þegar ég er að ljúka mínu síðasta keppnistímabili sem leikmaður verð ég meistari á Islandi, það er ekki hægt að hugsa sér það betra,“ sagði hinn glaðbeitti Norð- maður. „Þeir voru kannski ekki margir sem reiknuðu með að við ynnum, en trúin var fyrir hendi innan liðsins og ekki síst innan félagsins. Okkur hungraði í sigur, hugsunin um tap í þessu einvígi við Fram kom aldrei upp í huga okkar.“ Ellertsen segir að fjórði leikurinn hafi verið erfiðari en önnur og þriðja viðureignin, lið Fram hafí leikið bet- ur en áður. „En þetta var skemmti- legt og sigurinn féll okkar megin, það er fyrir öllu.“ Ellertsen segir að Haukaliðið hafi ekki verið tilbúið í fyrsta leikinn, sem það tapaði. „Eftir leikina gegn Aft- ureldingu var eins við næðum ekki að einbeita okkur nógu vel og því fór sem fór. Kannski var það vegna þess að við áttum von á að Fram-liðið yrði auðveldari andstæðingur en raun varð á. Að minnsta kosti vorum við ekki klárir í þann slag, en tókum okkur síðan saman og snerum blað- inu við. Einbeittum okkur að því að berjast og leggja okkui- fram í hvern leik. Síðan skipti miklu máli að vinna þriðja leikinn á útivelli. Síðan vorum við staðráðnir í að vinna í dag á okkar heimavelli fyrir framan frábæra stuðningsmenn og það tókst,“ sagði Kjetil Ellertsen, markahæsti leikmaður Hauka í síð- asta leiknum. Baumruk beið í tíu ár „Ég hef beðið eftir þessari stund í tíu ár,“ sagði Petr Baumruk, helsta driffjöður Hauka í úrslitaleikjunum, þar sem hann fór oft á kostum í vörn sem sókn. Baumruk fagnaði innilega í leikslok, jafnt með samheijum sín- um sem stuðningsmönnum. Hann hefur leikið með Haukum í tíu ár og nú loks stóð hann á efsta þrepi hér á landi. Á árum áður var hann átta sinnum meistari í Tékkóslóvakíu og átta sinnum bikarmeistari með Dukla Prag. „Þetta var skemmtilegt og jafn- fraint mjög erfitt, en að leikslokum var þetta svo sannarlega þess virði,“ sagði Baumruk sem lék alla leikina fjóra nær því frá upphafi til enda í vöm sem sókn, en síðustu ár hefur Baumruk lagt minni áherslu á sókn- arleikinn. Hann sýndi hins vegar í úrslitakeppninni að hann hefur engu gleymt. „Það hefur verið mjög erfitt að leika nærri því sextíu mínútur í hverjum leik, ég er úrvinda og sem betur fer fyrir mig er komið sumar- frí,“ sagði Baumruk sem verður 38 ára 25. júlí nk. „Eftir að Óskar Ár- mannsson meiddist kom hins vegar ekkert annað til greina en að snúa sér að sóknarleiknum að fullum krafti. Annars er hópurinn góður hjá okkur sem sýnir sig best í því að eftir áramót höfum við leikið fimmtán leiki og aðeins tapað þremur þeirra. Árangurinn er frábær og allir sem standa að félaginu leggja sig full- komlega fram.“ Baumruk segist ekki ætla að hætta núna. „Ég ætla að leika með félaginu á næsta ári, eftir það ætla ég að hætta. Handknattleikur er bara svo skemmtileg íþrótt að það er erfitt að hætta, ekki síst þegar mað- ur stendur uppi sem sigurvegari,“ segir Petr Baumruk. Bið Hauka áenda FIMMTÍU og sjö ára bið Hauka eftir íslandsmeistaratitiinum í handknattleik karla lauk á sunnudagskvöldið. Þá vann lið félags- ins Fram þriðja sinni í fjögurra leikja einvígi liðanna um meistara- titilinn. Lokatölur leiksins voru 24:23. Þegar lokaflautið gall ætl- aði allt um koll að keyra í gamla íþróttahúsinu við Strandgötu þar sem bekkurinn var þétt setinn, svo sannarlega ekki í fyrsta sinn en e.t.v. í