Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 2
1 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
1D
Morgunblaðið/Golli
Bjarki Pétursson sækir að marki Stjörnumanna. Ólafur Gunnarsson, Zoran Stojadinovic og Friðrik Ómarsson eru til varnar.
Stjömumenn lögðu
Blika að velli í Garðabæ
inginn
Veigar Páll Gunnarsson var hetja
Stjörnumanna, en hann skoraði
bæði mörk þeirra í 2:1 sigri gegn
Breiðabliki, það
Inaibiöra fyrra eftir frábært
Hinríksdóttir einstaklingsframtak
skrifar og það síðara úr víta-
spyrnu. Og hann var
kátur að leikslokum.
„Þetta var frábært. Við erum bún-
ir að vera óheppnir í sumar og það
hlaut að koma að þessu. Ég er mjög
ánægður með þetta. Við erum búnir
að vera mjög ákveðnir í að bæta
markaskorunina okkar og það tókst
í þessum leik. Við ætlum að halda
svona áfram og taka næstu leiki. Við
erum búnir að vinna tvo leiki í röð, í
bikarnum og í deildinni og það er
engin ástæða að hætta núna. Við
gerum okkur samt grein fyrir því að
við erum ennþá á hættusvæðinu í
deildinni en ég vona bara að við
séum búnir að opna markareikning
okkar upp á gátt og að sigurleikir
fylgi í kjölfarið,“ sagði Veigar Páll.
Klárum ekki færin okkar
Atli Knútsson, markvörður
Breiðabliks, var allt annað en sáttur
í leikslok. Hann varði á tíðum ágæt-
lega en tókst ekki að koma í veg fyr-
ir tvö mörk Stjömumanna.
„Það hefur loðað svolítið við okkur
í sumar að við erum ekki að klára
færin okkar og við verðum að fara
að fá færri mörk á okkur og skora
fleiri ef við ætlum að hífa okkur upp
af botninum og það hlýtur að vera
markmiðið. Þessi leikur var eríiður.
Stjörnumenn komu grimmir til
leiks, þeir voru að fara meira í tækl-
ingarnar og unnu vinnuna sina betur
en við og þess vegna unnu þeir. Svo
einfalt er það,“ sagði Atli Knútsson.
STJÖRNUMENN höfðu þrefalda ástæðu til að fagna eftir 2:1 sig-
ur á Breiðabliki í gær. Þetta var fyrsti sigur Garðabæjarliðsins í
sumar, það komst upp úr neðsta sætinu og skoraði helmingi fleiri
mörk en í leikjunum sex þar á undan.
Fyrri hálfleikurinn var mjög lífleg-
ur og oft á tíðum brá fyrir góð-
um tilþrifum hjá leikmönnum beggja
liða. Garðar Jó-
hannsson, sóknar-
maður Stjömunnar,
gaf tóninn strax á
sjöundu mínútu en
þrumuskot hans hafnaði í utanverðri
markstöng Blikamarksins. Tveimur
mínútum síðar átti Bjarki Pétursson
gott skot að marki Stjömunnar en
boltinn fór í slána og þaðan útaf. Á
eftir þessum skotum fylgdu aðrir
álíka þmmufleygar en markverðir
liðanna vora vel á verði og björguðu
meistaralega. Kjartan Einarsson og
Hreiðar Bjamason vora báðir nálægt
því að skora með skoti af löngu færi
en Stjörnumenn áttu hættulegri færi.
Boban Ristic skaut yfir úr úrvalsfæri
á 10. mínútu og rétt undir lok hálf-
leiksins brenndi Ásgeir Ásgeirsson
Stjömumaður af úr opnu færi.
Veigar Páll Gunnarsson nýtti aftur
á móti marktækifæri sitt sem hann
bjó til upp á eigin spýtur er hann lék
Blikavörnina grátt og skoraði
glæsimark. Stjörnumenn fóra því inn
í síðari hálfleikinn með sanngjama
forystu en liðið var mun beittara í
aðgerðum sínum og náði oft góðum
samleiksköflum.
Blikar komu mjög ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og pressuðu stíft
á Stjörnuvörnina. Heimamenn færðu
sig aftar á völlinn og við það náðu
Blikar betri tökum á miðsvæðinu.
Jöfnunarmark Blika virtist liggja í
loftinu og hefði átt að koma á 67. mín-
útu. Zoran Stjojadinovic, markvörð-
ur Stjömunnar, sá hins vegar til þess
að svo yrði ekki þvi hann varði í tví-
gang meistaralega vel, fyrst skot frá
Robert Russell og síðan frá ívari Sig-
urjónssyni en þriðja skotið í þessari
stórsókn Blika átti Hreiðar Bjama-
son sem skaut yfir opið markið.
