Morgunblaðið - 18.05.2000, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
ÍBV - Fylkir
Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum, 1. umferð,
fimmtudaginn 18. maí 2000 kl. 20.
Dómari: Kristinn Jakobsson.
Aðstoðarddmarar: Eyjólfur Finnsson og
Gunnar Gylfason.
IBV: Júgóslavarnir Goran Aleksic og Momir
Mileta koma ekki til landsins fyrr en á morgun.
Baldur Bragason tæpur vegna meiðsla.
Fylkir: Engin meiðsli og engin leikbönn.
Fyrri leikir: ÍBV hefur unnið alla 4 leiki lið-
anna í efstu deild, alla með einu marki.
■ Frægasta viðureign liðanna var í lokaum-
ferðinni 1993. ÍBV sigraði þá 1:0 í Eyjum með
marki Martins Eyjólfssonar 2 mínútum fyrir
leikslok. Þar með björguðu Eyjamenn sér frá
falli og sendu Fylki niður.
■ Bjarni Jóhannsson, sem stýrði IBV 1997-
1999, er nú þjálfari Fylkis. Aðstoðarþjálfari hans
og leikmaður er Sverrir Sverrisson, sem varð
íslandsmeistari með ÍBV1997.
Keflavík-
Breiðablik
Keflavíkurvöllur, 1. umferð, fimmtudaginn 18.
maí 2000 kl. 20.
Ddmari: Gylfi Þór Orrason.
Aðstoðarddmarar: Ólafur Ragnarsson og
Erlendur Eiríksson.
Keflavík: Eysteinn Hauksson er meiddur.
Breiðablik: Bjarki Pétursson og Marel Bald-
vinsson meiddir. Árni K. Gunnarsson og Krist-
ján Óli Sigurðsson í leikbanni.
Fyrri leikir: Félögin hafa mæst 30 sinnum í
efstu deild, fyrst 1971. Keflavík hefur unnið 15
leiki, Breiðablik 8 og 7 hafa endað með jafntefli.
Keflavík hefur skorað 53 mörk en Breiðablik 38.
■ Breiðablik vann síðast í Keflavík í efstu
deild árið 1983, þá 2:0. Af sex leikjum í Keflavík
síðan hafa heimamenn unnið 4 og 2 endað með
jafntefli. í fyrra unnu liðin sinn hvorn heimaleik-
inn og enduðu báðir 2:1.
■ Kristján Brooks skoraði bæði mörk Kefla-
víkur í leik liðanna í Keflavík í fyrra en Salih
Heimir Porca svaraði fyrir Breiðablik.
■ Óvæntustu úrslit í leikjum liðanna voru árið
1972 þegar Breiðablik vann í Keflavík, 4:3, en
Keflavík var þá íslandsmeistari frá árinu áður.
■ Árið eftir skildu liðin jöfn, 4:4, í Keflavík en
heimamenn voru þá orðnir íslandsmeistarar en
Blikar fallnir í 2. deild.
■ Breiðablik er með þrjá fyrrum Keflvíkinga í
sínum röðum, Kjartan Einarsson, Karl Finn-
bogason og Georg Birgisson. Enginn fyrrum
Bliki spilar með Keflavík.
skríð
Pippen kominn á
PORTLAND TrailBlazers og Los Angeles Lakers komust í lokaúr-
slit Vesturdeildar eins og flestir höfðu spáð eftir góða sigra í
fyrrinótt gegn Phoenix Suns og Utah Jazz. Sérfræðingar um í
Bandaríkjunum halda því flestir fram að þetta séu tvö langbestu
liðin og að sigurvegarinn í rimmu liðanna muni verða krýndur
meistari deildarinnar í júní.
Fimmti leikur Portland og Utah
var æsispennandi og skemmti-
legur. Utah hafði forystu nær allan
leikinn, en Portland
„ var aldrei langt und-
Valgeirsson an- Þegar um sex
skrifarfrá mínútur voru eftir
Bandaríkjunum Jazz sex s(jga
forystu, en Portland jafnaði, 71:71,
um þremur mínútum fyrir leikslok og
lokakaflinn var æsispennandi.
Scottie Pippen skoraði mikilvæg-
ustu körfu leiksins þegar þriggja
stiga skot hans rataði í körfuna þegar
sjö sekúndur voru eftir. Portland
náði eins stigs forystu með körfunni,
80:79, en Bryan Russell misnotaði
tvö vítaskot þegar þrjái- sekúndur
voru eftir og Portland marði sigur-
inn, 81:79.
Portland vann fjóra af fimm leikj-
um liðanna og virðist liðið nú vera að
ná sér á strik eftir slakan síðasta
kafla í deildarkeppninni. Scottie
Pippen var stjama leiksins og hefur
gildi hans fyrir liðið aukist eftir að úr-
slitakeppnin hófst. Hann skoraði 23
stig, tók níu fráköst og gaf átta stoð-
sendingar. „Ég lagði áherslu á það
við samherja mína fyrir leikinn að við
þyrftum á okkar besta leik að halda
til að slá þá út. Utah leikur svo agað
að það þýðir ekkert annað,“ sagði
kappinn í leikslok.
Karl Malone var stigahæstur Utah
með 27 stig. Ljóst er að aldurinn er
farinn að segja til sín hjá Utah. Jeff
Hornacek lék sinn síðasta leik fyrir
Jazz. Hann hefur verið ein besta
skyttan í deildinni um árabil og er
sjónarsviptir af honum.
LA Lakers tók Phoenix Suns í
karphúsið í fimmta leik liðanna í
Staples Center, 87:65. Lakers tók
leitónn strax í sínar hendur, náði tutt-
ugu stiga forystu um miðjan fyrri
hálfleik og setti síðan á sjálfstýringu
eftir það. Cobe Bryant var stigahæst-
ur Lakers með 17 stig, en Shaquille
O’Neal setti 15 og tók 21 frákast.
„Leikir okkar voru mjög jafnir í
deildarkeppninni, en í sjö leikja seríu
getur allt gerst og spumingin verður
hvemig liðin aðlaga sig milli leikja
eftir töp,“ sagði Bryant þegar hann
var beðinn að spá í framhaldið.
Phoenix liðið var óþekkjanlegt frá
fjórða leik liðanna á sunnudag þegar
það skoraði 71 stig í fyrri hálfleik. I
þessum leik varð staðan 49:23 og eru
þessi 23 stig lægsta hálfleiksskor í
sögu úrslitakeppninnar!
Útilíf hefur formlega sölu á hinum nýja og glæsilega KR-búningi á morgun, föstudaginn 19. maí kl. 14.
Af því tilefni mæta þeir Andrí Sigþórsson, Guðmundur Benediktsson, Haukur Ingi Guðnason og David Winnie
í verslunina milli kl. 14 -16 og árita KR-treyjurnar.
Fyrstu 100 seldu treyjunum fylgir frímiði á fyrsta heimaleik KR.
Fyrstir koma fyrstir fá!
UTILIF
\
'SáR*
A ■'JtvI ’l l/<
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
Póstsendum
samdægurs.