síðasta sinn, á handboltaleik. Fögnuður Hauka var fölskvalaus, yngri félagsmenn jafnt sem þeir eldri, auk leik- manna féllust í faðma og gleðitárin streymdu niður kinnar. Gleðin og stemmningin var slík og við lá að dauðir hlutir þessa húss, sem kalla má Mekka handknattleiksins í Hafnarfirði, fengju líf um stund og tækju þátt í gleðinni. Ivar Benediktsson skrifar Hámarkinu var náð er Halldór Ingólfsson og Petr Baumruk tóku við íslandsbikarnum úr hendi formanns Hand- knattleikssamban- dsins, Guðmundar Ingvarssonar, um leið og sigursöngur félagsins, „Haukar eru alltaf best- ir“ hljómaði um salinn, hvorki í fyrsta sinn né í það síðasta þetta kvöldið. Nú voru Haukar svo sann- arlega bestir, verðskuldaðir sigur- vegarar. Við tók enn meiri dans, ennþá fleiri faðmlög og kossar, söngur og þegar út úr íþróttahús- inu var komið og út í bjart vor- kvöldið logaði himinninn af ljósum flugelda sem skotið var upp, sigur- vegurunum til heiðurs. Já, það ríkti sannkölluð hátíðarstemmning í Hafnarfirði að kvöldi annars dags páska, bið „litla bróðurins" í Firð- inum var á enda. Fjörutíu mínútum áður en leik- urinn hófst var íþróttahúsið við Strandgötu orðið fullt upp í rjáfur af áhorfendum og þulur leiksins bað þá með jöfnu millibili að þjappa sér saman, fleiri þyrftu að komast að. Þetta væri gleðistund, hver sem úrslitin yrðu og því gætu áhorfendur vel sætt sig við þrengslin. Þröngt máttu sáttir sitja og einnig standa. Og salurinn var rauður og hvítur því stuðn- ingsmenn heimaliðsins voru í mikl- um meirihluta og þeir byrjuðu há- tíðina snemma með trommuslætti og söng. Mikill minnihluti fylgdi Fram að málum, sennilega voru stuðningsmenn félagsins búnir að gefa vonina upp á bátinn, þrátt fyrir að langt í frá væru öll sund lokuð. Loks hófst leikurinn, hitinn var orðinn gríðarlegur í salnum og svitinn bogaði ekki síður af þeim sem stigu dansinn utanvallar, en þeim er voru í eldlínunni innan hans. Leikmenn Fram urðu að vinna, annars var vonin um íslandsmeist- aratitilinn úti. Eftir sigur í fyrsta leik einvígisins snerust vopnin í höndum þeirra líkt og gegn Val fyrir tveimur árum. Nú var þeim nauðugur sá kostur að leika til sig- urs. Og þeir tefldu strax fram leynivopni sínu, 3-3 vörn, eftir að SOKNARNYTING ftnnar leikur liðanna í úrslitunum, leikinn í Hafnarfirði 20. apríl 2000 Haukar Fram Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 13 25 15 24 28 49 52 F.h 11 63 S.h 10 57 Alls 21 25 44 23 43 48 44 10 Langskot 5 3 Gegnumbrot 1 2 Hraðaupphlaup 3 2 Horn 1 6 Lina 5 5 Víti 6 Róbert Gunnarsson hafði skorað fyrsta mark leiksins af línunni eft- ir línusendingu Kenneths Ellert- sens. Sóknarleikur Hauka hikstaði, vörn Fram kom leikmönnum Hauka í opna skjöldu. Á þá voru dæmd skref eftir langa og tafsama sókn. Töf var dæmd á Fram og baráttan var í algleymi. Kjetil Ell- ertsen jafnaði metin en Fram komst yflr á ný, 2:1, með þrumu- skoti Gunnars Bergs Viktorssonar, sem slapp úr gæslu Halldórs Ing- ólfssonar. Haukar léku sem fyrr 5+1 vörn og „klipptu" Gunnar Berg út. Leynivopn Fram virkaði hins vegar ekki sem skyldi og leik- menn bökkuðu fljótlega aftur í 5+1 og síðar 6-0 vörn með örstutt- um útúrdúr í byrjun síðari hálf- leiks. Flata 6-0 vörnin gekk best. Haukar létu byrjunina ekki slá sig út af laginu, leikmenn breyttu stöðunni úr 2:2 í 6:2 og síðar 9:4 og 11:5. Benti margt til að leikmenn Fram væru ráðþrota líkt og í öðr- um og þriðja leik einvígisins. Vörnin og markvarslan batnaði er á leið og sóknarleikurinn lifnaði um stund og gestirnir klóruðu í bakkann fyrir hlé, þá stóð 13:10, Haukum í vil. Heimamenn voru líflegri í upp- hafi síðari hálfleiks, héldu þriggja marka forskoti, 15:12, en þá komu fram hættumerki í sókninni sem tók að hiksta gegn 6-0 vörn Fram. Sóknarleikur Fram varð einnig hreyfanlegri og um leið opnuðust fleiri glufur á vörn Hauka, skyndi- lega hafði Fram jafnað, 15:15. Eft- ir það var leikurinn meira og minna í járnum en frumkvæðið var þó ævinlega Haukamegin. Leik- menn Fram þurftu að hafa meira fyrir hverju marki, tækist þeim að jafna þá var eins og heilladísirnar ætluðu þeim ekki að komast yfir. Sigurviljinn og baráttugleðin var Haukamegin, Fram-liðið átti á brattann að sækja og svo fór að síðasta sókn þess, á síðustu and- artökum leiksins, rann út í sandinn og þar með möguleikinn á að jafna og kría út framlengingu. Það varð Fram hins vegar endanlega að falli, en í sjálfu sér þá tapaði liðið ekki einvíginu í þessum leik, held- ur fyrr í einvíginu í öðrum og þriðja leik. Þá hafði Fram frum- kvæðið en tókst ekki að halda sínu striki. Vörnin var ekki eins sterk og áður og sóknarleikurinn oft óttalegt hnoð í bland við ráðleysi. Ákveðnar lausnir á vandanum fundust í síðari hálfleik í fjórða leiknum, þá var það hins vegar orðið um seinan. Sigurviljinn, gleðin og ákveðnin réð því hvar Islandsmeistarabikar- inn verður geymdur næsta árið. Þannig vörðu þeir Fimmtudaginn 20. apríl, annar leikur: Magnús Sigmundsson, Hauk- um, 18 (þar af 8 til mótherja); 6 langskot, 1(1) eftir gegnumbrot, 2(1) eftir hraðaupphlaup, 4(1) úr homi 5(5) af línu. Sebastian Alexandersson, Fram 3; 2 langskot, 1 úr horni. Magnús Erlendsson, Fram, 12 (þar af 6 til mótherja); 2(1) lang- skot, 1(1) eftir gegnumbrot, 1 hraðaupphlaup, 3(1) úr horni, 5(3) af h'nu. Laugardaginn 22. apríl, þriðji leikur: Sebastian Alexandersson, Fram, 9/1 (þar af fór eitt aftur til mótherja); 4 langskot, 2 (1) úr homi, 1 af línu, 1 hraðaupphlaup, 1 vítakast. Magnús Erlendsson, Fram, 3 (þar af fóru tvö aftur til mót- herja); 2 (1) langskot, 1 (1) af línu. Magnús Sigmundsson, Hauk- um, 18/1 (þar af fóru átta aftur til mótherja); 8 (4) langskot, 4 (2) gegnumbrot, 3 (2) úr horni, 1 hraðaupphlaup, 1 af línu, 1 víta- kast. Jónas Stefánsson, Haukum, 1/1. Mánudaginn 24. apríl, fjórði leikur: Magnús Sigmundsson, Hauk- um, 15/1 (þar af 9 til mótherja); 6(2) langskot, 5(5) eftir gegnum- brot, 1 hraðaupphlaup, 1(1) úr horni, 1(1) af línu, 1 vítakast. Jónas Stefánsson, Haukum, 1 (það fór aftur til mótherja); 1(1) eftir gegnumbrot. Sebastian Alexandersson, Fram, 14 (þaraf 5 til mótherja); 3 langskot, 2(2) eftir gegnumbrot, 1 hraðaupphlaup, 3 úr horni, 5(3) af línu. SOKNARNYTING Þriðji leikur liðanna f úrslitunum, leikinn í Reykjavík 22. apríl 2000 Fram Haukar Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 12 10 22 24 29 53 50 F.h 11 34 S.h 16 42 Alls 27 25 44 28 57 53 51 4 Langskot 9 6 Gegnumbrot 5 2 Hraðaupphlaup 2 1 Horn 6 4 Lína 3 5 Víti 2 SOKNARNYTING Fjórðl leikur liðanna í úrslitunum, leikinn í Hafnartirði 24. apríl 2000 Haukar Mörk Sóknir % Fram Mörk Sóknir % 13 23 11 25 24 48 57 F.h 10 24 42 44 S.h 13 25 52 50 Alls 23 49 47 7 Langskot 5 2 Gegnumbrot 3 4 Hraðaupphlaup 2 2 Horn 3 5 Lína 4 4 Víti 6 Petr Baumruk fór á kostum í úrslitarimmunum við Fram. Hér fagnar hann og fyrirliðinn Halldór Ingólfsson með hinn langþ^jjj^ Smart Óskar Ármannsson missti af úrslitaleikjunum gegn Fram Ekkert lið stendur og fellur með einum manni ÓSKAR Ármannsson varð að bíta í það súra epli að fylgjast með félögum sínum af varamannabekknum í leikjunum fjórum gegn Fram, en Óskar meiddist illa á hné í undanúrslitaviðureigninni gegn Aftureldingu. Margir töldu að Haukarnir mættu ekki við því að missa Óskar, enda hefur hann stýrt sókn Haukaliðsins eins og herforingi á tímabilinu og oftar en ekki verið sá leikmaður í liðinu sem hefur skipt sköpum. Óskar fór því úr hlut- verki leikmannsins í aðstoðarþjálfarastarfið i leikjunum gegn Fram og þar lét hann til sín taka. Það var auðvitað mjög svekkjandi að missa af þessum leikjum, enda er ég búinn að fá að spila sæmilegt hlut- verk í liðinu í allan vet- ur. Ég reyndi að koma mér í gang en við sáum strax að það gekk ekki. Ég ákvað því að kúpla mig alveg út úr liðinu og reyna frekar að hjálpa Guðmundi með stjórnina. Það er auðvitað mitt hlutverk sem aðstoðar- þjálfari, en ég hef kannski gert það á öðrum vettvangi eða inni á vellinum í vetur.“ Sást þú þetta í spilunum í haust að þið gætuð farið alla leið? „Við sáum þetta kannski fyrir tveim- ur árum. Við ætluðum að koma á seinna ári og taka titil. Það var markmiðið að koma á óvart í fyrra, sem við og gerð- um, en dugði ekki til. Það virtist framan af ekki vera neinn titill í spilunum en svo spiluðum við mjög öflugan hand- bolta alveg frá því í desember. Alltaf voru menn að tala um að við kæmum á óvart en það á ekki að gera það hjá þeim sem hafa séð til okkar. Við höfum lagt áherslu á að það sé liðsheildin sem skapar svona árangur. Við vissum að við værum ekki með neinar stórstjörn- ur í liðinu og því reyndum við að virkja sem flesta í hópnum. Það gekk eftir og það hefur sýnt sig að þetta er hóp- íþrótt." Baumruk ætlaði sér að vinna titilinn Nú töluðu margir um að þegar þú meiddist ættu Haukar ekki lengur möguleika á að vinna titilinn, liðið stæði ogfélli með þér. „Það stendur ekkert lið og fellur með einum leikmanni og þá sérstaklega lið sem stendur uppi sem íslandsmeistari. Það lið hlýtur að hafa fleiri góða menn. Ég hef spilað mikilvægt hlutverk í sókn en við höfðum menn eins og Kjetil og Baumruk sem gátu leyst þetta hlut- verk. Kjetill er leikstjórnandi að upp- lagi og kann því rulluna og Baumruk ætlaði sér að vinna titilinn. Hann sá að þetta var kannski hans síðasti mögu- leiki og viljinn hjá honum og fleirum í liðinu fór langt með að vinna þennan fjórða leik,“ sagði Óskar. Erum með jafnbesta liðið „Ef við hefðum spilað annan og þriðja leikinn af sama krafti og við gerðum í þessum leik hefði þetta kannski farið öðruvísi," sagði Sebastian Alexandersson, fyrirliði og markvörður Fram. Hvað gerðist hjá ykkur eftir fyrsta leikinn. Pað var eins og þið misstuð sjálfstraustið og liðið virtist á köflum hálfandlaust? „Sjálfstraustið var ekki farið og liðið var ekki andlaust. Liðið er búið að vera svona í allan vetur. Staðreyndin er sú að Haukarnir eru bestir í dag og það sést bara á því að þeir unnu þetta ein- vígi 3-1. Þrátt fyrir þessi úrslit held ég að við Framarar getum verið stoltir af því að vera með jafnbesta Iiðið á ís- landi. Við urðum bikarmeistarar, áttum möguleika á deildarmeistaratitlinum allt þar til þrjár umferðir voru eftir og vorum svo í úrslitum um íslandsmeist- aratitilinn. Við mættum bara mjög frísku liði sem var á toppnum á réttum tíma en við höfum verið í toppþjálfun í tíu mánuði.“ Eftir tapið á heimavelli gegn Hauk- um íþriðja leiknum hlýtur að hafa farið svolítið um ykkur? „Við höfðum alltaf trú á að við gætum unnið þennan fjórða leik og við hefðum getað stolið framlengingu þarna undir lokin. Það sem gerir kannski útslagið í þessum viðureignum er varnarleikur- inn, sem hefur verið okkar helsti styrk- leiki í vetur. Oleg Titov er nánast ekk- ert búinn að æfa í vetur og hann var orðinn gríðarlega þreyttur. Þar af leið- andi náði hann ekki að binda vörnina saman eins og hann hefur gert í vetur. Þá misstum við Pazoulis úr vörninni, sem var auðvitað skarð fyrir skildi.“ Margir halda því fram að Peter Baumruk hafi farið langt með að tryggja Haukunum sigurinn í þessu einvígi. Ykkur gekk illa að eiga við „gamla manninn"? „Það getur enginn neitað því að hann Guðmundur Karlsson stýrði Haukalið- inu til íslandsmeistara í lokaleik sínum aðum nnufrið GUÐMUNDUR Karlsson stjórnaði Haukaliðinu í síðasta sinn á mánudagskvöldið en tveggja ára samningur hans við Hafnarfjarð- ariiðið er runninn út. Við starfi Guðmundar tekur Viggó Sigurðsson en framtíð Guðmundar í þjálfarastarfinu er óráðin. Vitað er að FH og Stjarnan hafa rætt við Guðmund og eftir þennan frábæra árangur á leiktíðinni er ekki ósennilegt að fieiri félög líti hýrum augum tii hans. kann þetta allt saman. Staðreyndin er sú að við spiluðum allt of aftarlega á hann. Við vorum með lágvaxinn mann á móti honum og hann fékk að koma of nálægt vörninni. Við vorum að reyna að treysta á að ég tæki eitthvað af skotun- um frá honum en ég gerði það ekki og því fór sem fór. Þetta hefði verið allt önnur viðureign ef við hefðum haft Pazouliz því hann hefði þá tekist á við Baumruk. Það má heldur ekki gleyma því að Haukarnir lentu í áfalli þegai- þeir misstu Óskar, en hann spilar ekki bæði vörn og sókn eins og Pazoulis." Verða einhverjar breytingar á leik- mannahópi Fram? „Ég veit ekki hvernig samningamálin standa hjá liðinu. Ég held samt að flest- ir séu með samning. Mér skilst að búið sé að ganga frá því að Fedukin verði endurráðinn og ef við höldum sama mannskap verðum við áfram með jafn- besta liðið á landinu," sagði Sebastian. Guðmundur var að vonum í sjöunda himni þegar Morg- unblaðið ræddi við hann skömmu eftir að hans menn höfðu tryggt sér íslandsmeistaratitilinn - fyrsti þjálfarinn sem færir Haukum titil- inn í 57 ár. „Mér líður eðlilega rosalega vel á þessari stundu. Ég er búinn að vera með frábæran hóp í höndunum og strákarnir hafa sýnt mikinn karakter og vilja í að vinna þennan titil." Óraði þig fyrir því að þið gætuð verið í þessum sporum núna? „Já, ég sagði í samtali við ákveð- inn mann, sem ég vil ekki nefna núna, í byrjun febrúar að við yrð- um Islandsmeistarar í vor. Það var kannski draumur en ég hafði alltaf trú á því. Ég skal samt viðurkenna að eftir að ég missti Óskar út fyrir úrslitarimmuna missti ég kannski aðeins trúna í smá tíma eins og strákarnir en við pökkuðum okkur saman og kláruðum þetta.“ Þú sagðir í fjölmiðlum í vetur að þú einblíndir á úrslitakeppnina og kæmir með þína menn upp á rétt- um tíma? „Allt okkar leikskipulag er búið að slípast og það hefur tekið tíma að fá menn til að skilja hvaða bolta við þurfum að spila til að ná ár- angri. Við erum nánast með skyttulaust lið en við höfum spilað taktískt mjög góðan bolta sem hef- ur tekið tíma að móta og ekki síð- ur líkamlega formið. Við vorum að vinna þennan titil á mjög góðri liðsheild. Við spiluðumsterka vörn, markvarslan var fín og sóknarleik- urinn var skynsamur." Var ekki gríðarlegt áfall að missa Óskar meiddan út fyrir úr- slitaleikina? „Eftir fyrsta leikinn á móti Fram, þar sem við steinlágum, varð ég að finna einhverja lausn. Eina sem ég gerði var að setja Bamrauk og Kjetil inn í það leik- skipulag sem hefur verið í gangi og menn yrðu að njörva sig niður í það og bíða þolinmóðir eftir sínum færum. Það var auðvitað draumur að ná að byggja liðið upp andlega á tveimur dögum eftir skellinn í fyrsta leiknum og þar má segja að karakterinn í hópnum hafi sýnt sig rækilega. Það er auðvitað varla hægt að taka einhverja leikmenn út en ég verð samt að nefna Peter Baumruk. Hann er að mínu mati einn besti leikmaðurinn sem hefur spilað hér á landi og ég vissi að hann myndi klára þetta fyrir mig.“ Óskar Armannsson áfram hjá Haukum ÓSKAR Ármannsson hefur ákveðið að vera áfram í herbúðum ísl- andsmeistai-a Hauka. Hann mun leika með liðinu á næsta tímabili og verða Viggó Sigurðssyni innan handar með þjálfunina líkt og hann var hjá Guðmundi Karlssyni í vetur. Óskar hefur leikið með Haukum síðustu tvö tímabil en lék á árum áður með FH-ingum. Til Hauka kom hann frá Þýskalandi þar sem hann var við nám og lék með Osweil í 3. deildinni. Hvarflaði aldrei að mér að segja upp Hvernig leið þér þegar það spurðist út að skipta ætti um þjálf- ara eftir tímabilið? „Mér leið náttúrlega ekki mjög vel. Maður veit hins vegar að þessi þjálfarabransi er þannig upp sett- ur að þegar samningi er lokið get- ur maður verið látinn fara. Það var. hins vegar mjög dapurt hvernig þetta mál atvikaðist fyrir alla sem komu að því. Ég var mjög ósáttur við þetta en það eina sem ég gerði var að ég gekk frá ákveðnum skilaboðum til stjórnarinnar hvernig vinnulag ég vildi hafa og ég vildi fá vinnufrið. Ég talaði að sjálfsögðu við leikmenn mína og þeir stóðu þétt að baki mér. Það hvarflaði aldrei að mér að segja upp. Ég ætlaði að klára mitt tveggja ára verkefni. Stefnan var að toppa í vor og það tókst mecT“ þessum hætti.“ Það hlýtur að vera gaman að skila Islandsmeistaratitli til Hauka og vera fyrstur til að gera það í heil 57 ár? „Það er ólýsanlegt. Það sem er frábært við þetta er að það er fullt af fólki sem er búið starfa öll þessi ár og að fórna ótal tíma í sjálf- boðavinnu. Þó svo að þetta mál hafi komið upp á milli mín og stjórnarinnar þá er fullt að frá- bæru fólki í kringum þetta og það á stóran hlut í þessum titli. Hauk- ar eiga frábæra framtíð. Þeir eru að fá nýtt hús. Það er mikil upp- byggingarstarfsemi hjá félaginu. 4. flokkur er íslands- og bikarmeist— ari í karlaflokki og þeir eru með fína flokka sem eru að koma upp. Framtíðin er því mjög björt og vonandi kveikir þessi titill enn meira í því,“ sagði Guðmundur Karlsson. Upp&ríwr t tt/tna S$0 2525 TBXtttvorp tú 110-713 RÚV281, 263 02 254 Þrefaldur 1. vinningur á laugardagfnn I Jokertólur vQcunnar 4 5 2 3 7 Fyrsti vinningur gekk út AÐALTÖLOR L-T 1 ) 20) 26) 3^)38) 44) BÓNUSTÖLUR __\ Alltafá ”3' 33^ >niöwikutlögum +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.