Þarna fóra Blikar svo sannarlega illa
að ráði sínu og aðeins mínútu síðar
var þeim refsað grimmilega. Víta-
spyma var þá dæmd á Sigurð þjálf-
ara Grétarsson og úr spyrnunni skor-
aði Veigar Páll af öryggi. Það sem
eftir lifði leiks sóttu Blikar af miklum
móð. Varamaðurinn Þorsteinn
Sveinsson náði að minnka muninn
skömmu fyrir leikslok en nær kom-
ust Blikarnir ekki og urðu þar með að
játa sig sigraða í fyrsta sinn á
Stjörnuvelli í efstu deild.
Stjörnumenn voru vel að sigrinum
komnir. Þeir börðust hart fyrir hon-
um enda hefði ósigur í þessum leik
komið liðinu í mjög slæma stöðu. Sig-
urinn hlýtur að færa leikmönnum
Garðabæjarliðsins sjálfstraustið að
nýju og ef sú verður raunin getur
Stjarnan unnið hvaða lið sem er í
deildinni. Ragnar Amason tók stöðu
hins sterka Vladimirs Sandulovioc
sem var í banni og skilaði henni .
hreint frábærlega vel. Ragnar stöðv-
aði ófáar sóknir Blikanna og kom oft
til bjargar á síðustu stundu. Mark-
vörðurinn Zoran Stojadinovic átti
einnig frábæran leik en hann sýndi
frábær tilþrif á milli stanganna. Þá
var Veigar Páll Gunnarsson sprækur
í framlínunni og gerði marga góða
hluti. Liðsheildin var annars sterk
hjá Stjörnunni og með sama áfram-
haldi á liðið eftir að sanka að sér fleiri
stigum í deildinni.
Blikar náðu ekki að fylgja eftir
góðum sigri á ÍBV á dögunum og
þessi óstöðugleiki hlýtur að vera
áhyggjuefni fyrir Kópavogsliðið.
Blikar hefðu kannski átt skilið annað
stigið en einhvem veginn fannst
manni vanta meiri neista í liðið. Lyk-
ilmenn á borð við Kjartan Einarsson
og Hreiðar Bjarnason náðu sér aldrei
almennilega á strik og við því mega
Blikamir alls ekki, síst þegar margir
menn era frá vegna meiðsla. Banda-
ríkjamaðurinn Robert Russell lék
best í liði Breiðabliks ásamt Atla
Knútssyni markverði og þá kom ívar
Sigurjónsson frískur inn á í síðari
hálfleik.
^ Stjarnan 2:1 Breiðablik Jl ii
Leikskipulag: 3-5-2 Zoran Stojadinovic JHjD fslandsmótið í knattspyrnu Landssímadeildin, 8. umf. Leikskipulag: 4-4-2 Atli Knútsson JJI
Stjörnuvöllur mánudaginn 26. júní 2000 Aðstæður: Suðaustan 6 m/s, skýjað og 12 stiga hiti Völlurinn góður. Áhorfendur: 280.
Friðrik Ómarsson Ragnar Árnason fttfH Ólafur Gunnarsson fB Birgir Sigfússon Valdimar Kristófersson Hjalti Kristjánsson fd Sigurður Grétarsson Guðm. Örn Guðmundsson (Þorsteinn Sveinsson 55.) Hákon Sverrisson
Zoran Stocic Dómari: Ólafur Ragnarsson, Björn Jakobsson
Boban Ristic (ívar Sigurjónsson 65.) jR
(Baldur Bjarnason 73.) Hamar, 4. Robert Russell Jfl
Ásgeir Ásgeirsson |B Aðstoðardómarar: Haukur I. Jónsson Eyjólfur M. Kristinsson Kjartan Einarsson
(Björn Másson 69.) Árni K. Gunnarsson
Garðar Jóhannsson Skot á mark: 12-19 Hreiðar Bjarnason
(Ingólfur Ingólfsson 56.) Hornspyrnur: 1 - 9 Bjarki Pétursson
Veigar P. Gunnarsson jffi Rangstöður: 0 - 2
1:0 (31.) Veigar Páll Gunnarsson lék varnarmenn Breiðabliks sundur og saman í vítateig Breiðabliks og skoraði með föstu skoti neðst í hornið úr markteignum. 2:0 (69.) Veigar Páll Gunnarsson skoraði af öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd var á Sigurð Grétarsson fyrir að fella Ásgeir Ásgeirsson innan vítateigs. 2:1 (90.) Þorsteinn Sveinsson skallaði knöttinn í mark úr markteignum eftir hornspyrnu frá Kjartani Einarssyni.
Gul spjöld: Þorsteinn Sveinsson, Breiðabliki (60.) fyrir brot
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki (69.) fýrir brot,
l’var Sigurjónsson, Breiðabliki, (87.), fyrir leikaraskap
Bjarki Pétursson, Breiðabliki, (87.), fyrir mótmæli.
Rauð spjöld: Engin.
Maéstro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT